Pressan - 06.12.1990, Síða 5

Pressan - 06.12.1990, Síða 5
AUK k507-29 FIMMTUDAGUR PRESSAN 6. DESEMBER 5 MEDM i\Óm\ LlÐUR FRÍÐA Á. SIGURÐARDÓTTIR Hún situr við rúm deyjandi móður. Nína - glæsileg og sjálfs- örugg. Sannkölluð nútímakona. Að maður skyldi halda. En á meðan nóttin líður vakna spurningar og efasemdir um eigið öryggi - um tilgang þess lífs sem hún lifir. Fortíðin sýnir sig í svipmynd- um og öðlast mál. Að Nínu sækja gamlar myndir og sögur sem hún reynir að bægja frá sér ... Aldrei hefur innsæi og stílgáfa Fríðu Á. Sigurðardóttur risið hærra en í þessari afburðasnjöllu sögu. Þetta er áleitinn og miskunnarlaus skáld- skapur um fólk nútímans - harm þess og eftirsjá, vit þess og vonir. Petta eru ekki kraftaverka- eða kynjasögur. Hér ræðir Svanhildur Konráðsdóttir við fólk sem gætt er dýrmætum hæfileikum. Þau eru Þórhallur Guðmundsson, Brynjólfur Snorrason, Erla Stefánsdóttir, Gísli H. Wium og Jón Sigurgeirsson. Þau eiga það sameiginlegt að hafa eitt sinn tekið ákvörðun um að nýta hæfileikana sem þau fengu í vöggugjöf í þágu þeirra sem leita að dýpri lífsfyllingu, tilgangi lífsins - sjálfu almættinu. Þau eru ólík hvert öðru og skynjanir þeirra fjölbreyttar, en öll eru þau neistar frá sömu sól og þau eiga gjöf að gefa. Það er gleði þeirra. JVeistar firá sömu sól SVANHILDUR KONRÁÐSDÓTTIR Björn á Löngnmýri segir frá: ÉG HEF LIFAÐ MÉR TIL GAMMS eykjavíkurskáldið Megas og sagnfræðingurinn Þórunn Valdi- marsdóttir hafa lagt bernskuminningar sínar, drauma og ímynd- unarafl að veði í ævintýralega og töfrandi bók um litla písl sem ólst upp í Norðurmýri í Reykjavík rétt upp úr síðari heimsstyrjöld. í sögunni kannast margir við sjálfa sig, því hún er sannferðug úttekt á lífi íslenskra barna á þessum árum. Hver man ekki sokkabandakotin óþægilegu, skólahjúkkurnar skeleggu með iýsiskönnur á lofti, eða lysti- reisur í Tívólí og Nauthólsvík? Þetta er ekki ævisaga, heldur fantasía eða rabbsódía um Reykjavík - umhverfi og atvik - í lífi lítillar píslar. RLAGIÐ LAUGAVEGI18, SÍMI91-25188 Píslarsaga úr Austurbæ SOLIMIHIIIHMVHI ÞÓRUNN VALDIMARSDÓTTIR - MEGAS GYLFI GRÖNDAL Björn pálsson á Löngumýri metur engan eiginleika meira en gam- ansemi og frelsi. Hér rekur hann uppruna sinn og ættir, nám og ferðalög yfir hnöttinn á unga aldri. Heimkominn hefur hann búskap á ættaróðali sínu og stundar jafnframt umsvifcimikla útgerð. Hann segir frá sigursælli kosningaglímu sinni við kempuna Jón Pálmason á Akri 1959 og setu sinni á alþingi um 15 ára skeið, málaferlum og kynnum sín- um af svipmiklum samtímamönnum. Björn á Löngumýri lætur engan kúga sig eða kúska, hvorki banka- stjóra, sýslumenn né ráðherra. Kímnin situr jafnan í fyrirrúmi og frá- sagnargleðin er ósvikin. Gagnmerk heimild, tæpitungulaus saga. Frá Sigga Johnnie til Sykurmolanna , ROKKSAGAISLANDS GESTUR GUÐMUNDSSON Rokkdans, brilljantíngreiðsla og heysátuhár. Bítilæði, friðar- söngvar og blómabörn. Diskódans, pönktónlist og pógódans... Rokkið tekur sífellt á sig nýjar myndir þar sem æskan veitir tilfinn- ingum sínum og viðhorfum útrás. Efni bókarinnar er fjölbreytilegt. Hér er fjallað um stefnur og strauma í íslenskri rokktónlist, hljómsveitir og tónlisttumenn, textagerð, skemmtanalíf og hljómplötugerð. Bókina prýða um 300 ljósmyndir sem hafa ótvírætt sögulegt gildi og loks eru í bókinni ítarlegar skrár yfir hljómsveitir og plötuútgáfu. Saga rokksins er fjörlega skrifuð og tví- mælalaust besta handbæra heimild um sögu rokktónlistar og æsku- menningar á íslandi.

x

Pressan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.