Pressan


Pressan - 13.06.1991, Qupperneq 4

Pressan - 13.06.1991, Qupperneq 4
4 FIMMTUDAGUR PRESSAN 13. JÚNÍ 1991 DRAUMA DINNER PRESSAN bað TRYGGVA J. HÚBNER gítarleikara og tónlistar- kennara að segja okkur hverjum hann helst vildi eyða meö góðri kvöld- stund yfir léttum dinner. Boðsgestir geta verið ímyndaðir, dauðir, skáld- sagnapersónur eða til komnir á hvern þann hátt sem gestgjafinn kýs. Tryggvi kaus aö bjóða eft- irfarandi og gerir grein fyrir ástæðum boðsins. Mac Rebernna (Dr. John): Hann er svo mikill matmaður. Maharishi Mahesh: Til að spjalla við hann um flugsútrufræði almennt. Remé og María de los Angeles: Þær hafa hreinar sálir og fegrandi áhrif á umhverfið. Robert Hubner: Hann kann hýróglýfur og getur útskýrt afleikinn mikla i Hastings. Luciano Pavarotti: Af þvi Kristján Jóhanns- son er ábyggilega upptek- in, bókaður. Þráinn Lárusson: Það er svo erfitt að ná i hann. Jón og Trausti úr Stuðkopmaniinu: Þeir koma örugglega hvort sem er. Nýjustu bíóskáldin: Jóhann Sigmarsson og Júlíus Kemp. S'tótúiÁ ó&tanMKpx, KVIKMYND Veggfódur, erótísk ástar- saga, er nafn á íslenskri kvikmynd sem á ad taka upp í Reykjavík í ágásl. Leikstjóri myndarinnar er rétl rútnlega tvítugur og heitir Júlíus Kemp. Júlíus hefur lokið einum vetri í kvikmyndanámi vid West Surrey College of Art and Design í Farnham og hefur, uö sjálfsögöu, ekki gert langa kvikmynd áður. Júlíus er þó ekki alveg ókunnugur kvikmyndagerð, því harm hefur verið aðstoðarmaður og klippari í þónokkrum myndum, síöast í mynd Friðriks Þórs Friðrikssonar, Börnum náttúrunnar. Júlíus hefur sjálfur gert stuttmynd- ina Denni, sem var hafnað í samkeppni er Stöð 2 efndi til, því efnið fór eitthvað fyr- ir brjóstið á dómnefndinni. Jóhann Sigmarsson skrif- ar handritið að kvikmynd- irmi Veggfóðri, erótískri ást- arsögu ásamt Júlíusi, en Jó- hann verður aðstoðarleik- stjóri myndarinnar. Jóhann er ekki ókunnugur kvik- myndagerð, því hann vann við Pappírs Pésa og hefur fengist við klippingar hjá Plús film. Kvikmyndatakan verður í höndum Jóns Karls Helgasonar, og með helstu Idutverk fara leikararnir Baltasar Kormákur, Steinn Armann Magnússon, Flosi Olafsson og Ingibjörg Stef- ánsdóttir, sem er meö Júlí- usi í hljómsveitinni Pís of keik. Tónlist við myndina semur svo Máni Svavarsson, þriöji meðlimurinn í Pís of keik. Simpson I cticmr nt \tr m stígur út úr myndinni Simpson æöiö sem hófst hér á landi þegar Sjónvarpið tók til sýningar þættina um samnefnda fjölskyldu virðist ekki vera í neinni lægö. Und- anfarnar vikur hafa bolir og merki meö myndum af þess- um ófriöu gulu fígúrum flætt í búöir og nú er svo komið aö Simpsonarnir sjást ekki aöeins í Sjónvarpinu. Því frægðina hafa þeir nýtt sér til aö koma fram i Borgarkringl- unni, þar sem þeir hafa haft uppi alls- konar ólíkindalæti fyr- ir opinmynntan krakkaskara. í POKAHORNINU Ævilangt á Trabba Ætlum við íslendingar að sleppa fram af okkur beislinu í hraðakstursbrjálæðinu í eitt skipti fyrir öll? Hvað eiga margir að deyja? Ég er ekki orðinn elliær ennþá en ég man þá tíð þegar hámarks- hraði úti á vegum var 60 km og menn voru sektaðir í bak og fyrir ef þeir voru gripnir á 62. Erum við þjóð með kapp- aksturskomplex í blóðinu? Eða höfum við séð of margar Bond-myndir í tímans rás? Ég bý fyrir utan bæ. Þarf að beygja út af Suðurlandsvegi til að komast á afleggjarann heim til mín og ég verð að segja eins og er að það er allt annað en sjálfsagt mál. Á vegi þar sem hámarks- hraðinn er 90 er undantekn- ing að finna nokkurn mann en sjálfan sig á 90. Ég verð að beygja út í kant og stoppa þar og aka síðan inn á minn af- leggjara þegar enginn bíll er í augsýn. Annars myndi ég valda 15 bíla árekstri. Vilji maður dóla sér í bæinn í ró- legheitum á 85 og hafa það nokkurn veginn á hreinu að koma sjálfum sér og börnun- um í leikskólann þá stofnar maður þeim sem á eftir aka í slíka stórhættu að það er afar líklegt að fleiri en einn lendi á slysadeild og fleiri en tveir í langri endurhæfingu. Á köldum morgni hvað er þá til ráða? Þá er eina. leiðin að hita bíldrusluna í svona 10 mínútur áður en lagt er til at- lögu við þjóðveginn. Við þessu öllu er samt í raun og veru aðeins eitt að gera. Það er að skella aftur stresstöskunni að morgni og hafa á hreinu í hvaða átt mað- ur opnar smellurnar svo hún tætist ekki í sundur í höndun- um á manni. Síðan slítur maður hár af höfði sínu og límir með munnvatni milli hurðar og hurðarstafs svo maður viti hvort einhver hef- ur læðst inn á meðan maður var að heiman. Maður segir með holum rómi við sjálfan sig í spegilinn: ,,The nams is Bond. James Bond.“ Svo stekkur maður upp í gömlu Löduna sína, reynir að spyrna henni út á þjóðveginn á 95 og ekur á 115 í bæinn eins og allir hinir Bondarnir. Eitt af því almagnaðasta fyrirbrigði sem yfir íslenska umferðarmenningu hefur dunið er hin magnaði framúr- akstur. Hann er oft á við ekta James Bond mynd. Ég hef séð bandóða menn lokast inni á skökkum vegarkafla hvað eftir annað. Þá þarf prúða samborgara til að slaka á og hleypa þeim aftur inn í röð sem fer í rétta átt. Þetta er þó ekki neitt í sam- anburði. við sjálfa þjóðar- íþróttina, hinn óviðjafnan- lega blindhæða akstur sem var óþekkt fyrirbæri hér á landi fyrir 1980. Bílar taka sig út úr með stökustu ró við ræt- ur blindhæðar og aka beint á móti opnum dauðanum. Ég hef setið með hönd und- ir kinn á grjóti og hugsað þessi mál. Af hverju erum við öll að aka yfir á rauðu t.d.? Hvað gengur á? Er þessi gösl- aragangur og voðamennska á vegum rökrétt afleiðing þess að við skuldum svo mik- ið af verðtryggðum lánum að við viljum fá að deyja með heiðri og sóma á blindhæð? En er það nokkur sanngirni gagnvart öðrum sem skulda minna? Og það er heldur ekkert svar að bílarnir séu orðnir svona góðir. Nei, mín tilgáta er. Þetta er nýtni af okkur. Já, ég segi nýtni. Við erum þjóð sem vill ekki láta náungann, hvað þá okkar nánustu, eiga neitt inni hjá okkur. Við viljum brúka það sem okkur ber til fulls. Við viljum taka út allan þann hámarkshraða sem við eig- um rétt á. Alveg sama þótt það kosti aðra tilveruna. Aðeins eitt ráð er til og ég er með uppástungu. Kaupum leifarnar af Trabant-verk- smiðjunni af Austur Þjóðverj- um og setjum hana upp á ís- landi. Hver og einn sem tek- inn verður fyrir ofhraðan akstur fær það síðan stimplað í ökuskírteiniö sitt og hann dæmdur til að aka því óféti um aldur og ævi. Og ekki hægt að sækja um náðun. Það ætti að duga. Þá verða færri slys. Allir munu aka með mestu makindum og brosa hver til annars. Og ekki verður fleiri Trabba að sjá en nú á dögum og þeim mun fara fækkandi. Ólafur Gunnarsson Þokkadís íslands varð Eva Lind Siemsen Eva Lind Siemsen sigr- aði glæsilega í keppninni íslenskur þokki sem háð var fyrir fullu húsi um síö- ustu helgi á skemmti- staðnum Moulin Rouge. Aö baki Evu Lindar þokkagyöju stendur ung- ur hæfileikamaöur Mar- íus Sverrisson. Eva Lind hlaut að launum utan- landsferð og hún mun væntanlega leggja land undir fót í sumar. Drottn- ingarnar munu hinsvegar halda uppteknum hætti á Moulin Rouge í sumar og ungfrú yndisleg sem heillaði áhorfendur upp úr skónum síðastliöið laugardagskvöld mun taka nýtt atriði sem nefn- ist Madonna in Concert um helgina. Einn af vinum Dóra Ásgeir Már Helgason vinnur við að setja rúður í bíla, en dreymir um að gera sönginn að atvinnu sinni. Hann tók þátt í látúnsbarkakeppninni fyrir fjór- um árum, þegar Bjarni Arason sigraði. Var þá bara 16 ára og ekki löngu búinn að uppgötva að hann gat sungið Hafði byrj- að sem gítarleikari í skóla- hljómsveit i 9. bekk, en bandið vantaði söng til að lífga upp á spiliðog Ásgeir varskikkaðurtil að taka hann að sér. Siðan hef- ur hann ekki verið i hljómsveit, en fengið að koma fram meðal annars með Stjórninni, Pálma og Magnúsi og auðvitað Stuð- mönnum í látúnsbarkakeppn- inni. Það er reyndar ekki eina keppnin sem hann hefur tekið þátt í, þvi hann lenti í öðru sæti í „karókí" söngkeppni á vegum FM og Ölvers. Um síðustu helgi kom Ásgeir fram á tónleikum Vinum Dóra og kannski var það stóra tækifaerið. Að minnsta kosti kom Grétar Örvarsson að máli við hann eftir tónleika og bauð honum að semja fyrir hann lag í Landslagið. En að sögn Ásgeirs virðast slíkar sönglagakeppnir vera besti vettvangurinn til að vekja á sér athygli þegar menn kjósa frem- ur að vera einir á báti en fastir í hljómsveit.

x

Pressan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.