Pressan - 06.12.1990, Qupperneq 32
HLUSTUM ALLAN SÓLARHRINGINN SÍMI 6818611
ruggt er að Ólafur Ragnar
Grímsson, formaður Alþýðu-
bandalagsins, verður í fyrsta sæti á
lista flokksins á
Reykjanesi. Reiknað
er með að Sólveig
Þórðardóttir, ljós-
móðir og bæjarfull-
trúi í Njarðvík, verði
í öðru sæti listans.
Sólveig skipaði efsta
sæti á framboðslista vinstri manna
við bæjarstjórnarkosningarnar í vor
sem leið. . .
í
máli ákæruvaldsins gegn
Ómari Kristjánssyni og Guð-
mundi Þórðarsyni var þess krafist
að Ómar yrði svipt-
ur verslunarleyfi.
Dómurinn varð ekki
við þessari kröfu
sækjandans í mál-
inu, Atla Gíslason-
ar hæstaréttarlög-
manns. Astæðan er
sú að Ómar hefur ekki verslunar-
leyfi og þess vegna ekki hægt að
svipta hann því...
K
kaupsýslumönnum tekst mis-
vel upp þegar þeir kaupa fyrirtæki
og selja. Jón Ólafsson i Skífunni
keypti fyrir fáum
misserum gjald-
þrotafyrirtækið Ör-
tölvutækni. Jóni
tókst að byggja fyrir-
tækið upp og koma
því í góðan rekstur.
Werner Rasmus-
son, apótekari í lngólfsapóteki,
keypti fyrirtækið af Jóni fyrir
skömmu. Ágóði Jóns af viðskiptun-
um er sagður vera tuttugu og tvær
milljónir króna .. .
eykvíkingurinn Jón Þ. Walt-
ersson var úrskurðaður gjaldþrota
fyrir skömmu. Kröfur í bú hans voru
samtals 53,4 milljónir króna. Engar
eignir voru í búinu. Jón rak pappírs-
pokaverksmiðju. Gjaldheimtan í
Reykjavík og tollstjóri töpuðu mest
í þessu mikla gjaldþroti. . .
A
Llþýðubandalagsmenn á Snæ-
fellsnesi munu sækja fast að fá ann-
an mann á lista flokksins á Vestur-
landi. Jóhann Ársælsson Skaga-
maður er öruggur um fyrsta sætið.
Um annað sæti koma fjórir Snæfell-
ingar til með að keppa, tveir Grund-
firðingar, Ragnar Elbergsson og
Ólafur Guðmundsson, og tveir
Sandarar, systurnar Drífa og Hulda
Skúladætur, Alexanderssonar
fráfarandi þingmanns . . .
I æsta byggingarævintýri
Reykjavíkurborgar, Kjarvalssafn á
Miklatúni, er komið á borð bygging-
I ið umdeilda skattframtal
Þýsk-íslenska var samið af Guð-
mundi Þórðarsyni héraðsdóms-
lögmanni. Nokkrum
árum áður en Guð-
mundur hóf störf hjá
Þýsk-íslenska starf-
aði hann á rann-
sóknardeild ríkis-
skattstjóra. . .
■■kki hefur enn náðst saman í
viðræðum fjármálaráðuneytisins og
fulltrúa Sláturfélags Suðurlands um
kaup á Laugarnes-
húsinu. Starfshópur
ríkisstjórnarinnar,
sem fjallaði um mál-
ið, lagði til að húsið
yrði keypt en menn
munu hins vegar
ekki vera tilbúnir að
gleypa verðhugmyndir SS-manna.
Þeir vilja fá á milli 500 og 600 millj-
ónir fyrir. Þá vill svo til að það mun
vera til smuga í fjárlögum fyrir
kaupum á húsinu því þar var til-
greindur liður undir kaup á húsi
undir Myndlista- og handíðaskóla
íslands. Einnig hefur verið rætt um
eignaskipti þannig að SS fengi eitt-
hvað af húsum ríkisins sem auðveld-
ara væri að losna við. Steinþór
Skúlason, forstjóri SS, gæti því orð-
ið umsetinn meðal fasteignasala á
næstunni...
arnefndar borgarinnar. Byggingar-
deild borgarverkfræðings hefur sótt
um leyfi til að reisa Kjarvalssafnið,
1.660 fermetra að stærð, þar af er
fyrsta hæðin 712 fermetrar og önn-
ur hæð 910 fermetrar. Afgreiðslu
umsóknarinnar var frestað á síðasta
fundi nefndarinnar og henni vísað
til slökkviliðsstjóra. . .
■ ■
UM LANGAN ALDUR HOFUM VIÐ
■ ■
SEÐ LANDSMONNUM
FYRIR FLUTNINGUM Á SJÓ
5
í 60 ár hefur Ríkisskip annast flutninga til hafna um land allt.
Áralöng reynsla, ásamt góóum skipakosti og þrautþjálfuðu
starfsfólki, gerir okkur kleift að búa vel um hvers kyns vöru og
koma henni örugglega á áfangastað.
Kynntu þér þjónustu okkar ogjáðgjöf. Við höfum ávallt að
leiðarljósi að uppfylla óskir viðskiptavina okkar og laga
þjónustuna að þörfum hvers og eins.
Nýttu þér þjóðbraut okkar á sjó. Það er þér í hag.
RIKISSKIP
Hafnarhúsinu v/Tryggvagötu, 101 Reykjavík, pósthólf 908, sími (91) 28822, myndsendir (91) 28830