Pressan - 25.10.1990, Blaðsíða 9
FIMMTUDAGUR PRESSAN 25. OKTÓBER
9
GREIÐUM EKKI MEÐ ÞEIM PENINGUM
SEM VIÐ NÁUM EKKIINN
— segir Ólafur Björnsson, aöaleigandi Oss
„Ég greidi ekki med þeim pening-
um sem ég fœ ekki. Fyrirtœkib var
byggt hratt upp og hefur mjög lítid
tapþol og vid eigum mjög óhœgt
med að greiða með þeim peningum
sem við náum ekki inn, “sagði Ölaf-
ur Björnsson, aðaleigandi Óss hf.
byggingarfélags og Oss hf. húsein-
inga, þegar PRESSAN spurði hann
hvort ekki vœri líklegt að lánar-
drottnar gamla fyrirtœkisins töp-
uðu fjármunum vegna eignaskipt-
anna á fyrirtœkinu.
Ertu ekki að velta þínum
vanda yfir á þá sem hafa lánað
þér með þessum eignabreyting-
um?
„Ég tel menn ekki verr setta. Svo
má skaða fyrirtækið að það verði
óstarfhæft og ef það er gert þá
blæða þessir fimmtíu starfsmenn
okkar. Ég vil meina að við semjum
um þetta. Dæmin segja okkur að
gjaldþrot er það allra versta. Það
væri ljúf hugsun að reyna ekki að
bjarga þessu, en hún er ekki í far-
teskinu hérna.“
Hver er ástæðan fyrir því að
yngra fyrirtækið var látið taka
yfir rekstur þess gamla og hús-
eign þess?
„Ég horfi til þess að steypuverk-
smiðjan verði gerð að almennings-
hlutafélagi eftir tvö ár þegar við er-
um búnir að sanna að reksturinn
gangi einn og óstuddur. í öllu þessu
„Ef ntenn lenda i
vanskilum og lög-
frœðingum vaxa
skuldirnar en
eignirnar standa i
stað. Og ef þœr
seljast ekki sigur
ó ógæfuhliðina.##
basli hefur reksturinn skilað hagn-
aði í ár.“
Þó ekki byggingarfélagið Ós,
því það hefur enga starfsemi:
„Byggingarfélagið hefur reynt að
selja eignir sínar og gera upp skuld-
ir.“
Samkvæmt heimildum PRESS-
UNNAR eru skuldir félagsins
gagnvart Tollstjóranum í Reykja-
vík um 50 milljónir og gagnvart
Sementsverksmiðjunni á Akra-
nesi hátt í 30 milljónir og eru þá
bara tveir lánardrottnar upp-
taldir:
„Ég rengi ekki þessar tölur en
eignir eru meiri en þetta."
Skipta þær hundruðum millj-
óna?
„Nei, ég segi það ekki. Ef menn
lenda í vanskilum og lögfræðingum
vaxa skuldirnar en eignirnar standa
í stað. Og ef þær seljast ekki þá sígur
á ógæfuhliðina."
Hefði ekki verið eðlilegra að
gera byggingarfélagið einfald-
lega upp um síðustu áramót?
„Það veit hver maður að gjald-
þrotin eru ekki til bóta. Við erum að
reyna að borga skuldir okkar og við
höfum ekki gefist upp við það.“
Hafið þið selt einhverjar eignir
byggingarfélagsins frá því fyrir-
tækið lagði niður starfsemi?
„Við höfum losað um aura. Við
höfum innheimt gamlar skuldir en
eigum eftir sem áður útistandandi
um 60 til 80 milljónir um síðustu
áramót. Ég hef lent í miklum erfið-
leikum. Ég var til dæmis með alla
steypuna í Alviðru og ég var með
Hamra sem viðskiptavin og það vita
allir hvernig fór með þau fyrirtæki.
Ég borga ekki með þeim peningum
sem ég fæ ekki.“
Nú segir þú orsök erfiðleik-
anna vera vanskil annarra gagn-
vart þér. En eru þessir erfiðleik-
ar ekki sjálfskaparvíti þitt fyrst
og fremst?
„Það má segja það, en þessi fram-
kvæmd á eftir að standa um ókomin
ár hvað svo sem verður um persón-
una Ólaf Björnsson. Það má segja
að það þurfi vissa brjálsemi til að
hafa lagt út í hana en ég er rígmont-
inn af því að fyrirtækið skuli skila 16
milijóna króna hagnaði á þessu erf-
iða ári.“
Er það eftir fjármagnskostn-
að?
„Nei.“
Var hagnaður á síðasta ári?
„Nei, það var tap á síðasta ári og
þá sérstaklega á viðskiptakröfum."
Eignabreytingin hefur því
bætt reksturinn umtalsvert.
Hvaða hag sérð þú í henni?
„Það gefur okkur möguleika. Ef
ég ætlaði til dæmis að selja fyrirtæk-
ið eða breyta því í almenningshluta-
félag þá kaupir enginn í því ef það
stendur jafnframt í byggingarfram-
kvæmdum og allskonar starfsemi."
Mun það skaða Ós hf. húsein-
ingar á einhvern hátt ef gamla
fyrirtækið fer í gjaldþrot?
„Það eru náttúrulega allir með
plúsmerki á milli Óss byggingarfé-
lags, Óss húseininga og Ólafs
Björnssonar. Það er óséð. Að
minnsta kosti tel ég, þó ég sé ekki
löglærður maður, að það hafi ekki
verið gengið á hlut eins eða neins
með þeim gerningum sem gerðir
hafa verið," sagði Olafur Björnsson.