Pressan - 26.09.1991, Blaðsíða 31
FIMMTUDAGUR PRESSAN 26. SEPTEMBER 1991
31
IVf
1 ▼ JLannabreytingar eru að verða
hjá Kvennalistanum. Ingibjörg
Hafstað er að hætta. í Fréttabréfi
Kvennalistans kveð-
ur hún og segist vera
að láta af störfum.
Hún bætir við;
. . . þó fyrr hefði ver-
ið segja sumar". Ingi-
björg þakkar
ánægjulegt. en
stundum stressað sarnstarf. . .
v
▼ ið röktum nokkrar skritnar
sögur af bröskururh í síðustu
1’RhiSSU. Meðal annars var sögð
sagan af 1.700 flauelsbuxum sem
hafa gengið manna á milli í bílavið-
skiptum undanfarin ár. Blaðið var
vart komið á göturnar þegar síminn
á ritstjórn hringdi. Þar var korninn
sá sem flutti buxurnar inn fyrir
tveimur árum. Hann vildi endilega
fá upplýsingar um hvar buxurnar
væru nú. Sér hefði tekist að gera
góð kaup þar sem hluti greiðslu-
verðsins var einmitt þessar sömu
buxur. Það eina sem vantaði til að
kaupin gengju eftir var að finna
buxurnar, kaupa þær og selja síðan
aftur . . .
N
i. ^ ýr soknarprestur hefur verið
ráðinn í ísafjarðarprestakall. Sá
heitir Magnús Erlingsson. Magn-
ús er Vestfirðingur í
móðurætt, en móðir
hans er Sigríður
Hermannsdóttir.
systir Sverris
bankastjóra og
þeirra bræðra . . .
A
XJkðgerðir lógregluyfirvalda
gagnvart vinveitingastöðum hafa
mjög verið hertar að undanförnu.
Veitingastaðurinn Beriín hefur ekki
sloppið við talningar og önnur af-
skipti eftirlitsmanna og nýlega var
greint frá því í fréttum að lögreglan
hefði þurft að rýma staðinn vegna
vinveitinga eftir lokun. Hins vegar
hefur staðurinn ekki fengið refsingu
með lokun helgina á eftir. Við heyr-
um þá kenningu setta fram í þessu
sambandi að skýringuna sé að finna
í því, að á meðal eigenda Berlínar sé
Sveinn Úlfarsson og hann sé
tengdasonur stjórnanda aðgerð-
anna af hálfu yfirvalda, Signýjar
Sen ...
D
Mmaufarhafnarbúar verða ekki
lengi prestslausir. Séra Ragnheiður
Erla Bjarnadóttir hefur sagt upp
----------- og var meðal um-
andi sótti um Rauf-
Jón Hagbarður
. guðfræðingur. Ailt
mælir með því að hann fái embætt-
ið. Ekki er vitað hvað Ragnheiður
Erla hyggst gera eftir að hún missti
af Þingvöllum og Raufarhöfn er að
baki...
P
Mmannsókn útlendingaeftirlitsins
á komu Pólverja til SS hefur vakið
nokkra athygli. Útlendingaeftirlitið
skilaði skýrslu um málið sem var
þungur áfellisdómur yfir pólskri
konu, búsettri á íslandi, án þess að
ræða við hana sjálfa. Auk þess mun
eftirlitið hafa notið aðstoðar annarr-
ar pólskrar konu sem túlks við rann-
sókn málsins. Nú hefur hins vegar
komið í ljós að hún hefur einnig
staðið í innflutningi Pólverja hingað
og því nánast samkeppnisaðili við
þá sem RLR rannsakar . ..
Dúkkutöskurnar
komnar aftur
m
i
SSÉIÍÉÉL:... Oj iJ% Á
é tSSík ^. - W JM
Nú einnig sem bakpoki í skólann,
leikfimi, leikskólann og sund.
Sendum í póstkröfu
Heildsala - smásala
TÍTANhf
LÁGMÚLA 7
SÍMI 814077
Skialdboraarhúsinu ®
68 55
\« m