Pressan - 06.12.1990, Side 28

Pressan - 06.12.1990, Side 28
28 FIMMTUDAGUR PRESSAN 6. DESEMBER Fólk af þeirri kynslód sem nú situr í helstu valdastödum í þjódfélaginu er einstakt. Þessi kynslód hefur líka búid vid einstakar aðstœður. í raun eru þœr svo einstakar ad engin von er til þess ad nokkur önnur muni búa vid annaö eins nokkurn tíma. Þetta er kynslódin sem stal sparifé foreldra sinna, steypti börnum sínum og barna- börnum í skuldir og bjó til velferdarríki — en bara fyrir sjálfa sig. Þetta er Drakúlakynslódin. í raun er nafnið á þessari kynslóð bara tilbúningur PRESSUNNAR. Öfugt við flestar aðrar kynslóðir hefur hún aldrei kallað sig neitt. Kynslóðin sem kom á eftir kallar sig 68-kynslóðina, sú sem fór á undan hefur verið kölluð nýríka kynslóðin og á undan henni gekk kreppu- kynslóðin. En þessi hefur far- ið hljótt. Áhrif hennar eru þó sjálf- sagt afdrifaríkari en allra hinna. LrriL SAGA ÚR GARÐABÆNUM Hvernig má þekkja fólk af þessari kynslóð? í Garðabæ var skipulagt hverfi fyrir lítil einbýlishús fyrir fáeinum árum. Búið var til skipulag sem tilgreindi byggingarflöt hvers húss og hámarksstærð og hæð hús- anna. í fyrstu gekk allt eins og í sögu. Það var einkum ungt fólk sem keypti lóðir. Síðan réð það til sín arkitekta til að teikna hús sem rúmuðust inn- an skipulagsins. Vandamálin hrönnuðust hins vegar upp þegar foreldr- ar unga fólksins fengu áhuga á húsbyggingunum. Þeir lögðu leið sína til arkitekt- anna og bentu þeim á að miklu huggulegra væri að stækka stofuna aðeins til vesturs, búa til smíðaloft fyrir ofan bílskúrinn og setja skála í garðinn. Eftir að arkitekt- arnir höfðu látið undan sóttu foreldrarnir um undanþágur frá skipulaginu þar sem húsin voru flest orðin mun stærri en skipulagið sagði til um. í flestum tilvikum var látið undan kröfum þeirra. Áhrif foreldranna á hverfið sjást glögglega nú þar sem húsin eru miklu stærri en ráð var fyrir gert. Þau fylla nán- ast út í garðinn. Hægt er að teygja sig á milli margra hús- anna. En mestan svip setur á hverfið að fjölmargir hús- byggjendur hafa sprengt sig á byggingunum. Þeir höfðu einfaldlega ekki efni á að byggja svona stór hús með stækkuðum stofum, smíða- loftum og garðhýsum. Hálf- karaðar byggingar eru því eitt af megineinkennum hverfisins. Ekki þarf glöggskyggnan mann til að sjá hver það var sem lagði hornsteininn að harmsögu þessa hverfis. Það var Drakúlakynslóðin. GULLÖLD DRAKÚLA Gullöld Drakúlcikynslóðar- innar hófst á sjöunda ára- tugnum en náði hámarki á þeim áttunda. Samkvæmt lauslegum út- reikningum má telja að á þeim tíma hafi átt sér stað millifærsla á um 150 milljörð- um króna frá sparifjáreigend- um til skuldara. Þetta var gert með því að halda vöxtum langt undir verðbólgunni. Þeir sem skulduðu bönkum og sjóðum fitnuðu á sama tíma og fólkið sem hafði lagt fyrir eitthvert fé var gert eignarlaust. Gylfi Þ. Gíslason, prófessor í hagfræði og fyrrverandi ráð- herra, fjallaði um áhrif þessa fyrirkomulags í fyrirlestri sem hann hélt í Jónshúsi í Kaupmannahöfn í byrjun átt- unda áratugarins. Hann sagði að verðbólga breytti mönn- um í villidýr. Sú varð raunin á íslandi á gullöld Drakúlakynslóðar- innar. Hver sem hafði að- stöðu til fékk eins mikið af lánum og hann gat. Hann þurfti aldrei að borga nema hluta þeirra aftur. Hins vegar hélt hann eftir því sem hann keypti fyrir lánin, húsi, bíl, menntun, fyrirtækjum, frysti- kistum og guð má vita hverju. Það gekk kaupæði yfir þjóð- félagið. Einkenni þess voru þau að enginn þurfti sjálfur að borga það sem hann keypti. Allsherjar þjófnaðar- alda reið yfir þjóðfélagið og það besta var að enginn tók almennilega eftir frá hverjum var stolið. Hins vegar lá það alltaf ljóst fyrir. Eldri kynslóðin borgaði brúsann. Það eru nefnilega einkum börn og eldra fólk sem safnar sparifé. Þau sem blæddu voru eink- um foreldrar Drakúlakyn- slóðarinnar. HVER OG EINN FÉKK 2,5 MILLJÓNIR í SINN HLUT Ef miðað er við að Drakúla- kynslóðin samanstandi af fimmtán árgöngum jafngildir þessi 150 milljarða miili- færsla því að hver einasti ein- staklingur af þessari kynslóð hafi tekið til sín um 2,5 millj- ónir króna á núvirði. En ekki er öll sagan sögð. Frá miðjum sjöunda áratugn- um og fram á þann níunda jukust erlendar skuldir ís- lendinga um 100 milljarða á núvirði. Sumt af lánunum var notað til gagnlegra hluta: kaupa á togurum, virkjana og annarra hluta sem hafa skap- að verðmæti. En stór hluti þessara lána fór í að halda hérlendis uppi lífsmáta sem engin efni voru fyrir. Það var einkum á seinni hluta gullaldar Drakúlakyn- slóðarinnar sem erlendu lán- in jukust. Einnig þá fóru þau í nánast ekki neitt. Næstum ekkert hefur gerst í íslensku atvinnulífi á undanförnum árum sem kallar á erlendar lántökur, engar stórfram- kvæmdir, engin alvöru upp- bygging. Þær fjárfestingar í atvinnu- lífi sem þó var lagt í fyrir þetta lánsfé eru svo óhag- kvæmar að þær munu standa í vegi fyrir eðlilegri þróun ís- lensks atvinnulífs á næstu ár- um og áratugum. En erlendu skuldirnar eru ekki þær einu sem þessi kyn- slóð skilur eftir. Bygginga- sjóður ríkisins, lífeyrissjóðirn- ir, Lánasjóður íslenskra námsmanna og fleiri horn- steinar velferðarkerfisins eru í raun engir sjóðir heldur risa- stór skuldasúpa fyrir kom- andi kynslóðir að greiða upp. KENNINGAR SMÍÐAÐAR ÚR RUGLINU Það er kannski skiljanlegt að fólk af Drakúlakynslóð- inni hafi att börnum sínum út í húsbyggingar í Garðabæn- um — sem þau réðu síðan ekki við. Þegar Drakúlafólkið byggði voru fyrstu misserin strembin en svo sá verðbólg- an um afganginn. Sá sem tók lán hjá Byggingasjóði ríkisins árið 1971 greiddi þannig ein- ungis um þriðjung af því til baka. Afgangurinn brann upp í verðbólgunni. Fólk sem lifir slíka gósentíð verður því að vonum dálítið ruglað í ríminu. Það býr til kennisetningar um að sér- eignarstefnan sé hornsteinn íslensks samfélags Það segir við börnin sín að leiðin til þess að koma þaki yfir höfuð- ið sé fyrst og fremst sú að stökkva út í. Þegar það sé bú- ið komi fljótlega í Ijós að húsakaupin séu miklu léttari en nokkurn óraði fyrir. Þeir sem hafa brennt sig á slíkum ráðleggingum eru börnin og sumir foreldranna reyndar einnig; að minnsta kosti þeir sem hafa skrifað upp á skuldabréfin fyrir börn- in sín. En Drakúlakynslóðin hefur ekki einungis búið til kenn- ingar um húsakaup. Hún hef- ur búið til heila efnahags- stefnu þar sem lánsfé er lyk- illinn. Samkvæmt henni get- ur það bjargað heilu byggðar- lögunum fái þau nógu mikið lánað. Fjöldagjaldþrot undanfar- inna ára hafa hins vegar leitt í Ijós að þessi stefna gengur ekki upp, ekki eftir að gullöld Drakúlakynslóðarinnar leið. Börn Drakúlakynslóðar- innar standa hins vegar frammi fyrir því að þau munu hafa það miklu verra en for- eldrarnir. Á meðan foreldr- arnir voru komnir með skuld- lausar íbúðir upp úr þrítugu verða börnin að greiða sínar íbúðir langt fram eftir aldri. Börnin standa jafnvel frammi fyrir því að þau þurfi að spara nokkur ár áður en þau geta látið sig dreyma um eigin íbúð. í sjálfu sér er það ekkert AÐ HAFA ÞAÐ MIKLU VERRA EN FORELDRARNIR Sjálfsagt er það sameigin- legt öllum kynslóðum á þess- ari öld að telja sig geta haft það um 10 prósentum betra en foreldrarnir. Drakúlakyn- slóðinni tókst þetta og miklu meira en það. öðruvísi en flest fólk á Vestur- löndum þarf að gera. Munur- inn er á hinn bóginn sá að ungt fólk á íslandi hefur sam- anburð við Drakúlakynslóð- ina. Það verður að sætta sig við að hafa það um þriðjungi verra en foreldrar þess. Það verður síðan ekki fyrr en einhvern tíma á næstu öld að einhver kynslóð getur haft það jafnnáðugt og Drakúla- kynslóðin. Gunnar Smári Egilsson „Ekki þarf glögg- skyggnan mann til aö sjá hver það var sem lagði horn- steininn að harm- sögu þessa hverfis. Það var Drakúlakyn- slóöin."

x

Pressan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.