Pressan - 17.01.1991, Side 26

Pressan - 17.01.1991, Side 26
Orsök kuldans komin fram: DAVÍÐ SELDI OLIUFELOGUWUM HITAVEITUNA — Olíufélögin bjóda nú upp á olíukyndingar á lilbods- verdi. GARÐAR CORTES EÆR ÁTTA MILL.IÓIVIR EF HANN SYNGUR EKKI FRAMAR — Fjárveitinga- nefnd lét undan eft- ir fjórar sýningar á Rígólettó. Garöar Cortes var ánægöur á svip þegar hann tók viö átta milljónum í gær. Eiturvopnakapphlaup vid Persaflóa: SADDAM HUSSEIN KAUPIR NIÐUR- SOÐNA GAFFALBITA HJAKJ A AKUREYRI — Mikil lyftistöng fyrir fyrir- tœkið, segir Kristján Jóns- son. I——B————— Mm—MB—I 3. TÖLUBLAÐ 2. ÁRGANGUR FIMMTUDAGURINN 17. JANÚAR 1991 3. TÖLUBLAÐ 2. ÁRGANGUR HAFA SKAL ÞAÐ SEM BETUR HUÓMAR Steingrímur Hermannsson Ætlar fram í fimm kjör- dæmum Akureyri, 16. janúar______ „Sjálfstæöismenn hérna fyrir norðan voru í vanda og ég gat ekki neitað þeim þegar þeir leituðu til mín,“ sagði Steingrímur Hermanns- son forsætisráðherra í samtali við GULU PRESS- UNA en hann mun taka efsta sætið á lista Sjálf- stæðisflokksins á Norð- urlandi eystra. Þetta er fimmti listinn sem Stein- grímur hefur ákveðið að taka sæti á fyrir næstu þingkosningar. Steingrímur verður á tveimur listum í Reykjavík, einum á Reykjanesi og ein- um á Vestfjörðum, auk lista sjálfstæðismanna fyrir Steingrimur Hermannsson segist ekki taka nema örugg sæti hér eftir. norðan. i Reykjavík verður hann í fyrsta sæti á lista Framsóknar og í þriðja sæti á lista Alþýðuflokksins. Hann verður síðan í fyrsta sæti á lista Framsóknar á Reykjanesi og í heiðurssæti á lista Þjóðarflokksins á Vestfjörðum. ,,Það var kannski fljót- færni hjá mér að taka heið- urssætið fyrir vestan," sagði Steingrímur. „Eftir það hefur varla linnt látun- um. Það vilja næstum allir fá mig til að skreyta listana sína. En ég hef tekið þá stefnu að þiggja bara sæti sem gefa raunhæfa mögu- leika á þingsæti." Kókaínbarón vill * apótek á Islandi Keflavík, 17. janúar " 1 " r" ... „I dag virðist Island vera eina landið sem býður lyf- sölumönnum upp á al- mennileg kjör,“ sagði kól- umbíski kókaínbaróninn Escobar við komuna til Keflavíkurflugvallar í gær. Hann sagðist hafa gefist upp á afskiptum stjórn- valda í Kolumbíu af sínum viðskiptum og ætlaði sér að setjast að hér á landi. ,,Eg veit að íslenskir apó- tekarar og lyfsalar trúa ekki hve miklu harðræði við erum beittir í Kolumbíu. Þar eru stjórnvöld með nefið niðri í öllum koppum og eira engu," sagði Escobar. Escobar hefur þegar lagt inn umsókn um lyfsöluleyfi hér á landi. ,,Mér skilst að maður sé nokkuð öruggur um sig þeg- ar það er fengið. Maður getur þá stundað sín viðskipti í friði," sagði Escobar. ,,Viö munum skoða um- sókn þessa manns og fjalla um hana eins og umsóknir annarra. Mér er tjáð að þessi maður sé nokkuð harður í viðskiptum en alls ekki svo að hann skeri sig mikið úr í hópi íslenskra apótekara," sagði Finnur Ingólfsson, að- stoðarmaður heilbrigðisráð- herra, í samtali við GULU PRESSUNA. ALÞINGISHÚSIÐ UMKRINGT AF LÖGREGLUÞJÓNUM — Eina leiöin til aö halda mönnum í húsinu, segir Fridrik Olafsson Reykjavik, 17. janúar________ „Það má segja að fréttir frá Litháen hafi kveikt þessa hugmynd,“ sagði Friðrik Ólafsson, skrif- stofustjóri Alþingis, í sam- tali við GULU PRESSUNA en Friðrik hefur fengið Böðvar Bragason, lög- reglustjóra í Reykjavík, til liðs við sig til að tryggja eðlileg þingstörf. ,,Við göngum út frá að ís- lenskir þingmenn séu tilfinn- ingaverur eins og stjórnmála- menn yfirleitt. Þeim Iætur best að vinna við svona að- stæður," sagði Friðrik. Það var um áttaleytið í morgun sem lögreglumenn umkringdu þinghúsið. Þá var enginn þingmaður í húsinu þrátt fyrir að stutt væri þang- að til þingfundir ættu að hefj- ast. Úm níuleytið voru hins vegar allir þingmennirnir mættir og neituðu að yfirgefa húsið. ,,0kkur hefur bara verið sagt að standa hérna," sagði Sigtryggur Daníelsson varð- stjóri í samtali við GULU PRESSUNA. „Það stendur ekki til að ráðast til inngöngu eða neitt slíkt." „Árangurinn er þegar byrj- aður að skila sér,“ sagði Frið- rik Ólafsson. „Nú þegar hafa verið afgreidd átta frumvörp sem voru búin að velkjast um í þinginu í marga mánuði. Þau höfðu ekki fengist af- greidd vegna fjarveru þing- manna og ráðherra. Nú eru allir i húsinu og það er rífandi gangur." Eftir að lögreglan umkringdi þinghúsið hafa þingmenn streymt til vinnu sinnar. Tömir salir heyra sögunni til. Jóhannes Nordal kynnir útgáfu alfræðiorðabokar i gær. SEÐLABANKINN GEFUR ÚT ALFRÆÐIORÐABÓK Reykjavík, 17. janúar „Bankinn hefur áður tekið þátt í ýmiss konar menningarstarfsemi. Má þar nefna kaup á Skarðs- bók. Auk þess hefur bank- inn vanalega reynt að kaupa góða íslenska myndlist tii gjafa handa helstu starfsmönnum á stórafmælum,“ sagði Jó- hannes Nordal seðla- bankastjóri á blaða- mannafundi í gær þegar kynnt var fyrirhuguð út- gáfa bankans á alfræði- orðabók. Aðspurður um hvort sú staðreynd að Jóhannesar er ekki getið í nýrri alfræðiorða- bók Arnar og Örlygs hefði eitthvað með ákvörðun bankans að gera kvað Jó- hannes það af og frá. „Eg hef ekki einu sinni séð þessa bók," sagði Jóhannes. „Mér dytti ekki einu sinni í hug að opna hana, hvað þá meira." Lamadýr send á Hérad Eg er alveg viss um að það má rækta þetta — segir Kári Traustason ráðunautur Egilsstöðum, 16. janúar „Við erum ekki alveg vissir um hvernig á að meðhöndla svona dýr en hitt er næsta víst að það má rækta þetta," sagði Kári Traustason, ráðu- nautur á Héraði, í samtali við GULU PRESSUNA en Páll Jörundsson, bóndi á Grund, fékk send lamadýr fyrir misskilning þegar hann hugðist panta silf- urrefi frá Danmörku. Eins og fram hefur komið í GULU PRESSUNNI er þetta ekki í fyrsta skipti sem mis- skilningur hefur komið upp á Páll Jörundsson meö lama- dýrin sem hann fékk frá Dan- mörku. milli Búnaðarfélags íslands og dönsku umboðsskrifstof- unnar. íslenskir bændur hafa þannig fengið senda fíla, nas- hyrninga, sporðdreka og pá- fugla í stað refa, minka og kanína. „Aðalatriðið er að reyna að gera sem best úr þessu öllu," sagði Kári. „Þetta verður kannski til þess að við finnum einhver dýr sem henta vel til ræktunar. Til þess þurfum við að reyna ýmislegt nýtt. Þeir fiska sem róa."

x

Pressan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.