Pressan - 06.12.1990, Blaðsíða 2

Pressan - 06.12.1990, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR PRESSAN 6. DESEMBER Það fer vist ekki framhjá neinum að einn íslensk- ur rithöfundur fær meiri auglýsingu en aðrir í Rík- isútvarpinu fyrir jólin. Það er jjjóðhóttagrúsk- arinn ARNI BJÖRNS- SON en undantekning- arlaust er viðtal við hann í fréttatíma auk þess sem lesið er úr nýjustu bók hans. Þessi árlega fimm mínútna auglýsing kom í kvöldfréttatíma Ríkisútvarpsins um síð- ustu helgi og eru aðrir rithöfundar grænir af öf- und. Ekki er hægt að átta sig á því hvers vegna Árni fær þessa umfjöllun þó að bækur hans séu athyglisverðar. Er líklegt að efni þeirra standi nærri fréttamati frétta- stofunnar. Sem sagt: fornar og þjoðlegar frétt- ir. Harmsaga EINARS VIL- HJALMSSONAR heldur áfram því að enn veit hann ekki hvaða spjóti hann á að kasta. Einar er því hættur að kasta og farinn að skrifa um spjót- kast. Er BJARNI FEL. dansk- ur? Þessarar spurningar spyrja handboltaáhuga- menn sig eftir að hafa hlustað á stutta lýsingu hans á landsleiknum við Dani. Bjarni var nefni- lega hinn ánægðasti þegar Danir jöfnuðu með ólöglegu marki í lokin. Þá muna allir eftir áhuga hans á danska dýnamítinu. Árni, stjórnar Hans klaufi nokkuð viðgerð- unum? „Þaö getur vel veriö; hann kom þó konungsdóttur- inni til aö hlœja.“ Arni Johnsen er formaður bygging- arnefndar Þjóðleikhússins en nú er Ijóst að kostnaður við viðgerð á hús- inu fer að minnsta kosti fjórðungi fram úr áaetlun. Er talið að heildar- kostnaður við endurreisn hússins muni nema tæplega 800 milljónum króna við verklok áriö 1992. ÞRáBmiftKftBTffiETT Enn ein skraiitfjöðrin bætist nú í fjörugt næturlíf Reyk- víkinga. Þessi kemur frá London og nefnist The Tofu Twins. Hins vegar eru ekki tvíburar á ferðinni heldur þrí- burar og flytja óvenjulegan kabarett, blanda saman söng, tónlist og spaugi. Veitingahúsið Gay 22 stendur fyr- ir komu þríburanna sem munu skemmta þar tvær næstu heigar. Er þetta ekki tilvalið með jólaglögginu? Það voru írskir sér- fræðingar sem settu skiltið upp. Hér eru þeir góðglaðir að verki loknu. Risafjölmiðill hóf göngu sína á mánudaginn. Það er . .risaskilti sem hangir utan á Kringlunni. Talið er að um \ 70 þúsund manns muni sjá skiitið á degi hverjum, eða \ rétt tæpur fjórðungur þjóðarinnar. Þetta er álíka og horft er á vinsælustu þætti sjónvarpsstöðvanna. Útsendingar þessa fjölmiðils eru frekar \ einhæfar enn sem komið er: auglýsingar frá V verslununum í Kringlunni. Það kann hins \ vegar að breytast. Víða erlendis getur almenningur fengið að setja inn skilaboð á svona skilti. Þannig hafa nokkrir New Yorkbúar krækt í sína heittelskuðu með því að biðja hennar á risaskiltinu á Time Square. Forsvarsmenn Kringlunnar segja að það sé hugsanlegt að íslenskir elskhugar geti gert það sama ein- hvern tíma í framtíðinni. En þangað til verða auglýsingarnar alls ráðandi. Sá sem stjórnar útsendingum þeirra er Kristján Karlsson auglýsinga- teiknari. Hann mun sitja næstu mánuðina við tölvuna og spila á skiltið fyrir bílstjórana á Miklubraut. Eins og óvætturin í óper- unni er Kristján Miklubrautaróvætturin. úýutáan <£ faió&ituti Kraftafólk í World Class fékk óvæntan glaðning á mánudags- kvöldið þegar fram spruttu íturvaxnar tískusýningarstúlkur á nærbrókinni einni saman. Þar voru komnar stúlkur úr Módel '79 sem sýndu nærföt með sjálfa ungfrú ísland í fylkingarbrjósti. Þetta var að sjálfsögðu blúndunærfatnaður af bestu gerð og nátt- kjólar í stíl. Að sögn Björmu Didriksen, eiganda Misty, eru íslensk- ar konur mjög vandlátar. „Þær eru vanar góðu og það þýðir ekk- ert að bjóða þeim neitt rusl.“ Eftir því sem PRESSAN kemst næst er þetta fyrsta tískusýningin í líkamsræktarstöð en af hverju fór sýningin fram þar? „Ég er að reyna að ná til yngri viðskiptavina og vildi sýna á stað þar sem áfengi væri ekki haft um hönd. Reynslan hefur sýnt að nærfatasýningar á vínveitingastöðum ganga ekki,“ sagði Bjarma. Miklubrautaróvænupin LITILRÆÐI af ráðherrum í sér Voðalega virðist það koma flatt uppá fólk hvað það er dýrt fyrir ráðherra að hleypa heimdraganum, eða réttara sagt hvað langt þarf að seilast ofaní al- menningspyngjuna þegar ráðherrar þurfa „nesti og nýja skó“ til að fara til út- landa. Stundum er mér nær að halda að fólkið í landinu og fjölmiðlar haldi að það sé bara „afþvíbara" sem okk-; ur langar öll svo ósegjan- lega mikið til að verða ráð- herrar. Einsog fólk skilji það ekki að með ráðherradómi höndlar maður lífsnautn- ina frjóvgu — gradís. Auðvitað fórnar maður hendi, fæti, hári og tönn og loks ástkonunni sjálfri til að verða ráðherra, einfaldlega af því það er svo rosalega gaman að vera ráðherra. Heimsreisurnar verða svo miklu hagkvæmari og notalegri og dýrari heldur- en þegar maður þurfti að borga þær sjálfur. Sérstaklega ef maður er frá skaparans hendi mikill ráðherra í sér. Og það er bara í mann- legu eðli að grípa gæsina meðan hún gefst ef maður sér framá að maður verði bara ráðherra einusinni á æfinni og voða stutt. Ferðast ekki í einhverjum hundsrassi aftast í flugvél- um eða búa á pensjónötum einsog Steingrímur J„ Ólaf- ur Ragnar og Jóhanna. Hafa klassa. Vera ráðherra. En ráðherra sem ekki er ráðherra í sér fær þess aldrei notið til fullnustu að vera ráðherra. Ég skrapp til Finnlands um síðustu helgi og hefði svosem fullvel getað verið ráðherra að því leytinu til að allt var borgað fyrir mig. Á leiðinni heim las ég svo í blöðunum hvað svona finnlandsför kostaði fyrir ráðherra. Og ég hugsaði sem svo: — Heppnir voru þeir hjá íslendingafélaginu í Finn- landi að ég er bara venjuleg manneskja. Ég fékk meiraðsegja að sitja á Sagaklass á heim- leiðinni vegna þess að flug- stjórinn sagði yfirflugfreyj- unni að hann væri frændi konunnar minnar. Samt kostaði ferðin hvorki hálfa né eina miljón og ekkert þar á milli, eins- og þegar Óli Þorn skreppur. Líklega er ég ekki ráð- herra í mér. Og þó talaði flugstjórinn meiraðsegja við mig og spurði mig hvort frúin væri ekki með. Og þegar ég sagði hon- um að hún hefði orðið eftir heima svaraði hann: — Nú þetta hefur verið skemmtiferð. Mér svona einsog dettur þetta í hug af því að þessa dagana eru allir að fjarg- viðrast útaf því hvað ráð- herrafrúrnar séu dýrar í rekstri. Þetta er mesti reginmis- skilningur. Eiginkona á erlendri grund sem hefur ekki úr nógu að spila verður ólukkuleg. Og ólukkuleg ráðherra- frú er til alls vís og getur orðið bónda sínum fjötur um fót ef hún hefur ekki skotsilfur. Og þeir sem verða ráð- herrar snöggvast og bara einusinni á æfinni geta ekki hætt á slíkt.

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.