Pressan - 07.03.1991, Blaðsíða 26

Pressan - 07.03.1991, Blaðsíða 26
Pharmaco kaupir heilbrigðis- ráðuneytið — þaö verða litlar breytingar á rekstrinum og Guömundur verður áfram ráöherra, segir Werner Rasmussen, stjórnar- formaður Pharmaco. Vona að ég eigi eftir aö eiga gott samstarf við Werner, sagði Guð- mundur Bjarnason. Skoðanakönnun Skáís fyrir Stöð 2: Flestir treysta Ólafi Ragnari til að ganga að Alþýðubanda- laginu dauðu — eigum ekki við sömu forystukreppuna að glíma og sjálfstæðismenn, segir Svavar Gestsson. Ber vott um mikla samstöðu flokksmanna, segir Ólafur Ragnar Grímsson. Heilbrigðiseftirlitið: Alþingishúsið er sjúkt hús — það veidur svima, minnis- leysi og einbeitingarskorti að vinna þar, segir í niðurstöð- um rannsóknar Þetta skýrir margt sem hér hefur farið fram, segir Guðrún Helga- dóttir, forseti sameinaðs þings. 8. TÖLUBLAÐ 2. ÁRGANGUR FIMMTUDAGURINN 7. MARS 1991 STOFNAÐ 1990 HAFA SKAL ÞAÐ SEM BETUR HUÓMAR Ýmis alþjóöasamtök ÍSLENPINGUM BOLAB UR OLLPM NEFNPUM New York, Brussel, 7. mors_ „Eg vildi að ég hefði lát- ið mér detta þetta í hug fyrstum,“ sagði Perez de Cuellar, aðalritari Samein- uðu þjóðanna, en í kjölfar þess að Norðurlandaráð samþykkti að fækka ís- lendingum í öllum nefnd- um hafa mörg alþjóðasam- tök gripið tn jsna ráðs, þar á meðal allar stofnanir Sameinuðu þjóðanna. „Ég verð að segja að ég dá- ist að hugrekki Norðurlanda- þjóðanna. Ég hefði ekki trú- að því að svona lagað væri hægt á þessum síðustu og verstu tímum. En ég ætla ekki að lýsa því hvað ég er Hér er lótt yfir öllum, segir Manfred Wörner. feginn að þetta tókst og það skal svo sannarlega ekki verða bið á því að við fylgjum í kjölfarið," bætti de Cuellar við. „Við erum einmitt að halda upp á þetta núna,“ sagði Manfred Wörner, aðalfram- kvæmdastjóri NATO. „Starfs- mennirnir slógu upp veislu þegar það var tilkynnt að ls- lendingarnir væru á leið heim og kæmu ekki aftur í bráð. Hér er afskaplega létt yfiröllum." „Ég ætla ekki að láta hafa neitt slæmt eftir mér um Is- lendinga en mikið guðs lif- andi er ég feginn að vera laus við þá,“ sagði Georg Reisch, framkvæmdastjóri EFTA. Ríkisstjórnin MATLOCK RÁÐINN SEM VERJANDI Rpykjavík, 6. mars „Þetta er bara trix,“ sagði Páll Halldórsson, formaður Bandalags há- skólamenntaðra starfs- manna ríkisins, um þá ákvörðun Ólafs Ragnars Grímssonar fjármála- ráðherra aö ráða Matlock til þess að verja bráðabirgðalögin í borg- ardómi Reykjavíkur. • „Hann telur sjálfsagt að enginn dómari geti fengið sig til að láta Matlock tapa máli. En ég treysti því að ís- lenskir dómarar falli ekki Matlock ver ríkisstjórnina. fyrir svona ódýru bragði" bætti Páll við. „Ég hef séð til Matlocks og treysti honum til verks- ins. Það er það eina sem ég hef að segja," sagði Ólafur Ragnar. Sáttatillaga í Sjálfstœbisflokknum Steingrímur verði formaður Reykjavík, 6. mors_________ „Það er rétt að þetta hef- ur verið orðað við mig. En ég hef nú bara svarað þessu út og suður,“ sagði Steingímur Hermannsson í samtali við GULU PRESS- UNA en samkvæmt heim- ildum blaðsins vinna áhrifamenn innan Sjálf- stæðisflokksins nú að því að finna frambjóðanda til formanns sem getur feng- ið þá Davíð Oddsson og Þorstein Pálsson til að draga framboð sín til baka. Þar hefur nafn Stein- gríms oftast verið nefnt. „Sjálfstæðisflokkurinn er náttúrlega stærri en Fram- sókn. Það er líka almennt tal- ið að flokkurinn muni leiða næstu ríkisstjórn. Ég held því að þetta feli í raun í sér minni röskun á mínu lífi en margur ætlar," sagði Steingrímur. Stjórnarrábiö Lokað fyrir síma og rafmagn Eina leiðin til frama innan stjórnmálaflokkanna, segir Sigurlaug Hjaltadóttir um hormónalyfin. Olögleg hormónalyf I POLITISKUM TILGANGI Reykjavík, 7. mars í kjölfar rannsóknar á notkun íþróttamanna í Reykjavík á ólöglegum hormónalyfjum hefur komið í ljós að notkun þeirra er mun almennari og nær langt út fyrir raðir íþróttamanna. Meðal þess sem dregið hefur verið fram er að notkun karl- hormóna er mjög algeng meðal kvenna sem hyggja á frama í pólitík. „Hvað gat ég gert?“ sagði kona ein í Framsóknar- flokknum í samtali við GULU PRESSUNA en hún lítur nú út eins og karlmaður og hefur náð vissum frama sem slíkur. „Það þarf ekki neinn snill- ing til að sjá að frami karl- anna í flokknum er miklu meiri en kvennanna. Ég sagði því við sjálfa mig: If you can’t beat them, join them. Eftir sex mánaða lyfjatöku var ég orðin það breytt að frami minn í flokknum tók kipp.“ Að sögn rannsóknarlög- reglunnar nær rannsóknin langt aftur þar sem grunur leikur á að ýmsar konur hafi tekið þessi lyf í mörg ár. „Það er alveg ljóst að kona sem náð hefur frama innan stjórnmálaflokks með því að dulbúa sig sem karlmaður á ekki gott með að hætta að taka þessi lyf. Hún verður að halda áfram," sagði Helgi Daníelsson rannsóknarlög- reglustjóri. Reykjavík 7. mars_________ „Það hafði ekki borist nein greiðsia fyrir raf- magnið svo við sendum menn niður eftir til að loka fyrir það. Þegar þeir komu þangað var þar hins vegar enginn og svo virtist sem énginn heíoi komió þang- að í langan tíma,“ sagði Páll Knútsson, verkstjóri hjá Rafmagnsveitu ríkis- ins í samtali við GULU PRESSUNA. Samkvæmt heimildum GULU PRESSUNNAR eru allt að þrír mánuðir síðan mannaferða hefur orðið vart í stjórnarráðinu og enn lengra síðan ríkisstjórnar- fundir hafa verið haldnir. „Þeir mega loka rafmagn- inu fyrir mér,“ sagði Halldór Ásgrímsson í símaviðtali við GULU PRESSUNA, en hann er nú staddur við Svarta haf- ið. „Mér vitanlega mun eng- inn nota það í bráð. Ég held að Denni sé á Flórída, Nonn- arnir tveir eru víst í Tælandi og Óli grís er einhvers staðar í Ameríku. Síðast þegar ég vissi var ekki fararsnið á nein- um þeirra," sagði Halldór. Samkvæmt heimildum GULU PRESSUNNAR er nú nokkuð um liðið síðan lokað var fyrir símann í stjórnarráð- inu. „Sama er mér,“ sagði Hall- dór Ásgrímsson. „Og skilaðu kveðju heirn." Mannlaust og yfirgefið. Tölvur, prentarar, hugbúnaöur, netbúnaður, samskiptakerfi, umbrotskerfi og alhliða þjónusta MICROTÖLVAN Suðurlandsbraut 12 - sími 688944

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.