Pressan - 06.12.1990, Page 27
FIMMTUDAGUR PRESSAN 6. DESEMBER
27
... fær hún Rut Róberts-
dóttir fyrir aö segja svo
fallega að hún „gái" í Al-
fræöioröabókina í aug-
lýsingunni.
S1ÖÐ2
Hjálparhellan The Desperate
Mission fimmtudag kl. 23.35.
Vestri um mexíkanska þjóðhetju
í gervi Hróa hattar.
Bara við tvö Just You and Me,
Kid föstudag kl. 01.35. George
Burns rembist við að halda frek-
ar slappri gamanmynd á floti.
Það reynist of erfitt.
ópskur sjónvarpsmyndaflokkur
um samvinnu Evrópuþjóðanna í
löggæslu. Fær alla til að sakna
Bjarka og félaga.
Játningar True Confessions
föstudag kl. 22.15. Nafnarnir Ro-
bert de Niro og Duvall eru fanta-
góðir leikarar. Það bætir annars
sæmilegan þriller.
Ólsenliðið sér rautt Olsen-
banden ser rödt laugardag kl.
21.55. Ótrúlegt en satt. Sjónvarp-
ið ætlar að halda áfram að sýna
Olsenbanden.
Van Goghbræðurnir Vincent
and Theo sunnudag kl. 22.40.
Splunkuný bresk sjónvarpsmynd
eftir þann gamla ref Robert Alt-
man. Enn á ný er fjallað um karl-
inn hann Vincent sem hefur sjálf-
sagt gert svo marga brjálaða að
hans eigin geðveiki fer að verða
aukaatriði.
Henry og June Henry and June
Laugarásbíói kl. 5, 8.45 og 11,15.
Svakaleg, alls ekki síðri en
Óbærilegur léttleiki tilverunnar.
Stanley og íris Stanley and Iris
Bíóborginni kl. 5, 7, 9 og 11.05.
Fonda er tvímælalaust versta
uppfinning Vadims. Hvar er
Bardot?
Ekki segja til mín Don’t Tel! Her
It’s Me Háskólabíói kl. 5, 7, 9 og
11. Mynd fyrir menn sem nota
skó númer 45 og stærri. Steve
Guttenberg er eini leikarinn í
Hollywood sem getur pantað
lyftu án aðstoðar.
Dóttir kolanámumannsins Co-
al Miner’s Daugther laugardag
kl. 23.25. Sissy Spacek vann Ósk-
ar fyrir frammistöðu sina í þess-
ari mynd en gamli trommuleik-
arinn í The Band, Levon Helm,
er ekkert síðri. Myndin fjallar um
Lorettu Lynn, sem við elskum
öll.
Tveir í stuði My Blue Heaven
Bíóhöllinni kl. 5,7,9 og 11. Steve
Martin er góður. Hitt dótið er
þokkalegt.
Úr öskunni í eldinn Men at
Work Regnboganum kl. 5,7,9 og
11. Ææææ, mikið grín, mikið
grin. En ekki mikil kvikmynd.
Skikkjan The Robe sunnudag
kl. 23.45. Þessi mynd er þekkt
sem fyrsta cinemascope-mynd-
in en sjónvarpsáhorfendur fá að
sjálfsögðu ekki notið þess. Bur-
ton fékk Óskarinn en leikur hans
hefur elst illa. Fjallar um hvaða
áhrif það hefur á hundraðshöfð-
ingja að vera viðstaddir aftöku
Jesú Krists.
SJÓNVARPID
Evrópulöggur Eurocops
fimmtudag kl. 21.00. Sýnishorn
af þvi sem koma skal; samevr-
Glæpir og afbrot Crimes and
Mr. Minus Háskólabíói kl. 7.10,
9.10 og 11.10. Það er sama hvað
Woody Allen reynir, hann mun
aldrei búa til snilldarverkið sem
hann bíður eftir. En á meðan
hann reynir fáum við hin hörku-
fínar myndir sem aðeins skortir
herslumuninn.
Óvinir — ástarsaga Enemies —
A Love Story Bióborginni kl.
4.45, 6.55,9 og 11.10. Mín vegna
má framleiða sex hundruð Bat-
manmyndir svo framarlega sem
ein svona flýtur með.
ÞUN6A 6ÁTAN
LÁRÉTT: 1 vegalengd 6 gjálfurhljóðs 11 hyskni 12 blót 13 hangsað
15 leifar 17 þramm 18svigi 20 krot 21 sviptivindur 23 orka 24 mátt-
laus 25 álpaðist 27 haggar 28 óslitinn 29 messuskrúði 32 mjög 36
atóm 37 bleytu 39 leiktæki 40 fönn 41 vinna 43 lánað 44 karlmanns-
nafn 46 virtur 48 eldstæða 49 inn 50 trjónunnar 51 vætuna.
LÓÐRÉTT: 1 ósannindamann 2 lánleysi 3 blunda 4 rykkur 5 sundra
6rót 7 Óvissa8deila9 reiðmenn 10 vinnur 14 biblíunafn 16 lærdómi
19 tíðum 22 þátttaka 24 lokar 26 svelgur 27 hlykk 29 sæti 30 riða
31 tregan 33 hnöttinn 34 lítilfjörleg gæfan 37 landakort 38 fátækur
41 bráðlega 42 ganga 45 mæla 47 stingur.
Ég er engin hetja, ég er
læknir
^GÍSLI SIGURÐSSON LÆKNIR
Nýneminn The Freshman
Stjörnubíói kl. 5, 9 og 11. Góð
mynd. Frábær Brando.
LEIKHÚSIN
Elsku Míó minn, barnaleikrit
eftir Astrid Lindgren í Hlégarði í
Mosfellssveit. Það er Leikfélag
Mosfellssveitar sem sýnir. Næsta
sýning er á sunnudag klukkan
15.00.
Aldrei fer ég suður heitir nýtt
ungir sovéskir myndlistarmenn
sýna í Listasafni íslands. Áhuga-
verð sýning sem gefur mynd af
þeirri neðanjarðarlist sem lifði af
alræði kommúnismans.
Sigfús Halldórsson og Gísli
Sigurðsson sýna á Kjarvalsstöð-
um. Tveir ástkærir amatörar sem
hrifa gamlar konur.
Rúna Gísladóttir sýnir i
FÍM-salnum Garðastræti 6. Coll-
agemyndir og málverk. Notaleg
sýning.
Daníel Magnússon sýnir í Gall-
eríi Sævars Karls, á loftinu í fata-
versluninni á horni Ingólfsstræt-
is og Laugavegar. Athygliverð og
skemmtileg sýning, tilvalið að
bregða sér inn í stressinu fyrir
jólin.
Sigríður Kjaran sýnir þjóðlífs-
myndir sínar í Bogasal Þjóð-
minjasafnsins. Listavel gerðar
brúður með öllu tilheyrandi.
PLATAN
Gling gló með Björk Guð-
mundsdóttur og Tríói Guðmund-
ar Ingólfssonar er komin út. Það
eitt eru tíðindi en ekki dregur úr
að platan er hin skemmtilegasta
LJÓSMYND: SIGURÞÓR HALLBJÖRNSSON
íslenskt leikrit eftir Ingibjörgu
Hjartardóttur og Sigrúnu Óskars-
dóttur, sem áhugaleikfélagið
Hugleikur sýnir á Galdraloftinu.
Leikgleðin leynir sér ekki enda
unnið kauplaust hörðum hönd-
um.
Sigrún Ástrós eftir Willy Russ-
el. Sýning sem áhorfendur
klappa upp aftur og aftur í Borg-
arleikhúsinu. Margrét Helga Jó-
hannsdóttir fer á kostum í ein-
tali.
Fló á skinni, ærslaleikur eftir
Georges Feydeau. Klassiskur
I fíflaskapur sem Leikfélag
Reykjavíkur sýnir með áratuga
millibili og gerir það alltaf jafn-
gott.
Ég er hættur. Farinn (Ég nenni
ekki að taka þátt í svona asna-
legu leikriti). Síðasta sýning er
auglýst á föstudag. Nýtt íslenskt
leikrit sem hefur fengið dræmari
viðtökur en það á skilið, að mati
leikhússpekúlanta.
Ég er meistarinn eftir Hrafn-
hildi Hagalín á'litla sviðinu í
Borgarleikhúsinu. Því miður:
UPPSELT, uppselt, uppselt upp-
selt.
MYNDLISTIN
Brynhildur Kristinsdóttir sýn-
ir i Djúpinu Hafnarstræti 15.
Brynhildur er ung listakona sem
á eftir að láta mikið að sér kveða
á næstu árum.
Samtímalist frá Sovét. Fimm
Chateau
Mouton-
Þetta vín er einfaid-
lega fullkomið. Alit er
eins og best verður á
kosið, anganin, liturinn,
bragðið og eftirkeimur-
inn. 1986-árgangurinn,
sem seldur er í léttvíns-
búðinni í Mjódd, er lík-
lega sá besti fram að
þessu. Gæði vínsins
koma líka fram í verðinu
en ein flaska kostar hátt
níu þúsund krónur.
Sannir vínáhugamenn
mæla með neyslu þessa
víns á árunum 1999 til
2040.
áheyrnar og á eflaust eftir að
verða ein af þeim sígildu i safn-
inu.
Eftir kenjum kokksins er heiti
matreiðslubókar eftir Rúnar
Marvinsson. Bókin hefur að
geyma uppskriftir úr eldhúsi
Rúnars sem er kunnur fyrir mat-
argerð sína frá Hótel Búðum á
Snæfellsnesi og nú á veitinga-
húsinu Við Tjörnina. Sérstök
áhersla er lögð á sjávarrétti sem
Rúnar er einna þekktastur fyrir.
„Eftir kenjum kokksins" er falleg
og smekkleg matreiðslubók sem
er gott að glugga í um jólin innan
um fagurbókmenntirnar.
VEITIN6AHÚSIN ■
Jónatan Livingston mávur er
staðurinn i dag. Eftir að Óperu
hnignaði hefur Mávurinn tekið
við smarta fólkinu. Staðurinn
hentar því líka vel. Flott innrétt-
ing, ungir og fallegir þjónar og
maturinn vel frambærilegur. En
eins og á öðrum stöðum sem eru
í tísku um tíma þá spila gestirnir
stærstu rulluna á Mávinum. Og
fyrir þá sem vilja hafa gott útsýni
yfir á næstu borð: enginn býður
betur en Mávurinn í því efni.
NÆTURLÍFIÐ
Amma Lú verður sjálfsagt aðal-
staðurinn í bænum á næstu miss-
erum. Eins og Tomma er von og
vísa er varla veikan blett að
finna í innréttingunni. Þetta er
bara alveg eins og í útlöndum —
og það er einmitt það sem Islend-
ingar vilja. Amma Lú er það nýr
staður að ómögulegt er að sjá
Vinsœlustu
myndböndin
1. Hunt for Red
October
2. An Innocent Man
3. Stell Magnolians
4. Born on the 4th of
July
5. Chances are
6. Harlem Nights
7. Fabulous Baker Boys
8. See no Evil, Hear
no Evil
9. Sea of Love
10. Driving Miss Daisy
fyrir hvers konar gestir munu
taka hann yfir. Miðað við fyrstu
kvöldin þá veðjum við á meðal-
tekjur frá 200 á mánuði, flagara-
klúta, Cartier og gin og tónik.
Aldurinn: svona rétt eftir fyrsta
skilnað.
FJÖLMIDLAR
Kannski er það vegna
hins landlæga hátíðleika
gagnvart skrifuðu máli
sem íslensku fjölmiðlarnir
eru svona yfirmáta tepru-
legir. Ég veit það ekki. Ef
til vill er það fámennið eða
bara eitthvað í blessaðri
þjóðarsálinni. Að minnsta
kosti getur þessi tepru-
skapur stundum verið nán-
ast óþolandi.
Tökum eitt dæmi:
Fikniefni hafa verið
nokkuð stór þáttur í ung-
lingamenningu hér heima
allt frá upphafi áttunda
áratugarins. Samkvæmt
þvi ætti töluvert stór hópur
fólks sem er á fertugsaldri
eða yngri að hafa prófað
fíkniefni; sumir sjaldan en
aðrir oftar. Fjölmargir nota
þau reglulega þegar þeir
fara út að skemmta sér.
Sumir hafa misst tökin á
fíkniefnunum og neyta
þeirra oftar en góðu hófi
gegnir.
En hvað um það. Að
minnsta kosti bendir ekk-
ert til annars en fíkniefnin
séu álíka útbreidd hér og
annars staðar á Vestur-
löndum. Þau eru notuð af
fólki á öllum aldri, í öllum
atvinnugreinum, í öllum
sveitarfélögum.
Sú mynd sem fjölmiðl-
arnir gefa af fíkniefnum er
hins vegar allt önnur. Hún
er af fámennum hópi ungl-
inga sem hefur flosnað
upp af heimilum sínum og
er vís til alls, heldur sig
niðri á Hlemmi og rænir
blaðburðarbörn fyrir
næsta skammti.
Sjálfsagt finnst einhverj-
um þetta ágeng og raunsæ
mynd af fíkniefnaneyslu.
Það finnst mér ekki.
Með því að láta i veðri
vaka að fíkniefnaneysla sé
bundin við takmarkaðan
hóp á jaðri þjóðfélagsins
sleppa fjölmiðlarnir tiltölu-
lega auðveldlega. Afskap-
lega fáir geta samsamað
sig þessum hópi ógæfu-
fólks. Fíkniefnavandamál
verður flestum álíka fjar-
lægt og Beirút.
Eg held nefnilega að ein
af ástæðum þess að fjöl-
miðlar fjalla ekki um al-
menna fíkniefnanotkun sé
sú að blaðamenn og frétta-
menn eigi erfitt með að
fjalla um vandamál sem
standa þeim nærri. Það er
auðveldara að láta vanda-
málagemsana vera í leður-
jökkum en tvídjökkum.
Ein hugvekja um tepru-
skapinn i lokin: Hvernig
stendur á því að eini mað-
urinn, fyrir utan fáeina
þurrkaða alka, sem hefur
tekið fíkniefni í viðtali er
Jón Óttar Ragnarsson og
af hverju gerði hann það i
New York og bara einu
sinni?
Gunnar Smári Egilsson