Pressan - 01.02.1990, Blaðsíða 4

Pressan - 01.02.1990, Blaðsíða 4
4 Fimmtudagur 1. febr. 1990 litilræði af dreifbýlispólitii Aö hugsa sér. Það eru ekki nema tæp tvöhundruð ár síðan fyrstu pólitíin litu dagsins Ijós á íslandi. Það er svo skrítið hvað maður hugsar lítið útí hlutina. Hvort sem þið trúið því eða ekki, góðir háls- ar, þá var um aldamótin 1800 engin lögregla á íslandi og hafði aldrei verið. Það var ekki fyrr en árið 1803, þegar Reykja- vík var gerð að sérstöku lögsagnarumdæmi með konungsúrskurði, að skipaðir voru tveir lögregluþjónar hér og báðir danskir. Þetta var, skilst mér, útaf einhverju pexi milli Ólafs Stephensens stiftamtmanns og Ludvigs Erichsens amtmanns í Vesturamti og taldi sá síðarnefndi að Ólafi tækist ekki með nokkru móti að halda uppi lögum og reglu í Reykjavík. Þar logaði allt í innbrotum, óreiðu og fylliríi. Það var fyrsta verk þessara fyrstu lögreglu- þjóna að beita sér fyrir því að stofnaðir voru tveir klúbbar, annar fyrir betri borgara og hinn fyrir menn af lægri stigum, og komst við þetta sæmileg regla á óregluna í Reykjavík, sem jókst að sjálfsögðu til muna við þessi umsvif og er haft fyrir satt að þessir tveir fyrstu lög- regluþjónar hafi valdið hinu mesta fjaðrafoki í Reykjavík þarna rétt eftir aldamótin 1800. Manni kemur þetta svona í hug þessa dag- ana þegar ekkert lát er á æsifréttum af lög- regluliði Bolungarvíkur sem einmitt saman- stendur — einsog frumherjasveitin — af tveim lögreglumönnum. Svo mikið kveður að þessari lögreglusveit um þessar mundir að varla kemst annað að í ís- lenskri þjóðmálaumræðu. íslenska þjóðin hefur að vísu löngum látið lögreglumál í Bolungarvík sig miklu skipta enda hafa þau stundum þótt í skrautlegra lagi, en stundum, einsog núna, bregður svo við að hinn almenni fréttaneytandi hættir að geta gert sér glögga grein fyrir því um hvað málið snýst. Einsog fyrr segir samanstendur lögreglulið Bolungarvíkur af tveim mönnum og verður það helst skilið af fréttum að annar sé í leyfi til vors en hinn í veikindafríi. Lögreglulið Bolungarvíkur getur, skilst manni, með engu móti unað því að ísafjarðar- lögreglan bætist í hópinn, hvorki þeir sem eru veikir, í fríi, eða við störf. Yfirvaldið vill hinsvegar að til bráðabirgða hjálpist Bolungarvíkurlögreglan og ísafjarðar- lögreglan að við að halda uppi lögum og reglu í Bolungarvík og á ísafirði. ' Hið harðsnúna lögreglulið Bolungarvíkur vill ekki una því að ísafjarðarlögreglan hjálpi þeim að skakka leikinn ef til tíðinda dregur í Bolung- arvík og síst af öllu vill Bolungarvíkurliðið leyfa ísfirðingum að „njóta nærveru sinnar", einsog það er kallað. Að sögn yfirvaldsins, Péturs Kr. Hafstein, var hugsunin sú að ísafjarðarlögreglan kæmi til liðs við Bolungarvíkurlögregluna, eftir að ann- ar lögregluþjónninn í Bolungarvík væri kominn í veikindafrí og hinn í orlof, en þessu vilja Bol- víkingar ekki una og skutu á borgarafundi og samþykktu að mótmæla harðlega. Á yfirvaldinu er helst að skilja að honum hefði þótt æskilegt að stofna til samvinnu milli lögregluliðs ísafjarðar og lögregluliðs Bolung- arvíkur, sem er annarsvegar í orlofi og hinsveg- ar í veikindafríi, en þessu vilja Bolvíkingar ekki una af ótta við að samvinna þessi gæti breyst í „samruna" einsog það er kallað. Mér skilst að vinnutilhögun á lögreglustöð- inni í Bolungarvík sé sú, að jafnan sé þar helm- ingur lögregluliðsins á vakt í einu, en þegar annar lögreglumaðurinn er kominn í veikinda- frí verður allt lögregluliðið á vakt, þ.e.a.s. þegar vakt er staðin. Þegar hinsvegar svo er komið að annar helmingur lögregluliðsins er í veikindafríi og hinn helmingurinn í orlofi munu vaktirfalla nið- ur. Og þarmeð eru úr sögunni skilyrði Bolvík- inga til að láta öllum illum látum og brjóta lög og reglur, því enginn verður til að hafa hendur í hári þeirra, passa þá, færa þá í járn og leiða þeim fyrir sjónir muninn á réttu og röngu. Og öll íslenska þjóðin stendur á öndinni útaf þessu stórmáli sem vafalaust verður ekki hægt að leysa nema með handafli. Er það ekki með ólíkindum hvað tveir lög- gæslumenn geta valdið miklum taugatitringi meðal þjóðarinnar? En það er víðar óöld í lögreglumálum en í Bolungarvík. í Stykkishólmi er vinnueftirlitið búið að reka löggæslumennina útaf lögreglustöðinni vegna ófullnægjandi vinnuskilyrða. Nú hefur lögreglan í Stykkishólmi fimm fer- metra til umráða og símsvara sem tekur skila- boð ef um nauðgun, morð eða íkveikju er að ræða. Eins er hægt að hringja til Grundarfjarðar ef lífi manns er ógnað. En ef marka má fjölmiðla þá eru „margar hendur á lofti að leysa málin". Síðasta sem fréttist var að lögreglunni hefði verið boðið að athafna sig á tannlæknastof- unni í Stykkishólm en að hollustuháttum þar hefði verið svo ábótavant að af heilsufars- ástæðum þætti stórvarasamt að vista, á téðri tannlæknastofu, „kunningja lögreglunnar" að ekki sé nú talað um sjálfa löggæslumennina. Talið er að lífi og heilsu lögreglumanna í Stykkishólmi yrði ógnað stórlega ef þeir þyrftu að rækja störf sín undir sama þaki og tann- læknirinn. Aðbúnaður þar og hollustuhættir eru í engu samræmi við þær kröfur sem gerðar eru þegar verið er að halda uppi lögum og reglu vesturá Snæfellsnesi. Sannleikurinn er sá að vinnuskilyrði lögregl- unnar eru víða með þeim hætti að ekki er nema von að þeir sem eru til handfjötlunar nef- brotni stundum í misgripum og að illa fari þeg- argleymistaðfæra menn úrjökkunum áðuren þeir eru brotnir saman. En verðir laganna geta huggað sig við það að hið alsjáandi auga fjölmiðlanna fylgist grannt með þeim stórtíðindum sem í nærri tvær aldir hafa fylgt íslenskum löggæslu- mönnum. Og eitt er víst. Því verður ekki unað að íslensk dreifbýlis- pólití fái ekki að njóta þess réttlætis sem þeir boða öðrum. NV/fí B/LAfí A HAGSTÆÐU VERÐ1 HRINGDU OG VIÐ KOMUM MEÐ BÍLINN TIL ÞÍN BÍLALEIGAN »Nissan Micra, Mazda 323, Toyota Cor- olla, Nissan Sunny, Lada 1500 Station > FJÓRHJÓLADRIFSBÍLAR: Subaru Sta- tion, Toyota Tercel, Lada Niva, Range Rover, Mitsubishi Pajero, Nissan Patrol, Toyota Landcruiser, Ford Econoline > 5—12 SÆTA: Mitsubishi Pajero (5—7), Nissan Patrol (7), Toyota Hiace (11), Toyota Litace (8), Ford Econoline (12) & GEY5IR sfnti: 688S88 Suðurlartdsbrau116, Reykjavík, gengið inn frá Vegmúla.

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.