Pressan - 13.06.1991, Side 27
f«H imjf. F
hPÓsið
... fær Árni Bergmann
fyrir að taka að sér að
andmæla yfirgengilegu
bjartsýnishjali Nais-
bitts.
AÐUR ÚTI NÚNA INNI
Nú er öllum iþrótta-kver-
úlöntum óhætt að skríða úr
híði sínu og skella sér á völl-
inn. Það er orðið fínt að
fylgja sínu liði nánast hvert
sem er — jafnvel norður til
Akureyrar. Og þeir sem eru
blindastir á getu eigin
manna og brot andstæðing-
anna geta huggað sig við að
á vellinum er öllum óhætt að
skilja skynsemina eftir
heima. I raun verður al-
mennt greindarfall meðal
áhorfenda um leið og leikur-
inn er flautaður á. Þetta er
kjörið tómstundagaman fyrir
fjárglæframenn sem svitna
ekki einu sinni yfir skulda-
halanum og yfirvofandi
gjaldþroti. Skot í stöng eða
fólskulegt brot lætur þá átta
sig á að að þeir hafa enn
taugakerfi i skrokknum.
ÁDUR INNI NÚNA ÚTI
Vantage, Salem light, Kent,
Winston light, More. Ellen
tt
Barkin, Mickey Rourke, Sean
Penn og fleiri hafa sýnt og
sannað að það er ekki leng-
ur púkó að reykja. En það
þýðir ekki að það sé orðið
hallærislegt að reykja ekki.
En eitt er ótrúlega hallæris-
legt og það er að reykja ein-
hverjar af þessum nikótín-
skertu sigarettum. í fyrsta
lagi á fólk ekki að láta Ijúga
svona auðveldlega að sér að
það sé hættuminna og í öðru
lagi eiga menn að gera það
almennilega sem þeir á ann-
að borð taka sér fyrir hend-
ur. Winston Extra Long, Ca-
mel og jafnvel Pall Mall er
nær lagi.
POPPIÐ
A sunnudaginn er liðið eitt ár frá
því opnað var inn í stóra salinn á
Tveimur vinum og öðrum i fríi og
verður haldin mjkil veisla ajj
/'*í\
Vinsælustu
vasabækurnar
1. Message from Nam
— Danielle Steel
2. Burden of Proof
— Scott Turrow
3. Memories of
Midnight
— Sidney Sheldon
4. Secrets About Men
Every Woman
Should Know
— Barbara DeAngelis
5. Going Wrong
— Ruth Rendell
6. Sieeping with
the Enemy
— Nancy Price
7. Lady Boss
— Jackie Collins
8. Love & Desire &
Hate
— Joan Collins
9. How to Make Love
all the Time
— Barbara DeAngelis
10. American Psycho
— Bret Easton Ellis
r r~ r- r- 7T“
f ■
U »
■
p 35 V
■ JV
■ 43
: 47
: ■
KROSSGATAN
LÁRÉTT: 1 slý 6 dettur 11 mök 12 heiti 13 þvegið 15 bjálfans 17
kassi 18 múrstein 20 glöð 21 hrúga 23 tangi 24 vitneskja 25 skýli 27
birta 28 náungi 29 skifa 32 huldufólk 36 urgur 37 gimald 39 grama
40 guði 41 húsbóndi 43 brún 44 hortug 46 tvíráðan 48 fen 49 tanni
50 færðin 51 nátthagar.
LÓÐRÉTT: 1 starfinn 2 dugnað 3 folald 4 steintegund 5 afkvæmin 6
klarhbra 7 söngl 8 eldstæði 9 blaðri 10 plógjárni 14 fúska 16 skylt 19
skælir 22 tré 24 fruma 26 saur 27 þiðna 29 landræmu 30 þefa 31 vísa
33 frosið 34 smáalda 35 bölvar 37 erfðavisirinn 38 þrykk 41 tvístígi
42 mjög 45 veðrátta 47 bleytu.
5tUDAOUTMMR
*■ Í PRESSAN 13. JÚNÍ1991
32
tilefni. Sniglabandið ætlar að
spila og að sjálfsögðu verður
boðið upp á afmælistertu.
KK bandið verður með tónleika
á Tveimur vinum í kvöld, en ann-
að kvöld bætist Ellen Kristjáns-
dóttir í hópinn og ætlar KK þá að
leika danstónlist. Loðin rotta
ætlar að sjá um fjörið á laugar-
dagskvöldið ásamt Jóhannesi
Eiðssyni sem hefur tekið við
söngnum af Richard Scobie.
Óttablandin virðing, nýja
hljómsveitin hans Hjartar Hows-
er, hefur gert viðreist á tónleika-
stöðum bæjarins síðustu daga.
Þeir voru á Púlsinum á þriðju-
daginn og Berlín um síðustu
helgi, en þar ætla þeir að leika
aftur í kvöld.
Á Púlsinum í kvöld verður fram-
haldssveiflukvöld af tónleikun-
um með John Clayton í gær-
kvöldi, sem að þessu sinni mætir
beint af tónleikum með Sinfón-
íunni.
Tímaskekkjubandið Deep Jimi
and the Zep Creams (af því þeg-
ar maður sér þá á sviði líður
manni eins og maður hafi lent í
tímavél) leikur á Púlsinum á
laugardags- og sunnudagskvöld,
þar sem tvær óþekktar hljóm-
sveitir, Blúsbrot og Glerbrot,
ætla að koma fram á föstudag-
inn.
Rokkhljómsveit Islands verð-
ur á Púlsinum á mánudaginn,
sem er vel við hæfi því þá er 17.
júní. Friðrik Karlsson er aðal-
maðurinn i þeirri sveit.
Aðdáendur Bubba Morthens
og Rúnars Júlíussonar geta
tekið forskot á sæluna fyrir tón-
leikana í Kaplakrika þann
17nda, því nýja hljómsveitin
þeirra, GDC, verður á stóra svið-
inu í Lídó annað kvöld.
Eiríkur Hauksson kemur til
landsins frá Noregi til að spila á
rokktónleikunum í Hafnarfirði
með hljómsveit sinni Artch á 17.
júní. Þeir hafa þó ekki hugsað sér
að láta það nægja, heldur koma
fram á Tveimur vinum og öðrum
í fríi síðar um kvöldið, áður en
haldið verður aftur til Noregs.
SJÓIN________________________
Hótel Island ætlar að reyna það
í fyrsta skipti að halda uppi sjói
að sumri tii. Það verður þó varla
sagt að þeir séu
ýkja frumlegir. Treysta
á nostalgíuna og
bjóða upp á það sem
þeir kalla Travelling to
the Fifties fyrir útlending-'"
ana og Rokk i hjartastað
fyrir Islendingana. J
Fifties þýðir lög frá -• >
sjötta áratugnum, Elvis Prestley
og svoleiðis. Annarstaðar verða
á boðstólum annarskonar sjó. Lí-
dó og Casablanca verða með
tískusýningar um helgina. Lidó á
laugardaginn og Casablanca á
föstudagskvöldið, þar sem bað-
fatatíska sumarsins verður kynnt
gestum. Við þangað.
NÆTURLÍFIÐ___________________
Veitingastaðurinn 22 hefur al-
deilis tekið kipp eftir að Magga
tók það að sér að vera plötusnúð-
ur á efri hæðinni. Fjörið hefur
ekki verið meira þar i langan
tíma. Það dettur engum í hug
lengur að æða niður á Bíóbar
þessa dagana þó biðröð sé fyrir
utan 22. Reyndar er biðröð á Bíó-
barnum líka (eins og allstaðar
annarstaðar) og ekkert auðveld-
ara að komast þar inn, því þeir
eru búnir að
vera með eftirlitið á hælunum
að undanförnu. Erjekki
kominn tími til að segja
þessu eftirliti að halda
sig heimaj hjá sér um
helgar svo aðrir geti
skemmt sér þar
^ sem þá langar.
Stórtónleikar sumarsins verða í Kaplakrika 17. júni
eins og alþjóð hlýturað vera kunnugt um og engin
ástæða til að tíunda það nánar eða hvað. Á sunnu-
dagskvöldið þann 16ánda gefst æstum aðdáend-
um aftur á móti tækifæri til að komast í návígi við
goðin, þvi það á að bjóða þeim í partý á Hótel ís-
landiþað kvöld. Gestgjafar verða herramennirnirá
meðfylgjandi mynd, þeir Jóhannes Backman, Ing-
ólfur Stefánsson og Arnór Diego.
RÍKISSJÓNVARPIÐ___________
Glæpaalda Crimewave er létt-
geggjuð gamanmynd gerð eftir
handriti gullpálmahafanna Joel
og Ethan Coen. Maður ræður
meindýraeiða til að koma vinnu-
félaga sinum yfir á annað tilveru-
stig. Frumleg hugmynd, en ekki
að sama skapi árangursrík.
Myndin er á dagskrá á laugar-
dagskvöldið.
Vinsælustu
myndböndin
1. Ghost
2. Presumed Innocent
3< Goodfellas
4. Nikita
5. Flatliners
6. Turtles
7. Air America
8. Madhouse
9. Q&A
10. Men at Work
STOÐ2
Konur á barmi taugaáfalls,
myndin sem gerði spænska leik-
stjórann Pedro Almodovar fræg-
an utan heimalandsins, er á dag-
skrá Stöðvar 2 á föstudagskvöld.
Skemmtileg mynd og fyndin, þó
ekki nái hún með tærnar i
skringilegheitum þar sem marg-
ar af fyrri myndum kappans hafa
hælana. Hin óborganlega Car-
men Maura, sem leikið hefur í
nær öllum myndum Almodo-
vars, fer með aðalhlutverkið.
VEITINGAHUSIN__________
Verðlaun vikunnar ganga
í þetta sinn til veitinga-
hússins Pisa. Ekki fyrir
hversu fljótir þeir eru að
baka pitsurnar (þeir hafa
ekki hert sig í því) heldur
fyrir að hafa sett upp
neyðarbjöllur svo við-
skiptavinirnir geti kallað
á þjóninn til sín. Húsa-
kynnin á Pisa kalla á
svona lausn. Aðrir veit-
ingastaðir í auðveldara
húsnæði og með þreyttari
og áhugalausari þjóna
mættu taka þetta upp.
27
1982
Ediger
Elzhofberg
Riesling Auslese
Fullþroskað hvítvin úr
Riesling berjum. Mjög
mjúkt, nokkuð sætt,
sæmilega ferskt og með
skemmtilegu bragði.
Framleiðandinn er Frei-
herr Von Landenberg úr
neðri hluta Móseldals-
ins. Þetta ágæta hvítvín
er tiltölulega viðkvæmt
og því best að drekka
það eitt og sér. Ediger
Elzhofberg fæst í vín-
búðinni í Mjóddinni og
kostar flaskan 1060
krónur.
LEIKHÚSIN
Ráðherrann klipptur verður í
síðasta sinn á litla sviði Þjóðleik-
hússins á sunnudagskvöld.
Söngvaseiður er á stóra sviðinu
og allt uppselt.
KLASSÍKIN___________________
Sinfóníuhljómsveit Isiands
ætlar að bregða út af vananum á
tónleikum sínum í Háskólabiói í
ELVIS COSTELLO
MIGHTY LIKE A ROSE.
Það liður lengri tími milli
platna hjá Elvis en áður
var. Rose er líka þess
virði að þurfa að bíða
eftir. Að hluta til léttari
en áður, en þó ekki á
kostnað gæða. Hans
besta plata síðan '83
(Punch the Clock).
Fær 9 af 10.
kvöld kl. 20 og leika Big band
tónlist í stað klassíkur. Stjórnandi
Sinfóníunnar á tónleikunum er
John Clayton og einleikari Sig-
urður Flosason úr Súld.
I Listasafni Sigurjóns eru tón-
leikar á þriðjudaginn með flautu-
leikarahjónunum Guðrúnu Birg-
isdóttur og Martial Nardeau. A
efnisskránni eru verk eftir Ku-
hlau, Telemann, Atla Heimi
Sveinsson og Migot.
MYNDLISTIN
Útlendingar eiga áfram Kjarvals-
staði. Það er innpökkunarmeist-
arinn Christo sem hefur tekið
þar við af Yoko Ono. Verk Flux-
us listamanna fá að standa áfram
á austursal.
HUSRAÐ
Ég lendi oft í þvi i minni
vinnu að til mín hringja alls-
kyns rugludallar og það
virðist sem þeir vilji tala
lengur eftir því sem þeir
hafa minna að segja. Ég á
mjög erfitt með að losa mig
við þá og finnst ég ekki hafa
kjark til jtess að segja þeim
eins og er, að þeir séu bæði
að eyða mínum tíma og
þeirra. Hvað á ég að gera til
að losna við þá úr símanum?
Mér hefur reynst best að
iáta sem síminn minn hafi
skyndilega bilað. Þegar þér
er orðið Ijóst að þarna er
ruglukollur á ferð skaltu
segja: „Halló, halló, heyrirðu
til mín, halló“ og segja síðan
eins og við sjálfa þig: „Hvað,
hefur andskotans síminn
dottið út, enn einu sinni,“ og
leggja síðan á. Þú skalt ekki
svara símanum næstu mínút-
urnar. Ef viðkomandi hringir
aftur getur þú gripið til
sama bragðs þar sem hann
telur að það sé eitthvað ólag
á símanum þínum.
VIÐ MÆLUM MEÐ____________
Brennó og snú-snú
fyrir fólk á öllum aldri. Fólk
á að bera virðingu fyrir vor-
inu og fórna því nokkrum
auka hitaeiningum.
Að fólk sieppi sumarleyfinu
alla vega þeir sem hafa ekki
efni á öðru. Það getur tii
dæmis notað sumarið til að
læra ítöisku.
OÖ
Að fólk brosi við sjálfu sér
í speglinum á morgnana
best af öllu er að hlæja þvi
allt er þetta í raun drepfynd-
ið þegar öllu er á botninn
hvolft.
ri
O,
O - Fiskeldi
svo framarlega sem saklaust
fólk er ekki látið blæða fyrir
það.
Skoðunum
ekki endilega réttum skoð-
unum heldur miklu frekar
skemmtilegum skoðunum.
Þeir sem áttu erfitt með að
skilja hvern djöfulinn hann
Eyjólfur Kristjánsson var
með á hausnum í Júróvisjón
og héldu að hann væri að
gera alla islensku þjóðina að
fíflum á þessum annars
ágæta vettvangi geta hugg-
að sig við að Eyfi átti sér
ekki verri fyrirmynd en sjálf-
an Al Pacino. En glæpurinn
er náttúrlega engu minni fyr-
ir það.
BÍOIN
AVALON STJÖRNUBÍÓI
Þessi mynd Barry Levinson erágæt en fjarri þvíjafngóð og nokkuð samstofna
myndir félaga Bergmans (Fanny og Alexander) og Allens (Radio Days).
STAL I STAL Blue Steel REGNBOGANUM
Eftir að hafa búið til milljón hálf mislukkaðar konur í karlalíki hefur Hollywood
tekist að búa til einn alvöru karl í konulíki. Svaka spenna og svaka kroppur,
hún Jamie Lee Curtis.
HRÓI HÖTTUR Robin Hood BÍÓBORGINNI
Þeir sem ætla að sjá bara einn Hróa hött í sumar ættu að bíða eftir Kevin
Costner. Best er að sjá engan í sumar og halda í minninguna um Hróa hött
æskunnar.