Pressan - 30.12.1992, Blaðsíða 2

Pressan - 30.12.1992, Blaðsíða 2
2 MIÐVIKUDAGUR PRESSAN 30. DESEMBER 1992 Þetta blað er á síðasta snúningi ...eins og Þórður Friðjónsson. Það er mjög hæpið að hans verði getið oftar í þessu blaði. ...eins og Pétur H. Blöndal og aðrir þeir sem ætia að krækja sér í hlutabréf fyrir áramótin. ...eins og Jón Baldvin Hannibalsson. Ef hann fær ekki þingið til að samþykkja EES fyrir miðjan næsta mánuðmunu kollegar hans í EFTA hlæja að honum - jafnvel meira en af svissneska utanríkis- ráðherranum. ...eins og Rósa, Raggi Bjarna og Gulli í Karnabæ. Ef þau ætla að verða metsölu- höfundar á þessu ári verða þau að drífa sig út í búð. ...eins og allir álits- gjafarnir sem bíða við símann f von um að einhver útvarps- eða sjónvarpsstöðin hringi og bjóði þeim í spjall á gamlársdag. ...eins og flugeldarnir frá í fyrra. Það borgar sig að skjóta þeim uppfyrirátta þetta árið. Skýrir þetta skjálftana, Hallgrímur? „Já. Skjálftinn nú mældist 4,2 stig á Richter en fólksfjölgunin í pláss- inu var 4,4 prósent á árinu. Ég held að þetta sé skýringin. Við Hvergerðingar munum þó þurfa að djöflast mikið til að kalla fram þann stóra, þar sem jarðfræðingar spá því að Suðurlandsskjálftinn verði 7 stig á Richter." Fólki á Suðurlandi hefur fjölgað mest í Hveragerðl og fólksfjölgunin í bænum er sú þriðja mesta á landinu. Jarðskjálft- ar hafa riðið yfir bæinn að undanförnu. Hallgrlmur Guðmundsson er bæjarstjóri I Hveragerði og svarar hér til um samhengið þarna á milli. F R E M S T ÞORGRÍMUR ÞRÁINSSON OG EINAR KÁRASON: Tekjuhæstu rithöfundarnir eftir jólabókavertíðina. „SPARNAÐURINN" ORÐINN 60 PRÓSENTA ÚTGJALDAAUKNING Þegar sveitarfélögin í kringum Reykjavík ákváðu að taka sig sam- an og stofha Almenningsvagna bs. um sameiginlegt strætisvagna- kerfi var mikið talað um sparnað. í Kópavogi var sérstaklega rætt um að ekki þyrfti lengur að dæla peningum í SVK, sem var lagt nið- ur. Á síðasta ári SVK, 1991, runnu 38 milljónir úr bæjarsjóði Kópa- vogs í fyrirtækið, sem auk áætlunarleiða sá um skólaakstur og fleira. Nú er ljóst, samkvæmt fjárhagsáætlun Gunnars J. Birgissonar oddvita og félaga hans, að á næsta ári muni greiðsl- ur vegna Hagvagna, dótturfyrir- tækis Jóhanns G. Bergþórs- sonar og Hagvirkis, og skóla- aksturs fara yfir 60 milljónir. Þar af eru reyndar nokkrar milljónir vegna biðlauna fyrrum vagns- stjóra SVK, en engu að síður er ljóst að útgjöld bæjarsjóðs Kópa- vogs vegna Þessara hluta hafa aukist um nær 60 prósent eða 22 milljónir. Það hefur því ekki reynst mikil búbót fyrir Kópa- vogsbúa að Jói Begg fékk akst- urinn, eftir að stjórn Almennings- vagna hafði tekið á sig skuld- bindingar og Bílaumboðið, fyrirtæki Gunnars, seldi Jóa vagna þegar enginn annar vildi gera það. TEKJUR MET5ÖLU- RITHÖFUNDANNA Óhætt er að segja að Þorgrím- ur Þráinsson sé tekjukonungur rithöfundastéttarinnar um þessi jól. Tvær bækur komu út eftir hann og seldust þær báðar eins og heitar lummur eða í samtals um 18-19 þúsund eintökum. Þar sem Þorgrímur er í hópi vinsælustu rithöfunda landsins, og starfrnað- ur Fróða sem gefur bækur hans út, má gera ráð fyrir að hann geri betri útgáfúsamninga en staðlaðir lágmarkssamningar Rithöfunda- sambandsins segja til um. Þar er gert ráð fyrir að 16 prósent af út- söluverði bókar renni í vasa höf- undar. Því hefur Þorgrímur haft að minnsta kosti fjórar og hálfa milljón króna í tekjur í þessari jólavertíð, en líklega eru tekjur hans þó nær sex milljónum króna. Sá aðili sem næstur Þorgrími kemur í tekjum er að öllum lík- indum Vigdís Grímsdóttir. Alls seldust urn 6-7000 eintök af skáld- sögu hennar Stúlkan í skóginum og fyrir það fær hún að lágmarki rúmlega þrjár miiljónir króna, en líklega er hún þó með yfir fjórar milljónir í tekjur. Þorsteinn Jónsson flugkappi ætti einnig að eiga fyrir salti í grautinn eftir þessi jól. Hann ritaði sjálfur endur- minningar sínar, Dansað í háloft- unum, og gekk á milli forlaga og lét þau bjóða í sögu sína, en hann sem og flestir aðrir voru fullvissir að hún myndi seljast vel. Því má ætla að hann hafi ekki sætt sig við lágmarkssamning, en talið er að um 5 þúsund bækur hafi selst. Því er ekki fjarri lagi að ætla að Þor- steinn hafi haft sem nemur 3,5 milljónum upp úr krafsinu. Svip- að má segja um Einar Kárason en bók hans Heimskra manna ráð fór í 5700 eintökum, samkvæmt fréttum Stöðvar 2, og því hefur hann fengið lágmark 3 milljónir króna. Líklegt er þó að Einar sé á hærri hlut en lágmarkssamningar gera ráð fyrir, enda sjálfúr fyrrver- andi formaður Rithöfundasam- bandsins AÐEINS TÓLF VAR BOÐIÐ Nýafstaðnir styrktartónleikar Barnaheilla, með Kristjáni Jóhannssyni og Sinfóníu- hljómsveit íslands þóttust takast með eindæmum vel. Jóla- tónleikanefnd Barnaheilla sá um framkvæmdina og gætti þess vandlega að halda fjölda boðsmiða í lágmarki, en sú hefúr ekki alltaf verið raunin hér á landi þegar um meiriháttar men- ningarviðburði hefur verið að ræða. f þetta sinn fengu því aðeins tólf gestir boðsmiða og voru það helstu fyrirmenni landsins, svo sem forseti, forsætisráðherra, félagsmálaráðherra og biskup og þeirra makar. Aðrir tónleikagestir, sem voru tæplega eitt þúsund, urðu að reiða fram þrjú þúsund krónur fyrir miðann og voru heildartekjur af tónleikunum því tæplega þrjár milljónir króna. Að frádregnum kostnaði er Ijóst að Verið í púðrinu frá 1938 f Garðabænum býr Þórarinn Símonarson sem hefúr þá sérstæðu atvinnu, ásamt fjölskyldu, að fram- leiða flugelda og blys fyrir gamlárs- kvöld. Hann lærði til verka í Kaup- mannahöfn árið 1958 hjá Hoff- mann nokkrum sem sá um flugelda fyrir Tívolí. „Ég kom heim um haust og fyrstu flugeldarnir fóru á markað um áramótin 1958 til 1959. Síðan þá hef ég aukið við mig smátt og smátt og nú þrælar fjölskyldan allt árið. Reyndar bjó ég til púður í fýrsta sinn 1938 eftir þríliða dæmi úr reikningsbók og framleiddi kín- verja frá 1944 til 1948.“ Þegar heim frá Danmörku kom var fátt um fína drætti á flugelda- markaðnum, aðeins til skiparakett- ur. Þórarinn seldi því alla framleiðslu sína og iðu- lega stóð hann uppi á gamlárskvöld án þess að eiga svosem eins og eina rakettu fyrir sjálfan sig. „Það kom ekki að sök. Mér fannst það bara notalegt að ganga upp á Garðarholtið og sjá allt það sem aðrir voru að skjóta upp.“ Allt frá því hjálparsveitirnar hófu að selja flugelda um 1970 hefúr Þórarinn komið framleiðslu sinni til þeirra og segir hann það ganga alvega prýðilega. Vitað er að starfmu fylgir áhætta en Þórarinn segir engin óhöpp hafi átt sér stað fram að þessu. „Þetta er vissulega hættuiegt og því mikilvægt að fara ná- kværrrlega eftir bókinni, allra síst á að gera tilraun- ir.“ hagnaðurinn verður aldrei undir 2,5 milljónum króna. En honum á að verja í rannsóknir á stöðu barna í þjóðfélaginu svo og í kynningu á barnasáttmála Sam- einuðu þjóðanna. Þess má loks geta að Kristján Jóhannsson bauð nánustu aðstandendum sínum á tónleikana og greiddi fullt verð fyrir hvern miða. ÆVIÁGRIP ÁRNA JOHNSEN í BUNDNU MÁLI Þótt Ámi Johnsen sé ef til viU ekki ýkja hátt skrifaður sem þingmaður tókst honurn bærUega upp á jólabókamarkaðnum með bók sína „Enn hlær þingheimur". Af efni bókarinnar að dæma virðist þingmaðurinn Árni vera vinsælasta viðfangsefni þeirra manna sem eiga vísur í bók hans. Þegar molahöfundur hafði flett rúmum þriðjungi bókarinnar (og þá gefist upp) taldist honum til að Árni væri yrkisefnið í 11 vísum, en í næstu sætum komu Davíð Oddsson forsætisráðherra og Salóme Þorkelsdóttir forseti Alþingis með 4 vísur hvort. Árni ber því höfúð yfir herðar annarra í bók Árna. Ekki einu sinni rnest áberandi höfðingjar íslenskra stjórnmála komast með tærnar þar sem Árni hefúr hælana. Virð- ist sem menn komist ekki hjá því að yrkja um Árna þegar sést til hans. Um leið leUcur enginn vafi á hver er uppáhalds vísnahöfundur Árna, því á þessum rúmlega þriðj- ungi bókarinnar átti séra Hjálmar Jónsson, varaþingmaður sjálfstæðismanna, 20 vísur. Næstu menn voru Sighvatur Björgvinsson með 9 og Árni nokkur Johnsen með 6. IBM-FORSTJÓRINN ÆTLAR Á '68-BALLIÐ Nokkur síðustu ár hefur það tíðkast um hver áramót að hin svonefnda ’68-kynslóð haldi ball. Að þessu sinni eru tímamót í ball- haldinu í tvennum skilningi. Annars vegar hefúr hópurinn flutt sig úr Þjóðleikhúskjallaranum yfir í Hótel Sögu. Hins vegar á að reyna að þvo ofurlítið af vinstri- stimpli þeim sem verið hefur á hópnum og hafa boð því verið látin út ganga um að hægrisinnar séu velkomnir. Við heyrum að tekist hafi að lokka að minnsta kosti einn þekktan hægrimann á ballið - hinn 48 ára hag- og kerfis- fræðing Gunnar M. Hansson, forstjóra IBM á íslandi. Árið 1968 var Gunnar hagfræðistúdent við Háskóla íslands og er ekki vitað til þess að hann hafi boðað blómabyltingu, verandi að auki tengdasonur kaupsýslumannsins Jóns Loftssonar. Én Gunnar er samt af téðri kynslóð og ætlar að djamma með blómabörnunum hvað sem tautar og raular. GUNNAR J. BIRGISSON ætlaði að spara með því að leggja niður SVK. Borgar 60 milijónir í stað 38 milljó- na. KRISTJÁN JÓHANNSSON bauð aðstandendum sínum á tónleika með sjálfum sér og greiddi fullt verð fyrir miðana. ÁRNIJOHNSEN er aðalpersónan í bók Árna Johnsen um hláturssköllin á Alþingi. GUNNAR M. HANSSON, forstjóri IBM á Islandi, er módel '44 og ætlar á árshátíð '68-kynslóðarinnar á nýárskvöld. U M M Æ L I VIKUNNAR „Nú þegar viðförum heim ogsetjumst að eigin steikum hljótum við aðfyrirverða okkurfyrir að geta ekki hindrað að þetta gerist og ég vona að þetta verði í síðasta sinn sem viðförum meðþessa ábyrgð í jólafrí. “ | GUÐRÚN HELGADÓTTIR ÞINGKONA Þá myndi maður líka tapa heyrninni „Þið segið að ég sé í upp- sveiflu. En það er einfald- lega af því að þið hafið ekki nennt að fýlgjast með mér.“ Kristján Jóhannsson stórsöngvari Spuming árslns „Ég veit ekki til þess að nokkurt samkomulag hafi verið svikið, ég veit ekki til þess. Þetta er nokkuð merkilegt og ef svo er, hvers vegna voru þeir þá að gera samkomulag ef þeir telja að það hafi verið svikið?" Ólafur Þ. Þórðarson maelskusnillingur Rólegast er þó hjá Guði „Jólahátíðin er ekki annasamur tími fýr- ir biskup en hún var geipilega annasam- ur tími á meðan ég var sóknarprestur." Ólafur Skúlason biskup SMs&upnJól „Jólahátíðin hefúr alltaf verið óhemjudýrmæt fýrir mig persónulega." Ólafur Skúlason biskup / skötulíki „En mikið þykir mér skata vond. í fýrsta lagi er lyktin skelfileg og í öðru lagi er bragðið hræðilegt." Einar Oddur Kristjánsson fyrrverandi bjargvættur Samb/æmt bráðabirgðatölum Hagstofurmar fækkaði íbóum Vestfjarða umT/lá áratugnum 19&2 til 1992 eða að meðattali um 77,1 á árí. Með sama áframhaldi fíytur síðasti Vestfirðingurínr burt eftir 125 ár eða ídes- ember 2117. bað er hins vegar mun styttra í að síðasti Suðureyringurinn flytji. Frá síðasta árí hefur peim fækk- að um 30 og eru nú 322. Þvf líða ekki nema tæp ellefu ár partil mannlaust verðurá Suðureyri eða um haustið 2003. Sandgerðingum fjölgaði hins veqar um 63 í 1.252 á árinu og með sama áframhaldi verða peir orðnir 15.750pegar síðasti Vestfirðingurinn pakkar saman oq ekur í gegnum jarðgöngin í suðurátt.

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.