Pressan - 25.10.1990, Page 10

Pressan - 25.10.1990, Page 10
10 FIMMTUDAGUR PRESSAN 25. OKTÓBER Símaþjónusta Rauðakrosshússins NEYBAR FRA Umfjöllun PRESS- UNNAR í síðustu viku um sjálfsvíg ungra manna vakti mikla athygli og umræður. WM UNGMENIU Um 2.600 símtöl þaö sem af er þessu ári, sjálfsvígshugleiðingum „Þaö er tíu ára stelpa sem hringir. Foreldrarnir eru ab slást. Þau eru bœdi ívímu um miðja nótt. Svo heyrir mab- ur bara öskrin þegar foreldrarnir koma og rífa símtóliö af krakkanum. Maöur veit ekkert hvaban hún hringir eba hver hún er, getur ekkert gert, situr bara eftir galtóm- ur og vonar ab stúlkan hringi aftur. Þetta er þaö erfiöasta viö starfiö, aö heyra slík neyöaróp án þess aö geta hjálp- aö,“ segir Hans Henttinen, forstööumaður Rauöakross- hússins, Tjarnargötu 35 í Reykjavík, þar sem rekin er símaþjónusta fyrir börn og unglinga allan sólarhringinn, auk þess sem þar er staösett neyöarathvarf fyrir 18 ára og yngri. Grein PRESSUNNAR um sjálfs- morð ungmenna, sem birtist í síð- asta blaði, vakti mikla athygli. Ekki síst sú staðreynd að sjálfsmorðstíðni ungmenna er mun hærri á lands- byggðinni en á höfuðborgarsvæð- inu. Þetta er í samræmi við reynslu starfsfólks Rauðakrosshússins. Meira en heimingur símtala er við ungt fólk á landsbyggðinni. Síðan rekstur Rauðakrosshússins hófst hefur komið í ljós að gífurleg vandamál eru á ferðinni á heimilum landsins. Vandamál, sem fáa óraði fyrir að væru eins alvarleg og raun ber vitni. Það sem af er þessu ári hafa 2.600 notfært sér símaþjónust- una, þar af 94 í sjálfsmorðshugleið- ingum. VÍMUEFNl EKKI STÆRSTA VANDAMÁLIÐ Rauði krossinn hóf rekstur at- hvarfsins í desember árið 1985 og var það fyrst og fremst hugsað sem neyðarathvarf fyrir börn og ungl- inga sem neyttu fíkniefna. Eftir sex mánaða tilraunatímabil sáu að- standendur hússins að miklu stærri hópur þurfti á þjónustu að halda og því var starfsemin miðuð við þarfir sem flestra. Nýtingin hefur verið góð eða um 100 til 110 komur á ári, en nokkuð er um að sömu krakkar komi oftar en einu sinni. Af þeim sem í athvarf- inu hafa dvalið eiga um 34% við mikla vímuefnaneyslu að glíma. „Áfengi og önnur vímuefni eru ekki stærsta vandamálið. Ýmsir aðrir þættir koma til; samskiptaerfiðleik- ar á heimilum, krakkar sem eru hús- næðislausir, ofbeldi á heimilum, vímuefnaneysla foreldra og margt annað,“ segir Hans Henttinen. 2.600 SÍMTÖL Á ÞESSU ÁRl Símaþjónustunni var hrundið af stað að norskri fyrirmynd í janúar árið 1987. Sú reynsla sem komin var á rekstur Rauðakrosshússins sýndi mikla þörf fyrir slíka þjónustu, því mikið var um að krakkar hringdu og óskuðu eftir upplýsingum um marg- vísleg mál, svo sem getnaðarvarnir, samskiptamál og fleira. Síðan þá hefur símtölum fjölgað ár frá ári. Fyrsta árið voru símtölin 428, árið 1988 voru þau 565 og 1989 urðu þau 1491. Það sem af er þessu ári eru símtöl orðin um 2.600. Meira en helmingur símtalanna er við ungt fólk úti á iandi og Hans Henttinen segist ekki í vafa um hvers vegna: „Eitt af markmiðunum þar af 94 frá fólki í var að koma til móts við krakka úti á landi. Það er staðreynd að félags- leg þjónusta er þar víða mjög tak- mörkuð. Krakkar sem eiga í ein- hverjum erfiðleikum eða þurfa að ræða viðkvæm mál eiga miklu minni möguleika en krakkar í Reykjavík og í stærri kaupstöðum. Það getur t.d. verið mjög erfitt fyrir fjórtán eða fimmtán ára stúlku sem heldur að hún sé ólétt að leita til læknis eða fara í apótek á stað þar sem allir þekkja alla.“ Eru beinlínis neyðaróp frá mörg- um þessara krakka? „Já, en það er rætt um nánast allt milli himins og jarðar. Stærsti hóp- urinn hringir til að ræða samskipti við jafnaldra og foreldra og sam- skipti við gagnstæða kynið. Þetta eru spurningar um ástina, kynlífs- mál, getnaðarvarnir, kynsjúkdóma og ýmislegt sem tengist kynþroska- skeiðinu. Svo er líka talsvert um al- varleg símtöl; kynferðislegt ofbeldi, alvarleg eineltismál, sjálfsvíg og ýmiss konar ofbeldi. Af þessum 'sRdaí. í. — Bág félagsleg þjónusta er helsta skýringin á neyöarópunum, segir Hans Henttinen, forstööumaöur Rauðakrosshússins. 2.600 símtölum það sem af er árinu eru 94 þar sem viðkomandi er í sjálfsvígshugleiðingum." ELLEFU HÖFÐU REYNT AÐ FYRIRFARA SÉR En hvaða ástæður eru gefnar varðandi sjálfsvígshugleiðingar? Þær eru margvíslegar og oftast eru fleiri en ein skýring. Ef þau 94 sjálfs- vígssímtöl sem borist hafa á þessu ári eru flokkuð sérstaklega má greina allt að sextán ástæðum. Þannig geta margar ástæður legið að baki einu símtali: í sautján símtölum kemur fram að viðkomandi eru í mikilli vímuefna- neyslu, en í flestum tilfellum er neyslan afleiðing einhvers sem hef- ur gerst, segir Hans Henttinen. Tólf einstakiingar eru mjög einmana, eiga enga vini og lifa mjög einangr- uðu lífi. Níu eru með mjög lélega sjálfsmynd og tíu eru að hugsa um að svipta sig lífi vegna þess að ein- hver nákominn þeim hefur fyrirfar- ið sér stuttu áður. Af börnunum eru tíu sem tala um mikla vímuefnaneyslu foreldra sem orsök fyrir þessum hugsunum. Ell- efu hafa reynt að fyrirfara sér áður en þau hringja. Sex strákar á aldrin- um 15—17 ára halda að þeir séu hommar og eiga erfitt með að lifa með þeirri hugsun. Átta karlmenn á aldrinum á aldrinum 20—35 eru ný- búnir að ganga í gegnum erfiðan skilnað, þar sem m.a. hefur verið barist fyrir forræði barna. Níu ein- staklingar hafa lent í miklum úti- stöðum við foreldra og í nokkrum tilfellum er um að ræða líkamlegt ofbeldi. Fjórum stúlkum hefur verið nauðgað. Alls minnast sex á áfall í námi á menntaskóla- og háskólastigi, ungt fólk sem hefur fallið í skóla og telur sig undir álagi vegna kröfu foreidra um árangur. Sex einstaklingar nefna fjárhagserfiðleika og gjald- þrot, þar af fimm karlmenn. Átta einstaklingar nefna þunglyndi, óskilgreint, Fjórar stúlkur urðu óléttar mjög ungar og gengust undir fóstureyðingu. Tveir drengir eru í sjálfsmorðshugleiðingum vegna eineltis og ofbeldis í skóia. Af allri þessari upptalningu er ljóst að skýringarnar eru margar og oftast fleiri en ein þegar unga fólkið hugleiðir sjálfsmorð. Ennfremur er í Hvers vegna er hringt í neyðarsímann? Skilnaöir Einmanaleiki Vímuefnaneysla Einelti Ofbeldi Jákvæð símtöl Léleg sjálfsímynd Samskiptavandamál Samskipti kynjanna Kynlífsvandamál 5 10 15 20 25 Ástæður innhringinga til neyöarslmans (prósentum 91-622266 Brot úr símtölum ungs fólks í sjálfs- vígsh ugleiðingum „BESTI VINUR MINN FYRIR- FÓR SÉR. ÉG GET EKKI ÍMYNDAÐ MÉR HVER ÁSTÆÐAN VAR . . ." 19 ÁRA STRÁKUR „STJÚPPABBI NOTAÐI MIG í TVÖ ÁR. ÉG REYNDI AÐ SEGJA MÖMMU, EN HÚN TRÚÐI MÉR EKKI . . ." 16 ÁRA STELPA „ÉG Á ENGA VINI. ENGINN VILL NOKKUÐ MEÐ MIG HAFA . . ." 14 ÁRA STRÁKUR „BRÓÐIR MINN DÓ í SLYSI. EG HEFÐI FREKAR ÁTT AÐ FARA . . ." 16ÁRA STRÁKUR „ÉG HELD AÐ ÉG SÉ HOMMI — GET EKKI LIFAÐ MEÐ ÞVÍ . . ." 16 ÁRA STRÁKUR „EINU SAMSKIPTIN Á MILLI MÍN OG FORELDRA MINNA ERU BARSMÍÐAR OG ÖSKUR . . ." 18 ÁRA STÚLKA „MAMMA LEMUR MIG EINS OG TUSKU. HÚN VILL ÖRUGGLEGA LOSNA VIÐ MIG . . ." 17 ÁRA STÚLKA sumum tilvikum um geðræn vanda- mál að ræða. Hvað varðar sjálfsvígssímtöl skera einkum tveir hvaða landshlut- ar sig úr, en vegna þess hve við- kvæm þessi mál eru sér Hans ekki ástæðu til að tilgreina þá. Sam- kvæmt heimildum PRESSUNNAR er einkum um að ræða Norðurland og Austfirði, en Hans vildi ekki stað- festa það. BETUR HLÚÐ AÐ FÓLKI í NÁGRANNALÖNDUNUM En hvað geta starfsmenn Rauða- krosshússins gert þegar þeir vita að mjög alvarleg mál eru á ferðinni úti á landi? Geta þeir hringt í aðila í við- komandi byggðarlögum og beðið um að skorist verði í leikinn? „I fæstum tilfellum getum við það,“ segir Hans, „og krakkarnir gefa sjaldnast upp nafn. Langoftast er þó vitað frá hvaða landsvæði er hringt og hvað viðkomandi er gam- ail. En við vísum alveg miskunnar- laust á aðra aðila sem eru betur í stakk búnir að sinna svona málum, t.d. Samtökin um sorg og sorgarvið- brögð, félagsmálafulltrúa, kennara og auðvitað vísum við á foreldrana. Það er nefnilega oft sem krakkarnir gera sér ranghugmyndir um við- brögð foreldranna." Núna hringja ekki eingöngu börn og unglingar, því um 13% símtal- anna eru við fólk yfir tvítugu. „Það sýnir okkur hvað fullorðnir hafa mikla þörf fyrir þetta líka,“ segir Hans, en hann er nýkominn frá fundi í Svíþjóð með fólki sem starfar við símaþjónustu. Þar kom fram.að á íslandi er símaþjónustan langmest notuð og þá ekki bara miðað við höfðatölu. En hver er skýringin? „í nágrannalöndunum er félagsleg þjónusta miklu fullkomnari en hér á landi. Þar er miklu betur hlúð að einstaklingum og fjölskyldum, bæði fjárhagslega og félagslega," svarar Hans að bragði. „Ég held það hljóti að vera skýringin á því að fólk í Sví- þjóð, Finnlandi, Noregi og Dan- mörku hefur ekki jafnmikla þörf og fólk hér fyrir að notfæra sér slíka símaþjónustu." Kristján Þorvaldsson

x

Pressan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.