Pressan - 06.12.1990, Side 12

Pressan - 06.12.1990, Side 12
12 FIMMTUDAGUR PRESSAN 6. DESEMBER KÆRUR VERNA RAGNSLAUSRA UTTEKTA VERKFRÆRINGA Kœrur streyma til Neytendasamtakanna vegna steypuviðgerða á f/ölbylishúsum Neytendasamtökin eru nú meö til skoðunar alls átta kœrur eda kvartanir frá húsfélögum vegna mikillar magnaukningar og verdhœkkunar á húsaviögeröum. Dœmi eru um ad reikningar íbúa fjölbýlishúsa hafi allt aö því þrefaldast þrátt fyrir verkfrœöilega úttekt og út- boö. Neytendasamtökin vildu ekki gefa upp hverjir kœrend- ur vœru, en athugun PRESSUNNAR leiddi fljótlega í Ijós fjögur til fimm nýleg dœmi. í fjórum tilvikum var þaö Verkvangur sem annaöist verkfrœöilega úttekt á viö- geröarþörf og sá um útboö. Lítum á fjögur dæmi: FELLSMÚU: 160% HÆKKUN Við Fellsmúla 5—7 tók Verkvang- ur að sér úttekt og útboð snemma sumars. Níu aðilar buðu í verkið; í kjölfarið var samið við lægstbjóð- anda, Verk hf, um viðgerðir. Tilboð- ið hljóðaði upp á 2,4 milljónir króna og átti verkið að taka einn mánuð. í Ijós kom að skemmdir voru mun meiri en úttekt benti til og í sept- ember hljóðaði reikningurinn upp á 6,2 milljónir og var hann þó ekki endanlegur. í Fellsmúla 5—7 eru 22 íbúðir. Eig- endur þeirra töldu að kostnaður þeirra yrði að meðaltali um 109 þús- und krónur. Miðað við að reikning- urinn verði endanlega 6,2 milljónir verður meðalkostnaðurinn hins vegar 282 þúsund. Bakreikningur- inn hljóðar því upp á 178 þúsund krónur á íbúð að meðaltali, sem er nær 160% hækkun á tveimur til þremur mánuðum. Að sögn eins íbúans í þessu húsi hafa greiðslur til verktakans verið stöðvaðar meðan reikningarnir eru skoðaðir nánar. „Við sjáum ekki bet- ur en að sum verk hafi íarið tvisvar á reikninginn og að verið sé að rukka fyrir óunnin verk. Þetta hefur ekki fengist leiðrétt." KLEPPSVEGUR: 200.000 KR. BAKREIKNINGU R Við Kleppsveg 136—140 voru sömu aðilar að verki í sumar. Hús- eigendurnir fengu ábendingu frá Rannsóknarstofnun byggingariðn- aðarins um að leita til Verkvangs um úttekt en Verkvangur var ein- mitt stofnaður af starfsmönnum stofnunarinnar meðal annarra. Eftir að tíu tilboð bárust var samið við Verk hf. um framkvæmdir upp á 6 milljónir króna. Var það þriðja lægsta tilboðið. Skemmdir reyndust meiri og núverandi áætlun, sem ekki er endanleg, hljóðar upp á um 10 milljónir króna. Hækkunin er því 67%. í þessu fjöl- býlishúsi eru 20 íbúðir og hækkaði því meðalkostnaðurinn á íbúð úr 300 þúsund krónum í 500 þúsund. Verklok áttu að vera 20. september en var frestað tvisvar og standa framkvæmdir enn yfir. Einn íbúanna í þessu fjölbýlishúsi sagði í samtali við PREÍSSUNA að ætla mætti að fólkið hefði verið blekkt frá upphafi til að samþykkja hækkanir. „Verkvangur á að heita hagsmunagæsluaðili okkar en hef- ur í reynd virkað sem málamiðlun- araðili. Þeir sögðu aldrei að þetta gæti hækkað. Hefðum við haft grun um kostnaðarþróunina hugsa ég að við hefðum frekar kosið klæðn- ingu.“ BLÖNDUBAKKI: „VERKFRÆÐI- STOFAN Á PRÓSENTUM" Þriðja dæmið er Blöndubakki 6—20. Verkvangur tók að sér úttekt og í framhaldi af því var samið við verktaka um framkvæmdir upp á 4,6 milljónir króna. Verklok áttu samkvæmt samningi að vera um mánaðamótin ágúst/september. Þrátt fyrir útboð og úttekt hefur mikil magnaukning orðið og áætl- aður kostnaður hækkað upp í 9,2 milljónir króna. Kostnaðurinn dreif- ist á 48 íbúðir og hækkunin er því að meðaltali frá 96 þúsund krónum upp í 192 þúsund krónur eða um nær 100%. Einn íbúanna sagði við PRESS- UNA að íbúarnir stæðu uppi varnar- lausir. „Verkfræðistofan á að hafa eftirlit með framkvæmdunum en virðist standa með verktakanum. Stofan virðist um leið hafa hag af þessum hækkunum því hún tekur til sín 10% af kostnaðinum. Verktak- inn þarf ekki einu sinni að borga dagsektir, þótt verklok hafi dregist um 2—3 mánuði.“ Annar íbúi húss- ins var ekki eins harður í dómum sínum. „Úttektin var takmörkuð og sýni ekki tekin til að sjá mætti nógu vel fyrir hvað síðan gerðist. Enda sló Verkvangur af sínum reikningi." BLIKAHÓLAR: ÓNÁKVÆM ÚTTEKT Á EIGIN HÚSI Fjórða dæmið er einna merkileg- ast þvi vegna viðgerða að Blikahól- um 12 annaðist einn íbúanna úttekt og sá íbúi er enginn annar en Ragn- ar Gunnarsson framkvæmdastjóri Verkvangs! „Ég skil þetta vandamál því ég hef sjálfur lent í þessu. Sam- kvæmt úttektinni átti kostnaðurinn hjá okkur að vera þrjár milljónir, en hann reyndist fimm milljónir. Ég á 10% og því hækkaði minn hlutur úr 300 þúsund í 500 þúsund krónur," sagði Ragnar. I raun má tala um fimm dæmi því í einu tilfellanna var PRESSUNNI tjáð að húseigendur ættu í við- kvæmum viðræðum við verktak- ann. „Það mundi valda sprengingu ef verktakinn fyndi lykt af því að málið færi í blöðin," sagði viðmæl- andi blaðsins. Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytendasamtakanna, segir átta mál af þessu tagi vera til skoðunar. „Óneitanlega slær mann hvað fram- kvæmdir geta hækkað eftir verk- fræðilega úttekt á viðgerðarþörf- inni. En ég get ekki tjáð mig um ein- stök mál, þau eru til skoðunar hjá okkar lögfræðingi." Jón Magnússon lögfræðingur samtakanna vildi heldur ekki ræða einstök tilvik. VERKVANGUR: „VIÐ HÖFUM HREINAN SKJÖLD“ Ragnar Gunnarsson fram- kvæmdastjóri Verkvangs viður- kenndi að óvenjumikið hefði verið um magnaukningu í sumar en frá- vikafjöldi gæti samt ekki talist mikill þegar verkefnin væru hátt í hundr- að hjá fyrirtækinu. „Við gerum fyrst og fremst sjónmat og byggjum á reynslu síðustu tíu ára. Oftast er magnaukning vegna steypunnar en þar getur ýmislegt komið í Ijós sem ómögulegt er að sjá fyrir. Einnig kemur fyrir að fólk vill hreinlega ekki borga fyrir nákvæmar rann- sóknir." Ragnar sagðist mætavel skilja gremju fólks sem lendir í miklum aukakostnaði en telur að ósann- gjarnt sé að ásaka verkfræðistofurn- ar. „Það er skiljanlega áfall fyrir fólk sem lendir í þessu en þvi má ekki gleyma að viðbótarvinnan er ekki til komin vegna ósanngirni og óneit- anlega hækkar húseignin í verði. Okkar vinna sparar um leið ýmis- legt og auðvitað verðum við að fá eitthvað fyrir hana. Það má út af fyr- ir sig segja að vegna prósentuhlut- deildar — við tökum 7—15% eftir stærð verkefnis — þá þýði magn- aukning meiri peninga fyrir okkur en það er ekkert sem kemur í veg fyrir að samið sé við okkur um ann- að, t.d. tímavinnu. Satt að segja þurf- um við alltaf að gefa afslátt þegar magnaukning kemur í ljós. Hún er okkur alls ekki í hag enda höfum við engan áhuga á þeim leiðindum sem þá geta skapast. Við viljum vera fag- menn og teljum okkur vera það. Við höfum ekkert að fela, höfum hrein- an skjöld," segir Ragnar. Friðrik Þór Guðmundsson Fellsmúli 5—7. Úttekt Verkvangs og útboð géfu til kynna 2,4 milljóna króna viögeröarkostnað eða 109 þúsund krónur að meðaltali á íbúð. Nú stendur upphæðin í 6,2 milljónum eða 282 þús- undum á íbúð. Blöndubakki 6—20. Úttekt Verkvangs og útboð gáfu til kynna 4,6 milljóna króna viðgerðar- kostnað eða 96 þúsund krónur að meðaltali á íbúð. Nú stendur upphæðin í 9,2 milljónum eða 190 þúsundum á íbúð. Kleppsvegur 136—140. Úttekt Verkvangs og út- boð gáfu til kynna 6 milljóna króna viðgerðar- kostnað eða 300 þúsund krónur að meðaltali á íbúð. Nú stendur upphæðin í 10 milljónum eða 500 þúsundum á íbúð. Blikahólar. Úttekt framkvæmdastjóra Verk- vangs, sem þarna býr, benti til 3 milljóna króna viðgerðarkostnaðar eða 300 þúsunda að meðal- tali á íbúð. Nú stendur upphæðin í 5 milljonum eða 500 þúsundum á íbúð.

x

Pressan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.