Pressan - 13.06.1991, Page 26

Pressan - 13.06.1991, Page 26
26 FIMMTUDAGUR PRES&AN 13. JÚNf 1991 LP LISTAPÓSTURINN Hver er Þórdís og hver Nanna? Leiöinlegar samsýningar þar sem ekki liggur Ijóst fyrir hvaða verk er hvurs, segir Nanna K. Skúladóttir sem ásamt Þórdísi Öldu Sigurðardóttur sýnir í Nýlista- safninu. / Nýlistasafninu standa yfir sýningar þeirra Nönnu K. Skúíadóttur og Þórdísar Öldu Sigurdardóttur en þœr voru skólasystur í Myndhöggvara- deild Myndlista- og handída- skóla Islands. ,,Þetta eru ólíkar sýningar en þad er í sjálfu sér kostur enda eru glögg mörk milli þess hver er Þórdís og hver er Nanna í þessari sýningu. Mér finnst persónulega leidinlegt ad ganga um samsýningar þar sem ekki liggur Ijóst fyrir hvada verk er hvurs," sagdi Nanna K. Skúladóttir í spjalli vid Listapóstinn. BYRJAÐI SEM STÓR DRUMBUR „Ég vinn einungis í tré,“ sagði Nanna. „Forsagan er sú að ég hafði verið bæði í mál- un og myndhöggvaradeild hérna heima, og seinna í fjöl- tækni úti í Hollandi. Ég fékkst framan af mest við að mála og einnig vann ég með bland- aða tækni. Þetta gerði mig hálfringlaða og mér líður bet- ur núna eftir að ég tók þá ákvörðun að einbeita mér að trénu. Tréð hentar mér vel enda snýst mín formhugsun í kringum þá eiginleika sem tréð býr yfir. Viðfangsefni mitt undanfarin ár hefur ver- ið það að tefla saman ár- hringjum sem sýna aldur trésins og því hvernig það kemur upp úr jörðinni. Fyrst var ég mjög upptekin af því að blanda saman viðarteg- undum. Ég komst yfir stafla af írviði og fór þá að vinna mikið með þann við ásamt öðrum. írviðurinn (Taxus) býður upp á skemmtilega möguleika svona hvítur að utan og rauður að innan. Ég hef einnig unnið dálítið með tréþrykk. Þetta sýnist mjög létt verk á svona sýningu og fæstir gera sér fyllilega grein fyrir þeirri vinnu sem liggur á bakvið einn lítinn skúlptúr úr tré sem byrjaði sem stór drumbur." Aðspurð um hvað hvað væri á döfinni, kvaðst Nanna taka þátt í kvennasýn- ingu í nóvember í Almelo í Hollandi. ÉG TEFLI SAMAN ANDSTÆÐUM „Mér fannst spennandi að nota efni sem í gegnum tíðina hafa verið álitin hefðbundin kvennaefni," sagði Þórdís Alda Sigurðardottir. „Það hefur ekki verið fjallað mjög hátíðlega um þær konur sem nota þessi efni. Þær eru álitn- ar vera textíltuskukerlingar meðan karlmenn sem gera nákvæmlega sömu hlutina fá myndir af sér í fínum skúlp- túrblöðum. Ég lít á það sem ögrun auk þess hvað það heillar mig hvað mýktin get- ur verið ótrúlega seig. Þessi hörðu og mjúku efni geta skapað saman ótrúlega heild án þess nokkurntímann að renna saman. Líkt og nóttin og dagurinn ef út í það er far- ið. Það er kannski megininn- takið í þessari sýningu. Ég tefli saman andstæðum sem hvor um sig halda sínum sér- kennum.“ Þú talar um textíltusku- kerlingar. Ertu kannski dul- búin textíltuskukerling? Eru konur kannski aö vinna vid efni sem eru þeim sídur eigin- leg vegna þess ad listhefdin er mótud af karlmönnum? „Konur í skúlptúr hafa ver- ið í miklum minnihluta lengi vel þó að það sé kannski að breytast núna. Það er enginn vafi á því að þær hafa oft þurft að fara inn í fullmótaða listhefð þó ekki væri nema til að vera teknar alvarlega. Það er gaman að horfa á kollega sína taka sérlega vel eftir því hjá konum hvort það sé nú nægilega vel logsoðið eða annað þvíumlíkt. Það má vel vera að konur skoði þeirra verk sömu augum þegar þau eru unnin á kvenlegri nótum. En ég vil gera öllum efnum jafn hátt undir höfði og nota þessi mjúku efni og leyfa þeim að njóta sín,“ sagði Þór- dís Alda Sigurðardóttir að lokum. Um alvarlegar drottningar Besta sjó helgarinnar var tvímælalaust á skemmtistaðnum Moulin Rouge á laugardaginn. Þar fór fram keppnin ís- lenskur þokki 1991 og þokkagyðjur úr hópi dragdrottninga bitust um titilinn Þokkadís íslands. „Líturðu á þetta sem list?“ sagði einn maður hneykslaður og bætti við að þetta væri öfugugga- háttur svo að engu tali tæki. Allra síst að drag- drottningin færi að kné- krjúpa til að vera tekin al- varlega. Einmitt þess- vegna tók þessi maður hana alvarlega. Karlmað- ur í kvenmannsfötum með yfirbragð drag- drottningar niðri á Tjörn á sunnudegi myndi ef- laust kitla hláturtaugar fyrrnefnds manns svo að um munaði. Hann mundi eflaust ekki hugsa sig tvisvar um hvort hann ætti að taka hann alvar- lega. En karlmaður sem hefur atvinnu af því að syngja slagara klæddur kjólum á skemmtistað þræðir þennan krókótta stíg milli þess sem er hlægilegt, spennandi og öðruvísi en lög gera ráð fyrir. Og það eru einmitt þessir sjálfskipuðu verðir laganna sem ættu að leggja leið sína niður á Moulin Rouge. Hver veit nema þeir finni eitthvað forvitnilegt í fataskápum eiginkvenna eða mæðra' daginn eftir? Þóra Kristín Ásgeirsdóttir Þíbilja á leiklistarhátíd í Finnlandi „Þad er óvenjulegt aö svona viöamikil sýning eins og Dalur hinna blindu skyldi veröa fyrir valinu," sagöi Inga Hildur Haraldsdóttir leik- kona í samtali viö Listap- óstinn en hún er ásamt leik- hópnum Þíbilju á förum til Finnlands til ad taka þarpátt í heljarmikilli leiklistarhatíö í Tampere í Finnlandi. „Þessi sýning varð fyrir valinu sem framlag íslands á þessa hátíð og við erum að vonum mjög ánægð," sagði Inga Hildur Haraldsdóttir meðlimur í leikhópnum Þí- ‘bilju. Inga Hildur var einn af stofnendum Þíbilju á sínum tíma en hún á einmitt annað íið í nafninu sem var myndað úr upphafsstöfum stofnmeð- limanna. „Þetta er stærsta leiklistar- hátíð í Finnlandi," sagði lnga Hildur. „Og fyrir utan þann heiður að vera með er auðvit- að mikils virði fyrir hóp eins og Þíbilju að sjá allan þann fjölda sýninga sem þarna verður í boði. Á hátíðinni sem er sú stærsta sinnar teg- undar í Finnlandi verða um hundrað sýningar auk ann- arra uppákoma sem eru til dæmis djasstónleikar og götuleikhús. Þarna verða all- ar helstu sýningar í Finnlandi auk sýninga frá um fimmtán þjóðlöndum." Er œtlunin aö taka Dal hinna blindu upp aftur í haust? „Það hefur komið til tals en það er ósennilegt, það er í fyrsta lagi ekki Ijóst hvað fólk mun taka sér fyrir hendur í haust. Við þurftum að hætta fyrir fullu húsi svo að það er auðvitað freistandi mögu- leiki. Ég hefði haft áhuga á að sýna fleira yngra fólki þessa sýningu bæði úr grunnskól- um og framhaldskólum, það er hópur sem ég vildi gjarnan sjá oftar í leikhúsi. Efni leik- ritsins virtist höfða mjög mik- ið til þess hóps. Það er í leik- ritinu bæði fallegur boðskap- ur auk þess sem þar er að finna einfaldleika og hrein- leika sem snerti strengi sér- staklega hjá yngra fólki! Það vildi bara svo óheppilega til að það var næstum því komið að prófum þegar sýningar hófust. (Það er einnig mikil togstreita milli kynslóða í verkinu bæði meðal fólksins í ættbálknum og feðganna sem brotlenda í dalnum.) Annars erum við með mörg járn í eldinum og ef það er eitthvað sem okkur skortir ekki eru það hugmyndir. En allar ákvarðanir bíða þangað til að tímatafla næsta vetrar skýrist. Það sem er kannski mest um vert er að við höfum stækkað okkar áhorfenda- hóp og það eru fleiri núna sem vita af Þíbilju en áður,“ sagði Inga Hildur Haralds- dóttir að lokum. Mest um vert að áhorfenda- hópurinn hefur stækkað, segir Inga Hildur Haraldsdóttir i við- tali. KA.tAtAK MER FINSTNÚ AÐ 5mNlSTUf>E&\At> F*A MANNRETTIND l EINS QGtNAURNlR.. HANN 'ATAUA QULLFEKANA*. IPASBt rÞETTA ER M'AUÐ BROÐIH1.1. FRIOA Þ'A AUA 06 TAKAA 5V0 EtNN 0& EINN HVAL ||fÚUM í 06 HVEU3AN V6LlÍr|WP lAÍCiER SKÚRRURÍy 5AMANTHA FOX iFAÐERU ACTAF ] E\NHVER3lRMtRN BlNDl AD | J^jNAjíANN BEINUT5ENPIMC. WTTTTt^ttp^

x

Pressan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.