Pressan - 01.02.1990, Blaðsíða 13

Pressan - 01.02.1990, Blaðsíða 13
Fimmtudagur 1. febr. 1990 13 HÁVAÐAMENGUN í Þessar óánægjuraddir heyrast mest frá viðskiptavinum, en hvað finnst starfsfólki, sem dvelur í hús- inu að meðaltali átta klukkustundir á dag? Hávaðinn eins og frá eidhúsviftu „Þessi hávaði hefur ekki meiri áhrif á mann en ef það væri kveikt á eldhúsviftu,” sagði afgreiðslu- stúlka í verslun í Kringlunni. „Ein- hvern tíma var gerð könnun úti í Bandaríkjunum á hávaða og þar kom í ljós að það er jafnmikill há- vaði frá eldhúsviftu og í stórmark- aði, fullum af fólki." Sjálfsagt eru skiptar skoðanir á þessari niðurstöðu og einhverjir munu vafalaust benda á að enginn hafi kveikt á eldhúsviftu stanslaust í átta klukkustundir. En margir við- skiptavina og starfsmanna í Kringl- unni kvarta hins vegar undan því að þar séu lætin svo mikil að fæstum líði virkilega vel þar inni, þrátt fyrir hlýlegt umhverfið. „Tapa verðskyni í Krínglunni" Það var búið að kveikja á rúllu- stigunum og gosbrunninum nokkru fyrir opnun verslana. í fyrstu var varla hægt að merkja hljóðið í gos- brunninum, en eftir nokkrar mínút- ur fór gutlhljóðið að aukast. „Ég verð svo rugluð í Kringlunni að ég fer heist ekki þangað," sagði einn viðmælenda minna. „Eftir skamma stund þar inni geng ég framhjá fólki sem ég á að þekkja án þess að sjá það. Hávaðinn hefur sömu áhrif á mig hvað varðar verðskyn. Því tapa ég algjörlega þarna inni." Önnur kona sem ég ræddi við var síður en svo sammála þessu: „Ein- mitt ekki,“ sagði hún. „Ég verð svo stressuð í látunum þarna að ég kaupi aldrei neitt. Stundum hef ég farið eftir lokun og litið í búðar- gluggana, en svo þegar ég kem í húsið næsta dag, innan um hlaup- andi krakka og gutlandi gosbrunn, missi ég alla löngun til að kaupa nokkuð." Afgreiðslufólk í verslunum í Kringlunni var svosem ekkert æst í að ræða um hávaðamengun í hús- inu: „Hver heldurðu að þori að svara þér?” spurði ungur maður. „Við eigum á hættu að vera rekin ef við segjum orð! Að minnsta kosti þori ég ekkert að segja.” Ólýsanleg kyrrð þegar slökkt er á gosbrunninum „Ég er nú orðin svo samdauna þessum hávaða að ég er hætt að taka eftir honum,” sagði eldri kona. „Hitt er annað mál að þegar gos- brunnurinn þagnar, eins og gerðist til dæmis í rafmagnsleysinu á fimmtudaginn, færist ólýsanleg kyrrð yfir húsið." Önnur afgreiðslustúlka tók í sama streng: „Það er eins og allir verði ró- Þegar Kringlan var opnuð átti ffólk hversu miklu þægilegra það væri að versí Þéir sem störfuðu i Kringlunni báru lika lof^ það væri að haffa allt á sama stað og að þe ekkert að sækja út ffyrir dyr verslunarhússii liðinn er ffrá þvi Kringlan var ffyrst opnuð ff meira á óánægjuröddum. Þær beinast e vaðinn i Kringlunni geri það að verkum a aða löngun til að dvelja þar innanhúss mj rt til jbrð að lýsa því n innánhússen utan. á hversu þægilégt ir þyrfftw i rauninnt ís. Á þeim tima sem Jst heffur þó borið æ nhkum að þvi að há- ffólk hafi takmark- jög lengi. EFTIR: ÖNNU KRISTINE MAGNÚSDÓTTURl legri þegar gosbrunnurinn er ekki í gangi,” sagði hún. „Mér finnst hann óskaplega þreytandi en ef ég reyni að leiða hugann frá honum gengur þetta þokkalega.” Það eru hins vegar ekki allir jafn- duglegir í að leiða hugann frá há- vaðanum. Ung kona hætti störfum í verslun í Kringlunni vegna hans: „Ég var orðin úttauguð af því að starfa þarna," segir hún. „Ég var ekki bara með höfuðverk daginn út og daginn inn heldur var ég líka orð- in spennt á taugum'. Það getur ekki verið hollt fyrir nokkurn að hafa há- vaða glymjandi í eyrunum í átta, níu klukkustundir á dag. Og svo voru uppákomur með reglulegu millibili. Hljómsveitir spilandi ofan í gutlið frá gosbrunninum, grenjandi börn eða gargandi unglingar, urgið frá stigunum og annað. Ég gafst upp. Ég gat ekki hugsað mér að eyða ævinni í loftlausu rými þar sem ekkert sam- band var við umheiminn nema há- vaði.“ því sem fyrst var, en það nægir ekki.“ Þennan morgun voru fáir á ferli. „Þetta kallast nú ekki hávaði miðað við hvernig verður hér síðdegis," sagði ungur maður og tvær af- greiðslustúlkur sögðu að það væri nú meiri hávaði frá hlaupandi krökkum en gosbrunninum: „Það heyrist ekkert í gosbrunninum nema fyrst á morgnana. Svo yfir- gnæfa önnur hljóð það gutl...“ Samkvæmt heimildum okkar hef- ur verið kvartað um hávaðann á vinnustaðafundum í Kringlunni og á einum slíkum fundi var rætt um að koma upp hljóðdeyfi í húsinu. Sömu heimildir herma að veikindi meðal starfsmanna í Kringlunni séu mjög algeng. Einar Ingi Halldórsson, fram- kvæmdastjóri Kringlunnar, segir rétt að kvartað hafi verið um há- vaða frá gosbrunninum en í fyrra hafi verið lækkað í honum: „Gos- brvjnnurinn var upphaflega 6 metr- andi að kvartað sé um far hjá starfsmönnum lélegt heilsu- hér.“ Hávaöinn íKringlunni er farinn aö þreyta starfsfólk verslana sem og viöskiptavini. Kvartaö hefur veriö viö Vinnueftirlit ríkisins og stjórn Kringlunnar. Starfsfólk hefur stöku sinnum hellt sápu í gos- brunninn til aö neyöa menn til aö slökkva á honum. Sápu hellt í gosbrunninn En þótt lýsingar af þessum toga kunni að hljóma hlægilega í eyrum einhverra finnst sumu starfsfólki hreint ekki fyndið að starfa í stöðug- um hávaða. Nokkrum sinnum hefur starfsfólk tekið sig til og hellt sápu í gosbrunninn. „Það var neyðarúr- ræði til að fá þá til að slökkva á hon- um,“ sagði einn starfsmaðurinn. „Það hefur verið reynt að kvarta við stjórnina hér, en án nokkurs árangurs. Að vísu hefur verið dregið nokkuð niður í gosbrunninum frá ar á hæð en er núna aðeins einn metri og þarafleiðandi lágværari. Það er verið að skoða hvort hægt sé að breyta honum, en hávaðinn í honum er ekki mikill núna.“ Hann segist hins vegar ekki kannast við að rætt hafi verið um að setja upp hljóðdeyfa: „Enda engin þörf á því,“ segir Einar Ingi. Hann segist ekki hafa orðið var við að mikið beri á veikindum meðal starfsfólks í Kringlunni: „Ég get auðvitað ekki fullyrt um hvort veikindi meðal starfsmanna hér eru meiri eða minni en annars staðar. Það hefur að minnsta kosti ekki verið áber- Kvartað við vinnueftirlit ríkisins Einhverjir starfsmenn tóku sig til og kvörtuðu við Vinnueftirlit ríkis- ins. Þar fékk PRESSAN þær upplýs- ingar að hávaði á ákveðnum stað í Kringlunni hefði verið mældur. Hjá vinnueftirlitinu varð fyrir svörum Víðir Kristjánsson, sem reyndar framkvæmdi ekki umrædda mæl- ingu og sagði því í raun erfitt fyrir sig að alhæfa um hvort hávaðinn hefði verið innan eðlilegra marka: „Þetta eru augnabliksmælingar, önnur framkvæmd inni í verslun í námunda við gosbrunninn, hin frammi. Inni í versluninni mældist hávaðinn í kringum 60 desibel en fyrir framan hana mældist hann um 70 desibel. Út frá þessum tölum er ekki hægt að segja hvað nákvæm- lega kemur frá gosbrunninum eða hvort tónlist var á, samræður eða annað." Hvort þessar tölur gefi vísbend- ingu um hvort hávaðinn sé þá innan leyfilegra marka eða ekki svaraði Víðir: „í reglunum er miðað við hættu á heyrnartjóni, og þar eru mörkin 85 desibel. Síðan eru ákvæði í reglum um aðra staði, þar á meðal skrifstof- ur og aðra staði, þar sem gerðar eru kröfur til einbeitingar og samræður eiga að geta átt sér óhindrað stað. í því ákvæði segir að leitast skuli við að utanaðkomandi hávaði sé ekki meiri en 50 desibel. En það er auð- vitað matsatriði hvort Kringlan myndi flokkast undir slíkan stað. Á öðrum stað stendur að í stjórnklef- um eða verkstjórnarherbergjum, þar sem mikilvægt er að samræður geti átt sér stað, skuli að því stefnt að utanaðkomandi hávaði sé ekki meiri en 65 desibel að jafnaði. Það er því ekki tekið beint á verslunum í þessum reglum, en strax og há- vaðamæling er farin að fara yfir 55—60 desibel þarf að kannski að brýna raustina. I þessum reglum er verið að hugsa um utanaðkomandi hávaða, sem berst úr öðru rými, eins og er í því tilviki sem verið er að fjalla um hér. Ég geri ráð fyrir að dyrnar að versluninni hafi verið opnar þegar mælingin var gerð.“ Hávaðamengun einn af stærstu streituvöldunum En heyrnarskerðing er ekki eini áhættuþátturinn þegar fólk vinnur í hávaða. Hávaðamengun er einn af mikilvægustu streituvöldunum samkvæmt upplýsingum sem við fengum hjá Odda Erlingssyni sál- fræðingi: „Það er mjög misjafnt hvernig fólk þolir hávaða," sagði Oddi. „Ef maður heldur að maður geti stjórn- að hávaðanum, hækkað hann eða lækkað, þá verður hann bærilegri. Það hefur verið gerð könnun sem lýtur að þessu. Suð var sett hjá tveimur hópum. Öðrum hópnum var sagt að hann gæti slökkt á suð- inu þegar hann vildi; hinum að hann gæti ekkert ráðið við suðið. Það var áberandi hversu miklu meiri streitueinkenni gerðu vart við sig hjá þeim sem töldu sig ekkert ráða við hávaðann." Dæmigerð streitueinkenni gera vart við sig hjá þeim sem illa þola hávaða, til dæmis vöðvaspenna, óróleiki og svefnleysi. Hvort reikna megi með að þeir aðilar sem rætt er við í þessari grein og þola illa hávað- ann í Kringlunni geti átt erfitt með að einbeita sér í vinnu vegna hans og skili þarafleiðandi minni afköst- um svarar Oddi: „Já, alveg örugg- lega. Áhugi á vinnunni minnkar, af- köstin minnka og streitueinkennin gera fljótlega vart við sig. Síðan geta komið langvarandi streitueinkenni sem geta orðið að sjúkdómi." Oddi segir viðhorf fólks til hávaða skipta miklu máli og sagði að án efa hefðu einhverjir sagst ekki taka eftir neinu meðan aðrir ættu fullt í fangi með að starfa á staðnum. Hvað væri til ráðs fyrir þá benti Oddi á að hægt væri læra að slaka á með hávaða: „Menn geta annaðhvort breytt um umhverfi eða breytt viðhorfi sínu til hlutanna," segir hann. „Hávaðinn hefur miklu minni áhrif á þá sem telja sig eða vita að þeir geta stjórn- að honum. Þetta verður miklu meira vandamál hjá þeim sem vita að þeir hafa engin áhrif á hversu mikill hávaðinn er. Trúin flytur fjöll."

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.