Pressan - 25.10.1990, Síða 14

Pressan - 25.10.1990, Síða 14
14 FIMMTUDAGUR PRESSAN 25. OKTÓBER Útgefandi: Blað hf. Framkvæmdastjóri: Hákon Hákonarson Ritstjórar: Gunnar Smári Egilsson Kristján Þorvaldsson Blaðamenn: Friðrik Þór Guðmundsson Hrafn Jökulsson Þórdís Bachmann Ljósmyndari: Sigurþór Halibjörnsson Útlitsteiknari: Jón Óskar Hafsteinsson Prófarkalesari: Sigríður H. Gunnarsdóttir Auglýsingastjóri: Hinrik Gunnar Hilmarsson Dreifingarstjóri: Sigurður Jónsson Setning og umbrot: Leturval Prentun: Oddi hf. Ritstjórn og skrifstofur: Ármúla 36, sími: 68 18 66. Auglýsingasími: 68 18 66. Áskrift og dreifing: Ármúla 36, sími 68 18 66. Áskriftargjald 500 kr. á mánuði. Áskriftargjald: Pressan og Alþýðublaðið: 1000 kr. á mánuði. Verð í lausasölu: 150 kr. eintakið. Aumt siðferði í PRESSUNNI í dag er fjallað um nafnbreytingar á steypu- verksmiðjunni Ósi. Eigendur fyrirtækisins hafa flutt rekst- ur þess og helstu fasteignir yfir á annað fyrirtæki í sinni eigu. Við þau skipti verða allar lausaskuldir fyrirtækisins, sem safnast hafa upp á undanförnum árum, eftir hjá gamla fyr- irtækinu. Það er hins vegar nánast ekki neitt nema nafnið tómt. Það stundar engan rekstur og á litlar sem engar eign- ir upp í skuldirnar. Eigendurnir reka hins vegar fyrirtækið áfram undir nýja nafninu. Reksturinn gengur mun betur að sögn aðaleig- andans, sem segist rígmontinn af þeim sökum. Það er kannski ekki furða þó reksturinn gangi betur, því í einu vetfangi hafa allar lausaskuldir verið höggnar burtu. Að veðskuldum slepptum hefur fyrirtækið því skyndilega hreint borð. ■ Þeir sem lánuðu fyrirtækinu í góðri trú standa hins vegar eftir með kröfur sem eru lítils virði. Þeir munu tapa hundr- uðum milljóna króna. Sögur um svona brögð í viðskiptum hafa gengið á undan- förnum árum en hafa að mestu verið bundnar við tískubúð- ir og myndbandasjoppur. Ós hf. er hins vegar ekkert smáfyrirtæki. Velta þess á síð- asta ári var um 560 milljónir króna. Það skuldar ríkisrekn- um sjóðum og bönkum hundruð milljóna. Nafnbreyting þess sýnir að nánast allt er hægt í íslensku viðskiptalífi. Þar gilda engar siðareglur. Ef einhver heldur að þær séu til ættu fjölmörg dæmi um það gagnstæða að afsanna það fyrir þeim sama. Annað nýlegt dæmi er Arnarflug. í mörg ár hafa forsvars- menn þess komið fram fyrir alþjóð og Iýst tilraunum sínum til að bjarga félaginu frá gjaldþroti. Þegar þeir leituðu síðan eftir greiðslustöðvun benti borgarfógeti þeim kurteislega á að lögum samkvæmt hefðu þeir átt að lýsa fyrirtækið gjald- þrota fyrir þremur árum eða jafnvel fyrr. Allt frá þeim tíma hafa forsvarsmenn fyrirtækisins hins vegar verið að stofna félaginu í allskyns skuldbindingar sem ljóst var að það gat á engan hátt staðið við. Þeir léku sér í raun að fjármunum þeirra sem veittu þeim greiðslu- frest eða lánuðu þeim. Því miður er siðferðið hjá Ósi og Arnarflugi ekki eins- dæmi. Það er alltof lýsandi fyrir siðferðið í íslensku við- skiptalífi. Sýnið hvað i ykkur býr Ein helsta ástæða þess að EFTA-ríkin leita nú sérstakra samninga við Evrópubanda- lagið í stað þess að sækja um aðild að því er að þessi ríki hafa ekki viljað eða treyst sér til að framselja hluta af efna- hagslegu hvað þá stjórnmála- legu sjálfstæði sínu til yfir- þjóðlegrar stofnunar eins og Evrópubandalagið er. Þetta viðhorf er svo sannarlega ríkjandi á íslandi. Það er litið á það sem sjálfgefin sannindi að sjálfstæði í efnahagsmál- um sé af hinu góða í öllum atriðum. Þetta er úrelt viðhorf. Þeirri skoðun hefur vaxið mjög fiskur um hrygg á und- anförnum árum að árangurs- ríkustu ráðstafanirnar í efna- hagsmálum geti verið fólgnar í formlegu afsali efnahags- legs sjálfstæðis. Eg vil hér taka dæmi af evrópska myntkerfinu — EMS — sem er fastgengiskerfi Evrópubandalagsríkjanna og undanfari væntanlegs mynt- bandalags þeirra. Ríki sem taka þátt í þessu myntkerfi hafa sjálfviljug þrengt til miina svigrúm sitt til sjálf- • stæðra ákvarðana í efnahags- málum þar sem verulegum erfiðleikum er bundið að breyta gengi einstakra gjald- miðla gagnvart öðrum innan myntkerfisins. Setur það rík- isfjármálastefnu en þó sér- staklega peningamálastefnu viðkomandi ríkja þröngar skorður. En það er líka til- gangurinn, að skapa hag- stjórnarákvörðunum stjórn- valda utanaðkomandi aga. Evrópska myntkerfið, sem komið var á fót árið 1979, hefur skilað ótvíræðum árangri, sérstaklega í því að draga úr og jafna verðbólgu í þátttökuríkjunum. Á undan- förnum vikum hafa tvö ríki tengst evrópska myntkerfinu nánari böndum en áður, gagngert í því skyni að njóta þessa árangurs. Fyrir um það bil mánuði gerðist Bretland fullgildur aðili að myntkerf- inu til að stuðla að hjöðnun verðbólgu þar í landi, sem hefur verið nálægt tvöfalt meiri en að meðaltali í Evrópubandalagsríkjunum. Á föstudaginn í síðustu viku lýstu Norðmenn því yfir að framvegis yrði gengi norsku krónunnar bundið við evrópsku mynteininguna — ECU — sem myndar kjarn- ann í evrópska myntkerfinu. Yfirlýstur tilgangur Norð- manna með þessari ráðstöf- un er að treysta í sessi þann árangur sem þeir hafa náð í baráttunni við verðbólguna á undanförnum misserum. Sú spurning ve/ður auðvit- að áleitin hvort íslendingum er fær svipuð leið og Norð- mönnum til að varðveita árangur þjóðarsáttarinnar frá síðasta vetri. Svarið við þeirri spurningu liggur í raun í svarinu við annarri: Væri yfirlýsing stjórnvalda um að gengi ís- lensku krónunnar yrði fram- vegis óbreytt trúverðug? Grunur minn er sá að ýmsir myndu ekki taka slíka yfirlýs- ingu mjög hátíðlega og þá væri verr af stað farið en heima setið. Islensk stjórnvöld hafa á liðnum árum haldið illa á gengismálum og borið litla virðingu fyrir verðgildi krón- unnar. í raun má segja að þau hafi misnotað það sjálfstæði sem þau hafa haft við stjórn efna- hagsmála og þar með átt drjúgan þátt í því að verð- bólga á íslandi hefur allt fram undir það síðasta verið marg- falt meiri en í nágrannalönd- unum. Áður en formleg eða óformleg tenging við evrópska myntkerfið getur átt þátt í því að stuðla að stöð- ugu verðlagi á íslandi þurfa stjórnvöld að sýna fram á að þau ráði við að halda genginu stöðugu lengur en í nokkra mánuði í senn. Nú hafa lands- feðurnir tækifæri til að sýna hvað í þeim býr. SKRAMBINN, LOKSINS ÞEGAR EINHVER ER KOMINN UPPÍ TIL MANNS, ÞÁ ER EKKI HÆGT AÐ VEKJA HANNI TEIKNING: ÓMAR STEFÁNSSON PRÓFKJÖR Davið á að fá tækifæri til þess að gera það sem Þorsteini mistókst, segir Jón Óttar. Einmitt á þeim tímamót- um þegar ísiendingar eru að lokast öfugu megin við járntjaldið og Alþingi er orðið líkara líkhúsi en æðstu valdastofnun þjóðar- innar er prófkjör hjá íhald- inu í Reykjavík og Reykja- nesi. Stjórnarandstaða Sjálf- stæðisflokksins hefur verið með afbrigðum slöpp, kerf- isstimpillinn loðir æ fastar við flokkinn og öllum er orðið augljóst að hann er bókstaflega að hruni kom- inn. Á sama tíma og íhaldið talar um einkavæðingu verndar það og stýrir flest- um þeim stofnunum sem við áttum að einkavæða fyrir löngu, þ.á m. Ríkisút- varpinu og Húsameistara ríkisins (svo aðeins tvennt sé nefnt). Hvílík hræsni. í auglýsingaskruminu og bramboltinu tala allir um að þeir vinni gegn kerfinu, en einungis Davíð, Eykon og Friðrik hafa af einhverju að státa og nokkrir vænleg- ir nýgræðingar eru líklegir til þess ef þeir fá færi. DAVÍÐ, ÞURÍÐUR, GUÐMUNDUR MAGNÚS- SON OG BJÖRN Öfugt við Þorstein Púls- son — sem hefur endan- lega mistekist að sannfæra þjóðina um að hann ætli og geti dregið hana á hárinu út í frelsið — hefur Davíð breytt Reykjavík úr stein- dauðu sveitaþorpi í sæmi- lega lífvænlega smáborg. Davíö Oddsson ættu allir í þessum flokki að kjósa og hann á að fá eitt tækifæri til þess að gera það sem Þor- steini mistókst, en aðeins eitt. Takist honum ekki að þvo kerfisstimpilinn af flokknum þarf að stokka hann upp frá grunni. Af öðrum sem eru í fram- boði á Þuríður Púlsdóttir erindi á þing. Þuríður er nákvæmlega sú tegund kvenna sem íhaldið vantar sárlegast eftir að barbí- dúkkurnar voru endanlega búnar að láta karlana kveða sig í kútinn. Guömundur Magnússon er annar sem á skilið að fá sitt tækifæri. Hann er sá eini fyrir utan Þuríði og Davíð sem maður getur treyst sæmilega til þess að stokka upp ríkisfjölmiðl- ana, landbúnaðarkerfið, dómskerfið o.s.frv. Björn Bjarnason er að vísu afsprengi kolkrabbans, þ.e. eignarhaldsfélags ís- íenska þjóðfélagsins hf. (sem Jón Baldvin kallar fjölskyldurnar fjórtán), enhann er heiðarlegur, hefur þor, hefur vaxið og á að fá tækifæri. Eykon hefur staðið sig vel og með aðstoð frænda síns, Baldvins Jónssonar auglýsingastjóra, ekki mis- tekist í auglýsingunum. En Eykon hefur barist lengur og með meiri árangri við kerfið en flestir aðrir og á skilið að fá kosningu. Friðrik Sophusson er ekki maður sem á að veita íhaldinu forystu, en hann er góður maður númer tvö. Hann er farsæll, frjálslynd- ur og hvers manns hugljúfi. Hann á því skilið að fá góða kosningu. í þessum hópi saknar maður hins vegar fleiri eld- huga. Kjartan Gunnarsson, Magnús Gunnarsson og Hannes Hómsteinn eru allt menn sem eiga að vera á Alþingi til að glæða þenn- an sviðna akur nýju lífi. BURT MEÐ KERFIS- LIÐIÐ í Reykjavík er Guömund- ur H. Garðarsson sá sem Reykvíkingar eiga ekki að kjósa eina ferðina enn. Þessi hjólsmurði kerfis- pólitíkus er búinn að hafa nægan tíma til að afsanna frjálslyndi sitt í verki. Út með hann. Sömuleiðis Ólaf G. Ein- arsson, fyrirgreiðslu-kerfis- pólitíkus Reyknesinga, sem er búinn að fá næg tæki- færi. Hafa sjálfstæðiskonur nú möguleika að koma Salóme Þorkelsdóttur í efsta sætið og ættu að reyna það. Því miður hefur prófkjör- ið mistekist í Reykjanes- kjördæmi og er sjónarsvipt- ir að hinum ljúfa Matthíasi Mathiesen. Áf þeim sem bjóða sig fram og maður þekkir er einungis hægt að treysta Salóme Þorkelsdótt- ur til að gera sitt til að brjóta flokknum og þjóð- inni braut úr frumskógin- um ... út í frelsið. Höfundur er rithöfundur og fyrrverandi sjónvarpsstjóri.

x

Pressan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.