Pressan - 26.09.1991, Side 8

Pressan - 26.09.1991, Side 8
8 FIMMTUDAGUR PRESSAN 26. SEPTEMBER 1991 Rannsóknarlögregla ríkisins hefur til rannsóknar kær- ur á hendur þremur lögmönnum. Tveir þeirra eru sakad- ir um að hafa dregið sér umtalsvert fé af slysabótum skjólstædinga sinna og sá þriðji er sakaður um að hafa ekki staðið rétt að uppgjöri eftir innheimtumál. Elsta málið er á hendur Eddu Sigrúnu Ólafsdóttur. Tvö mál bættust við nýlega. Það eru kærur á hendur Gudnýju Höskuldsdóttur og Gudmundi Óla Guömundssyni. Bogi Nilsson rannsóknarlögreglustjóri staðfesti þetta í samtali við PRESSUNA. Nokkuð er síðan rannsókn máls Eddu Sigrúnar hófst. Rannsóknarlögreglan sendi ríkissaksóknara málið fyrir nokkrum mánuðum. Saksóknari hefur sent málið aftur til RLR með ósk um frekari rannsókn. Hin málin eru mun yngri. Ljóst er að lögmennirnir þrír hafa dregið sér millj- ónir króna. Einn lögmannanna, Guöný Hös- kuldsdóttir, hefur tilkynnt stjórn Lögmannafélags íslands að hún ætli sér að skila inn lögmannsréttindum sínum. Þá hefur hún einnig tilkynnt að hún vilji að bú sitt verði tekið til gjaldþrotaskipta. Á ANNAN TUG MILLJÓNA Samtals má ætla að lögmennirnir þrír hafi dregið sér á annan tug milljóna króna frá skjólstæðingum sínum. Þar vegur hlutur Guðnýjar Höskuldsdóttur þyngst. Þegar hafa borist kærur á hendur henni upp á sjö til sjö og hálfa milljón króna. Ef svo heldur fram sem horfir kemur það í hlut Ábyrgðarsjóðs LögmannaféL.í að greiða skjól- stæðingúrr Ouonýjar, þar sem bú hennar v- our tekið til gjaldþrota- skipta. Lögmannafélagi íslands barst aldrei beint erindi vegna mála Eddu Sigrúnar Ólafsdóttur. Eigi að síður var málið mikið reifað meðal lög- manna. Stjórn Lögmannafélagsins, sem jafnframt er siðanefnd félagsins, sektaði Guðmund Óla Guðmunds- son um 20 þúsund krónur vegna kærunnar á hendur honum. í úr- skurði stjórnarinnar sagði eitthvað á þá leið að framkoma hans væri ámælisverð og ekki í samræmi við það sem góðum lögmönnum sæmdi. Guðmundur Óli rak innheimtu- mál fyrir erlent fyrirtæki. Greitt var inn á kröfuna en lögmaðurinn skil- aði greiðslunni ekki til eigenda kröf- unnar. ÁBYRGÐARSJÓÐUR LÖGMANNA Eins og áður sagði bendir allt til að Ábyrgðarsjóður Lögmannafé- lagsins geri upp við skjólstæðinga Guðnýjar Höskuldsdóttur. Sjóður- inn átti við síðasta uppgjör rétt um 13 milljónir króna. Kröfur á hendur Guðnýju, þ.e. frá skjólstæðingum hennar, eru nú orðnar sjö til sjö og hálf miiljón króna. Ekki er vitað hvort þeim á eftir að fjölga. Greinilegt er að Ábyrgðarsjóður- inn þarf, ef svo heldur fram sem horfir, að greiða meira en helming þess sem í honum er. Sennilegt er að mál Guðnýjar Höskuldsdóttur sé það stærsta sem komið hefur til kasta sjóðsins. Fyrir nokkrum árum varð starfandi lög- maður, Magnús Þóröarson, gjald- þrota. Hann skuldaði skjólstæðing- um sínum umtalsverða peninga, meðal annars hafði hann ekki stað- ið í skilum með stóran hluta af slysa- bótum til eins þeirra. Þar sem Magn- ús reyndist ekki borgunarmaður fyrir skuldum sínum varð Ábyrgðar- sjóðurinn að greiða fyrir hann. Hjá Lögmannafélagi íslands feng- ust þær upplýsingar að mál Magnús- ar væri það stærsta sem fallið hefði á sjóðinn hingað til. Óvíst er hvort mál Guðnýjar verður stærra en mál Magnúsar var á sínum tíma. Reynd- ar hefur sjóðurinn aðeins tvisvar þurft að greiða fyrir félagsmenn Lögmannafélagsins á þeim fimmtán árum sem hann hefur verið til. Það er í máli Magnúsar Þórðarsonar og í hinu tilfellinu var um minniháttar upphæð að ræða. Mál Guðnýjar verður því þriðja málið sem k?mur til kasta Ábyrgðarsjóðsins. 10 TIL 15 MÁL HJÁ LÖGMANNAFÉLAGINU Marteinn Másson, framkvæmda- stjóri Lögmannafélagsins, segir að hjástjórnfélagsinsséunúna lOtil 15 mál. Þau séu misalvarlegs eðlis og í mörgum tilfellum sé jafnvel um mis- skilning milli lögmanna og skjól- stæðinga þeirra að ræða. Eins eru dæmi um erindi til stjórnarinnar þar sem kvartað er undan skorti á upp- lýsingum frá lögmönnum. Lögfræðingum hefur fjölgað mjög á síðustu árum og þar með starfandi lögmannsstofum. Samkeppni með- al þeirra hefur um leið aukist mikið og nú er rekstur lögmannsstofu ekki eins örugg leið til góðrar afkomu og áður var. Marteinn Másson, framkvæmda- stjóri Lögmannafélagsins, segir að sem betur fer hafi stjórn félagsins ekki þurft að hafa afskipti af mest- um hluta iögmanna, aðeins lítill hluti þeirra hefur starfað þannig að til kasta félagsins hafi þurft að koma. EDDA SIGRÚN ÓLAFSDÓTTIR Það vakti mikla athygli þegar PRESSAN birti frétt fyrir tæpu ári um að búið væri að kæra Eddu Sig- rúnu Ólafsdóttur fyrir að hafa dreg- ið sér hluta af tryggingabótum skjól- stæðinga sinna. Rannsóknarlögreglan hafði áður rannsakað starfshætti eftir ábend- ingar frá tryggingafélögunum. Rannsóknarlögreglan sendi þá rannsókn til embættis ríkissaksókn- ara. Halluardur Einvarösson ríkis- saksóknari sá ekki ástæðu til ákæru. Eftir að PRESSAN skrifaði um málið var það tekið til rannsóknar á ný. Rannsóknarlögreglan tók málið upp að nýju og að lokinni rannsókn var það sent til ríkissaksóknara. Eft- ir að hafa verið þar talsverðan tíma var það í síðasta mánuði sent aftur til rannsóknarlögreglunnar, með ósk um frekari rannsókn. Bogi Nilsson rannsóknarlögreglu- stjóri sagði í samtali við PRKSUNA að hann gæti ekki sagt til um hve- nær rannsóknarlögreglan lyki rann- sókn málsins á hendur Eddu Sig- rúnu frekar en hinna málanna tveggja sem nú eru í rannsókn hjá RLR. Samkvæmt þessu mun rannsókn máls Eddu Sigrúnar taka vel á ann- að ár, í það minnsta, þar til endanleg ákvörðun ríkissaksóknara um hvort ástæða er til ákæru eða ekki liggur fyrir. NAFNBIRTING í FYRSTA SINN Þegar stjórn Lögmannafélagsins birti í fréttabréfi félagsins úrskurð sjnn í málinu á hendur Guðmundi Óla Guðmundssyni vakti það at- hygli að nafn hans var birt, en þetta mun í fyrsta sinn sem slíkt er gert. Marteinn Másson segir að á síð- asta aðalfundi Lögmannafélagsins hafi verið samþykkt breyting á siða- reglunum sem heimila nafnbirting- ar við birtingu úrskurða, þyki sér- stakar ástæður vera fyrir hendi. í þessu tilfelli þótti ástæða til að birta nafn lögmannsins. Nokkuð er síðan mál Guðmundar Óla barst til stjórnar Lögmannafé- lagsins og hefur verið mikið fundað um málið. Eins og áður segir deila Guðmundur Óli og umbjóðandi hans um uppgjör innheimtumáls. Umbjóðandinn hefur eins og áður sagði kært Guðmund Óla til rann- sóknarlögreglunnar. Þeir sem kynnt hafa sér málið segja reyndar óvíst hvort það á frekar heima hjá rannsóknarlögreglunni en í bæjar- þingi, þar sem það er einkamál. Hvað sem mönnum finnst valdi

x

Pressan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.