Pressan - 25.10.1990, Page 21
21
LISTAPÓSTURINN
Yoko Ono
Reynt að fá
Yoko Ono til
að fremja
gjörning
Eins og kunnugt er verður í apríl
næstkomandi sett upp á Kjarvals-
stöðum sýning á verkum myndlist-
arkonunnar Yoko Ono, ekkju bítils-
ins Johns Lennon. Töluverður við-
búnaður er vegna komu Yoko, en
hún mun dvelja hér í a.m.k. tíu daga
vegna sýningarinnar. Forvarsmenn
Kjarvalsstaða eru nú að reyna að ná
samkomulagi við Yoko um að hún
fremji gjörning á meðan á dvölinni
stendur. Jafnframt sýningu á verk-
um Yoko Ono verður í austursal
Kjarvalsstaða sett upp yfirlitssýning
á verkum fluxus-hreyfingarinnar,
sem Yoko tilheyrir, og hafði gífurleg
áhrif á marga íslenska myndlistar-
menn á sjöunda áratugnum ...
Frá sýningu Leikfélags Kópavogs.
„Skítt með’a“
Leikfélag Kópavogs sýnir nk.
iaugardag nýtt íslenskt leikrit,
„Skítt með’a" eftir valgeir skag-
FJÖRÐ, í leikstjórn höfundar. Leikrit-
ið fjallar um unglinga, dóp, brenni-
vín, foreldravandamál, erjur og ást-
ir. Valgeir hefur verið afkastamikill
leikritahöfundur síðustu þrjú ár. Eft-
ir hann hafa verið sýnd þrjú leik-
verk hjá atvinnuleikhúsum og í
sjónvarpi, en „Skítt með’a” er sjötta
verkið frá honum. Auk þess hefur
Valgeir sjálfur leikið í fjölda sýn-
inga, sem einnig lauk námi frá Leik-
listarskóla íslands fyrir þremur ár-
um. í leikritinu eru tólf sönglög eftir
Valgeir, sem einnig hefur verið af-
kastamikill dægurlagahöfundur,
m.a. samið nokkrar þekktar Júró-
vísjón-ballöður. Sautján leikarar eru
í sýningunni, á aldrinum sextán ára
til þrítugs, en alls taka 50 manns
þátt í henni.
Arthúr Björgvin skrifar bók um „Ljóshærða
villidýrið“
íslendingasögurnar og íslenskar fornbókmenntir
misnotaðar í þágu nasismans
„Ljóshœröa villidýrið er úttekt á því hvernig Þjóðverjar og sér í
lagi nasistar fóru með menningararf okkar á sínum tíma. Rakin er
saga þess hvernig Ijóshœrðir og bláeygir menn urðu að þjóðhetjum
á nasistatímanum. Ég fjalla um arískan aðal og hvernig nasistar
notuðu íslendingasögurnar og Eddukvœðin í áróðri fyrir þessu fyrir-
myndarfólki. Þeir tefldu fram hetjum úr Islendingasögunum og forn-
bókmenntum okkar og stilltu þeim upp sem fyrirmynd fyrir Þjóð-
verja og almennilega nasista, segir Arthúr Björgvin Bollason um Norræn goð og nasistar tengjast enn, segir Arthúr Björgvin en hann hefur m.a.
nýja bók sína, Ljóshœrða villidýrið, sem kemur út hjá Máli og menn- kynnt sér þýska ásatrúarsöfnuði sem taldir eru eidisstöðvar fyrir nýnasista.
ingu í nœsta mánuði.
íslenskar
hetjur
fyrirmynd
nasista
Viðfangsefni Arthúrs hefur aldrei
fyrr verið rannsakað sérstaklega og
í bókinni koma fram ýmsar nýjar
upplýsingar um samskipti íslenskra
fræðimanna og menningarfrömuða
við þýska kollega sína. Birtur er
kafli úr bréfi Gunnars Gunnarssonar
til Norræna félagsins í Þýskalandi,
sem leiðir fram nýjar upplýsingar
um viðhorf Gunnars til vinnubragða
nasista.
KENNARARNIR LÖGÐU
HETJUNUM ORÐ í MUNN
Áróðurinn fór ekki síst fram í skói-
unum og um það fjallar Arthúr
Björgvin sérstaklega: „Þeir gerðu ís-
lenskar fornbókmenntir að samger-
mönskum menningararfi, sínum
eigin menningararfi. Reyndu að
koma þeirri hugmynd inn hjá
krökkunum að þetta væru þeirra
eigin forfeður og þeir ættu að haga
sér eins og þeir. Sem dæmi vildu
þeir efna til sérstakra Eddukvölda,
þar sem menn kæmu saman í and-
akt. Einhver góður þulur færi með
kafla úr Eddunum og síðan sætu
aðrir viðstaddir í tilbeiðsluástandi.”
Kvenpersónur íslendingasagna
fóru heldur ekki varhluta af áróðri
nasista. „Þeir stilltu Guðrúnu Ósvíf-
ursdóttur og Auði konu Gísla Súrs-
sonar upp sem fyrirmynd þýskra
kvenna,” segir Arthúr.
Fékk þessi áróöur nasistanna
hljómgrunn?
„Já, sérstaklega meðal æskufólks.
Þeir sem héldu honum á lofti voru
einkanlega menntamenn, menn-
ingarmafía nasismans og mjög
margir sem voru inni í skólakerfinu.
Einkum var ieitast við að troða
áróðrinum upp á menntaskóla- og
háskólafólk.”
Hvernig var þetta matreitt, voru
þýöingarnar góðar?
„Það var allur gangur á því. Að
vísu var útgáfa á Islendingasögum
hafin áður en nasistar komust til
valda, en eftir valdatöku þeirra varð
mikill fjörkippur. í kennslunni þótti
mörgum kennurum ekki nógu gott
að nota kórréttu þýðingarnar. Þeim
fannst einfaidlega íslendingasög-
urnar ekki segja nógu mikið á köfl-
um og á forkastanlegan hátt skáld-
uðu þeir sjálfir upp úr sögunum efni
fyrir nemendur. Þegar t.d. einhver
hetja dró spjótið úr banasári ætt-
ingja síns lögðu þeir henni orð í
munn. Undir slíkum kringumstæð-
um sögðu menn yfirleitt fátt í íslend-
ingasögunum, enda ekki mjög mái-
glaðir menn, en þýsku kennararnir
skálduðu þá gjarnan einskonar ein-
ræður sálarinnar, hvaða tiifinningar
bærðust hetjunum í brjósti þannig
að nemendur skildu hverslags
sómafólk þar væri á ferðinni.”
ÞJÓÐVERJA VANTAÐI
BÓKMENNTAARF
Hvad var það öðru fremur sem
olli því aö íslendingasögurnar voru
notadar, eda réttar sagt misnotaðar,
meb þessum hœtti?
„Áhugi Þjóðverja á íslendinga-
sögunum og miðaldabókmenntum
okkar vaknaði á nítjándu öldinni í
tengslum við rómantísku hreyfing-
una, í tengslum við störf manna eins
og Jakobs Grimm og Grimms-
bræðra. Jakob Grimm stóð t.d. fyrir
Edduþýðingum. Undirrótin að
þessu öllu saman er sú, að þegar
þjóðernisvakningin hófst í Þýska-
landi áttuðu Þjóðverjar sig á því, að
þeir eiga engan almennilegan bók-
menntaarf til að styðjast við.”
Einn af stórmennum nasismans
sem gengu fram í þessu var Himml-
er, „en hann var mikill germanna-
unnandi og aríaunnandi”, segir Art-
húr Björgvin. „Annar maður var
Rosenberg, sem var verndari Nor-
ræna félagins í Þýskalandi á þessum
árum. Hann var tekinn af lífi eftir
Nflrnberg-réttarhöldin, einn af
svæsnustu skrifborðsmorðingjum
Þriðja ríkisins.”
GUNNARI FANNST NÓG UM
Langur kafli í bókinni fjallar um
gestagang í Þriðja ríkinu. Sagt er frá
heimsóknum íslenskra menningar-
frömuða til Þýskalands og píla-
grímsferðum þýskra nasista til ís-
lands til þess að skoða aríana. í þess-
um kafla er á vissan hátt brugðið
nýju ljósi á tengsl Gunnars Gunnars-
sonar rithöfundar við nasistana.
Meðal annars er kafli úr óbirtu bréfi
sem Gunnar skrifaði til Norræna fé-
lagsins. „Ég komst yfir þetta hjá
fyrrverandi ritara Norræna félags-
ins í Lflbeck, sem hefur bæði bréf
Gunnars og Knuts Hamsun undir
höndum,” segir Arthur Björgvin.
„Bréfið bregður Ijósi á viðhorf
Gunnars og sýnir að hann hefur
bæði áttað sig á starfsemi Norræna
félagsins á þessum árum og gert sér
grein fyrir því að hann er kominn út
á hálan ís með því að styðja þennan
félagsskap. Engu að síður hefur
hann samúð með þeim og vill halda
samvinnu áfram. Hann skrifaði
þetta bréf vegna þess að hann hafði
fengið á sig skammarbréf í þýsku
blaði, fyrir að sigla undir fölsku
flaggi. Hann þakkar pent fyrir sig og
segist vera búinn að fá nóg af
skömmum í sínu heimalandi, bjó
reyndar þá í Danmörku, en biður þá
að þagga niður í þessu fólki, sjá til
þess að hann fái ekki fleiri slíkar
ádrepur, nógu erfitt sé fyrir hann að
styðja þá samt.”
Lokakafli bókarinnar heitir Upp-
risa guðanna og fjallar um fram-
vindu ásatrúarinnar fram á okkar
daga. í byrjun aldarinnar voru
nokkrir öflugir > ásatrúarsöfnuðir
starfandi i Þýskalandi, þar á meðal
hið svokallaða Thule-félag, sem í
voru ekki ómerkari menn en Hess,
Göring og sjáifur Adolf Hitler. Eftir
stríð lifnuðu nokkur þessara félaga
aftur við, þ.á m. svokallaðir Gylfung-
ar, sem kenna sig við Gylfa konung
í Snorra-Eddu, og svokallaðir Arm-
anir. „Þetta eru mjög sérkennileg fé-
lög sem nota Eddurnar sem eins-
konar helgirit, trúa á það sem í þeim
stendur. Þetta fólk er ennþá í fullu
fjöri í Þýskalandi og heldur sín blót.”
NORRÆN GOÐ OG NASISTAR
TENGJAST ENN
„í gegnum þetta allt gengur þetta
Ljóshærða villidýr, það sem spek-
ingurinn Nietzsche kallaði þetta fyr-
irbæri, germanann með blá augun
og bjart hárið,” segir Arthúr Björg-
vin. En hefur þessi misnotkun á ís-
lenskum bókmenntum haft áhrif á
vinsældir þeirra nú á tímum?
„Jú, eins og með aðrar bókmennt-
ir sem nasistar misnotuðu á sínum
tíma fengu þær óorð á sig eftir stríð-
ið, en það hefur lagast um leið og
menn hafa farið að gera upp fortíð-
ina og nú er farið að gefa þessar
bækur aftur út í Þýskalandi.”
Tileinka nýnasistar sér þessi
frœbi?
„Þeir kunna ekki mikið fyrir sér,
en það er talið að þó nokkrir þess-
ara ásatrúarsafnaða séu beinlínis
eldisstöðvar fyrir nýnasista. Þannig
að þar tengjast norræn goð og nas-
istar einn ganginn enn. En þessir
söfnuðir eru yfirleitt mjög fámennir
og fólk hræðist þá ekki.”
Kristján Þorvaldsson
H
Eskimóa-list frá
Smithsonian
Inúíta-listaverk verða sett upp í
sölum Kjarvalsstaða í vikunni.
Sýningin heitir Andleg veröld
eskimóa í Alaska og verður opnuð
á laugardag. Um er að ræða sýn-
ingu frá Smithsonian-safninu í
Washington DC. Að sögn gunn-
ARS B. kvaran, forstöðumanns
Kjarvalsstaða, er hér á ferðinni
þjóðhátta- og mannfræði fremur
en hefðbundin listsýning. „Þetta
er vönduð sýning, sem fjallar um
inúíta-list, hugarheim og hand-
mennt,” segir Gunnar.