Pressan - 01.02.1990, Side 27
Fimmtudagur 1. febr. 1990
27
Stöð 2 kl. 00.05
FIMMTUDAGUR
1. febrúar
Stöö 2 kl. 21.50
SAGA
KLAUS BARBIE****
(Hotel Terminus)
Sjónvarpsmynd frá 1987
Leikstjóri: Marcel Ophuls
Þetta er aldeilis frábær heimilda-
mynd um hinn illræmda nasista
Klaus Barbie, sem flúði til Bólivíu í
lok síðari heimsstyrjaldarinnar, en
var síðan framseldur til Frakklands
þar sem réttarhöld fóru fram yfir
honum. Meðal annars eru í mynd-
inni mörg viðtöl við fólk, sem þekkti
Barbie vel. Sem sagt mjög athyglis-
verð sjónvarpsmynd (fyrsti þáttur af
þremur!) fyrir þá, sem ekki hafa
þegar fengið sig fullsadda af umfjöll-
un um ógnir heimsstyrjaldarinnar.
Stöð 2 kl. 23.45
SUMARSKÓUNN*H
(Summer School)
Bandarísk bíómynd frá 1987
Leikstjóri: Carl Reiner
Aöalleikarar: Mark Harmon og
Kristie Alley
Þessi er í skárri kantinum af gaman-
og unglingamynd að vera. Hún fjall-
ar um afar óhefðbundinn kennara,
sem sumar nokkurt fær það verk-
efni að kenna hópi vandræðaungl-
inga. Maðurinn er raunar íþrótta-
kennari, en kennslugreinin er
enska, svo það gengur á ýmsu. En
leikurinn er góður og það má vel
hlæja af og til.
FÖSTUDAGUR
2. febrúar
Stöð 2 kl. 22.00
MED GRASID í
SKÓNUM**
(Shakedown on the
Sunset Strip)
Sjónvarpsmynd frá 1988
Leikstjóri: Walter Grauman
Aöalleikarar: Perry King, Season
Hubley, Joan Van Ark
Miðlungsgóð sjónvarpsmynd (svona
la-la, eins og sagt er), sem gerist á
fimmta áratug aldarinnar. Hún fjall-
ar um löggu í Los Angeles, sem eltist
við alræmda gleðikonu — þ.e.a.s. í
nafni laganna. Það gengur þó ekki
jafnauðveldlega fyrir sig og ætla
mætti.
Sjónvarpið kl. 22.25
LAUKAKURINN***
(The Onion Field)
Bandarísk bíómynd frá 1979
Leikstjóri: Harold Becker
Adalhlutverk: John Savage, James
Woods og Franklyn Seales
Þessi hjartnæma mynd er byggð á
sannsögulegum atburðum og fjallar
um lögreglumann, sem þolir ekki
álagið við að verða vitni að morði
félaga síns. John Savage leikur stór-
vel, eins og venjulega, og það gera
einnig aðrir leikarar myndarinnar.
Þetta er bíómynd, sem stendur fylli-
lega fyrir sínu.
EKKIER ALLT GULL
SEM GLÓIR*14
(Rhinestone)
Bandarísk mynd frá 1984
Leikstjóri: Bob Clark
Adalleikarar: Sylvester Stallone og
Dolly fíarton
Kannski erum við fullrausnarleg í
stjörnugjöfinni, því það er hægt að
gera ýmislegt betra við tímann en
eyða honum í þessa mynd. Sögu-
þráðurinn er í stuttu máli sá, að
sveitasöngkonan hún Dolly ætlar
að gera söngvara úr leigubílstjóra,
sem leikinn er af Sylvester Stallone
(öðru nafni Rocky l, II, og svo fram-
vegis ...). Það þarf ekki að orð-
lengja meira um þessa.
LAUGARDAGUR
3. febrúar
Stöð 2 kl. 21.20
SKÆRUÓS
B0RGARINNAR***
(Bright Lights, Big City)
Bandarísk bíómynd frá 1988
Leikstjóri: James Bridges
Aöalleikarar: Michael J. Fox,
Kiefer Sutherland
Mynd byggð á frægri sögu eftir Jay
Mclnerney með hinn þekkta Micha-
el Fox í aðalhlutverki. Hann leikur
rithöfund, sem á í mesta basli með
sjálfan sig og lífið almennt og lendir
á villigötum vímuefna í New York.
Fox leikur þokkalega og það sama
má segja um flesta aðra, sem þarna
koma við sögu. Það er hins vegar
erfitt að breyta þessari frásögn í
mynd, enda er hún eftirbátur bókar-
innar.
Sjónvarpið kl. 22.10
FÓSTRAR**
(Isac Littlefeathers)
Kanadísk sjónvarpsmynd frá 1987
Leikstjófi: Les Rose
Aöalleikarar: Will Korbut, Scott
Highlands, Lou Jacobi
Sjónvarpsmynd þessi er um kaup-
manninn (og fyrrverandi töfra-
manninn) Abe Kapp, sem dag einn
finnur strák á tröppunum hjá sér.
Abe, sem er gyðingur, tekur dreng-
inn að sér, en sex árum síðar lenda
þeir í vanda af trúarlegum rótum.
Þegar neyðin er stærst birtist hins
vegar ákveðin útgönguleið fyrir þá
—þe^i.s. hinn raunverulegi faðir
drengsins.
Stöð 2 kl. 23D5
DUFLAÐVIÐ
DEMANTA***
(Etovan Harrowhousa)
Bresk bíómynd frá 1974
Leikstjóri: Aram Avakian
Aöalleikarar: Charles Grodin,
Trevor Howard, John Gielgud,
James Mason, Candice Bergen
Þessi er góð, enda fara margir frá-
bærir leikarar með hlutverk í þess-
ari spennumynd. James Mason,
John Gielgud og Trevor Howard
bregðast auðvitað ekki fremur en
fyrri daginn. Kvikmyndin fjallar
annars um mikið demantarán í
London.
Sjónvarpið kl. 23.45
UPPGJÖR**
(Afskedens time)
Dönsk bíómynd frá 1973
Leikstjóri: fíer Holst
Aöalleikarar: Bibi Anderson og
Ove Sprogee
Ein dönsk til tilbreytingar, en þó
ekki blá, ef einhver skyldi hafa gert
sér gyllivonir. f myndinni eru þó
raunar atriði, sem alls ekki eru við
hæfi barna, en ekki „þannig" atriði!
Þetta er spennumynd með óhugn-
aðarívafi, þar sem beittur hnífur
spilar stóra rullu. Hvað sem um
myndina má segja er að minnsta
kosti tilbreyting að sjá efni frá Dan-
mörku í því flóði af engilsaxnesku
efni, sem annars er allsráðandi í ís-
lensku sjónvarpi.
Stöö 2 kl. 00.45
VINARGREÐI**
(Raw Deal)
Bandarísk mynd frá 1986
Leikstjóri: John Irvin
Aöalleikarar: Arnold
Schwarzenegger, Kathryn Harrold
Það er ekki mikið varið í þessa
mynd, sem fjallar um fyrrverandi
löggu, sem kemur gömlum vini sín-
um til aðstoðar þegar uppræta þarf
starfsemi glæpaflokks í Chicago.
Það örlar á gamansemi í myndinni,
en það nægir ekki til að halda henni
uppi.
Stöð 2 kl. 02.20
SVIKIN***
(Intimate Betrayal)
Bandarísk mynd frá 1987.
Leikstjóri: Robert Lewis
Aöalleikarar: James Brolin,
Melody Anderson, fíamela
Bellwood
Þrælgóð afþreyingarmynd fyrir þá,
sem hafa ekkert á móti dálítilli
spennu. Hún fjallar um fyrirmynd-
arhjónaband, en þegar karlinn
„deyr“ kemur í ljós að hann var í
rauninni alls enginn fyrirmyndar-
eiginmaður. Ýmislegt gruggugt
kemur í ljós og allan tímann er hinn
„látni" á næstu grösum.
SUNNUDAGUR
4. febrúar
Sjónvarpið kl. 21.55
SÖNGUR
NÆTURGALANS****
(And a Nightingale Sang)
Bresk sjónvarpsmynd
Leikstjóri: Robert Knights
Aöalleikarar: Phyllis Logan, Tom
Watt, Joan Plowright
Bresk mynd með gamansömu ívafi,
sem gerist í seinni heimsstyrjöldinni
og fjallar um fjölskyldu nokkra í
Newcastle á Norður-Englandi.
Mamman hefur áhyggjur af því að
j kirkjan verði fyrir loftárás, pabb-
inn gerist kommúnisti og dæturnar
kynnast jafnt jákvæðum og nei-
kvæðum hliðum ástarinnar. Leikar-
arnir eru frábærir, td. Joan Plow-
right, ekkja Sir Lawrence Olivier, og
við mælum eindregið með því að
þið ljúkið helginni með því að horfa
á þessa sjónvarpsmynd.
FEinK'fi
eftir Mike Atkmson
HVEKJCöMST f 015X1WKJ
ME0 REKJ o BRALhÞIW ?
TIL VARNAR?
UK t>A£> BKKl f>Ú?\ BKl- rAfCTU,TIUir
4JÝ4-P S&SIR&U ). TIL FJÓRTÁkJ FYKKÍ
/ PÓMA SEW É(ó HEF
ywi OTI&.'I
SBKVR '
dagbókin
hennar
Ég kemst ekki yfir hvað lífið er
ógeðsiega óréttlátt. Ef það er Guð,
sem stjórnar þessu öllu saman,
finnst mér meira en lítið duló hvað
hann er eiginlega að hugsa...
Mamma hennar Siggu í næsta
húsi dó sko barasta um helgina,
. hvorki meira né minna! Ég næstum
lamaðist, þegar hún kom og sagði
mér það (þ.e.a.s. Sigga, auðvitað), og
varð eins og milljón aumingjar
(þ.e.a.s. ég). Ég meina, hvað í ósköp-
unum getur maður sagt, þegar vin-
kona manns segir manni hágrátandi
að mamma hennar sé dáin upp úr
þurru. Þetta var ólýsanlega erfitt,
þvi hún henti sér grátbólgin í fangið
á mér og ég vissi ekkert hvernig ég
átti að vera. Og ekki gat ég sagt
nokkurn skapaðan hlut til að láta
henni líða betur. Þegar mamma
manns er dáin þýðir ekkert að vera
með röfl um að ástandið lagist eða
svoleiðis.
Sem betur fer kom mamma heim
og tók að sér að halda utan um
Siggu og reyna að segja eitthvað ró-
andi, en það reddaði náttúrulega
engu. Grey stelpan var alveg óð í að
vita hvar mamma hennar væri nið-
urkomin fyrst hún væri ekki lengur
hérna á jörðinni og það er ógeðsleg-
'ur vandi að svara þannig spurning-
um, þegar maður hefur ekki sjálfur
prufað að deyja. Sigga var samt
heppin að lenda á mömmu, því hún
er ein af þeim sem eru alveg klárir
á því hvað verður um mann eftir
dauðann, þó hún viti ekkert um
málið af eigin reynslu. (Sem betur
fer, 7-9-13 og allt það!) Hún er svona
spíritisti og segir að maður verði
áfram nákvæmlega eins týpa á
himnum nema bara með gegnsæjan
líkama. Það róaði Siggu heilmikið,
enda er mamma alltaf sjúklega
sannfærandi, og eftir smástund gat
hún farið heim til sín aftur.
Ég er hins vegar ekki jafnauðtrúa
og Sigga og mér finnst ansi skrítið
að Guð hafi haft meiri þörf fyrir
mömmu hennar en fimm manna
fjölskylda, sem núna er orðin gjör-
samlega kvenmannslaus — fyrir ut-
an Siggu. En hún kann ekkert að
elda hrygg og búa til brúna sósu og
allskonar, sem húsmæður gera. Það
eina, sem Sigga kann að búa til, er
grillað brauð með skinku og osti og
ekki geta þrír strákar og einn pabbi
lifað á ostabrauði það sem eftir er!
Þess vegna er ég hörð á því að það
voru engin meira „aðkallandi verk-
efni" fyrir mömmu hennar Siggu
hjá Guði en hérna í Reykjavík, hvað
sem einhverjir spíritistar segja.
Þetta er bara eitt allsherjar órétt-
læti, eins og þessi heimur almennt.
Núna er ég til dæmis algjörlega út-
steypt í bólum og hárið á mér fitnar
svo ofboðslega að ég þarf að þvo
það á hverjum einasta degi. En flest-
ar stelpurnar í mínum bekk eru eins
og flauel í framan og þurfa ekki að
'þvo sér um hárið nema svona tvisv-
ar í viku. Er eitthvert réttlæti í því
eða hvað?!
Samt er það kannski smámál mið-
að við að missa mömmu sína, eins
og Sigga, áður en hún er einu sinni
búin að kenna einhverjum öðrum í
fjölskyldunni á þvottavélina og
þurrkarann. Vonandi var hún samt
ekki búin að henda leiðbeiningun-
um. Það væri sko bömmer...