Pressan - 06.12.1990, Síða 17
FIMMTUDAGUR PRESSAN 6. DESEMBER
17
A
Mvinnurekendur
lýðsforingjar meðai
manna voru
og verka-
sjálfstæðis-
orðnir afar órólegir
þegar þingrof eða
fall bráðabirgðalag-
anna blasti við í kjöl-
far samþykktar
þingflokks Sjálf-
stæðisflokksins. Var
legið í þingmönnum
flokksins að skipta
um skoðun. Þessir menn voru um
leið meðal allra fyrstu landsmanna
sem fréttu um sinnaskipti Hjörleifs
Guttormssonar. Áður en Hjörleif-
ur hafði tilkynnt þetta formlega í
þingpúlti var Davíð Oddsson far-
inn að hringja í verkalýðsforingja
sjálfstæðismanna og tilkynna þeim
að málið væri í höfn: Hjörleifur
mundi bjarga því. Viðmælendum
Davíðs létti og óneitanlega fannst
þeim kostulegt að Davíð væri orð-
inn blaðafulltrúi Hjörleifs . . .
A spástefnu Stjórnunarfélags-
ins síðastliðinn mánudag endurtók
Steingrímur Hermannsson for-
------------ sætisráðherra þau
ummæli sín að í Ijósi
vaxtamálanna væri
eina vitið að erlend-
ir bankar fengju að
keppa við hina ís-
lensku hér á landi.
------------ Við hlið Steingríms
sat Björn Björnsson, bankastjóri
Islandsbanka, og svaraði hann
Steingrími á þá leið að með hliðsjón
af því hversu snarvitlausir íslenskir
stjórnmálamenn væru dytti erlend-
um bönkum ekki einu sinni í hug að
drepa litlutá á landið . . .
■ réttamenn Ríkisútvarpsins og
sjónvarpsins svo og dagskrárgerðar-
fólk verður að sætta sig við hinar
ýmsu athugasemdir
útvarpsráðsmanna,
sem telja sig oft hafa
meira vit á faginu en
fagfólkið sjálft. Á
síðasta fundi var
m.a. rætt um þátt
Árna Snævarr
fréttamanns um Pétur Thorsteins-
son sendiherra. Að mati útvarps-
ráðsmanna var þátturinn vel unn-
inn „en almennt söknuðu menn
þess að Pétur Thorsteinsson
skyldi ekki inntur álits á fyrirkomu-
lagi og starfsháttum utanríkisþjón-
ustunnar svo ríka reynslu sem hann
hefur af henni“ . . .
M
okkrir þjóðkunnir íslending-
ar spá fyrir um næsta ár í nýútkom-
inni Frjálsri verslun. Þeir eru Þórð-
ur Friðjónsson,
Vilhjálmur Egils-
son, Þórarinn Við-
ar Þórarinsson og
Amy Engilberts.
Amy gerir ráð fyrir
að Álþýðubandalag-
ið fari verst allra
flokka út úr næstu kosningum. Hún
segir að Framsóknarflokkurinn
verði heppinn, Sjálfstæðisflokkur-
inn þurfi ekki að kvarta, Alþýðu-
flokkurinn fái þokkalega útkomu og
líklegt sé að Kvennalistinn taki þátt
í næstu ríkisstjórn. Amy minnist
ekki á Borgaraflokkinn. Þá gerir
Amy ráð fyrir að tvær konur verði
ráðherrar í næstu ríkisstjórn . . .
A
3067. fundi útvarpsráðs var
kynnt beiðni frá Félagi heyrnar-
lausra um að áramótaskaup sjón-
varpsins yrði textað
svo heyrnardaufir
gætu notið þess bet-
ur. Á þeim fundi var
ákveðið að skoða
textað brot úr síð-
asta skaupi og var
það gert á 3069.
fundi ráðsins í byrjun nóvember.
Jafnframt las Pétur Guðfinnsson
framkvæmdastjóri sjónvarpsins
bréf frá Rúnari Gunnarssyni upp-
tökustjóra, þar sem vitnað var til
álits Sveins Einarssonar dagskrár-
stjóra og Sigmundar Arnar Arn-
grímssonar, sem mælir gegn því
að skaupið verði textað því texti
mundi óhjákvæmilega draga at-
hygli áhorfenda frá hraðri atburða-
rás. í framhaldi af upplestri Péturs
var ákveðið að leita frekari upplýs-
inga um notagildi texta fyrir heyrn-
arlausa áður en ráðið tæki afstöðu
til erindisins . . .
Dúetinn Sýn
heldur uppi miðbæjarf jörinu
um helgina.
OPIÐ TIL KL. 3.00
hefur sannað ágæti sitt í vetrarakstri, hann er
rúmgóður 5 manna fjölskyldubíll, sparneytinn, þægilegur í akstri og
á frábæru verði.
Kr. 469.900,-
ATHUGIÐ!
vetrarhjólbarðar fylgja öllum
nýjum r^/rvr^mrnnrr -bílum til áramóta,
ásamt rúðusköfu, lásaolíu, rúðu- og tjöruhreinsi,
vinnuhönskum og gólfmottum.
Komdu og reynsluaktu
(J*á$Z7ŒJLnQ'u‘
hann kemur þér þægilega á óvart.
Opið alla virka daga frá kl. 9-18.
Laugardaga frá kl. 13-17.
JÖFUR HF
Nýbýlavegi 2, sími 42600