Pressan - 17.01.1991, Blaðsíða 18

Pressan - 17.01.1991, Blaðsíða 18
,,Michael er algerlega laus vid alla helgislepju og þad heillar fólk. Hartrt segir ad menn skapi adstœdur sínar sjálfir, menn velji sér adstœd- ur. Og þaö er ekkert rétt og rangt, segir Michael, heldur adeins jákvœtl og neikvœtt. Boðskapur Michaels á til dœmis ágœtlega við um Bjart í Sumarhúsum," sagði Helga Ágústsdóttir, eigandi Hug- ræktarhússins sem býður meðal annars upp á nám- skeið i frœðum Michaels. Og hver er þessi Michael eiginlega? Jú, hann er sam- heiti á „sálnafjölskyldu" sem telur hvorki meira né minna en 1100 meðlimi. Þessi fjöl- skylda hefur aðsetur á öðru tilverustigi en lætur sig hag mannfólksins miklu varða og miðlar því margvíslegri speki. Michael byrjaði að láta að sér kveða í Bandaríkjun- um fyrir 20 árum en á að sögn miklu eldri rætur. Þar vestra hafa vinsældir hans vaxið ár frá ári og nú er Mich- ael kominn til íslands: skilget- inn sonur „nýaldaræðisins". Helga Ágústsdóttir lagði áherslu á að Michael boðaði ekki ný trúarbrögð heldur fræðslu. Grunnstefin í mál- flutningi Michaels væru sátt og kærleikur. „Fræðsluaflið, eins og sálnafjölskyldan Michael er kölluð, segir að líf- ið sé spennandi og lærdóms- ríkur leikur þar sem mark- miðin eru sköpun og tjáning." Michael skiptir mönnum í sjö sálnagerðir: þjón, prest, hagleiksmann, sögumann, stríðsmann, konung og lær- dómsmann. Allir hafa ákveðnu hlutverki að gegna, flestir eru þjónar en konung- ar eru fæstir. Helga kvað Michael hins vegar ekki gera upp á milli sálnagerða, allir væru jafnmikilvægir í al- heimsspilverkinu. En sálir eru ekki bara mismunandi gerðar heldur líka misgamlar og skiptast í fimm stig, allt frá ungbarnaskeiði til gamla skeiðsins. Ungar sálir eru allajafna uppteknar af lífsins gæðum, oftast valdagírugar og sjást ekki fyrir. Þegar sálir eldast verða þær hins vegar uppteknari af þeim verðmæt- um sem mölur og ryð granda ekki, áhuginn beinist inn á við. íslendingar skera sig nokk- uð frá öðrum þjóðum í skipt- ingu sálnagerðanna. Þannig eru þjónar ekki fjölmennastir hérlendis eins og annars stað- ar heldur stríðsmenn og hlut- fall hagleiksmanna er einnig hærra á íslandi en gengur og gerist. Michaelsmiðlar hafa einnig komist að þeirri niður- stöðu að íslendingar séu yfir- leitt mun eldri sálir en flestir aðrir jarðarbúar. Það vekur hins vegar athygli að alls eng- inn konungur er landsþekkt- ur á íslandi en samkvæmt töl- fræðinni eru þeir 2500 tals- ins. Michael boðar endurholdg- un og þegar sál er orðin nægilega þroskuð hverfur hún af tilverustigi jarðarinn- ar og yfir á æðra svið. Og áfram koll af kolli. Menn eiga þannig langt ferðalag fyrir höndum. Hrafn Jökulsson Moðir Theresa Davið Scheving Thorsteinsson Adolf Hitler Saddam Hussein Sverrir Hermannsson Margaret Thatcher ERTU ÞJÓNN EÐA KÓNGUR? BYGGTÁ UPPLÝSINGUM FRÁ HUGRÆKTARHÚSINU. ÞJÓNNINN Hlutverk 30% jarðarbúa. Þjónninn finnur fullnægju í að vinna fyrir aðra, gera þeim gott og sjá til þess að fólki líði vel. Hann sinnir fremur einstaklingum en hópum og líður því betur sem hann kemur fleiru góðu til leiðar. Hann vinnur ekkert frekar með það fyrir augum að gera öðrum ljóst hverju hann fær áorkað til góðs. Nokkrir þjónar: móðir Ther- esa, Albert Schweitzer, Flor- ence Nightingale, Davið Scheving Thorsteinsson. PRESTURINN Hlutverk 4% jarðarbúa. Presturinn vinnur að þvi góða og æðra, allt eftir því hvernig hann upplifir að hann geri það best — og eftir eigin skilgreiningu á því hvað hið góða og æðra sé. Prestar tala gjarnan af miklum sann- færingarkrafti og vinna fólk þannig á sitt band. Nokkrir prestar: Nancy Reagan, Napóleon, Adolf Hitl- er(l), Díana prinsessa, Guð- laugur Bergmann, Jón Baldvin Hannibalsson. HAGLEIKS- MAÐURINN Hlutverk 20% jarðarbúa. Handverksmaðurinn tjáir sig á persónulegan hátt í gegn- um margvíslega sköpun og þarf alltaf að vera að búa eitt- hvað til. Nokkrir handverksmenn: Vincent van Gogh, Woody All- en, Shirley MacLaine, Dúddi hárgreiðslumeistari, Heiðar Jónsson, Svavar Gestsson. SÖGUMAÐURINN Hlutverk 15% jarðarbúa. Sögumaðurinn talar til fjöld- ans, magnar andrúmsloftið, skemmtir og skapar, allt eftir Van Gogh Valgerður Matthíasdóttir Heiðar Jonsson Ronald Reagan Steingrímur Hermannsson Pavarotti Enginn lands- kunnur íslending- ur er konungur. aðstæðum hverju sinni. I hópi sögumanna eru margir lista- menn. Nokkrir sögumenn: Sir Laurence Olivier, Mark Twain, Ronald Reagan, Valgerður Matthíasdóttir, Flosi Ólafs- son, Árni Bergmann. STRÍÐSMAÐURINN Hlutverk 20% jarðarbúa. Stríðsmaðurinn er „líkamleg- astur" allra, vill gjarnan ögun og átök, nýtur þess að takast á við hluti og getur verið afar beinskeyttur til orðs og æðis. Duglegur og á auðvelt með að telja fólk á sitt band. Nokkrir stríðsmenn: Hem- ingway, Clint Eastwood, Saddam Hussein, Indira Gandi, Davíð Oddsson, Sverrir Hermannsson bankastjóri, Herdís Þorgeirsdóttir ritstjóri. LÆRDÓMS- MAÐURINN Hlutverk 10% jarðarbúa. Lærdómsmaðurinn forðast átök en á auðveldast með að skilja hin hlutverkin. Hann kýs að læra og þroskast og afla sér þekkingar á umhverf- inu. Nokkrir lærdómsmenn: Sókrates, Margaret Thatcher, Picasso, Plato, Jón Örn Marin- ósson, Ólafur Ragnar Gríms- son, Guðmundur Einarsson, fyrrverandi forseti Sálarrann- sóknarfélagsins, Steingrímur Hermannsson. KONUNGURINN Hlutverk 1 % jarðarbúa. Konungurinn safnar fólki saman, heldur utan um hóp- inn, deilir út verkefnum og leggur á ráðin. Hann býr yfir hæfni til að valda fjölbreytt- um aðstæðum. Fas konunga og ábyrgðartilfinning er oft sláandi. Nokkrir konungar: John F. Kennedy, Kathrine Hepburn, Madonna, Onassis, Pavarotti. Enginn landskunnur íslend-_ ingur er konungur að sögn umbjóðenda Michaels.

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.