Pressan - 13.06.1991, Page 8

Pressan - 13.06.1991, Page 8
8 FIMMTUDAGUR PRESSAN 13. JÚNf 1991 Á undanförnum þrem árum hefur smitandi lifrarbólga breiðst ört út meðal fíkniefnaneytenda hér á landi — svo hratt að fólk í heilbrigðisstéttum talar um faraldur. Er tal- ið að hátt í fimmtíu fíkniefnaneytendur hafi fengið sjúk- dóminn og má rekja smitunina til fíkniefnaneyslu þeirra. Smitandi lifrarbólga er alvarlegur sjúkdómur sem getur leitt til viðvarandi lifrarskemmdar eða jafnvel dauða. Einnig er greið leið lifrarbólgunnar meðal fíkniefnaneyt- enda vísbending um að alnæmisveiran gæti auðveldlega breiðst út á meðal fíkniefnaneytenda ef hún bærist inn í þann hóp. Þrátt fyrir að fíkniefnaneytendur séu einn helsti áhættuhópur varðandi alnæmi þá er ekki sjáanleg nein breyting á þeirra atferli. Er talið ljóst að áróðursher- ferð til að koma í veg fyrir útbreiðslu alnæmis hafi ekki borið neinn árangur á þeim vettvangi. Útbreiðsla alnæmis hér á landi hefur orðið nokkuð hægari en al- mennt var i>ert ráð fyrir í upphafi. Að sögn HaraUlar Briem smitsjúk- dómafræðings hafa færri greinst með sjúkdóminn en menn bjuggust við. í lok mars hafði (il greinst með HlV-smit hér á landi — nánast allir úr áhættuhópum. l(i af þeim höfðu greinst með alnæmi og 10 eru látnir. Síðan þessar tölur voru gefnar út í mars hafa fundist ný tilfelli HlV-smit- aðra en það hefur ekki verið opin- berlega staðfest. Á tímabili var gert ráð fyrir að um 250 til 500 íslendingar bæru veir- una í sér en nú er taíið að þeir séu ekki fleiri en 100 til 150. Virðist sem svo að alnæmisveiran hafi ekki smitast eins auðveldlega og menn gerðu ráð fyrir í upphafi. Einnig er talið ráða miklu að áhættuhópar eins og hommar haga sér öðruvísi hér á landi en erlendis. — ()g þá. virðist einfaldlega heppni hafa ráð- ið nokkru. HÖFUM VERIÐ HEPPIN En við höfum verið heppin hvað varðar útbreiðslu alnæmis. Sá far- vegur sem smitandi lifrarbólga hef- ur farið í bendir til þess að alnæmis- veiran ætti greiðan aðgang inn i hóp fíkniefnaneytenda. Sagöi Haraldur að í raun væri aðeins tímaspursmá! hvenær alnæmi fylgdi í kjölfar lifr- arbólgunnar og gætu allir séð hve smitleiðin væri greiö. Almennar mælingar á mótefnum vegna lifrarbólguveiru A og B hóf- ust á rannsóknadeild Borgarspítal- ans í ársbyrjun 1986. Til ársloka 1989 greindist 101 íslendingur smit- aður af lifrarbólgu, þar af 21 sem mátti rekja til fíkniefnaneyslu. Áriö 1990 heldur aukningin á meðal fíkniefnaneytenda áfram og hvaö varöar B afbrigðið þá viröist það ekki vera í rénum á þessu ári. Lætur nærri að um 50 fíkniefnaneytendur liafi smitast af lifrarbólgu sem stundum hefur veriö kallað gulufar- aldur þeirra á meðal vegna þess aö hörund sjúklinga verður gult. 89 þeirra hafa komið fram á Borgar- spítalanum. SAURMENGUÐ FÍKNIEFNI í UMFERÐ Lifrarbólga B breiöist fyrst og fremst út á meöal fíkniefnaneyt- enda og þá sérstaklega þeirra sem sprauta sig en smitleiðir hennar má aðallega rekja til blóðblöndunar og kynmaka. Á Borgarspítalanum hafa komiö 20 fíkniefnaneytendur snút- Björn Halldórsson: Yngsti sprautu- notandinn 17 ára. Einstaklingar með mótefni gegn alnæmisveirunni eftir hópum ■ Fíkniefnaneytendur ■ Hommar/fikniefnaneytendur □ Gagnkynhneigðir □ Blóðþegar Q Óþekkt aðir af lifrarbólgu B. Þar af hafa fjór- ir greinst á þessu ári en tölur liggja fyrir fram í maí. Faraldurinn er því síður en svo í rénum. Lifrarbólga A hefur einnig í aukn- um mæli greinst á meðal fíkniefna- neytenda sem meðal annars er rak- iö til saurmengunar fíkniefna sem hingað eru flutt. Þetta hefur þó ekki verið sannað en sterkar líkur benda til þess. Tilfellum meö lifrarbólgu A hefur þó fækkað mikiö. Hefur getum verið að því leitt að fíkniefni geti saurmengast þegar þau eru falin í innyflum manna en það er sem kunnugt er vinsæi smyglaðferð að gleypa smokka fulla af (íkniefnum. Smitun á sér síöan stað þegar fikniefnunum er spraut- að í æö eöa þeirra neitt um nef eða munn. Einnig gæti smitun átt sér stað þegar bragðað er á fíkniefnun- um til að sannreyna gæði þeirra. SMITLEIÐIR LIFRARBÓLGU OG ALNÆMIS ÞÆR SÖMU Lifrarbólguveira B er mun hættu- legri að því leyti aö hún getur tekiö sér bólfestu í lifrinni og valdið við- varandi lifrarbólgu. Þannig getur sýktur einstaklingur smitað aðra ár- um saman án þess að vita af því. Lifrarbólga B er líka alvarlegur sjúk- dómur vegna þess að þeir sem fá viövarandi lifrarbólgu geta fengiö slæma lifrarskemmd sem endar með skorpulifur. Einnig er talið að veiran geti með tímanum valdið lifr- arfrumukrabbameini. Innan læknisfræðinnar hefur löngum verið freistandi að bera saman alnæmi og lifrarbólgu B en smitleiðir þessara sjúkdóma eru þær sömu. Alnæmisveiran er þó mun minna smitandi en þeir sem bera alnæmisveiruna í sér eru hins vegar mun lengur smitandi. Var- úðarráðstafanir heilbrigðis- og lög- gæslustétta vegna þessara sjúk- dóma hafa einnig verið svipaðar. Vegna þess hve lifrarbólgan smitast auðveldlega hefur hún oft borist til þeirra sem umgangast sjúklinga. Það eru þekkt dæmi erlendis frá að lögreglumenn hafi smitast af lifrar- bólgu og jafnvel látist. 100 TIL 150 EINSTAKLINGAR SEM SPRAUTA SIG REGLULEGA En hve stór er sá áhættuhópur fíkniefnaneytenda sem yrði í hættu ef HlV-veiran kæmist á kreik? Hvorki staðfestar tölur eru til um það hve margir fíkniéfnaneytendur sprauta sig reglulega í æð hér á landi né almennt um hegðunar- mynstur þeirra. Helst má finna upplýsingar þar um í þeim athugunum sem SÁÁ hef- ur gert á meðal sjúklinga á Vogi. Samkvæmt þeim þá sprauta um 16% sig í æð af þeim 500 sjúkling- um. undir 20 ára aldri, sem þar koma til meðferðar á ári hverju. Þetta eru um 75 til 80 sjúklingar. Að sögn Þórarins Tyríingssonar, yfirlæknis á Vogi og formanns SÁÁ, þá telur hann að hópur þeirra sem sprauti sig reglulega í æð telji rúm- lega hundrað manns. Svipaðar ágiskanir eru á meðal lögreglumanna. Arnar Jensson. fyrrverandi yfirmaður fíkniefnalög- reglunnar og núverandi starfsmað- Haraldur Briem: Höfum veriö heppin. Þórarinn Tyrfingsson: Gæti breyst á einni nóttu. ur forvarnadeildar lögreglunnar sagðist ekki geta nefnt eina ákveðna tölu um fjölda sprautunot- enda. Hann sagði að lögreglan hefði á ári hverju afskipti af um 20 til 40 mönnum sem sprautuðu sig í æð. Eðlilegt væri að álykta að hópur þeirra á landinu væri talsvert stærri en það. Björn Halldórsson, yfirmaður fíkniefnadeildar lögreglunnar, sagði að allar ágiskanir um stærð þessa hóps væru varhugaverðar. Það væri hins vegar augljóst að það væri fyrir löngu orðið timabært að taka sam- an upplýsingar um þessa hópa. SPRAUTAN GENGUR EINS OG HASSPÍPA ..Við höfum siglt mjög lygnan sjó hvað alnæmi varðar í tvö ár sem bendir til þess að veiran berist ekki ennþá í gegnum sprautur hér á landi. Það gæti breyst á einni nóttu." sagði Þórarinn en það er almennt uskoðun þeirra sem nálægt þessum málum koma aö mjög skjótt gæti breyst til hins verra með alnæmis- smitun fíkniefnanevtenda. Það staf- ar af því að umgengni í kringum sprautur er eins hugsunarlaus og verið getur. Ekki verður séö að áróðursherferöir hafi þar brevtt neinu um. ..Þegar fólk er byrjaö að sprauta sig þá er Ijóst að það er ekki mikið eftiraf dómgreind viðkomandi. Um- gengnin í kringum sprautuna tekur mið af því." sagði Árnar Jensson. Hann sagöist þó halda að umgengni i kringum sprautunálar hefði eitt-

x

Pressan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.