Pressan - 07.03.1991, Blaðsíða 9

Pressan - 07.03.1991, Blaðsíða 9
FIMMTUDAGUR PRESSAN 7. MARS 1991 9 Helga Agustsdottir i Hugræktarhusinu hetur boðiö upp a eitt vinsælasta nám- skeiöið hér á landi í nýaldarfræðum. HlH innar. Ekki er vitað annað en að Axel hafi starf af þessu. VERSLAÐ MEÐ NÝÖLD I tengslum við nýaldarhyggjuna hafa sprottið upp verslanir og vörur sem beinlínis tengjast henni. Á Laugavegi 66 er verslunin Betra líf sem býður upp á vöru þessu tengda. Auk þess eru teknar niður pantanir á námskeið. Það er Gudrún Berg- mann sem rekur þessa verslun. Guðrún sagðist hafa lifibrauð af versluninni en hún hefur þar eina konu sér til aðstoðar. Hún sagðist ekki treysta sér til að gefa upp veltu- tölur en að sögn kunnugra þá veltir UMDEILDIR NÝALDARMENN Nýtt fyrirtæki á dulræna sviðinu er Nýr vindur sem er til húsa á Skólavörðustíg 22 c. Það er Leifur Leópoldsson sem rekurþað en hann var áður með Nándar- og næmi- þjónustuna. Aðferðir hans voru um- deildar eins og kom fram i grein í PRESSUNNI á miðju ári 1990. í kenningum Leifs ber töluvert á end- urholdgun. Leifur er sem fyrr umboðsmaður fyrir John Alten sem hefur komið nokkuð reglulega hingað til lands. Alten vinnur með svokallaða „gest- altþerapíu" á námskeiðum sínum sem byggist á því að losa um tilfinn- ingaspennu með snertingu. Alten er talinn fagmaður en umdeildur sem slíkur. Námskeið Altens kosta 70.000 krónur. Leifur hefur sjálfur boðið upp á námskeið og eru þau með regluleg- um hætti. Mun helgarnámskeið hjá honum kosta 15.000 krónur og er þá gjarnan haldið út úr Reykjavík og er þá ferðin innifalin. Annar umdeildur nýaldarmaður Ljósgeislinn hefur um 600 félagsmenn og rekur öfluga sálarrannsóknastarf- semi. slík verslun um 10 milljónum króna. Guðrún sagðist tvisvar sinnum hafa staðið fyrir námskeiði með því að flytja inn menn erlendis frá. Hún sagðist vera hætt því enda mikill kostnaður því samfara. í versluninni er meðal annars verslað með kristalla og armbönd sem oft hafa verið tákn nýaldar. Fyrst og fremst er þó verslað með bækur þar. Ein önnur verslun er með slíkar vörur og er það Heilsu- búðin sf. að Reykjavíkurvegi 62 í Hafnarfirði. Að sögn Ægis Bessa- sonar, sem rekur verslunina, þá eru nýaldarhlutir fyrst og fremst auka- búgrein. Það er því varlega áætlað að segja að veltan með nýaldarvör- ur sé í kringum 15 milljónir króna. er Friðrik Páll Ásgeirsson sem hefur titlað sig „dáleiðslumeðferðaraðili". Friðrik hefur verið til umfjöllunar hér í PRESSUNNI vegna ásakana á hendur honum um fúsk. Friðrik er með endurholdgun i kenningum sínum og þá hefur hann boðið upp á heilun. Auk þess hefur hann boðið upp á dáleiðslunámskeið til að auð- velda fólki að hætta að reykja. Þá mun fyrirtækið Lífsafl vera á hans vegum. Ekki náðist í Friðrik en eftir því sem næst verður komist hefur hann lifibrauð af slíkri starfsemi. Umfang starfsemi þeirra tveggja hefur verið áætlað í kringum 5 til 10 milljónir. JÓGA OG NÝÖLD „Við flokkum okkur ótvírætt með nýaldarfólki. Munurinn felst fyrst og fremst í mismunandi aðferðum og hugmyndum," sagði Álfdís Axels- dóttir hjá Ananda Marga sem er eitt afbrigði jóga á íslandi. Um 30 félags- menn munu vera í samtökunum sem hafa verið nokkuð öflug hér á landi um skeið. Félagið stendur fyrir hugræktarnámskeiðum, rekur Kornmarkaðinn, matvörufram- leiðsluna „Fæði fyrir alla“ og leik- skóla í Skerjafirði. Samkvæmt upp- lýsingum frá samtökunum má ætla að um 10 starfsgildi tengist þeim. Veltan mun vera á milli 15 og 20 milljónir. Á tveim öðrum stöðum eru jóga: samtök með skipulega starfsemi. í Heilsubót við Hátún og í Líkams- ræktarstöðinni Mætti í Skeifunni. Að sögn Helgu Mogensen, sem leið- beinir sem jógi í Mætti, þá starfa þrír þar. Það kom einnig fram hjá Helgu að hún taldi ekkert vafamál á því að hennar starfsemi félli undir það sem teldist nýöld. Hún sagðist telja að um 10 stöðugildi féllu undir jóga á Islandi fyrir utan Ananda Marga. Gróft á litið mætti því áætla veltuna í jóga í kringum 25 milljónir. NÝALDARNUDDARAR Annar aðili sem taldi sig ótvírætt hluta af nýaldarheiminum var Rafn Geirdal nuddari. Hann segist vinna samkvæmt heildrænni heilsustefnu og virðist hafa nóg að gera. Hann er með fjölda fólks í vinnu en starfsemi Rafns hefur fengið viðurkenningu heilbrigðisgeirans og fær hann fólk til meðferðar eftir tilvísunum lækna. Hann hefur komið nálægt starfsemi eins og Þrídrangi, Hug- ræktarhúsinu og Mannræktinni. Rafn telur sjálfur að það sé fyllilega réttlætanlegt að fella hann undir ný- aldargeirann en vildi ekki gefa upp tölur um umfang sinnar starfsemi. Fleiri einstaklingar munu hafa Leifur Leópoldsson er umdeildur í starfi sinu og er þar að auki umboðs- maður fyrir umdeildan mann. lagt fyrir sig nudd í tengslum við ný- aldarspeki en ekki tókst að hafa samband við þá. Að því er kunnugir telja þá má áætla umfang þessarar starfsemi í kringum 20 milljónir króna. STJÖRNUSPEKI OG FORNÖLD „Eg tel að eiginlega sé varla hægt að flokka okkur með nýöld — nær væri að ræða um fornöld í því sam- bandi," sagði Gunnlaugur Guö- mundsson sem rekur Stjörnuspeki- stöðina í Aðalstræti 9. Gunnlaugur býður þar upp á námskeið, gerð stjörnukorta auk þess sem hann sel- ur bækur því tengt. Bráðlega heldur Gunnlaugur upp á 10 ára starfsaf- mæli sem stjörnuspekingur en hann segir að það sé einmitt áberandi á þessum vettvangi hve fáir endist lengi til að starfa við þetta. Taldi hann að það stafaði af því hve tekj- urnar væru stopular og starfið slít- andi. Ekki eru margir starfandi við stjörnuspeki en í heilsuhúsinu Betra lífi er boðið upp á kort auk þess sem íris Jónsdóttir hefur unnið að gerð stjörnukorta í hlutastarfi. Hún var til skamms tíma með starfsemi á Grensásvegi. Iris sagðist hafa ætlað að gera þetta að aðalstarfi sínu en Rafn Geirdal nuddari hefur fært ný- öldina inn í heilbrigóiskerfiö. lent í bílslysi fyrir ári og orðið að fresta því. Eitthvað mun vera um að unnin séu stjörnukort fyrir fólk hér og þar en ómögulegt er að áætla umfang þess. Erfitt er að meta veltuna í þessum geira en að sögn kunnugra lætur nærri að hún sé nálægt 3 milljónum króna. Á MÖRKUM NÝALDAR Það er áberandi að margvísleg starfsemi er að færast nær nýaldar- hyggju. Áður var getið um hvernig Rafn Geirdal nuddari hefur fengið viðurkenningu hins opinbera heilsukerfis fyrir starfsemi sína. Nokkrir sálfræðingar eru með starf- semi sem nýaldarfólk telur nálægt sínu sviði. Einnig hafa verið nefnd dæmi um ýmsa aðila sem ótvírætt tengjast ný- öld. Garðar Garðarsson er til dæmis slíkur aðili en hann er með hugefli og er meðal annars vísað til hans úr versluninni Betra lífi. Hann kennir svokallaða N.L.P. samskiptatækni hjá Stjórnunarfélaginu en N.L.P. stendur fyrir Neuro Lingustic Pro- gramming. Einnig er hann með sjálfstæð námskeið þar sem hann kennir fólki að hætta að reykja og megra sig. Garðar heldur 6 til 8 sjálf- stæð námskeið á ári og kostar 9000 krónur á þau og eru 10 til 12 manns í hvert skipti þar. Hann starfar við þetta í hlutastarfi. Sigurður Már Jónsson || ■ ú munu stuðningsmenn Davíðs Oddssonar vera farnir að halda nafni Björns Bjarnasonar aftur á lofti varðandi varaformannskjör, þrátt fyrir yfirlýsing- ar um að æskilegt sé að varaformaður komi af landsbyggð- inni. Björn skipar þriðja sætið á lista flokksins í Reykjavík og eru stuðn- ingsmenn hans og Davíðs sagðir til í að veita Birni stuðning í varafor- manninn, burtséð frá þvi hvort Dav- ið nái kosningu sem formaður . . . s ^^öngvarar Operusmiðjunnar kvarta nú hástöfum yfir því að ís- lenska óperan hafi hafnað beiðni um afnot af húsnæði sínu undir Mozart-dagskrá. En það eru fleiri sem eru óánægðir með Islensku óperuna. Um nokkurt skeið hefur Félag íslenskra leikmyndateiknara átt í útistöðum við ÍÓ vegna „inn- flutnings" á erlendum leikmynda- og búningateiknurum. Messíana Tómasdóttir og fleiri í stjórn FÍL gagnrýna það, að ÍÓ velji til landsins dýra teiknara á borð við Alexand- er Vasiliev ár eftir ár, en gefi inn- lendum teiknurum fá tækifæri. Bent er á að útlendingarnir sérhæfi sig í annars vegar leikmyndum og hins vegar búningum, en hinir íslensku taki að sér hvort tveggja .. . litt í hörðum formannsslag í Sjálfstæðisflokknum gera menn létt grín og segja að leiðin til að vingast við Þorstein og Dav- íð sé að velja sér rétt kvonfang. Þannig er að kosningastjórar Davíðs og Þorsteins, þeir Friðrik Frið- riksson og Víg- lundur Þorsteins- son, hafa báðir haft sterk tengsl við konur á sama vinnustað. Víglundur er fyrrverandi eiginmaður Sigur- veigar Jónsdóttur fréttastjóra Stöðvar 2 og Friðrik er kvæntur El- ínu Hirst fréttamanni á Stöð 2 . . . lEftir að Davíð Oddsson til- kynnti formlega að hann hygðist gefa kost á sér sem formaður í Sjálf- stæðisflokknum sást til hans á löngum fundi í Morgunblaðs- húsinu. Kádiljákur borgarstjórans mun hafa beðið hans í þrjá klukkutíma í portinu bak við hús- ið, á meðan hann „skriftaði" fyrir þeim Matthíasi Johannessen og Styrmi Gunnarssyni ritstjór- um . . . D ■UPorgarstjórnarflokkur sjálf- stæðismanna er sagður standa ein- huga að baki Davíð Oddssyni í for- mannskjörinu, enda verður það Davíð sem velur eftirmann sinn úr þeirra röðum komi það til að hann láti af starfi borgarstjóra. Hingað til hefur verið álitið að Árni Sigfús- son kæmi helst til greina, en nú heyrist að ekki ríki um það nægi- lega góð samstaða. Sagt er að enn hafi ekki gróið um heilt siðan í próf- kjöri flokksins, þar sem Árni eignað- ist óvildarmenn sem eiga erfitt með að gleyma ...

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.