Pressan - 13.06.1991, Blaðsíða 28

Pressan - 13.06.1991, Blaðsíða 28
28 FIMMTUDAGUR PRESSAN 13. JÚNÍ 1991 Fyrir 90 árum gekk rann- sóknarblaðamaðurinn Jón Jónsson um gðtur Reykjavíkur og kannaði mannlífið með aug- um heimsmannsins. Jón hafði verið við nám í Kaupmanna- hðfn og heyrt ýmsar sðgur af sveitadrenRjum ofan af íslandi sem lentu í sollinum og undu sér í félagsskap skyndikvenna og fyllirafta. Sjálfur hafði hann einatt verið ávarpaður af blygð- unarlausum Hafnardrósum: „God aften, sðde ven!“ En Jón Jónsson var stakur reglumaður og prísaði sig saelan yfir því að litla Reykjavík var ekki jafn siðspillandi staður og Hðfn. Og þó. Jón Jónsson hafði ekki rannsakað Reykjavík aldamót- anna lengi þegar á hann runnu tvær grímur. Reykjavík var í raun og veru sjálf Sódóma end- urreist. „LAUSLÆTIÐ í REYKJAVÍK" Jón Jónsson var um þessar mundir ritstjóri lítils blaðs sem hét Elding. Seinna varð hann kunnasti sagnfræðingur þjóðarinnar um sína daga og tók þá upp ættar- nafnið Aðils. í febrúar árið 1901 birti Jón for- síðugrein í blaði sínu, undir fyrir- sögninni „Lauslætið í Reykjavík ". Þar gerði hann bæjarbúum grein fyrir rannsóknum sínum á mann- lífi í Reykjavík. Og niðurstöðurnar voru ógnvekjandi: Reykvískar stúlkur voru úlfar í sauðargæru; fundir, mannfagnaðir og jafnvel messur leystust upp í orgíur; út- lendir sjómenn litu á Reykjavík sem gósenland; erlendis hefðu menn smalað reykvískum stúlkum í stórum stíl inn á opinber hóru- hús fyrir hátterni þeirra. Jón getur þess í upphafi greinar sinnar að í Reykjavík þurfi menn ekki að óttast samskonar ágang lauslætisdrósa og í Kaupmanna- höfn. Nei, íslenskar stúlkur beittu lymskulegri aðferðum. Hann skrif- ar: „Fljótt á að Jíta feta þær um göt- urnar siðprúðar og eins og með hálfgerða barnalega feimnis- og sakleysisblæju yfir sér. Fyrir margra augum líta þær út eins og sönn ímynd kvenlegrar blygðunar- semi. En allt í einu verður þeim á að gjóta út undan sér augunum á þennan óumræðilega frekjulega hátt, sem eins og sýnir manni inn í ómælanlegan geim af losta og siðferðislegri spillingu undir sak- leysishjúpnum. Öll persónan hefur yfir sér, í limaburði, látbragði og öllu sínu æði, eitthvað eggjandi og æsandi, sem ekki er hægt að lýsa.“ „LOSTAFENGIÐ, GRÆÐGISFULLT AUGNARÁÐ" Reykjavík var á þessum árum dálítið útkjálkaþorp í danska kon- ungsveldinu, samastaður nokkurra þúsunda manna, allt frá embættis- mönnum konungsins ofan í fylli- rafta og slæpingja. Bæinn virtist skorta allar forsendur til þess að fóstra stórfellda siðspillingu og víst hefur grein Jóns Jónssonar komið mörgum spánskt fyrir sjónir. En þeir sem ekki könnuðust við lýs- ingar Jóns hafa áreiðanlega haft augun hjá sér eftirleiðis, því ákveðnar „persónur" komu á fundi og mannfagnaði gagngert í að segja að „sumar af Reykjavík- urdrósunum eru orðnar svo frekar, að erlendis mundi ekki standa lengi á því að taka siíkar kven- sniftir og stinga þeim inn á opin- ber pútnahús, því þar er þeirra rétta heimkynni". „ÖNNUR JJVER STÚLKA LÆTUR UTLENDING FLEKA SIG .. Grein Jóns laust eins og eldingu niður í fásinnið í Reykjavik enda höfðu fæstir bæjarbúar rekið aug- un í það allsherjar kynsvall sem sagnfræðingurinn fletti ofan af. En lýsingar hans á stórum hluta kven- þjóðarinnar voru með þeim hætti að auðvitað hlutu einhverjir að rísa upp til varnar. Og reykvískum og fannst æsingur Jóns lítið annað en stormur í vatnsglasi. Af þessu spruttu blaðadeilur og voru bæjarbúum dægrastytting fram á sumar. Niðurstaða fékkst vitanlega ekki en Jóni Jónssyni barst kærkominn liðsauki í barátt- unni gegn siðspillingu. Guðmund- ur skáld Friðjónsson skrifaði grein- ar í ísafold og var ekkert að skafa utan af hlutunum. Hann sagði að „of mikill hluti kvenna vorra versl- ar með sæmd sína eins og dugg- arasokka". Skáldinu virtist sæmdin seld í hendur útlendinga og kvað sterkt að orði: „Önnur hver stúlka á landinu lætur útlending fleka sig, þegar því er að skipta, og þarf til þess meðaldurg og annan verri lýð, en alls ekki betri menn.“ geir Ásmundsson og var til heimil- is í svonefndum Suðurpól í Reykja- vík; það var satt að segja ekki hátt skrifað hverfi. Ásgeir var hálf- fertugur og vann einkum að flutn- ingi á farangri að og úr skipum. Við vinnu sína komst Ásgeir í kynni við erlenda sjómenn og virðist hafa verið þeim hjálplegur á marga lund. Og hinir erlendu skjólstæðingar Ásgeirs þurftu ekki að kvarta eins og fram kom við yfirheyrslur í hæstarétti. Þar var kölluð fyrir 23 ára göm- ul stúlka, Ólafía að nafni, sem meðal annars sagði frá því að kvöld eitt árið áður, 1918, hefði Ásgeir farið þess á leit við hana að hún svæfi um nóttina hjá „svertingja einum" á Hótel íslandi. „...sagt að hún hefði verið sá bjáni að þýðast ekki þá menn, sem hann vildir og hefði hún þó getað fengið 70 kr. fyrir Holdugir kvenskörungar i dönsku pútnahúsi á fyrsta áratug aldarinnar. Hér- lendis var slik starfsemi ekki í jafn föstum skorðum á þessum tima — en Jóni Aðils fannst fyllsta ástæða til að stinga lauslátum, íslenskum stúlkum inn á „opinber pútnahús". „ástaumleitunar-erindagjörðum“ og „eins og soga hver aðra að sér með sínu lostafengna, græðgislega augnaráði og aka sér hver upp að annarri". Og Jón hefur áreiðanlegar heim- ildir fyrir því að sumir af „lauslæt- isgleiðgosunum" telji messur og trúarlegar samkomur sínar bestu „veiðistöðvar" og „ganga þangað rakleiðis til að leita sér að bráð!“ Þegar svona er ástatt í siðferðis- málum bæjarins kemur það les- endum Jóns varla mikið á óvart þegar hann upplýsir að erlendir sjómenn láti vel af viðtökunum sem þeir fá hjá kvenfólkinu. Jón rifjar upp að skömmu áður hafi telpa nokkur, innan við fermingu, átt „mikil mök við erlenda sjó- menn“. Alvöruþunginn í grein Jóns er mikill og hann klykkir út með því stúlkum barst liðsauki úr óvæntri átt þegar Benedikt Gröndal, hálf- áttrætt þjóðskáld, skeiðaði fram á ritvöllinn. Benedikt tilheyrði strangt tekið ekki þeirri öld sem nýlega var gengin í garð, sérlund- aður snillingur sem hafði að mestu dregið sig í hlé frá skarkala heimsins. En hann þekkti lífið og ástina áreiðanlega betur en hinn ungi og siðavandi ritstjóri. Ljóðlín- ur Benedikts úr fleygu kvæði hefðu sem best átt við Jón Jóns- son og skoðanabræður hans: En þú, sem aldrei yndi fannsl, né ástarsár í hjarta brannst, þú skilur ei þann suana söng, er syngur ástin löng. Raunar byggði hið aldna þjóð- skáld málsvörn reykvískra stúlkna einkum á tilvitnunum í Biblíuna ÁSTIR í FRELSISBARÁTTU Þeim Jóni og Guðmundi sveið greinilega sárast þegar íslenskar stúlkur voru í slagtogi með útlend- ingum og litu á það sem beint til- ræði við frelsisbaráttu íslendinga. Þannig var það viðhorf snemma búið til að það flokkaðist rétt að segja undir landráð að sýna út- lendingum blíðuhót; viðhorf sem átti eftir að blómstra á hernámsár- unum, 40 árum síðar. Og umræða um siðferði landsmanna var yfir- leitt einskorðuð við ungmeyjar og ekki á siðbótarpostulum að skilja að aðrir ættu neina „sök". Stúlk- urnar máttu una dómum annarra, án þess að vera í aðstöðu til þess að svara fyrir sig. Enda hefur hvorki fyrr né síðar fengist niður- staða þegar siðferðismál eru tekin til umræðu. „LÉT TILLEIÐAST AÐ VERA HJÁ ÚTLENDINGUM“ Árið 1918 var íslendingum þungt í skauti enda virtust örlaga- nornirnar staðráðnar í því að gera landsmönnum allt til miska. Katla gaus og olli töluverðum búsifjum, frostaveturinn mikli skall á með fimbulkulda, hafís fyllti alla firði norðanlands og vestan og suður með Reykjanesi. Og um haustið gaus spænska veikin upp og lagði hundruð Reykvíkinga í gröfina. Það var þannig ekki harmkvæla- laust þegar dálítill mannsöfnuður kom saman fyrir utan stjórnarráð- ið hinn 1. desember að taka við fullveldi landsins úr höndum sjó- liðsforingja af dönsku herskipi. En árið 1918 geymir fleiri at- burði, þetta var árið sem lögregl- an fletti ofan af skipulögðu vændi sem dafnaði í kringum útlendinga. Höfuðpaurinn í málinu hét Ás- Jón Jónsson Aðils hólt þvi fram að kvennabósar litu á messur sem al- bestu „veiðistöðvarnar". Ólafía átti að fá 15 krónur fyrir næturgreiðann og lét hún tilleiðast að eigin sögn. Þegar hún kom á hótelið hitti hún Ásgeir og útlend- inginn, „svartan og ófríðan, mat- svein af skipi. Segir vitnið að sér hafi eigi litist á manninn og viljað fara burt, en fyrir fortölur ákærða (Ásgeirs), sem sagði að henni yrði vel borgað, lét hún tilleiðast að vera hjá útlendingnum um nótt- ina. Kveldið eftir, segir vitnið, hitti ákærði hana á Vesturgötu og lagði fast að henni að hún væri aftur hjá útlendingnum næstu nótt og fyrir sömu borgun; lét hún það eftir og var enn hjá útlendingnum næstu nótt“. ÚTLENDINGUR, DÖKKUR OG SVAKALEGUR Ólafía kvað Ásgeir hafa fengið peninga fyrir milligönguna og á

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.