Pressan


Pressan - 06.12.1990, Qupperneq 18

Pressan - 06.12.1990, Qupperneq 18
18 FIMMTUDAGUR PRESSAN 6. DESEMBER Notar Höfða tíl að hressa upp á hlettóttan orðstír Japanski auðjöfur- inn aem byggði eftir- mynd af Höfða í Japan mun alla ekki vera aá fíni papptr aem ætla mætti. Komið hefur í ljós að hann byggði Höfðaeftir- rnyndina meðal annars til þess að reyna að bæta orðstír sinn en hann hafði áður verið bendiaður við vafasöm viðskipti ýmiss konar. Honum varð að ósk sinni. Þar sem forseti íslands mætti við opnun hússins flyktust þangað einnig ýmsir japanskir merkismenn. Þegar Vig- dís klippti á borðann losn- aði japanski kaupsýslu- maðurinn því jafnframt úr prísund sinni. Honum hefur tekist að komast inn í almennilegar „kreðsur" í Japan. Þessi vafasama fortíð japanska viðskiptajöfurs- ins hefur ekki vakið mikla athygli hérlendis. Hins vegar hefur komið fram að Japanar voru ekki nema tvo mánuði að byggja húsið og allar inn- réttingar með. íslenskir ^byggingar- verktakar fengu í mag- ann þegar þetta fréttist. Blómasúlur leymslum Heildsalar og aðrir bisnessmenn leggja mikið á sig fyrir hver jól til þess að detta í lukkupottinn. Sumum hefur tekist þetta eftir- minnilega eins og kennarahjónunum sem hófu innflutting á fótanuddtækjum um árið eru lýsandi dæmi um. Aðrir hafa slegið í gegn með töfrasprot- um, litlum lesálfum og fleiri nauðsynlegum hlutum. Nú hefur verið kynnt á markaðnum nokkuð sem gæti orðið jólagjöfin í ár. Það er rekki undir geisla- diska og gagnast jafn- framt sem blórhásúla. Súl- an er álíka breið og kass- arnir utan um geisladisk- ana. Hún tekur u.þ.b. 70 diska. Sérfræðingar PRESS- UNNAR segja að þeir sem á annað borð eiga plötur svo nokkru nemi eigi vart færri en um 300. Til þess að koma þeim öllum í geymslu í súlum þarf því tæplega fimm súlur. Ef geisladiskasúlurnar slá í gegn er Ijóst hvernig iandslag mun einkenna betri stofur landsmanna í framtíðinni. Þar verður svipað um að litast og við Dauðsmannsdranga þar sem háar klettasúlur rísa upp úr eyðimörkinni. KRÓKÓÞÍIA MAOURINN FUNDINN íslenskir áhugamenn hafa sent spurningar um krókódíiaeidi til Harrys Messel, skriðdýrasér- fræðings í Perth í Astralíu. Harry, sem er mikill ævin- týramaður, fannst hug- mynd íslendinganna hins vegar einum of ævintýra- leg. „Það verður erfitt, enginn vafi á því,“ sagði hann við fréttamann Reuter-fréttastof- unnar um möguleika á krókódílaeldi hérlendis. PRESSUNNI er ekki kunn- ugt um hvaða áhugahópur það er sem hefur leitað hóf- anna hjá Harry í Ástralíu. Hitt er ljóst hvaðan þessi hug- mynd er komin. Það var sjálf- ur atvinnumálafulltrúi ríkis- stjórnarinnar með aðsetur í umhverfismálaráðuneytinu, Guttormur Einarsson, upp- finningamaður og fyrrum bruggmeistari Ámunnar, sem fyrstur manna kom fram með þessa hugmynd. Það var á fundi í Mývatnssveit þar sem Guttormur fjallaði um at- vinnutækifæri í sveitinni. Það sem honum fannst helst koma til greina var krókó- dílaeldi og ræktun á rauðu ginsengi. Ef einhverjum þykja þessar hugmyndir skringilegar má benda á að Guttormur stakk upp á því á sínum tíma að reist yrði víkingaþorp á Hellu þar sem bæjarbúar gætu sprangað um íklæddir vík- ingabúningum og grætt reið- innar býsn á ferðamönnum. Hverjir svo sem fara út í krókódílaeldið, ef einhverjir láta verða af því, er víst að Guttormur er krókódílamað- urinn sjálfur. Spilavífi Kringum tí- unda dag hvers mánaðar fá bótaþegar hjá Trygginga- stofnun ríkis- ins útborgað. Þá eykst líka örtröðin fyrir framan spila- kassana á Um- ferðarmiðstöð- inni. Þeir sem leið eiga þar um geta gengið að sama fólkinu að leik dag eftir dag. Þótt um- búnaðurinn sé ekki jafnglæsi- legur og í spila- vítishöllunum í Monte Carlo svíf- ur sami andinn yfir vötnunum. Og í hvert sinn sem einn kass- anna gefur vel gjóa ailir öfund- araugum á þann heppna. Hætta af súrheysturni Komið hefur í ljós að súr- heysturninn við Grund í Svínadal ógnar öryggi skólabarna í sveitinni. Skólabílstjórar hafa skor- að á almannavarnanefnd Austur-Húnavatnssýslu að vinna að því að turninn verði rifinn. Það er hins vegar ekki hægt. Turninn er aðalsönn- unin í mála- ferlum bónd- ans á Grund gegn Glób- usi sem seldi honum turninn. Bóndinn segir turn- inn hafa verið gall- aðan en Glóbusar þráast við. Á meðan mun skóla- börnum og öðrum veg- farendum í Svínadal stafa hætta af turninum. 6Ó0MÁIMAR Á STEINASTRÝTU Nú hefur komið í ljós að allir erfiðleikar Islend- inga eru brátt að baki. Am- eríkanar hafa nefnilega fundið heljarinnar ósköp af mangani út af Reykja- neshrygg. Þótt enginn hafi vitað áður hvað mangan var vita það allir í dag. Það er fágætur málmur sem á eftir að gera alla íslend- inga ríka. Einum manni stendur þetta mál nær en öðrum en það er hann Steingrímur Þorvalds- son, skipstjóri á Vigra. Mang- anið fannst nefnilega á svo- kallaðri Steinastrýtu, en strýtan sú er nefnd í höfuðið á Steingrími. Það stendur honum því næst að gera til- kall til góssins. JOIASVEINAR TIL ÚTFUITNIN6S Hrekkjóttu, skrítnu jóla- sveinarnir eru óplægður útflutningsakur. Það segir að minnsta kosti Jónas Þór, fyrrverandi ritstjóri Lögbergs-Heimskringlu og núverandi kennari barna og unglinga varnar- liðsmanna á Keflavíkur- flugvelli. Jónas Þór hefur samið og gefið út bókina „Christmas trolls". „Þetta er lítið ævintýri sem hefst í Bandaríkjunum. Níu ára vestur-íslensk stúlka frá Minnesota kemur til ís- lands að heimsækja ættingja sína, eftir að hafa unnið ferð á vegum Flugleiða. Á íslandi kynnist hún undirbúningi jól- anna og heyrir um jólasvein- ana, þessa hrekkjóttu og þjóðlegu. Ég verð var við það á Vellinum að börnunum finnst þessi hugmynd um þrettán hrekkjótta jólasveina mjög spennandi og nýstárleg, eitthvað annað en bara Sánkti Kláus.“ Jónas Þór hefur sett sig í samband við íslendingafélög í Bandaríkjunum og einnig bókaútgáfuna Scolastic Inc. í New York. „Þeir eru að skoða bókina en enn eru ekki nein áform uppi um samning. En bókabúðir hér hafa tekið bókinni vel. Þær hafa selst nokkuð, fólk á kunningja og ættingja fyrir vestan og vill gjarnan senda þeim eitthvað sérstætt tengt Islandi."

x

Pressan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.