Pressan


Pressan - 25.10.1990, Qupperneq 5

Pressan - 25.10.1990, Qupperneq 5
FIMMTUDAGUR PRESSAN 25. OKTÓBER 5 Erjurnar í söfnuðinum á Sel- tjarnarnesi eiga sér lengri aðdrag- anda en komið hefur fram í fréttum. Þær munu síður en svo vera bundnar við óánægju með verk- lag séra Guðmund- ar Arnar, sem gegnir nú starfi sóknarprests í barnsburðarleyfi Solveigar Láru Guðmundsdóttur. Fyrir fimm ár- um, þegar átti að vígja kirkjuna, mun Solveig Lára hafa sótt fast að fá annan kirkjuorganista, en sóknar- nefndin vildi ekki una því og hafði betur. Síðan þá hefur verið kýtingur öðru hvoru á milli prests og sóknar- barna. .. B^Bú er ljóst að Jón Sigurðs- son iðnaðarráðherra er kominn í raðir frambjóðenda Alþýðuflokks- ins í Reykjaneskjör- dæmi. Það eru eink- um sjálfstæðismenn sem líta á þetta sem slæm tíðindi, því vit- að er að margir laus- bundnir flokksmenn eru reiðubúnir til að styðja Jón vegna álmálsins. Þetta helst í hendur við það sem sumir kalla „vangadans" Davíðs Odds- sonar og Sigurjóns Péturssonar í stjórn Landsvirkjunar, en þeir félag- ar hafa verið samstiga í andófi vegna álmálsins. Sjálfstæðismenn óttast að þetta tvennt dragi úr kjör- sókn í prófkjöri þeirra og, sem er mikilvægara, höggvi stórt skarð í fylgið í komandi kosningum... A síðasta ári sagði Lilja Mósesdóttir upp starfi sínu sem hagfræðingur ASÍ og bar fyrir sig launamisrétti kynja. Þessa skoðun sína áréttaði Lilja í viðtali við Dag á Akureyri í síðustu viku. Við heyrum að athuga- semdum hafi rignt yfir norðanblaðið síðan; ASÍ var nóg boðið. Nú hefur ASÍ sent Láru V. Júlíusdóttur á vettvang til vitnis um að Lilja fari með bábiljur einar. Samkvæmt túlk- un Láru, sem sjóuð er í jafnréttis- málum, gerði Lilja sér einfaldlega ekki grein fyrir því að hún væri komin út úr hinu akademíska and- rúmslofti Háskóla íslands og út á vinnumarkaðinn... Tveir útvarpsráðsmenn, Guðni Guðmundsson og Magnús Er- lendsson, lögðu fram bókun á út- varpsráðsfundi þar sem þeir mót- mæltu frétt Páls Benediktssonar, fréttamanns hjá sjónvarpinu, af leyniskýrlu allaballa um álmálið. í bókuninni lýsa þeir yfir undrun og hneykslan á að Páll skuli hafa flutt efni skýrslunnar með blandi af spá- manns- og dómsdagsblæ og sérstak- lega fyrir það, að þetta skuli hafa verið gert í fréttaskýringaþætti. Það telja þeir ekki bara vonda frétta- mennsku heldur óskiljanlegan skort á dómgreind. Aðrir útvarpsráðs- menn lýstu sig sammála því að ámælisvert væri að tíunda efni skýrslu sem enginn vildi leggja nafn sitt við. Síðan héldu útvarpsráðs- menn áfram að skeggræða dagskrá sjónvarpsins og frammistöðu ein- stakra starfsmanna ... ÍELki virðist ganga þrautalaust fyrir Guðjón B. Olafsson að treysta stöðu sína innan SÍS. Guðjón mun hafa sótt eftir því að verða stjórnarfor- maður í hinu nýja sjávarútvegsfyrir- tæki Sambandsins, en hafa verið hafn- að. Sem sárabót fær hann að sitja í for- sæti sameinaðs verslunarfyrirtækis SÍS, sem er talið eiga mátulega bjarta framtíð fyrir sér ... ÍEins og fram kom í síðustu PRESSU var Fjárfestingarfélag ís- lands rekið með tapi á síðasta ári, eitt fjársýslufyrirtækja. Tapið má að mestu rekja til Vogalax hf., dóttur- fyrirtækis fjárfestingarfélagsins, sem nú er gjaldþrota. Á þessu ári hafa tveir framkvæmdastjórar síðan farið frá fyrirtækinu; þeir Gunnar Helgi Hálfdánarson og Gunnar Óskarsson. En þó litið sé framhjá tapinu vegna Vogalax er staða fjár- festingarfélagsins ekki góð þar sem rekstur fyrirtækisins skilaði ekki nema 50 þúsund króna hagnaði á síðasta ári. Fjárfestingarfélagið vann því ekki mikið fyrir eigendur sína á síðasta ári þó starfsmenn fyr- irtækisins og viðskiptavinir hafi not- ið góðs af rekstrinum ... egar tölvufyrirtækin Skrif- stofuvélar og Gísli J. Johnson fóru á hausinn losnaði um Microsoft-um- boðið og renndu margir aðilar hýru auga til þess. Meðal þeirra voru Friðrik Friðriksson og aðrir að- standendur Skrifstofuvéla-Sunds, en það fyrirtæki var stofnað upp úr rústum hinna fyrstnefndu. Þetta er lykilumboð í bransanum og var því hart barist þegar hinir erlendu aðil- ar leituðu að nýjum umboðsaðila. Svo fór að Skrifstofuvélar-Sund misstu af þessum feita bita og sömu- leiðis IBM, því endanlega varð fyrir valinu Einar J. Skúlason... o ^^^liklegt er talið að nokkur yngri mannanna í prófkjöri Sjálf- stæðisflokksins; þeir Guðmundur Magnússon, Hreinn Loftsson og Ólafur ísleifs- son, nái góðu kjöri. Búist er við að Olaf- ur geti fengið verstu útreiðina þar sem hann hefur minnst- an kjarnann í kringum sig og er heldur ekki svo aumur að menn hafi afskrifað hann. Hann fær því ekki atkvæði frá fylgismönnum sterku mannanna sem munu dreifa at- kvæðum sínum á minni spámenn til að tryggja að aðrir sterkir menn komi ekki alltof vel út úr prófkjör- inu... Y ■ firlýsing Davíðs Oddssonar um stuðning við Björn Bjarnason, aðstoðarritstjóra Morgunblaðsins, í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins hefur valdið gífurlegum úlfaþyt á meðal annarra þátttakanda í prófkjöri flokksins. Sárast svíður núverandi þingmönnum yfirlýsingin, en þeir f telja Davíð með þessu sýna tak- markaðan þroska til forystu... OPNUNARTHBOÐ NYIR GEISLADISKAR: VERÐ FRA KR. 590-1490 w,œi©PucciNi y3 AiOA • DON CARLOS MANQN LESCAUT NAOUCCQ • IL TRQVATORE 1 PLACIDO DOMINCO KLASSÍSK TÓNUST: Metnaðarfullt úival frá ýmsum helstu útgefendum heims á þessu svtði, s.s. Deutsche Grammophon, Harmonia Mundí, Decca, Hungaroton, Bis o.fi. Hágæða útgáfúr á góðu verði, sem og vandaðar seriur, ýmsar í fyrsta sinn hér á landí. Kfassisb tónlíst á geisladisk- um frá kr. 590. œNTEMPOKARY AND HIS PALScínF SHELLY MANNEpiyt & red iviitchellSTORY DJASS, BLÚS, HEIMSTÓNLIST: Höfúm á boðstóium heis.u upptökur og nýjar útgáfur ýmissa fremstu tónlistarmanna djass-, blús- og heimstónlíst- arinnar, t.a.m. Duke EUington, Billy Holiday, B.B. King, Albert King. Safif Keita, Ali Fraka Toure o.s.ftv. , * POPP, ROKK: Ört vaxandi deíld sem býður upp á popp og rokk á breiðum grundvelli. Allt frá : endurútgáfum frá upphafsárum rokksíns og seinní tima tíl þess sem er að gerast á sviði rokktónlístar i dag - á morgun og allt þar á millí. Wassísk rokktónlist, rokka- billi, vinsreiir daegurlagasöngvarar, sáltónlist, þungarokk o.fl. o.fl. Lægra vöruverð, Qölbreytt úrval og ýmislegt sem þig hefur aldrei dreymt um að sjá í verslunum hérlendís. Sérpantanir og bætt þjónusta við viðskiptavini er markmið okkar. Komdu og kynntu þér töfraheim tónlistarinnar i Japís, Brautarholti 2. SENDUM í PÓSTKRÖFU SAMDÆGURS. JAPISS BRAUTARHOLTI 2 SÍMI 625200

x

Pressan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.