Pressan - 17.01.1991, Blaðsíða 25
FIMMTUDAGUR PRESSAN 17. JANÚAR 1991
25
eftir svipnum á afgreiðslumannin-
um!
— Fáðu afgreiðslumanninn í
plötubúðinni til að sýna þér allar
plöturnar með Wagner og jafnvel
spila nokkrar. Spyrðu að því loknu
um nýjustu plötuna með Sumar-
gleðinni (sem er ekki til) og
gakktu síðan út í fússi.
— Biddu um að fá að sjá eitt-
hvað uppi i efstu hillu eða úti í
glugga. Þegar afgreiðslumaðurinn
er loksins búinn að ná í þetta
skaltu einfaldlega segja: „Nei, ann-
ars. Þetta er ekki það sem ég leita
að.“
— Ef þú ert inni í stórmarkaði
og færð allt í einu óviðráðanlega
löngun til að móðga stóran hóp
skaltu fylla innkaupakerruna svo
að út úr flæðir og fara að hrað-
kassanum.
KRAAMOÐGANIR
Það er ótrúlegt að þrátt
fyrir að kráamenningin hafi
haldið innreið sína af krafti
hér á landi skuli enginn
hafa þróað fíniegar móðganir
á því sviði. Við Islendingar erum
þar enn á því stigi að æla niður
um hálsmálið á næsta manni og
berja hver annan. Hér skal reynt
að benda á nokkrar snyrtilegri
móðganir:
— Það getur verið sérlega
áhrifaríkt að panta fimm bjóra,
eða fleiri, rétt áður en hætt er að
afgreiða.
— Ef þú ert orðinn leiður á
hjónunum við hliðina á þér er
hægt að segja kurteislega við eig-
inmanninn: „Það er fallegt af þér
að taka mömmu þína með út.“
— Við dyravörðinn er sjálfsagt
að segja: „Hver setur þig aftur í
búrið eftir að vinnutíma lýkur?"
— Við barþjóninn má segja: „Er
einfaldur brennivín í kók flóknasti
kokkteilinn sem þú getur bland-
að?“
ÞaÓ er
ekki einu
sinm hæfif
að herma
effir Þér
— Ef þú sérð að innréttingarnar
eru nýjar er sjálfsagt fyrir þig að
hella svolitlu niður af bjórnum og
hafa ekki alveg slökkt í sígarett-
unni þegar þú hendir henni frá
þér.
— Þegar þú ert búinn að brenna
gat á jakkann hjá næsta manni er
auðvitað alger óþarfi að biðjast af-
sökunar. Betra er að gefa í skyn
að jakkinn hafi hvort sem er ekki
verið merkileg flík.
MÓÐGANIR Á
VEITINGAHÚSUM
Eftir því sem íslenskum veitinga-
húsum fleygir fram er tilvalið að
birgja sig upp af handhægum
móðgunum, svo sem:
— Er kjötið svona vel steikt eða
rekið þið líkbrennslu?
— Ég pantaði hérna fyrr á öld-
inni en man ekki lengur hvað það
var.
— Ég pantaði súpu fyrir hálftíma
— gengur kannski erfiðlega að
opna pakkann?
— Mér sýnist af stærð steikur-
innar að þetta sé veitingastaður
fyrir grænmetisætur.
— Þegar sagt var að þetta væri
ekta indverskur staður áttaði ég
mig ekki á því að í því fælist að
maturinn væri eldaður í Indlandi.
VINNUSTAÐURINN GETUR
LÍKA VERIÐ SKEMMTILEGUR
Það er óþarfi að eyða öllum
tíma sínum á vinnustað í að
vinna. Þar má upphugsa skemmti-
legan kokkteil af móðgunum og
stríðni til að létta mönnum lund.
— En þú verður að vera maður til
að þola óvinsældir til að þetta
gangi upp.
— Það er auðvitað sjálfsagt að
vera sífellt að opna og loka glugga
og fylgjast þá vel með því hvort
samstarfsmennirnir eru nýbúnir
að fara í eða úr jakkanum.
— Ef þú reykir skaltu gera mikið
af því og helst á reyklausum svæð-
um. Þetta er strið sem enn sér
ekki fyrir endann á.
— Ef þú reykir ekki er eðlilegt
að kvarta sífellt yfir því og þar
sem það er í tísku að taka tillit til
þeirra sem reykja ekki er óhætt
að kvarta jafnvel við yfirmennina.
— Þá er vænlegt að gera lítið úr
tillögum annarra og svara helst
öllum tillögum með nýjum.
— Reyndu að mæta alltaf of
seint en ekki svo að það sé hægt
að hanka þig á því.
— Vertu sífellt með eitthvert
snakk uppi við. Harðfiskur og
poppkorn er til dæmis tilvalið.
Þá eru hér nokkrar ábendingar
fyrir vinnuveitendur:
— Hengdu upp stimpilklukku og
neitaðu að taka mark á öðru en
henni — jafnvel þótt hún bili.
— Hengdu upp alls kyns tilkynn-
ingar og passaðu þig á því að hafa
þær nógu tvíræðar: Að gefnu til-
efni skal tekið fram að bannað er
að fara með ritföng heim. Óheim-
ilt er að drekka áfengt öl í vinn-
unni. Starfsmönnum er óheimilt
að leggja bílum sínum fyrir fram-
an vinnustaðinn.
— Borgaðu alltaf út nokkrum
dögum of seint.
Og að lokum er rétt að benda
fólki á að ef það vill virkilega
móðga blaðamenn þá er best að
þykjast ekki hafa lesið greinar
þeirra. Það hrífur undantekningar-
laust.
að er greinilegt að það á ekk-
ert óþarfa dót að vera í nágrenni við
hina nýju sundlaug Kópavogs. Har-
aldur Erlendsson, sem hefur rekið
pylsuvagn í námunda við laugina,
fékk nýlega bréf um að hann ætti að
koma sér í burtu með vagninn. Eng-
ar skýringar fylgdu með þessari
skipun en það mun vera töluvert
verk að flytja vagninn sem hefur
verið tryggilega njörvaður nið-
ur . . .
u
1^1 ú er farið að styttast í að nið-
urstaða fáist í meiðyrðamáli því sem
Björn Friðfinnsson ráðuneytis-
stjóri höfðaði á
hendur Frjálsri
verslun. Ástæðan
fyrir málshöfðun
Björns eru skrif í gul-
um dálki blaðsins.
Þar er gefið í skyn
að Björn hafi fengið
starf sitt vegna frændsemi og pólit-
ískra tengsla við Jón Baldvin
Hannibalsson utanríkisráðherra.
Bíða án efa margir spenntir eftir
niðurstöðu þessa máls . . .
C
C^tuðningsmenn Guðmundar
Hallvarðssonar, formanns Sjó-
mannafélags Reykjavíkur og fram-
bjóðanda í prófkjöri Sjálfstæðis-
flokksins í Reykjavík í haust, hyggj-
ast boða til fundar um aðra helgi til
að þrýsta á um framgöngu síns
manns. Krafan er að Guðmundur
færist upp fyrir Láru M. Ragnars-
dóttur þannig að „fulltrúar hinna
vinnandi stétta í Sjálfstæðisflokkn-
um fái mann í öruggt baráttusæti",
eins og stuðningsmenn Guðmundur
orða það. Þeir eru galvaskir og kalla
sig Sjóherinn. Þeir reiða sig á stuðn-
ing fallkandídatsins Guðmundar
H. Garðarssonar og treysta á að
Birgir ísleifur Gunnarsson hverfi
í Seðlabankann, að ósk forystu Sjálf-
stæðisflokkins . ..
S-—
nokkuð ánægðir með prófraun hins
nýja formanns Sambands íslenskra
-------- sveitarfélaga, Vil-
Ragnar Grímsson
. fjármálaráðherra út
af aðstöðugjöldum. Vilhjálmur er
sagður hafa sýnt óvænta tilburði
gagnvart Ólafi en hingað til hafa
sveitarstjórnarmenn talið sig fara
frekar halloka í viðureignum við
fjármálaráðherrann ...
U
■ ■inn nýi forstjóri Úrvals/Út-
sýnar, Hörður Gunnarsson, hefur
verið drjúgur við að fá starfsfólk yfir
til sín frá sínum gamla vinnustað,
Samvinnuferðum/Landsýn. Hann er
þegar búinn að fá Tómas Tómas-
son til sín en hann starfaði síðast hjá
Almenna bókafélaginu. Áður var
Tómas hjá Samvinnuferðum. Einnig
hefur Höröur verið duglegur við að
bjóða fararstjórum og sölumönnum
yfir til sín . . .