Pressan - 26.09.1991, Side 9

Pressan - 26.09.1991, Side 9
FIMMTUDAGUR PRESSAN 26. SEPTEMBER 1991 9 EDDA SIGRÚN ÓLAFSDÓTTIR. Nú er liðið á annað árfrá þvi rannsóknarlögreglan hóf að rannsaka sak-' argiftir á hendur henni. Málið hefur tvisvar farið til embættis ríkissaksóknara og jafnoft þaðan aftur. GUÐNÝ HÖSKULDSDÓTTIR. Allt bendir til að Ábyrgðarsjóður Lögmannafélags íslands þurfi að greiða sjö til átta milljónir króna þar sem Guðný getur ekki gert upp við skjólstæðinga sína. Hún ætlar að skila inn lögmannsréttindum sínum og hefur óskað þess að verða tekin til gjaldþrota- skipta. GUÐMUNDUR ÓLIGUÐMUNDSSON. Stjóm Lög- mannafélagsins sektaði hann og vrtti. Það var er- lent fyrirtæki sem kærði Guðmund Óla til Lög- mannafélagsins og rannsóknariögreglunnar fyrir að halda eftir fé sem hann innheimti. (Guðmundur er sá með sólgleraugun á myndinni.) F A_4kkert varð af því að Sigurður Valgeirsson tæki við ritstjórn helg- ardagskrár rásar 2. Sigurður var bú- inn að ráða sig til starfans, en áður en hann hóf störf var honum boðið starf útgáfustjóra hjá bókaforlaginu Ið- unni. Sigurður þekktist boð Jóns Karlssonar, framkvæmdastjóra Ið- unnar. Þegar Stefán Jón Hafstein bauð Sigurði starf ritstjóra helgar- dagskrár var hann starfandi á Bylgj- unni, en þar áður var Sigurður út- gáfustjóri Almenna bókafélags- ins... — Bogi Nilsson rannsóknarlögreglustjóri segir ad hjá sínu embætti sé unnið ad rannsóknum á mál- um á hendur þremur lögmönnum sem kœrdir hafa verid fyrir ad halda eftir peningum sem þeir höfdu undir höndum en skiluöu ekki til réttra aðila. Gest- ur Jónsson, formaður Lögmannafélagsins, segir þetta alvarleg mál sem stjórn félagsins hafi veru- lega þungar áhyggjur af. umbjóðandi Guðmundar Óla þá leið að fara með málið tii lögreglunnar. Það fer síðan eftir því hvaða niður- staða fæst i málið á þeim vettvangi hvað um það verður. Sjái yfirvöld ekki ástæðu til ákæru getur um- bjóðandinn farið með málið fyrir bæjarþing Reykjavíkur. Eins og áður sagði var Guðmund- ur Óli Guðmundsson með inn- heimtukröfu fyrir erlent fyrirtæki. Greitt var inn á kröfuna án þess að Guðmundur skilaði greiðslunni til erlenda fyrirtækisins, þ.e. eiganda kröfunnar. KOMST UPP FYRIR TILVILJUN Eins og áður sagði er mál Eddu Sigrúnar Ólafsdóttur elst málanna þriggja. Upp um svikin komst fyrir algjöra tilviljun. Einn skjólstæðinga hennar, ung kona, þurfti nauðsyn- lega að fá læknaskýrslur sem höfðu fylgt málinu á hendur tryggingafé- laginu. Unga konan reyndi mikið til að ná tali af Eddu Sigrúnu. Hún var fjarverandi og því leitaði konan til tryggingafélagsins og fékk þar af- hent öll gögn málsins. Þá kom í Ijós að Edda Sigrún hafði móttekið hálfri milljón króna meira en hún hafði skilað til ungu konunn- ar. Unga konan vildi ekki kæra Eddu Sigrúnu. Forráðamenn Sjó- vár/Almennra, en það tryggingafé- lag hafði með málið að gera, vöktu athygli rannsóknarlögreglunnar á þessu. Síðar komu fram fleiri mál sama eðlis. Eins og áður segir kann- aði rannsóknarlögreglan þau og sendi gögnin til saksóknara. Hann sá ekki ástæðu til aðgerða og því varð ekkert úr þeirri rannsókn fyrr en PRESSAN birti fyrstu fréttina um málið 1. nóvember 1990. HEFUR BREYTT SAMSKIPTUM LÖGMANNA OG SKJÓLSTÆÐINGA Eftir að mál Eddu Sigrúnar kom fram í dagsljósið breyttust samskipti margra lögmanna og skjólstæðinga þeirra í slysamálum. Hæstaréttar- lögmaður sagði í samtali við PRESS- UNA að sér dytti ekki í hug eftir þetta að taka á móti bótum til skjól- stæðinga. Ef viðkomandi gæti ekki sótt peninga sína sjálfur sagðist lög- maðurinn láta tryggingafélögin senda greiðslurnar til viðkomandi. Annar hæstaréttarlögmaður sagðist ekki hafa breytt starfsað- ferðum sínum. „Ef fólk treystir mér ekki verður það að leita annað. Ég kæri mig ekki um að vinna fyrir fólk nema fullur trúnaður sé á milli mín og þess sem ég vinn fyrir. Þetta hef- ur alit haft áhrif og það er gott og vel ef fólk fylgist betur með. Því miður eru til lögmenn sem ekki eru traustsins verðir." Sigurjón Magnús Egilsson Mikið áhyggduefri og fleiri mál ..Þetta er okkur mikid áhygtýu- efni. Ég held ud þetta sé einsdæmi eins og þú lýsir því, að rannsókn- arlögreglan hafi mál á hendur þremur tögmönnum til rannsókn- ur. Ég held þetta sé meira og alvur- lega en verid nefur. Viö skulum samt gæta okkar á þvi ad þetta eru kærur en ekki dómar." sugöi Gestur Jónsson, hœsturéttarlög- madur og formudur Lögmunnafé- lags fslands. Gestur sagði að eitt málanna væri alvarlegast þar sem lögmað- urinn væri kominn í greiðsluþrot. Þar á hann við mál Guðnýjar Höskuldsdóttur. „Við munum tryggja að skjól- stæo'ingar hennar tapi ekki sínu. Abyrgðarsjóðurinn var stofnaður til að tryggja að skjólstæðingar lögmanna töpuðu ekki ef lög- menn kæmust í greiðsluþrot." Gestur sagðist ekki hafa kynnt sér hagi þeirra skjólstæðinga Guð- nýjar sem hefðu kært hana. Hann' sagði Ijóst vera að fólkinu bæru bætur vegna þess aö þaö hefði orðið fyrir áföllum og því væri sér- hvert svona mál alvarlegt fyrir þann sem fyrir því yrði. Þegar Gestur var spurður hvort Lögmannafélagið mundi grípa til einhverra aðgerða vegna þessara mála sagði hann félagið lítið geta gert. Það væri ekki eiginlegt stétt- arfélag og því gætu félagsmenn ekki ráðið hverjir væru í félaginu Gestur Jónsson, formaður Lög- mannafélagsins. Hefur áhyggjur af þessum málum og segir þau alvar- leg. Lög Lögmannafélagsins heim- ila ekki aö fólk sé rekiö úr félaginu. enáðup og hverjir ekki. Það væri sem sagt ekki hægt að reka menn úr félag- inu. Stjórn félagsins gæti ekki dæmt félagsmenn öðruvísi en sekta þá. Gestur Jónsson sagði það frekar táknrænt en annað. Það vakti athygli, þegar úr- skurður stjórnar félagsins í máli Guðmundar Óla var birtur, að nafn hans var birt. Gestur sagði að siðareglum hefði verið breytt, ein- mitt vegna viðleitni til að auka úr- ræði félagsins þegar siðareglur þess væru brotnar. En er formaður Lögmannafé- lagsins áhyggjufullur vegna þess- ara mála? „Já. Ég hef verulegar áhyggjur af þeim." __ að hafa ekki allir sama álit á Atla Edvaldssyni. Ásgeir Elías- son landsliðsþjáifari hefur ekki not fyrir Atla á sama tíma og Atli gerir vart annað en hafna tilboðum frá fót- boltafélögum. For- ráðamenn þriggja liða, Stjörnunnar, Fylkis og FH, hafa leitað eftir Atla sem þjálfara og leik- manni. Atli mun hinsvegar ákveð- inn í að leika áfram hjá KR. Þrátt fyr- ir að Ásgeir Klíasson hafi ekki þörf fyrir Atla fer ekki á milli mála að það eru ekki allir sömu skoöun- ar . . . ✓ I Hamri, blaði sjálfstæðismanna í Hafnarfirði, er grein þar sem spáð er í hver verði næsti bæjarstjóri í Hafnarfirði. Grein- arhöfundur gefur sér að Guðmundur Árni Stefánsson verði kominn á þing fyrir næstu bæjar- stjórnarkosningar, 1994. í Hamri er sagt að fjórir bæjarfulltrúar Alþýðu- flokksins telji sig sjálfkjörna. Þeir sem Hamar nefnir eru Ingvar Vikt- orsson, formaður bæjarráðs, Jóna Ósk Guöjónsdóttir, forseti bæjar- stjórnar, Tryggvi HarAarson. blaðamaður á Alþýðublaðinu, og Árni Hjörleifsson. Þá segir í blað- inu að Kristján GuAmundsson, fyrrum bæjarstjóri í Kópavogi, komi einnig til greina, en hann mun nú vinna að sérstökum verkefnum fyr- ir bæjarstjórann í Hafnarfirði, sam- kvæmt því sem Hamar segir... u, _ ' m helgina kemur út ný Heims- mynd með viðtali við Ólaf Jóhann Ólafsson, forstjóra Sony í New York. í viðtalinu tal- ar Ólafur Jóhann um heima og geima; viðskiptafrumskóg- inn sem hann lifir í, siðferði í viðskiptum hér heima og það fólk sem hann um- gengst í New York. Þar kemur með- al annars við sögu leikkonan Julia Roberts. Þótt Ólafur nefni engin sérstök íslensk fyrirtæki má greina að hann er meðal annars að tala um AB, bókaforlagið, þegar hann fjallar um skoðanir sínar á bágu siðferðis- stigi i íslenskum viðskiptum ...

x

Pressan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.