Pressan - 17.01.1991, Blaðsíða 3
FIMMTUDAGUR PRSSSAN 17. .IANÚAR 1991
3
liikamsræktarstöð verkalýðsfé-
laganna, Máttur, ætlar að stækka
við sig. Er hugmyndin að auka við
...t -— húsnæðið í Faxafeni
ÆSAt og bæta við tveimur
sölum. Þessi líkams-
fBWf' v ræktarstöð er ekki
vinsæl meðal ann-
I arra stöðva og finnst
mönnum þarna vera
á ferðinni óeðlileg
samkeppni með því að blanda
verkalýðsfélögunum í reksturinn.
Það er Heilsugarðurinn með þá
Hilmar Björnsson iþróttakennara
og Grím Sæmundsen lækni í
broddi fylkingar sem sér um rekst-
urinn ...
s
■■jálfstæðismenn hafa tekið eftir
hversu harðorður Þorsteinn Páls-
son, formaður Sjálfstæðisflokksins,
hefur verið vegna
ástandsins í Eystra-
saltsrikjunum. Þetta
þykir meðal annars
boða það að Þor-
steinn sé að gæta að
því að Davíð Odds-
son og Björn
Bjarnason komist ekki hægra meg-
in við formanninn. Það er liður í
mun umfangsmeiri leik. Þorsteinn
ku vera byrjaður að berjast fyrir að
halda sæti sínu sem formaður
flokksins og mun nú leita allra leiða
til að passa að Davíð komist sem
minnst í sviðsljósið. Ein leiðin til
þess er að tala hærra og af meiri
ákveðni en Davíð . . .
^^^^eðal framsóknarmanna á
Reykjanesi var engin samstaða um
hver ætti að leiða listann ef Stein-
grímur Hermannsson færi í fram-
boð i Reykjavík. Það var einmitt
þess vegna sem fast var sótt að
Steingrími að fara hvergi. Eitt kom
vel í Ijós þá daga sem átökin voru;
það var að vonlaust var að ná sam-
stöðu um að Jóhann Einvarösson
eða Níels Árni Lund leiddu listann.
Þess vegna var leitað til Jóns
Sveinssonar, aðstoðarmanns
Steingríms, og Sigmundar Guð-
bjarnasonar háskólarektors. Þeg-
ar þeir neituðu báðir gáfust fram-
sóknarmennirnir upp og heimtuðu
Steingrím til baka . . .
■ ramsóknarmenn eru vissir um
að fá þingmann kjörinn í Reykjavik.
Margir efast um að Finnur Ingólfs-
son njóti nægilega
mikils fylgis. Spurn-
ingin er ekki um
það: fastafylgi
flokksins í Reykjavík
er nógu mikið til að
tryggja þingmann,
sama hver hann
H
H ■ eimastjórnarsamtökin munu
hafa hafnað ósk þeirra Óla Þ. Gud-
bjartssonar, Júlíusar Sólness og
Guðmundar Ág-
ústssonar um sam-
vinnu fyrir næstu
kosningar. Það
munu einkum hafa
verið gamlir félagar
þeirra úr Borgara-
flokknum sem höfn-
uðu þeim þremenningum . . .
að hefur enginn komist hjá
þvi að vita að Finnur Ingólfsson
hafði betur en Guðmundur G. Þór-
arinsson í prófkjöri
Framsóknarflokks-
ins í Reykjavík. Eftir
harða baráttu var
staðan metin svo að
Finnur hefði unnið
leikinn, að minnsta
kosti eitt — núll.
Þegar reykvískir framsóknarmenn
fengu jólapóstinn jókst forskot
Finns í að minnsta kosti tvö — núll.
Guðmundur sendi framsóknar-
mönnum langt bréf þar sem hann
ræddi í löngu máli um aðdraganda
og úrslit prófkjörsins. Þeir sem
komnir voru í jólaskap nenntu ekki
að lesa reiðibréf Guðmundar. Finn-
ur sendi hins vegar hefðbundið jóla-
kort þar sem hann þakkaði sam-
starfið og stuðninginn og óskaði
gleðilegra jóla og nýs árs . . .
inbert mál á hendur Magnúsi...
a
næsta hefti Tímarits lögfræð-
inga mun birtast grein eftir Lúðvík
Ingvarsson, fyrrverandi prófessor,
um áfengiskaupa-
mál Magnúsar
Thoroddsens, for-
seta Hæstaréttar.
Lúðvik mun gagn-
rýna ákæruvaldið í
greininni fyrir að
hafa ekki höfðað op-
lefnd um áfengisvarnarmál,
undir forystu Ingimars Sigurds-
sonar í heilbrigðisráðuneytinu,
leggur það til í drögum sínum að
nýjum áfengislögum að Áfengis- og
tóbaksversluninni sé óheimilt að
bókfæra áfengi nema á kostnaðar-
verði. Ef þetta verður að lögum
verða ráðuneytin, sem hingað til
hafa fengið áfengi á kostnaðarverði,
að bókfæra áfengið sömuleiðis á
réttu verði. Risna ráðuneytanna
mun því hækka umtalsvert því af-
slátturinn á brennivíninu hefur
lækkað hana hingað til. Ráðuneyti
sem notar 50 milljónir nú í risnu og
skiptir þeim til helminga milli víns
og snittubrauðs getur þannig þurft
að bókfæra hátt í 200 milljónir þar
sem vínið á eftir að hækka fimmfalt
eða jafnvel enn meira .. .
^■kkert verður af samstarfi Guð-
mundar G. Þórarinssonar og
Heimastjórnarsamtakanna fyrir
kosningarnar. Félag-
far í samtökunum
im munu vilja fá feitari
bita í efsta sæti sitt í
Reykjavík og bera
nú í víurnar við
Guðmund jaka
Guðmundsson . . .
ALLT AÐ W/o AFSLATTUR
TEPPI - DÚKAR - FLÍSAR - MOTTUR - PARKET
GÓLFTEPPI - 15-35% AFSLÁTTUR ’
Dæmi: Saxony kanadísk stofuteppi, Áður kr. 3.020«-
_____100% polyester, blettvarin,_________Núkr. 1.963t-_____
PARKET 15% AFSLÁTTUR
BOEN norskt gæðaparket, uppáhaldsparket allra fagmanna.
Dæmi: Eik, Dallas B. Áður kr. 3.286,-
Nú kr. 2.793«-
GÓLFDÚKAR - 15-20% AFSLÁTTUR
Allir Armstrong-dúkar lækka um 15% á útsölunni. Armstrong þarf ekki að líma.
Dæmi: Boutique. Áður kr. 1.231,-
Nú kr. 984,-
FLÍSAR - ALLT AÐ 60% AFSLÁTTUR AF AFGANGSFLÍSUM
ítalskar og spænskar flísar i miklu úrvali. Öll hjálparefni og fagleg ráðgjöf.
Dæmi: Galaxy gólfflísar. Áður kr. 2.302,-
Nú kr. 1.726,-
Tilboð á Höganás veggflísum 15x15 cm. Áður kr. 2.640,-
_________________________________________ivúkr. 1.395,-
STÖK TEPPI, MOTTUR OG DREGLAR MEÐ 15-50% AFSLÆTTI
DUKAR OG TEPPI:
Afgangar og bútar á heil herbergi og minni fleti með 35-60% afslætti.
Hafíð málin með ykkur. Það sparar ykkur tíma og fyrirhöfn.
Þíð getið Sparað þusunði a útsölunni hjá okkur.
KHtDITKORT
Lego-kubbar
fVrir bömín
p ieuro _ r/ mmmmm
.Æfao j KREPIT i//Q4 Samkori _
VELKOMIN [HHjHHHy w * Jrl
TEPPABUÐIN
GOLFEFNAMARKAÐUR SUÐURLANDSBRAUT 26 S-91 681950