Pressan - 07.03.1991, Page 18

Pressan - 07.03.1991, Page 18
FIMMTUDAGUR PRESSAN 7. MARS 1991 KYNLÍF Kynlífsfíklar Stígamót, samtök gegn kynferðislegu ofbeldi, eiga eins árs afmæli um þessar mundir. Óhætt er að full- yrða að Stígamót hafa sýnt og sannað þörfina fyrir starfsemi sína. Til samtak- anna hafa nær eingöngu leitað þolendur kynferðis-i legs ofbeldis og aðstand- endur þeirra. En hvað með gerendur? Hvert geta þeir leitað? Eru íslenskir með- ferðaraðilar í stakk búnir til að bjóða raunhæf meðferð- arúrræði? í síðustu viku birtist athyglisverð frétt í Mogganum þar sem kom fram vanmáttur kerfisins til að veita viðeigandi með- ferð í máli eins kynferðisaf- brotamannsins. Þar kom meðal annars fram að við- komandi þjáðist einnig af áfengissýki en það er al- gengur fylgifiskur þegar um kynferðislegt ofbeldi er að ræða. Patrick Carnes, einn þekktasti fræðimaðurinn á sviði kynlífsfíknar, segir í einni af bókum sínum, „Contrary to Love — Help- ing the Sexual Addict" (Compare publishers 1989) að þeir sem fremji sifjaspell og margir aðrir kynferðis- afbrotamenn séu kynlífs- fíklar og þurfi meðferð samkvæmt því. Hann bendir ennfremur á að þrjár megin ástæður liggi að baki því að erfitt sé að veita kynlífsfíklum með- ferð. Skömm kynlífsfíkils- ins á framferði sínu og leynd hamla gegn því að meðferðaraðilinn fái að- gang að nauðsynlegum upplýsingum. Meðferðar- aðila vanti ennfremur gagnlega hugmynda- fræði til að styðjast við og vinna eftir svo hægt sé að hjálpa kynlífsfíklinum og fjölskyldu hans. Loks geta persónuleg viðhorf og gildismat meðferðarað- ilans hindrað hann í að fá heildarmynd af vandamál- inu. Meðferðaraðilinn hef- ur nefnilega alist upp við samskonar hugmyndir og aðrir í samfélaginu um kyn- ferðislegt ofbeldi og kyn- ferðisafbrotamenn. Fjórðu ástæðunni má svo bæta við — skort á kynlífsrann- sóknum. Nóg hefur verið rannsakað um fjölbreyti- leika kynlífs og kynsvörun til að efla kynferðislega vel- líðan en lítið er um það þegar kynlíf verður stjórn- laust og fer út böndunum. Feluleikur og afneitun kynlífsfíkilsins hefur bara ein áhrif — að auka á ein- manaleikann og örvænt- inguna. Það leiðir til frekari flótta í fíkninni í þeim til- gangi að létta á vanlíðan- inni sem fyrir er. Leyndin og skömmin er eldsneyti fyrir vítahringinn sem við- komandi lendir í. Hugmyndafræðina, sem Patrick telur virka illa sem grunn fyrir meðferð, þekkja flestir. Að kynlífs- fíkn sé einfaldlega dæmi um slappa siðferðiskennd er ein hugmyndin. Sama hugmyndin var uppi á ten- ingnum í skoðunum manna á alkóhólisma fyrir tuttugu árum síðan. Alkinn var bara aumingi sem átti að hafa stjórn á sinni drykkju. í dag vita allir AA-menn og -konur að leiðin til að ná JÓNA INGIBJÖRG JÓNSDÓTTIfí bata er að viðurkenna fyrst vanmátt sinn gagnvart fíkninni. Og það dettur engum í hug að alkinn sé þannig stikkfrí frá ábyrgð á hegðun sinni. Sömuleiðis þurfa kynlífsfíklar að gefast upp fyrir hegðun sinni en jafnframt læra að taka ábyrgð á gjörðum sínum. Önnur hugmynd er sú að guð hafi skapað nokkra einstaklinga sem hafa bara óvenju sterka kynhvöt og kynlifsfíkiar afsaka sig sumir hverjir með þessari skýringu. Lítið hefur komið fram sem styður þessa kenningu þó nokkrar rann- sóknir hafi gefið vísbend- ingu um að hægt sé að ... aö gud hafi skapað nokkra einstaklinga sem hafi óvenju sterka kynhvöt draga úr mikilli kynhvöt með því að gefa antiandro- gen lyf. Miklu nær væri að rannsaka áhrif óhóflegrar áfengisdrykkju á hegðun kynlífsfíkla en alkunna er að alkar eru útsettari fyrir kynferðisglæpum vegna þess að áfengið losar um hömlur og getur brenglað skapgerð. Eða að skoða þann möguleika að við- komandi sé fjölfíkill og að þörf sé á að vinna með báð- ar fíknir til að bati náist. Hugmyndir innan sálar- fræðinnar hafa líka reynt að útskýra hömlulausa kynlífshegðun og reynt að finna út hvaða fyrri reynsla mótar einstaklinga sem haga sér þannig Atferlis- fræðin skoðar núverandi hegðun og reynir að finna leiðir til að breyta henni. Félagsfræðin veltir fyrir sér íhaldssemi og frjálsræði í kynferðismálum samanber umræðu um „kynlífsbylt- ingar“. Ein og sér kemur hver áðurnefnd hugmynd að litlu gagni og sumar þeirra alls ekki neitt. Að mati Patricks er sem fíkni- hugmyndafræðin komi að mestu gagni við meðferð kynlífsfíknar. Það væri ekki úr vegi að íslenskir með- ferðaraðilar kynntu sér þau fræði nánar en innan lækn- isfræði er einmitt að stíga fram á sjónarsviðið ný fræðigrein — fíknifræði. Viðhorf meðferðaraðil- anna sjálfra eru ekki síður hindrun í að kynlífsfíklar (kynferðisafbrotamenn) fái aðstoð. Fáfræði og fordóm- ar eru sjaldan gott vegar- nesti til að takast á við veik- indi. Sumir reyna samt en með misjöfnum árangri. Það væri ómaksins vert ef þeir aðilar — sem hafa haft með þessi mál að gera — tækju sig saman og leggðu bjargráð sín saman til að styðja við bakið á hvor öðr- um. Ekki er ráð nema í tíma sé tekið. Suðurlandsskjálfti vitrast fólki í óhuggulegum draumum REYKJAVIK SOKKIN ÍSJÓOG lUHIAR FJÖRBUR HRAUNI Spyrjió Jónu um kynlífió. Utanáskrift: Kynlíf c/o PRESSAN, Hverfisgötu 8-10, 101 Reykjavík

x

Pressan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.