Pressan - 07.03.1991, Blaðsíða 8

Pressan - 07.03.1991, Blaðsíða 8
8 FIMMTUDAGUR PRESSAN 7. MARS 1991 Á undanförnum árum hefur verið að rísa upp ný og vaxandi starfsemi hér á landi, starfsemi sem sumir vilja kalla „andlega iðnaðinn". Þessi starfsemi er æði víðtæk og nærist á sívaxandi þörf fyrir andlega fullnægju en þó umfram allt; á rótlausri leit að nýjum sannindum. Þessi iðnaður ber mörg heiti og fara þar fremst í flokki orð eins og hugrækt og dulspeki. Nýöld er þó það sam- heiti sem flestir nota yfir þessa starfsemi og lýsir það vel þeim hugsanahætti sem liggur að baki — að við séum að færast til nýrra tíma; andlegra tíma. Það er augljóst að margir vilja og hafa gert þessa nýald- arþörf að starfi sínu. Starfsemin felst fyrst og fremst í námskeiðum og leiðsögn en einnig hefur sprottið upp verslun í þessu sambandi og þá fyrst og fremst með bæk- ur og tákn. Því verður ekki haldið fram hér að einhver hafi rakað saman auðæfum á þessari starfsemi en eins og einn ný- aldarmaður orðaði það: „Það hefur enginn orðið millj- ónamæringur en mörgum hefur tekist að gera þetta að lifibrauði sínu.“ En margt smátt gerir eitt stórt og samkvæmt því sem næst verður komist má áætla að umfang nýaldarstarf- semi hér á landi sé á milli 140 og 150 milljónir króna á ári. LJÓSGEISLI MEÐ MILUÓNAVELTU Eitt öflugasta félagið á sviði sálar- rannsókna er félagsskapur sem kall- 'ar sig Ljósgeislann og hefur aðsetur á Suðurlandsbraut. Þar eru haldin námskeið og fluttir inn enskir miðl- ar til aðstoðar. Að sögn Gudrúnar Marteinsdótt- ur hárgreiðslukonu, sem sér um rekstur félagsins, eru um 600 félags- menn í félaginu en þeir greiða 1000 krónur í árgjald. Félagið stendur fyr- ir fjölbreyttri starfsemi. Býður upp á einkafundi með miðlum, skyggni- lýsingar, bænahringi, heilun (hea- ling) og síðan námskeið til að „leið- beina fólki að vinna úr hæfileikum sínum" eins og Guðrún orðaði þetta. Hún leiðbeinir sjálf á því námskeiði. Allt þetta kostar sitt: Einkafundur með miðli kostar 2500 krónur fyrir hálftímafund. Inn á skyggnilýsinga- fundi kostar 700 krónur fyrir ein- stakling en að sögn Guðrúnar mæta 40 til 60 manns á slíka fundi. Heilun kostar um 1000 krónur og tekur 15 mínútur. Þá greiða þátttakendur í bænahringjum 1000 krónur á mán- Friðrik Páll Ásgeirsson hefur beitt dá- leiðsluaðferðum auk þess að bjóða upp á fjölbreytta þjónustu á andlega sviðinu. Hann hefur verið umdeildur í starfi sínu. Atli Bergmann vinnur hjá Lífssýn og ætlar að verða miðill. uði í húsaleigu. „Þetta svona rétt stendur undir sér,“ sagði Guðrún þegar hún var spurð um umfang þessarar starf- semi. Hún sagðist ekki treysta sér til að gefa upp heildarveltu Ljósgeisl- ans en sagði að kostnaður vegna húsaleigu og auglýsinga væri mikill. Manneskja kunnug starfseminni sagðist hins vegar áætla að Ljós- geislinn hefði um 15 milljón króna ársveltu. Sálarrannsóknafélag íslands vinn- ur á svipuðum nótum og flytur einn- ig inn miðla. Eftir því sem næst verður komist er þjónusta þeirra ódýrari og kostar til dæmis hálftími með miðli 500 krónur þar. Miðað við fjölda félaga þar má áætla að velta þeirra sé minni en Ljósgeislans eða um 10 milljónir. Sálarrann- sóknafélagið stendur einnig í bóka- útgáfu. MIKIL HEILUNARSTARFSEMI Mikil starfsemi er í kringum það sem kallað er heilun (healing) sem byggir á hugleiðslu til að samstilla líkama og sál. Á Laugavegi 163 er ís- lenska heilunarfélagið með aðstöðu í leiguhúsnæði. Þetta er sjálfseign- arfélag sem er í tengslum við Nor- ræna heilunarskólann. Þetta félag var stofnað í kringum 1985 og hefur 60 félagsmenn. Þar er boðið upp á margvísleg námskeið og má nefna að dagsnám- skeið í heilun, sem heitir Máttur huga þíns, kostar 3000 krónur. Þá er félagið með í gangi átta mánaða námskeið yfir veturinn sem kostar 4000 krónur á mánuði. Það stendur eina helgi í mánuði og eitt fimmtu- dagskvöld. Að sögn Gudbjargar Sveinsdóttur, gjaldkera félagsins, þá má áætla veltu félagsins um 1 til 2 milljónir króna. Gudrún Óladóttir, sem er nokkuð í mikilvirk á heilunarsviðinu, leigði til skamms tíma hjá íslenska heilun- arfélaginu. Hún býður upp á marg- vísleg námskeið en hún er lærð samkvæmt japanskri forskrift og er reikimeistari. Hún hefur starf af þessu. Til að verða reikimeistari þarf að taka þrjú stig og kennir Guð- rún tvö þeirra hér á landi. 1. stig kostar um 20.000 krónur, 2. stig 40.000 krónur og 3. stig 700.000 krónur. Þá hefur Erla Stefánsdóttir píanó- kennari starfað við heilun og fyrir- bænir. Einnig dregur hún myndir af árum og hefur haldið námskeið í tengslum við trú á álfa. Erla hefur nokkra starfsemi í kringum sig og heitir fyrirtæki hennar Lífssýn. Hjá henni vinnur meðal annars Atli Bergmann sem í nýlegu tímaritsvið- tali sagðist vera að feta sig áfram sem miðill. Að sögn kunnugra er hér á ferð- inni nokkuð umfangsmikil starf- semi og þykir ekki fjarri lagi að ætla að þessir þrír aðilar velti í kringum 20 milljónum króna. „ÁHUGINN AÐ MINNKA“ „Mér finnst nú ákveðin lægð í þessu öllu saman. Af fjórum nám- skeiðum sem við höfum boðið upp á höfum við orðið að hætta við þrjú þeirra," sagði Helga Ágústsdóttir í Hugræktarhúsinu sem nýlega hefur flutt aðstöðu sína úr Hafnarstræti upp í Mosfellssveit. Helga hefur unnið með Guðrúnu Óladóttur. Hugræktarhúsið er meðal annars þekkt fyrir að hafa haldið eitt vin- sælasta námskeiðið hér á landi í ný- aldarstílnum. Námskeiðið byggir á boðskap Michaels sem er samheiti á „sálnafjölskyldu". Kenningin byggir á endurholdgun. Það er miðillinn José Stevens sem hélt þetta nám- skeið. Lætur nærri að hann komi hingað til lands einu sinni á ári. Að meðaltali kostar á milli 8000 og 9000 krónur á námskeið Hug- ræktarhússins en Helga lætur ekki mikið yfir innkomunni. „Fólk held- ur að þetta mali gull en staðreyndin er allt önnur,“ sagði Helga. Hún áætlaði veltu Hugræktarhússins undir einni milljón. Einnig er til starfsemi sem heitir Mannræktin að Vesturgötu 16 í um- sjón Axels Guðmundssonar en ekki náðist í hann til að fræðast um hana. í viðtali við Morgunblaðið um síð- ustu helgi kom fram að reiki, lífs- mótun, líföndun og Grönn-nám- skeið eru meðal starfa Mannræktar- Nýaldarfræöingar eru á kafi i stjörnu- speki en Gunnlaugur Guömundsson stjörnuspekingur segist frekar vilja titla sig fornaldarmann.

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.