Pressan - 01.02.1990, Side 17
f'í'P r * 4 >' r i r .* » .1 < fr » i Í4
<Jr
Fimmtudagur 1. febr. 1990
17
IPRESSU
MOLAR
I
leikarar í Þjóðleikhúsinu sýna
í Háskólabíói eftir að leikhúsinu
verður lokað vegna lagfæringa.
Sýningar í bíóinu hefjast í mars og
þar verður meðal annars frumsýnd
revía eftir Spaugstofuna. í febrú-
ar verða tvö leikverk frumsýnd. Hið
fyrra er Endurbyggingin eftir
Václav Havei og hið síðara Stefnu-
mót. Það er samsett úr mörgum
stuttum leikritum eftir nútímahöf-
unda. Leikþættirnir fjalla um leik-
hús og í þeim spreyta sig stjörnur
Þjóðleikhússins síðustu 40 árin und-
ir stjórn ungra leikstjóra. Gert er ráð
fyrir átta leiksýningum á Endur-
byggingunni, en aðeins þremur á
Stefnumóti. . .
"ppi eru áform um að stofna
Samskiptamiðstöð heyrnar-
lausra og er málið til athugunar hjá
ráðuneytum félagsmála,
menntamála og heilbrigðismála.
Hugmyndin er sú, að þar verði
kennt táknmál og túlkar þjálfaðir.
Fólk á síðan að geta leitað til mið-
stöðvarinnar til að fá táknmálstúlk
sér til aðstoðar í lengri eða skemmri
tíma og einnig verður félagsráðgjafi
í starfi þar, ef hugmyndir þessar
verða að veruleika. Þar að auki eru
í deiglunni áætlanir um að setja á
stofn textasímamiðstöð, sem auð-
veldaði heyrnarlausum að ná sam-
bandi við almenna síma og heyr-
andi fólki að ná tali af heyrnarlaus-
'ftir rúma viku, laugardaginn
10. febrúar, verður frumsýning á
nýrri dagskrá í Sjallanum á Akur-
eyri. Aðdáendur Pálma Gunnars-
sonar geta strax byrjað að bóka sig
því í Sjallanum verður dagskráin
helguð Pálma og verkum hans.
Hljómsveitin sem leikur undir hjá
Pálma verður að mestu skipuð
gömlu Mannakornunum og með
honum munu m.a. syngja Erna
Gunnarsdóttir og Ellen Krist-
jánsdóttir, sem báðar hafa oft
sungið með Pálma. Kynnir á þessu
kvöldi og væntanlega öðrum verð-
ur fréttamaðurinn
Ernir Rúnarsson . .
Sigmundur
t
I ekin hefur verið um það
ákvörðun í menntamálaráðuneyt-
inu að leggja í haust niður fram-
haldsdeildina í Heyrnleysingja-
skólanum. Þetta þýðir að á næsta
skólaári fara heyrnarlausir ungling-
ar í „venjulega" skóla og þá þurfa
þeir aðstoð túlka, en nú þegar er
boðið upp á túlkaþjónustu í Iðn-
skólanum og Fjölbrautaskólan-
um í Breiðholti. Það er því Ijóst að
þjálfa þarf í snarheitum nokkra
táknmálstúlka fyrir haustið og verið
er að vinna að undirbúningi þess
átaks um þessar mundir . . .
S&I
L&'f
Op'1'
itK'
HÍWSHi
UPPLVSINGAR: SÍMSVARI 681511 - LUKKULÍNA 991002
......
Kraftmikil
Bylgja
í hlustenda-
könnun
Sterk staða Bylgjunnar sem auglýsingamiðils
kemur enn í ljós í könnun Gallup íyrir
íslenska útvarpsfélagið í janúar síðastliðnum:
1. Mest hlustað á Bylgjuna á vinnutíma
Bylgjan hefur mesta hlustun allra
útvarpsstöðva frá kl. 9-12 og 13-17.
2. Vinsælt fólk á Bylgjunni
Af þremur vinsælustu útvarpsmönnunum
starfa tveir á Bylgjunni, þau Páll Þorsteinsson
og Valdís Gunnarsdóttir.
3. Meðalaldur hlustenda Bylgjunnar
er 33 ár
Meðalaldur hlustenda Rásar 2 er 42 ár og á
Rás 1 er hann 49 ár.
Þrátt fyrir að Bylgjan njóti ekki tekna frá
ríkinu í formi áskriftargjalda er sterk staða
hennar ótvíræð.
Bylgjan er frjálst útvarp.
SPÓRT4x4
I \
'\
Ódýrasti alvörujeppinn á markaðinum og
hefur 10 ára reynslu að baki við þær
margbreytilegu aðstæður sem íslensk
náttúra og vegakerfi búa yfir.
Veldu þann kost sem kostar minna! ^
^.BIFREIÐAR & LANDBÚNAÐARVÉLAR HE jl
S0g8Ks Ármúla 13 - 108 Reykjavík - S* 681200 . ***
Verð frá
kr. 655.000,-