Pressan - 01.02.1990, Blaðsíða 25

Pressan - 01.02.1990, Blaðsíða 25
Fimmtudagur 1. febr. 1990 25 spáin 1. — 5. febrúar (21 mars—20. uprilj Eins og hendi væri veifað mun ýmsum hindrunum verða rutt úr vegi. Það þýðir þó ekki að björninn sé unninn í öllum tilfellum, né heldur að þú getir leyft þér hreina af- slöppun i framtiðinni. Hreint ekki, ef érangur á að nést verður vinna aö liggja að baki. (21. u/iril—20. mui) Einhver úr fjölskyldunni mun líklegast fara að róta upp í fortíðinni og þar meö verður hulunni svipt af einhverju sem hulið hafði verið Þetta getur orðið bæði til góðs og ills, mikilvægast er að reyna að gera sér grein fyrir þvi að svona liggur aldrei í þagnargildi um alla eilífö. (21 mui—21. júni) Einhver óska þinna mun rætast á ékaflega dramatískan og kröftugan hátt. Liklegast eru bæði ást og peningar í spilinu. Samt vak- ir yfir verkefni sem er óleyst og þú þarft að ganga frá fyrr en varir. Vertu á varðbergi gagnvart tvöföldu fólki. (22. júni—22. júli) Þú munt þurfa að eiga samskipti við fólk í æðri stöðum og það kann að ganga misjafn- lega að því er þér finnst. Þér finnst það ekki hafa fullan skilning á því sem þú hefur fram að færa, en ef til vill er það vegna þess að þú hefur ekki sýnt nægilega fram á hvað þú getur. Það verður að færast til betri vegar. Stefndu að því með eljusemi. (21 júli—22. úgúsl) Lifið á það til að hlaupa framhjá manni ef maður er ekki á varðbergi. Þú átt hinsvegar möguleika á að ná ýmsu af þvi sem framhjá þér hefur farið ef þú heldur rétt á spilunum. Einkanlega ef þú leitast við að breyta áhersl- um í lífi þínu. (23. úgúsl—23. st'pl.) Þú færð nýjar upplýsingar í fjármálum sem vekja með þér gleði og von um bjartari fram- tíð Gættu þín á þvi að þegar svona fer er alltaf til fólk sem vill með öllum hugsanleg- um ráðum hafa áhrif á þig. Leggðu áherslu á að fara þínar eigin leiðir, jafnvel þó það kunni að kosta sitt. Sjálfstæði er aldrei of dýru verði keypt. (23. sepl—24. okl.) Margt bendir til þess að þú kunnir að þurfa að leita þér lagalegrar aðstoðar á næstunni. Þá er mikilvægt að vanda valiö og geta lagt traust sitt á viðkomandi. Það gerirðu best meö þvi aö kynne þér alla þætti málsins vel þannig að ekkert fari framhjá þér. Ef vel gengur mun þetta færa þér nokkra gæfu. c (24- okt —22. nóv.) Fyrirhyggja er það sem máli skiptir, ekki síst nú á tímum óvissu í atvinnumálum og ýms- um öðrum málum. Aðstæður eru þannig hjá þér um þessar mundir að allt er fremur laust i reipunum. Þess vegna gildir að gera ná- kvæmar og raunsæjar áætlanir til langs tima. Öðruvísi gengur ekkert upp. (23. nóu.—21. des.) Sjálfstraust þitt mun eflast þegar þér bjóð- ast ný tækifæri, getur verið á einum þremur sviöum, hugsanlega er þaö ástin, kannski vinnan, kannski í fjármálum. Má vera líka að þetta þýði endurfundi við unga manneskju sem þú hefur saknað. Gættu vel að fram- komu þinni, hún getur skipt höfuðmáli. (22. des.—2ll. jun.) Einhver nákominn mun biöja þig persónu- legs greiða sem þú átt erfitt með að neita viðkomandi um, jafnvel þó svo þú kunnir að eiga í nokkrum erfiðleikum með aö uppfylla þennan greiöa. En þaö má ýmsilegt á sig leggja fyrir vini sína og vandamenn. Ekki láta ósjálfstæði þessa manns fara i taugarnar á þér, reyndu heldur aö leiða honum sannleik- ann fyrir sjónir á jákvæöan hátt. (21. junúur—ld. febrúur) Reyndu að ganga frá hlutum heima fyrir sem þú hefur lengi ætlað að Ijúka, gera við vaskinn eða þvottavélina eða eitthvaö ámóta. Þú hefur ýtt þessu of lengi á undan þér. Þú kynnist nýrri manneskju, ákaflega heillandi, ekki láta neina feimni ná tökum á þér. (20. febrúur—20. murs) Þú ættir að þróa hugmyndir þinar með sjálf- um þér á næstunni. Ef þú ferð að ræða þær við aðra getur veriö að þær verði að litlu eða engu. Ef til vill verðurðu að sætta þig við að láta í minni pokann þegar erf itt mál kemur til umræðu, mál sem þú hefur sterkar skoðanir á. Bíttu á jaxlinn. i framhjahkmpi Hallmar Sigurðsson leikhússtjóri Andlegt foður mikilvðegt — Hvaöa persóna hefur haft mest áhrif á þig? „Konan mín hefur mest áhrif á mig frá degi til dags. Svo er ég al- inn upp í kristilegu samfélagi og trúi því aö Jesús frá Nazaret hafi áhrif á mig, beint eöa óbeint." — Án hvers gætirðu síst ver- iö? „Fyrir utan fóðureiningar í landbúnaöarvörum þá gæti ég síst verið án andlegs fóðurs, sem felst í góöum bókum og skáld- sögum." — Hvað finnst þér leiðinleg- ast? „Þegar illa gengur í vinnunni." — En skemmtilegast? „Þegar vel gengur í vinnunni." Hvenær varðstu glaðastur? „Ég varö glaöastur þegar dótt- ir mín fæddist." — Hvað fer mest í taugarnar á þér? „Óhreinlynt fólk og fúllynt." — Manstu eftir ákvörðun sem breytti miklu fyrir þig? „Mjög mörgum." — Við hvað ertu hræddur? „Ætli ég yröi ekki fljótari að telja upp við hvað ég er ekki hræddur! Ég ereiginlega haldinn flestum þessum fóbíum og „hræðslum", — lofthræðslu, flughræðslu, blóðhræðslu og svo framvegis, en í mismiklum mæli. En kannski er ég hrædd- astur við að mér mistakist það sem mér er trúað fyrir." — Hver er tilgangurinn með lífinu? „Að leita hans." — Ef þú þyrftir að skipta um starf, hvað vildirðu helst taka þér fyrir hendur? „Eitthvað sem ég hefði meiri hæfileika til." — Hvað er betra en kvöld- stund í góðra vina hópi? „Næturstund í góðra vina hópi." lófales I þessari viku: Rjúpa (kona fædd 16. ágúst 1974) draumar Að dreyma konur Stúlkurnar ganga sunnan með sjó. . . Þessi unga kona fer snemma út í lífið, en það er eins og staða hennar fari fyrst að skýrast og stefna að mótast í lífi hennar upp úr tvítugu. Fram að þeim tíma er hún svolítið ráðvillt. Hún þyrfti að leggja harðar að sér en hún gerir, ef hún ætlar að komast eitthvað áfram í námi. Það verða töluverðar breytingar á fjölskyldu- eða heimilislífi stúlk- unnar á unglingsárum hennar, en þetta eru breytingarsem hún hef- VILTU LÁTA LESA ÚR ÞÍNUM LÓFA? Sendu þá TVÖ GÓÐ LJÓSRIT af hægri lófa (örvhentir Ijósriti þann vinstri) og skrifaðu eitt- hvert lykilorð aftan á blöðin, ásamt upplýsingum um kyn og fæðingardag. Utanáskrift: PRESSAN — iófalestur, Ármúla 36, 108 Reykjavík. ur enga stjórn á. Einnig verða miklar umbreytingar í lífi hennar, þegar hún er á aldrinum 31 til 35 ára. Hún fer líka örugglega síðar meir út á svið, sem tengd eru hinu opinbera á einhvern hátt. Þetta er metnaðargjörn stúlka með líflegt ímyndunarafl, en hana skortir þolinmæði. Hún hefur áhuga á mörgu, en á erfitt með að ákveða hvað hún vill gera. Það er mjög líklegt að hún gangi tvisvar í hjónaband á lífsleiðinni. amy jSiÉÉsEs ENGILBERTS /... A ' ) (t ' Ekki hafa stúlkur eða kvenmenn yfirleitt þótt gott draumtákn. Ótal sagnir eru til þessu til sönnunar. Strákarnir hafa vaknað við vondan draum í bókstaflegri merkingu. Nú kynni mörgum að detta í hug að þessar ráðningar ættu rætur að rekja til karlrembu fyrri tíma — að jafnvel í draumi hafi konur verið tengdar neikvæðum atvikum. En sú mun ekki hafa verið ástæðan. Held- ur hefur hún verið miklu eldri, sem sé ímynd dísa í heiðnum sið. En í augum þeirra tíma manna voru ör- lagadísir ekki bara skáldlegt orð, heldur viðurkenndur veruleiki. Dís- ir ákváðu æviferil manna. Þær birt- ust þeim í draumum og bjuggu þá undir það sem koma skyldi. Seinna urðu dísirnar að mennskum stúlk- um, eftir að önnur trúarbrögð héldu innreið sína, en táknin voru þau sömu. Sumir höfðu draumkonu sem kallað var (eða draummann) sem vitjaði þeirra aftur og aftur og leið- beindi þeim eða varaði þá við eftir atvikum. Ekki mátti bregða út af ráðum draumkonunnar, þá yfirgaf hún dreymandann. Þessar „fast- ráðnu" draumkonur gátu þannig allt eins verið jákvæðar eins og nei- kvæðar. En yfirleitt bjuggust karl- menn við erfiðleikum, jafnvel lífs- háska, ef þá dreymdi konur. Við get- um nú litið á nokkrar af þessum við- teknu ráðningum. Við höfum áður nefnt hve háska- samlegt það er sjómönnum að dreyma konur. En einnig land- kröbbum getur draumur um konur verið fyrir illviðrum, þó með öðru móti sé. Kunningi minn einn hefur sagt mér að þegar hann var bóndi dreymdi hann ævinlega konur úr sveitinni fyrir hvassviðri. Þótti hon- um þá heimsaekja sig kona frá ein- hverjum bæ sem var í sömu átt og veðrið kom úr, vissi hann þá hvort kæmi sunnan rok eða vestan o.s.frv. Hermann Jónasson frá Þingeyr- um, einn draumspakasti íslending- ur í seini tíð, segir einnig að sig hafi dreymt ókunnar stúlkur fyrir óveðr- um og voru stúlkurnar þá jafnmarg- ar og óveðursdagarnir. Margar aðr- ar ráðningar voru líka þekktar. Að dreyma bláklædda konu veit á sorg, en svartklædda eða dökk- klædda feigð. Gamlar konur sem maður þekkir ekki tákna vonbrigði. Kona í þjóðbúningi er oftar en ekki góður draumur, bendir til frama dreymandans, a.m.k. ef draumkon- an er vinveitt eða skyld honum. Þyki manni kona koma í heimsókn frá einhverjum tilteknum stað eða landi má búast við fréttum þaðan. Dreymi karlmann að kona sækist eftir að komast í rúm til hans er það venjulega fyrir vandræðum eða háska. Ath. nafn konunnar — við komum seinna að þýðingum nafna. Einnig þó mann dreymi að unnusta hans eða eiginkona komi til hans og sýni honum blíðu, þá er það líkast til fyrir slæmu, jafnvel ótryggð eða skilnaði. Þykist fólk aftur á móti reyna ótryggð af maka sínum í draumi þá boðar það tryggð. Stafróf draumanna er sannarlega torlesið.

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.