Pressan - 17.01.1991, Side 21
21
LISTAPÓSTURINN
Helena Jóhannsdóttir ballettdansari
á dansi undanfarió
Mikill
,,Þad hefur verid mikill áhugi á
dansi ad undanförnu og ég vona ad
sá áhugi skili sér inn í ballettinn og
á sýningar," sagöi Helena Jóhanns-
dóttir ballettdansari er hún var
spurö hvort mikill áhugi vœri á ball-
ett á íslandi. Helena dansar hlut-
perk nöfnu sinnar í Draumi á Jóns-
messunótt sem Islenski dansflokk-
urinn frumsýnir á sunnudaginn.
Ballettinn er byggður á sam-
nefndu leikriti eftir William Shake-
speare, saminn við tónlist eftir Felix
Mendelsohn. Nýsjálenski danshöf-
undurinn Gray Veredon kom hingað
til lands í byrjun desember og setti
upp sýninguna ásamt aðstoðar-
manni. Gray samdi ballettinn upp-
haflega fyrir Ballet de Lyon í Frakk-
landi og var hann frumsýndur þar
áhugi
árið 1984. Síðan þá hefur Gray svið-
sett ballettinn víða um heim. Sýn-
ingin er mjög viðamikil og í henni
taka þátt um 40 manns, dansarar úr
íslenska dansflokknum, lausráðnir
íslenskir dansarar, fjórir breskir
sólódansarar, nemendur úr List-
dansskóla Þjóðleikhússins, auk sex
leikara úr Þjóðleikhúsinu.
ÞAÐ ÞARF AÐ KYNNA
BALLETTINN
,,Það þarf að kynna ballettinn bet-
ur fyrir fólki á íslandi," segir Helena.
„Áhuginn leynist víða en það er
mikið til sami hópurinn sem sækir
sýningar. Sem dæmi má taka að við
fórum með kynningar í skóla í fyrra
og fengum mjög jákvæð viðbrögð.
Mér fannst mjög gefandi að vinna
að þessari sýningu, Gray Veredon,
höfundur verksins, kom hingað og
setti upp sýninguna ásamt aðstoðar-
manni og við vorum einnig með
gesti, fjóra breska dansara og börn
úr Listdansskóla Þjóðleikhússins,
auk íslenskra leikara. Það er einn
kosturinn við að starfa sem dansari
á íslandi að maður fær tækifæri til
að vinna með ólíku fólki sem kemur
alls staðar að úr heiminum. Það er
einnig ótvíræður kostur að meira
reynir á hvern einstakling hér
vegna þess hve við erum fá. Því mið-
ur eru ókostirnir lika margir. Það
eru fáar sýningar og það gerir fólki
erfiðara fyrir að halda sér í því topp-
formi sem það vildi gjarnan vera í.
Ekki er heldur fjármagn til að gera
hlutina jafnríflega og maður vildi
gjarnan sjá. Það væri til dæmis gam-
an að hafa hljómsveit í sýningum en
tónlistina ekki á bandi eins og er til
dæmis núna.“
NAUÐSYNLEGT AÐ FARA ÚT
FYRIR LANDSTEINANA
Hvaö hcfuröu veriö lengi meö
dansflokknum og hvencer vaknaöi
áhuginn á ballett?
„Eg hef verið með íslenska dans-
flokknum frá því að ég var átján ára
og tekið þátt í flestum sýningum
hans. Ég hef hins vegar æft ballett
frá því að ég man eftir mér. Ég byrj-
aði fyrst fimm ára gömul, missti svo
áhugann en byrjaði aftur sjö ára hjá
Eddu Scheving. Þaðan lá leiðin í
Listdansskóla Þjóðleikhússins. Ég
hef einnig farið á nokkur sumar-
námskeið erlendis, bæði í Köln og
New York. Það er nauðsynlegt öll-
um dönsurum að fara út fyrir land-
steinana og sjá það besta sem gerist
erlendis. Eg fann fyrir því úti að
nemendur á mínum aldri voru
komnir lengra en ég. Aðstæður eru
ekki góðar hér til að ala upp dans-
ara en það stendur sem betur fer til
bóta. Nú er unnið að því að endur-
skipuleggja Listdanskóla Þjóðleik-
hússins frá grunni. Það er bæði ver-
ið að herða kröfurnar og svo hafa
bæst við nýir kennarar."
UPP Á VON OG ÓVON
Hugsaöir þú einhvern tíma um
þaö aö starfa erlendis?
,,Já, ég gerði það. Ég fór nú samt
ekki. Það er meira en að segja það
þegar maður á fjölskyldu. Ég hefði
kannski gert alvöru úr því ef ég
hefði fengið einhver tilboð að utan.
En ég hætti mér ekki út í óvissuna
eins og málum er háttað."
Eitthvaö aö lokum Helena?
„Já, ég vil hvetja fólk til að koma
og sjá sýninguna. Það er mikill
metnaður og mikil vinna sem liggur
að baki henni. Það hefur sýnt sig að
meiri áhugi er á klassískum verkum
og við höfum reynt að mæta því, ég
vona að það skili sér í aðsókn."
Leiksoppar í
Nemendaleik-
húsinu
Fjórði bekkur Leiklistarskóla
íslands frumsýnir í Nemenda-
leikhúsinu hinn 18. janúar leik-
ritið Leiksoppa eftir ungt banda-
rískt leikskáld að nafni CRAIC
LUCAS. Verkið, sem tekur tvo
tíma í flutningi, gerist í Banda-
ríkjum nútímans.og lýsir á grát-
broslegan hátt písiargöngu Rak-
elar Fitsimons gegnum lífið, allt
frá aðfangadegi og jólasveinum
til sálfræðinga og sjónvarps-
manna. HALLDÓR E. LAXNESS
leikstýrir verkinu en hallgrím-
UR HELGASON þýddi það fyrir
Nemendaleikhúsið.
Ljódatón-
leikar
GUÐBJÖRN GUÐBJÖRNSSON
tenórsöngvari og jónas INGI-
MUNDARSON píanóleikari halda
Ijóðatónleika í safnaðarheimil-
inu á Akranesi næstkomandi
þriðjudagskvöld, 22. janúar. Þeir
munu flytja sönglög eftir Beet-
hoven, Respighi, Schubert og
Strauss. Guðbjörn starfar við
óperuna í Kiel en hann stundaði
söngnám hjá Sigurði Demetz
Franzsyni og lauk burtfararprófi
hérlendis. Síðan dvaldi hann í
Berlín í tvö ár og sótti tíma hjá
HANNE-LORE KUHSE Og Var loks á
námssamningi við óperu í Sviss.