Pressan - 13.06.1991, Blaðsíða 30

Pressan - 13.06.1991, Blaðsíða 30
Ríkisstjórnin mun leika í fræöslumynd sem ætlað er aö kenna stjórnmálamönnum þróunarlandanna undirstööu- atriði vestrænnar hagfræði. íslenskn rikis- stjórninni boðið hlutverk í fræðslnmynd Alþjóðagjald- eyrissjóðsins — okkur vantaði nógu trúverðuga skúrka, segir James Kirkland, leikstjóri Utangarðsmenn stofna með sér félag Viljum fá okkar hlnt- deild í bættum viðskipta- kjörum — segir Tryggvi Kjördal, formaður félagsins öðrum stéttum, segir Tryggvi Kjördal utangarðsmaður. Albanir gera tilboðí íslenska knatt- spyrnulands- liðið — okkur þykir vænt um það og við viljum spila sem ofast við þá, segir Ivania Kolba, landsliðs- þjálfari Albana Hugsanlegt er að landsliðið verði selt til Albaníu. 24. TÖLUBLAÐ 2. ÁRGANGUR FIMMTUDAGURINN 13. JÚNÍ 1991 STOFNAÐ 1990 HAFA SKAL ÞAÐ SEM BETUR HLJÓMAR Verðum að ala upp einhvern í starfið — segir Davíö Oddsson sem fann arftaka sinn í borgarstjórastólinn á Grœnuborg Reykjavík, 13. júní______ „Því miður hefur það komið í ljós að enginn full- trúanna í borgarstjórnar- flokknum virðist hafa það sem þarf. Ég hef því valið þann kost að ala upp nýjan mann til að taka við af mér sem borgarstjóri,“ sagði Davíð Oddsson, þegar hann kynnti Jónas Bald- ursson sem arftaka sinn sem borgarstjóra í Reykja- vík. „Jónas er að vísu enn dálít- ið ungur en ég treysti honum til að vinna verkið þrátt fyrir ungan aldur. Að sjálfsögðu mun ég verða honum innan handar á meðan hann þarfn- ast þess,“ bætti Davíð við. Jónas er rétt tæplega fimm íslenskur framkvœmdamaöur Vill reisa hrífuverk- smiðju í Mos- fellsbæ — slík verksmiöja býöur upp á mun minna tap en Átafoss Mosfellsbæ, 12. júní Bæjarstjórn Mosfells- bæjar íhugar nú tilboð frá íslenskum framkvæmda- manni, Sigtryggi Krist- jánssyni, um að reisa hrífuverksmiðju sem tryggja mun um 200 manns atvinnu. „Eg frétti af þessari verk- smiðju í Kúrdistan þegar ég var í sumarleyfi í fyrra," segir Sigtryggur. „Ég sá strax að hún mundi henta Mosfellsbæ. Þó það sé enginn markaður fyrir hrífurnar þá er hægt að tryggja allt að 200 manns vinnu í henni. Tapið á verk- smiðjunni yrði einungis um Jónas Baldursson, tilvonandi borgarstjóri. ára, tápmikil! og sniðugur krakki að sögn Davíðs. Ákvörðun Davíðs hefur mætt nokkurri andstöðu meðal annarra í borgarstjórn- arflokknum. „Mér sýnist Davíð ætla að nota drenginn sem lepp,“ sagði Árni Sigfús- son. „Hann mun reyna að stjórna borginni í skjóli reynsluleysis Jónasar.“' Jónas Baldursson sagði í samtali við GULU PRESS- UNA að ummæli Árna dæmdu sig sjálf og að hann vildi ekki standa í orðaskaki í fjölmiðlum. Hann hygðist láta verkin tala í starfi sínu. Sigtryggur Kristjánsson býðst til að útvega Mosfellsbæ hag- stæðari taprekstur. 70 prósent af núverandi tapi Álafoss." „Það er margt í þessu til- boði sem þarf að skoða," sagði Magnús Sigsteinsson, forseti bæjarstjórnar í Mos- fellsbæ, í samtali við GULU PRESSUNA. „Þar sem fyrir liggur samþykkt um að halda áfram taprekstri á Álafossi ættu menn að skoða það með opnum huga hvort ekki mætti finna verksmiðju með hagkvæmari taprekstri." Mannúöarfélag kvenna í Sudvestur-ríkjum Bandaríkjanna Vilja taka hrefnuveiðimenn í fóstur Tucson, 12. júní_________ Á fundi Mannúðarfé- lags kvenna í Suðvest- ur-ríkjum Bandaríkj- anna í gær var samþykkt að næsta stórverkefni fé- lagsins yrði að styðja við bakið á hrefnuveiði- mönnum sem fá ekki lengur að veiða vegna aðgerða Grænfriðunga. Meðal aðgerða félagsins verður að taka hrefnu- veiðimenn í fóstur og gangast félagsmenn þa við að framfleyta fóstur- börnum sínum. „Það var strax vel tekið í þessa hugmynd," segir Lisa Burnstedt, formaður fé- lagsins í Texas. „Og ekki minnkaði áhuginn þegar við sýndum nokkrar slid- es-myndir af hrefnuveiði- mönnum. Þá ruku konurn- ar upp til handa og fóta og gerðust fósturmæður. Ég held að um fimmtíu hrefnu- veiðimenn hafi gengið út á þessum fyrsta fundi." Að sögn frú Burnstedt eru félagskonurnar flestar úr stórborgunum og því finnst þeim nýjung að vera í svo nánum tengslum við menn sem ef til vill eru óheflaðri en þær eiga að venjast. „Það er eitthvað svo villt og frumstætt við þessa menn," sagði Karolina Hammer, eftir að hún hafði tekið þrjá hrefnuveiði- menn í fóstur á fundinum. Frú Karolina Hammer tók þrjá hrefnuveiðimenn í fóstur, einn fyrir dóttur sina en tvo fyrir sig sjálfa, og greiddi 514 dollara fyrir. Jón Baldvin stekkur úr failhlíf og Davíð verður fjallkonan á sautjánda júní. Ráöherrar ná sáttum Davíð verður fjallkonan og Jón Baldvin stekkur nr fallhlíf Reykjavík, 13. júní_ Eins og greint var frá í síðustu GULU PRESSU lá við stjórnarslitum þegar Davíð Oddsson gerði kröfu um að fara með hlut- verk fjallkonunnar á sautj- ánda júní. Þrátt fyrir heift- arleg mótmæli krata þá hafa nú tekist sættir. I sáttatilboði sjálfstæðis- manna, sem hefur verið sam- þykkt, er gert ráð fyrir að Jón Baldvin Hannibalsson utan- ríkisráðherra muni stökkva úr fallhlíf yfir Hljómskála- garðinum. „Þó stökkið sé kannski ekki eins virðulegt og hlut- verk fjallkonunnar þá mun það ekki vekja minni athygli," sagði Ámundi Ámundason, sem séð hefur um skipulagn- ingu hátíðahaldanna fyrir krata. „Það er svo skemmtilegt að ég á einmitt að koma til landsins þennan dag. Ég mun því stökkva út yfir garðinum og slepp þar af leiðandi við þreytandi ferð frá Keflavík," sagði Jón Baldvin. Tölvur, prentarar, hugbúnaður, netbúnaður, samskiptakerfi, umbrotskerfi og alhliða þjónusta MICROTÖLVAN Suðurlandsbraut 12 - sími 688944

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.