Pressan - 26.09.1991, Page 28

Pressan - 26.09.1991, Page 28
28 FIMMTUDAGUR PRESSAN 26. SEPTEMBER 1991 Uf eJftiA 4M4UU&1 ? Meðlimir hljómsveitar- innar loðinnar rottu æfa stift þessa dagana. Þeir ætla að spila i Vest- mannaeyjum um næstu helgi og á Gauk á Stöng á sunnudags-, mánudags- og þriðjudagskvold auk þess sem PS-músik (Pét- ur Kristjánsson og Stein- ar) hefur boðið þeim aö gera plötu fyrir ár3mót. Af þvi tilefni meðal ann- ars fóru þeir í sumarbúðir i Rangárþingi ekki alls fyr- ir löngu til að semja lög og texta og æfa. halli gulli tromma segir að þeir muni minnka tón- leikahald á næstunni og einbeita sér að gerð plöt- unnar. Auk Halla eru í Rottunni þeir bjarni bragi á bassa (BBB), ingölfur guðjonsson, hljóm- borðsleikari og formaður, JÓHANNES EIÐSSON, hár- skeri og húsmóðir og sér hann um sönginn i stað Scobies sem fór til USA i vor, og sigurdur grondal á gitar (SG-gítarar). Skifan er að hefja útgáfu á geisladiskum með klassískri tónlist. Á vaðið ríður EDDA ERLENDSDÓTTIR pianóleikari, er leika mun verk eftir GP.E. BACH. Stefnt er að þvi að hafa flytjendur sem flesta is- lenska, og jafnvel kynna þessa útgáfu erlendis. Útgáfan bætist við þau ógrynni sem islensk tón- verkamiðstóð hefur sent frá sér á undanförnum ár- um. Og þetta er ekki allt. í kvóld verður Sinfóniu- hljómsveit íslands með tónleika í Háskólabiói i samvinnu við breska út- gáfufyrirtækið Chandos, en það ætlar að gefa út diska með sinfóniunni næstu þrjú árin. Ég er hræddur um að gall- eríin verði að stilla betur saman strengi sína. Unv síðustu helgi helltist yfir mann hver opnunin á fæt- ur annarri. Nú blasir við eyðimörk og hvergi hægt að fá sér ókeypis í glas. Kippið þessu í lagl UppÁlHAlds VÍNÍð Anna Ringsted kaupmaður i Fríðu frænku „Mérþykir kumpuvín besl uí> þú sérstuklegu Gulu ekkjun. Éif er hrifiri uf ruudvíni uif ef éif fer úl uö buröu drekk éif ullluf Chuleuurieuf-du Pupe." Á Furstanum ætlar Halldór Óskarsson að glamra á píanóið fram á sunnudag, en hann er r góöu formi eftir félagsskapinn með Ingimar Eydal í Galtalæk i sumar og spilerí á A. Hansen. Sexmenn og Gúliver í Putta- landi spila á ölkránni Staðið á öndinni i kvöld og sunnudags- kvöld. þungarokkstónleikar. Það er hljomsveitin Bleedin' Volcano sem ærir aðdáendur sina (úr ánægju). Guðmundur Rúnar heldur uppi stuðinu einn sins liðs á LÁ- café i kvöld og geri aðrir betur. Og hjá ölóðum í Ölveri skemmtir japönsk söngmask- ína alla helgina með „kara- oke-tónlist", þar sem gestir fá að taka lagið með hjálp Japan- ans. Hin heimsfræga blús- drottning klakans, Andrea Gylfadóttir, og Blúsmenn Andreu skemmta föstudags- og laugardagskvöld á Púlsin- um. Gestkvæmt verður hjá Andreu um helgina þvi hún fær upp á sviðið til sin lands- fræga persónu sem allir þekkja en enginn fær að vita hver er fyrr en stundin rennur upp. Auk þessa mun finnskur hreindýrabóndi, Mikko Syrjá, frá Þúsund vatna landinu koma og spila á gítarinn sinn, sem er úr hreindýrahornum. Blússöngvakeppni fjölmiðla- manna hefur göngu sina á Púlsinum á föstudagskvöldið með því að Kolbrún Ingibergs- dóttir á Morgunblaðinu kemur fram ásamt Andreu og verður líka á laugardagskvöldið. Heyrst hefur að hún ætli að skora á DV að senda fulltrúa sinn á næsta blúskvöld Púls- ins. Hljómsveitin Galileo verður á Gauknum og líka á laugar- dagskvöld. Hilmar Sverrisson og kannski Hallbjörn kántriboy „Standa á öndinni" föstudags- og laug- ardagskvöld. HfiNNfi MfiRÍfi í SPORCIM DOLLY PfiRTON Leikfélag Akureyrar selur upp Slúlblóm (Steel Maynoli- as) Leikfélag Akureyrar ætlar að frumsýna í byrjun október leikritið Stálblóm eftir Ro- bert Harling. Margir muna eftir kvikmyndinni sem sýnd var í Bíóborginni á síðasta ári, en hún var meðal annars tilnefnd til Óskarsverðlauna. Stálblóm gerist á lítilli hár- greiðslustofu í smábæ í Lou- isiana í Bandaríkjunum og fylgst er með hópi vinkvenna í gegnum súrt og sætt í nokk- urn tíma. Bryndís Péturs- dóttir fer með hlutverk ríku ekkjunnar í leikritinu, sem Olivia Dukakis lék í mynd- inni, Hanna María Karls- dóttir leikur hárgreiðslu- stofueigandann Truvy, sem Dolly Parton lék svo eftir- minnilega, Vilborg Hall- dórsdóttir ætlar, sem Shel- by, að gifta sig eins og Julía Roberts. Þórdís Arnljóts- dóttir aðstoðar Dolly á stof- unni. Þórey Aðalsteins- dóttir leikur mömmuna, sem Saily Field lék, og Sunna Borg leikur skapillu nágrannakonuna Ouises. sem Shirley McLaine lék í myndinni. Þá er bara að bíða og sjá hvort Hanna María læt- ur stækka á sér brjóstin fyrir frumsýninguna. d ^ © Kristján Magnússon er fæddur 23. júní 1974. Hann starfar nú sem sölutæknir í Söluturninum við Sunnu- torg. Hann er í Krabbamerkinu og á lausu. Hvað borðar þú í morgunmat? „Cheerios." Kanntu að elda? „Já, allan venjulegan mat." Hefurðu farið á tónleika með GCD? „Nei, og stefni ekki að því." Lestu Þjóðviljann? „Nei, ertu vitlaus." Gengur þú með sólgleraugu? „Alltaf í sól en annars týni ég þeim alltaf." Læturðu lita á þér hárið? Já, ég hef gert það nokkrum sinnum." Ertu búinn að sjá Terminator 2? „Ekki ennþá." Hvernig stelpur eru mest kynæsandi? „Ljóskur með blá augu." Finnst þér Madonna sæt? „Já, bærilega." Hefurðu lesið biblíuna? „Nei." Hvað gerir þú á sunnudagsmorgnum? „Sef." Hefurðu komið til ísafjarðar? „Nei, og stefni ekki að því." Gætir þú hugsað þór að reykja hass? „Ég hef gert það en geri ekkert frekar ráð fyrir að gera það aftur." Hvað ætlar þú að giftast oft? „Fimm ríkum konum." Syngurðu í baði? „Nei." Sefurðu í náttfötum? ,,Nei, alls ekki." Ertu góður dansari? „Ég reyni helst að sleppa við að dansa." Á hvaða skemmtistaði ferðu? „Hótel ísland og Borgina." Trúirðu á ást við fyrstu sýn? „Já." ^bnauma Sigtryggur Baldursson trommuleikari PRESSAN baö Sigtrygg í Sykurmolunum að vera gestgjafa í ímynduðu kvöldverðarboði þessa vikuna. Gestir Sigtryggs eru: ALBERT EINSTEIN fær að velja tónlistina. HERBERT FINKEL- STEIN sér um andlegu hliðina. WULCAN 2 til frekari afreka. HERR WOLAND sjónhverfingameistarí, sér um samkvæmis- leiki. BOGOMIL FONT er siðameistari. MARILYN MONROE sér um stærðfræðina. MRS. BALDURSSON er til að hafa mátulega ögrun í samkvæminu og halda spennunni við. ANDRÉS ÖND well done. GENGIS KAN þjónninn verður að gefa honum eitthvað róandi i glasið og þá fær hann ekki mikið af kampavíni. MAX ROACH sér um vindlana. fciatayt GUNS 'N ROSES USE YOUR ILLUSION VOL. I & II Þetta hefði orðið stór- góð einföld plata (en er 4 plötur / 2 geisla- diskar). Þeir taka nokkur lög eftir aðra sem koma vel út, semja nokkur ágæt lög, en afgangurinn gæti verið af gamalli Status Quo-plötu. Það er svo spurning hvað auglýsingaherferöin skilar þeim langt. 5af 10 Frændur okkar írar verða á Tveimur vinum. Það er þjóð- laga- og rokksveitin Diarmuid O'Leary & The Bards sem spil- ar. Hún er þekkt um alla Evr- ópu og viðar, lék meðal annars fyrir íraska hermenn i Persa- flóastríðinu og hefur gert sjónvarpsþætti fyrir BBC, svo fátt eitt sé talið. Þeir verða líka á sunnudag, mánudag og þriðjudag. Blús-rokk-trióið Red House (eftir frægasta blúslagi Jimi Hendrix) verður á Blúsbarn- um. Það verður heljarinnar blóma- ball á Hótel íslandi. Þetta er einhver draugur frá Hvera- gerði sem Siggi Dag i Upplyft- ingu hefur borið með sér, enda mun hún leika fyrir dansi. Á Moulin Rouge verður Kabar- ett a la Liza Minnelli bæði föstudags- og laugardags- kvöld. Þetta er hálftimadag- skrá en annars diskó, þar sem allir klæðast kjólum. Við tvö (hmlll) verða á Mimis- bar, svo og annað kvöld. Góð- kunningjar lögreglunnar verða á Tveimur vinum. Næturvaktin leikur fyrir afa og ömmu á Ijúfu tónunum i Súlnasal Hótels Sögu. Það er ekki að spyrja að útstáelsinu á gamla fólkinu. Hin illa þokkuðu Samtök KGB verða á Blúsbarnum með Kristján Guðmundsson og mjög dularfulla söngkonu inn- anborðs. Það skýrist hver það er þegar að því kemur. LÁRÉTT: 1 skellast 6 bi'mbjargamenn 11 hlustir 12 hárlubbi 13 náö- hús 15 karlmannsnafn 17 vesalingur 18 feigðarboði 20 haugur 21 tala 23 blástur 24 hungur 25 nálgun 27 hjalla 28 fúið 29 hagur 32 viöarkvista 36 hveiti 37 gutl 39 smölun 40 lofaði 41 máttur 43 flökta 44 ávöxtur 46 silakeppir 48 félagi 49 röð 50 herfið 51 öhreinkir. LÓÐRÉTT: 1 heimska 2 bareflis 3 smælki 4 bindi 5 peningum 6 traf- ala 7 snoppu 8 orka 9 hnykil 10 bugða 14 umhyggja 16 svin 19 hegð- un 22 kirtill 24 reiðver 26 gráðugur 27 tjara 29 eftirlæti 30 léleg 31 flotholtin 33 vafin 34 skrýfa 35gönir37 fróð 38 titra 41 nesti42tarf- ur 45 nægilegt 47 eira.

x

Pressan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.