Pressan - 17.01.1991, Qupperneq 16
lli
Guðmundur <5. Þórarinsson
alþingismaður
riMMTUDAGUR PRESSAN 17. JANÚAR 1991
Falla nú öll
vötn til
Dýrafjarðar
Þad þurfti ógnarötd í tveimur heimsálfum til aö koma
Gudrmmdi G. Þórarinssyni og ,.bófaflokkum“ framsókn-
armanna af forsíöum blaöanna. Enn þá sér ekki fyrir
endann á erjum flokksmanna í Reykjavík og jafnvel
Steingrímur Hermannsson hœtti viö aö koma og skakka
leikinn. En um hvad snúast deilurnar? Eru þœr til marks
um upplausn flokkakerfisins, eins og Guðmundur G.
heldur fram — eða eru þœr fyrst og fremst opinber sýning
á persónulegri valdabaráttu og metnaöargirni? Leigubíl-
stjórinn sem ók bladamanni PRESSUNNAR niöur á Al-
þingi var ekki í nokkrum vafa: ,,Þeir eru alveg eins, Guö-
mundur og Finnur og allir þessir pólitíkusar. Sama tób-
akiö í mismunandi baukum. Viö þurfum frjálslyndan
einrœdisherra."
Það var vs oi> þvs á Alþini>i enda
málefni Litháens til umræðu. Eigin-
lega allur þingheimur ætlaði að
taka til máls. í kaffistofunni sátu þeir
sem þegar höfðu látið móðan mása.
Við settumst í hornið. Egill Jónsson
frá Seljavöllum. oddviti sjálfstæðis-
manna á Austurlandi. kom aðvíf-
andi og sagði brosandi: ..Þeir segja
að þú eigir alls enga möguleika.
Guðmundur."
..Segja þeir það. já?" ansaði Guð-
mundur og var ekki hlátur í liuga.
SAMSTARF OKKAR
STEINGRÍMS HEFUR MINNKAÐ
En hver er staða Guðmundar G.
Þórarinssonar innan þingflokks
framsóknarmanna nú. eftir harðar
deilur við helstu foringja flokksins
og hótun um sérframboð?
..Staða mín er óbreytí — í bili að
minnsta kosti. Ég starfa sem fram-
sóknarmaður og hef farið fram á að
vera í framboði fyrir flokkinn með
BB-lista. Það hefur engin breyting
orðið á störfum mínum en ég get
ekki lagt mat á það sem gerist á
næstu dögum."
Er ekki líklegt að leiðir skilji með
þér og Framsóknarflokknum?
,.Ég vil ekki trúa því," svarar Guð-
mundur en virðist alls ekki viss i
sinni sök. ,.Ég hef reyndar viljað
breyta Framsóknarflokknum og
stefnumálum hans til nútímalegs
horfs og það hefur sjálfsagt bakað
mér einhverjar óvinsældir innan
flokksins. En ég hef starfað í Fram-
sóknarflokknum í 20 ár og þar eru
margir af bestu vinum mínum. Ég á
erfitt með að sætta mig við það ef sú
leið að vera í framboði fyrir flokkinn
er ekki fær?
En varðstu ekki einfaldlega undir
í lýðræðislegri atkvæðagreiðslu
sem þú notaðir að vísu stór orð um?
,,Ég veit ekki hversu rétt er að rifja
fortíðina upp. En þetta var auðvitað
ekkert prófkjör sem fram fór. Próf-
kjör er atburður þar sem leitað er
álits um menn eða málefni og allir
vita að það hefur meginþýðingu
hvort úrtakið er lokaður hópur eða
opinn. Það er auðvelt að hafa áhrif
á niðurstöðuna þegar aðeins fáir út-
valdir taka þátt."
Það hefur lengst af verið litið á þig
sem náinn samstarfsmann Stein-
gríms Hernrannssonar en nú beitir
hann öllum tiltækum ráðum til að
stöðva þig.
„Við Steingrímur unnum mikið
saman en það hefur minnkað á und-
aníörnum árum. Mér virðist líka að
ýmsar af mínum skoðunum eigi erf-
itt uppdráttar innan flokksins í
seinni tíð. Ég nefni til dæmis frægt
nefndarálit um atvinnu- og efna-
hagsmál sem ég og þrír aðrir þing-
menn flokksins lögðum fram. Fram-
sóknarflokkurinn hefur ekki fengist
til að taka afstöðu i mjög mikilvæg-
um málum og það á raunar við um
aðra stjórnmálaflokka líka sem
standa fyrst og fremst vörð um mál-
efni fortíðarinnar. Flokkarnir voru
áratugum saman mótaðir utan um
tvö meginmál: utanríkispólitík og
stéitabaráttu. En nú hefur tíminn
sópað þessum máium burtu og ný
viðfangsefni blasa við." Guðmundur
er kominn nokkuð langt frá upphaf-
legu spurningunni og nú spyr hann
sjálfur: ,,Og hver eru mál dagsins í
dag? Ég nefni fyrst afstöðuna til EB.
Innan sama flokksins finnurðu bæði
talsmann aðildar að bandalaginu og
annan sem ekki vill einu sinni ræða
um evrópskt efnahagssvæði. Svona
er þetta í flestum flokkum. Sami
glundroðinn ríkir gagnvart sjávarút-
vegi og landbúnaði. í sama flokki
eru menn sem vilja til dæmis við-
halda styrkjakerfi landbúnaðarins,
jafnvel útflutningsbótunum, og aðr-
ir sem vilja óheftan innflutning á
landbúnaðarvörum.-
FER EKKI í FRAMBOÐ
FYRIR AÐRA FLOKKA
Var þér nokkurn tíma alvara með
því að sækja um listabókstafina BB?
Var það ekki bara nauðsynlegt
formsatriði áður en þú gætir farið út
í sérframboð?
„Mér var að vísu Ijóst að litlar lík-
ur væru á að ég fengi að bjóða fram
með þeim hætti. En mér var full al-
vara. En stjórn fulltrúaráðs flokks-
ins virðist vísvitandi hafa dregið
svarið á langinn."
Heyrst hefur að þú hafir rætt við
fulltrúa ýmissa smáflokka. Heima-
stjórnarsamtökin svonefndu, Þjóð-
arflokkur, Borgaraflokkur og jafn-
vel Flokkur mannsins hafa verið
nefndir í því sambandi.
„Það er alveg rétt að ýmsir hafa
rætt við mig. Ég get hins vegar sagt
það alveg skýrt að ég fer ekki í fram-
boð á vegum neins slíks flokks?
Finnur var þannig í sömu aðstööu og starfsmaður í fyrirtæki,
sem á að reka. hann fékk tækifæri til að skrifa uppsagnarbréfið
sjálfur.
En ef þú ferð ekki í framboð á veg-
um þessara smáflokka hlýtur þú að
þurfa að stofna einn slíkan sjálfur.
„Ég vona að til þess komi ekki."
VELDUR MÉR VANLÍÐAN
Það fjölgar í kaffistofu þingsins
eftir því sem fleiri Ijúka máli sínu um
Litháen. Samherjar Guðmundar
gefa honum hornauga.
Samherjar? Hvernig er það ,að
standa í pólitískri baráttu upp á líf
og dauða við félaga sína?
„Það er mjög erfið tilfinning," seg-
ir Guðmundur, „og ég játa að það
veldur mér talsverðri vanlíðan. Ég
vildi ekki lenda upp á kant við fé-
laga mína en ef ákveðnir menn inn-
an flokksins geta ekki sætt sig við
neitt nema jámenn — þá verð ég að
berjast. Og mér er það mikið um-
hugsunarefni að Steingrímur skuli
tilbúinn að taka afstöðu með öðrum
deiluaðilanum og gegn hinum".
Var það ekki sérlega klaufalegt
hvernig staðið var að málum vegna
hugsanlegs framboðs Steingríms í
Reykjavík?
„Þetta var hringekja sem var sett
upp. Árangurinn og afleiðingarnar
eru með slíkum eindæmum að þeir
sem hana skipulögðu geta ekki
fengið háa einkunn. Framsóknar-
flokkurinn bíður skaða af í tveimur
kjördæmum. Nú er búið að lýsa al-
geru vantrausti á efsta mann listans
í Reykjavík og eftir stendur listinn,
eiginlega ónýtur. Og hins vegar lýsir
formaðurinn því yfir að hann kom-
ist ekki í framboð í Reykjavík þótt
hann feginn vildi. Hvað finnst Reyk-
nesingum um það?"
En átti ekki Finnur Ingólfsson
sjálfur frumkvæði að því að reyna
að fá Steingrím í framboð í Reykja-
vík?
„Málið er sett þannig upp," segir
Guðmundur með áherslu, „að Finn-
ur hafi ritað bréf og beðið Stein-
grím að taka efsta sætið. En Stein-
grímur hefur upplýst að hugmyndin
sé gömul, að forystumenn flokksins
í Reykjavík hafi áður rætt þetta við
hann. Finnur var þannig í sömu að-
stöðu og starfsmaður í fyrirtæki,
sem á að reka. Hann fékk tækifæri
til að skrifa uppsagnarbréfið sjálf-
ur".
METORÐAGIRNDIN BAR
FINN OFURLIÐI
Eru væringarnar í Reykjavík ekki
bara gott dæmi um persónulega
valdabaráttu? Heldurðu að fólki
finnist í raun 03 veru að þetta snúist
um alvöru pólitík?
„Það sýnir vanmat á Reykvíking-
um að ætla að þeir geri sér ekki
grein fyrir því að það voru brögð í
tafli. Og ég held að fólk skilji að við
erum að deila um grundvallarat-
riði."
Leigubílstjórinn sem keyrði mig
hingað var nú alveg á því að þetta
væri bara persónuleg togstreita.
„Er það?“ Guðmundur veltir mál-
inu fyrir sér. „Já, kannski finnst
sumu fólki það."
En hverja ætlarðu að fá með þér á
framboðslistann?
„Það er ekki tímabært að ræða
strax. Ég er enn að vona að ég fái BB
— þótt nú falli öll vötn til Dýrafjarð-
ar.“
Eftir þessa tilvitnun í Gísla sögu
Súrssonar er við hæfi að spyrja Guð-
mund álits á erkióvininum, Finni
Ingólfssyni. Er enginn ljós blettur á
manninum sem notar „bófaaðferð-
ir“?
„Jú, jú, Finnur er ungur og röskur.
Ég átti lengst af gott samstarf við
hann. Finnur hlaut skjótan frama og
það er margt gott um hann að segja.
Hins vegar held ég að metorða-
girndin hafi borið hann ofurliði á
erfiðu augnabliki. Hann verður að
skilja að tilgangurinn helgar ekki
alltaf meðalið."
En er það ekki bara sáluhjálparat-
riði fyrir Guðmund G. Þórarinsson
að vera áfram á Alþingi?
„Nei, langt í frá. Ég hætti á þingi
1983 en byrjaði aftur 1987 meö það
fyrir augum að vinna ákveðnum
skoðunum fylgi. Ég hef einkum
reynt það innan Framsóknarflokks-
ins en árangurinn er ekki nægileg-
ur. Og ég efast reyndar um að það sé
hægt að breyta innan frá. En ég ætla
að gera eina tilraun enn."
Eitt lag enn?
„Já. Eitt lag enn."
Hrafn Jökulsson
S.ÞÓR