Pressan - 30.12.1992, Blaðsíða 12
12
MIÐVIKUDAGUR PRESSAN 30. DESEMBER 1992
1
JANÚAR
„Þetta er slæmt mál fyrir mig
en ég gef heimsmeistaratitilinn
aldrei ífá mér.“
Hjalti Úrsus kraftakarl.
„Ég tel Flugleiðir hafa sett
Veröld stólinn fyrir dyrnar.“
Svavar Egilsson fyrrverandi ferða-
málafrömuður.
„Það er ekki hægt að hafa
menn ánægða þegar þeir vilja
vera óánægðir.“
Ragnar Halldórsson álskalli.
„Við lánum ekki gegn
eindregnum andmælum
og ráðleggingum.“
Sverrir Hermannsson bankastjóri.
„Þessi samningur þýðir að
verksmiðjan er kolsprungin
áður en hún fer af stað.“
Þórhallur Gunnlaugsson vatnsberi.
FEBRÚAR
„Skoðanir mínar í gegnum árin
hafa mótast af því að mér
finnst Þjóðviljinn vera reiður,
skapvondur, ósanngjarn, ein-
sýnn, lyginn og forstokkaður."
Jónas Kristjánsson ritstjóri.
„DV er óumdeilanlega mem-
aðarlítill afþreyingarmiðill sem
skiptir engu máli í vitrænni
þjóðmálaumræðu.“
Gunnar Steinn Pálsson þá tilvonandi
blaðaútgefandi.
„Við munum biðja Guð að
hreinsa þessa óværu af landinu
sem allra fyrst og hjálpa þess-
um vesalingum á Akranesi,
sem eru að kalla þetta yfir sjálfa
sig og æskulýðinn þar.“
Gunnar Þorsteinsson hjá Krossinum.
„Það var jafnvel til listastefna,
sem kallaðist „excremental-
ismi“, sem er einskonar úr-
gangsstefna, og gekk út á að ota
að fólki því sem fæstu fólki
kemurvið.“
Thor Vilhjálmsson rithöfundur.
„Það fraus undir skíðunum og
því varð ég að hætta.“
Haukur Eiríksson ólympíufari.
„Ég fæ ekkert óskaplega mik-
inn stuðning."
Sighvatur Björgvinsson
niðurskurðarhnífur.
„Þetta sýnir skítlegt eðli forsæt-
isráðherra.“
Ólafur Ragnar Grlmsson, auglýsinga-
fulltrúi og alþingismaður.
„Ég æda ekki að ræða orðbragð
Ólafs Ragnars, þar er um upp-
eldisvandamál hans að ræða.“
Davíð Oddsson Viðeyjarkóngur.
„Bersýnilega þykir mönnum ég
liggja nokkuð vel við höggum,
kominn til starfans eins og
fjandinn úr sauðarleggnum, of-
an úr afdölum, með mosann í
skegginu, skítinn á rnilli tánna
og fomyrðarunur á reiðum
höndum en snarruglaður hér í
óskiljanlegu völundarhúsi
heimsborgarinnar miklu við
sundin blá; viðundur utan úr
eyðimörkum og hafði aldrei
séð ffaman í ókunnugan mann
fyrr en í októberbyrjun í haust,
er ég lyppaðist inn í útvarps-
húsið og sjónvarpshúsið; líkt
og draugur!"
Heimir Steinsson utvarpsstjóri.
„Það var ekki laust við að mað-
ur öskraði af ánægju og stigi
svo stríðsdans er útnefningin
var tilkynnt.“
FriðrikÞór Friðriksson
kvikmyndajöfur.
Bókmenntaannáll ársins 1992
ÞAÐ BESTA
AFARGOTT
Og það besta er að það skiptir máli
Það sem helst vekur athygli í
sambandi við jólabækur ársins
1992 er að þrír rithöfunda okkar
sendu ffá sér skáldsögur sem em
ótvírætt þær bestu sem þeir hafa
samið. Einnig telst til tíðinda
hversu margar prýðilegar ljóða-
bækur eru nú á markaði. Þeir sem
héldu því fram í fjölmiðlum nú
fyrir jól að þetta væri ár ljóðsins
virðast hafa nokkuð til síns máls
þótt sannleikurinn sé ekki allur
þeirra megin; það fáa sem vel var
gert í skáldsagnadeildinni var
ffamúrskarandi.
Mér telst til að tólf frumsamdar
íslenskar skáldsögur hafi komið
út fyrir þessi jól Það er erfitt að sjá
hvaða erindi meginþorri þeirra
átti á markað, svo áberandi slakar
em þær. En þrjár skáldsögur báru
af öðrum þetta árið, bækur Einars
Kárasonar, Ólafs Gunnarssonar
og Vigdísar Grímsdóttur. Allar
bera þær vott um metnað höf-
unda, mikla vinnu og yfirlegu og í
þeim má sjá áberandi ffamför frá
fyrri verkum. Þær ffamfarir koma
ekki hvað síst fram í stílnum. Allir
þessir höfúndar skrifa nú betur en
þeir hafa áður gert.
ungum og geti því ekki skipt máli í
íslenskri bókmenntasögu. Þetta er
vitaskuld hin argasta firra. Það
stoðar lítt að setja fram innantóm-
ar kröfur um sífelldar nýjungar
nýjunganna einna vegna. Það er á
engan hátt sjálfgefið að samasem-
merki sé milli nýjunga og fram-
fara. Víst er að fljótlega yrði ólíft af
illgresi í garði íslensks skáldskapar
ef allir höfundar fengust við stans-
lausa tilraunarækt. Og ef einhverj-
ir taka orðin sem afturhaldshjal
verða þeir hinir sömu að eiga það
við sig.
En tveir ungir höfundar eiga
skilið hrós fyrir vel gerðar tilraun-
ir í prósaskáldskap þetta árið. Það
eru Kristín Ómarsdóttir og Þor-
valdur Þorsteinsson. Fyrsta skáld-
saga Kristínar, Svartir brúðarkjól-
ar, var ekki langt ffá því að takast
mjög vel. Það hefði þurft mark-
vissa ritstýringu, sem forlag skáld-
konunnar hefði auðveldlega getað
veitt henni. Þorvaldur Þorsteins-
son gerði margt afar vel í verki
sínu Engill meðal áhorfenda, sem
er ekki ólíkt verki Kristínar, stend-
ur á mörkum leikritunar og smá-
sagnagerðar. Eftir þessa vertíð er
Tveir ungir og með frumleg verk: Kristfn Ómarsdóttir og Þorvaldur
Þorsteinsson.
Ólafur Gunnarsson vann stór-
sigur á rithöfundarferli sínum
með skáldsögu sinni Tröllakirkju
sem hann vann að í fimm ár og er
örugglega metnaðarfyllsta skáld-
saga sem hér hefur komið út síð-
ustu árin. f henni má finna það
afturhvarf til hefðbundinnar frá-
sagnaraðferðar sem nokkrir bók-
menntafræðingar okkar telja ein-
kenna íslenska skáldsagnagerð
samtímans.
Þetta er einnig einkenni á
Heimskra manna ráðum Einars
Kárasonar. Munurinn á þessum
tveim bókum er hins vegar nokk-
ur. Bók Ólafs einkennist af ofur-
hægri frásagnaraðferð þar sem
minnstu smáatriðum er lýst með-
an Einar leggur kapp á að
skemmta lesandanum með hröð-
um og óvæntum sviðsskiptingum
og staldrar hvergi lengi við. Það er
einkennileg árátta að gera styrk
höfundar að veikleika eins og er
um Einar Kárason sem helst er
skammaður fyrir að eiga auðvelt
með að skemmta lesendum sín-
um. Einnig má heyra nöldur þess
efnis að Tröllakirkja og Heimskra
manna ráð séu of gamaldags
skáldsögur, búi ekki yfir formnýj-
Þorvaldur lfldega mesta efnið sem
fram kom í sögugeiranum.
Vigdís Grímsdóttir útfærði
frumlega hugmynd glæsilega í
Stúlkunni í skóginum, um leið og
hún steig í vænginn við módernis-
mann. Skáldsaga hennar byggir á
ljóðrænni og myndrænni tján-
ingu. Höfundur stokkar sögu-
þráðinn upp í seinni hlutanum og
lætur lesandann um að ráða í
Þrír með sín bestu verk: Einar Kárason, Vigdís Grímsdóttir og Ólafur Gunnarsson.
verkið ogjjað kann að vefjast fyrir
ýmsum. I verkinu tekst að skapa
ákaflega fallegan hugarheim og
aðalpersóna verksins er með betri
persónusköpun þessa árs. Ekki er
vafi á að bókin er besta bók Vig-
dísar. Hún hlaut frábæra dóma
gagnrýnenda og meðal annars
þau ummæli Ingunnar Ásdísar-
dóttur að hugsanlega væri þama á
ferð tímamótaverk í íslenskri
skáldsagnagerð. Ólafur Haralds-
son, nemi í Háskóla íslands, taldi
hins vegar ekki vafa á því að tíma-
mótaverkið væri Tröllakirkja og
sagði í lok eins hressilegasta rit-
dóms þessa árs, í Röskvublaðinu:
„Ólafúr Gunnarson er sá sem ís-
lenskir lesendur hafa beðið eftir.
Hann er bjargvættur íslenskra al-
vörubókmennta." Gagnrýnendur
í nýraunsæisdeildinni sem hér á
árum áður fúlsuðu við verkum
Ólafs hefðu látið segja sér þessi
ummæli þrisvar en þó hvorki trú-
að né tekið mark á.
Ef orðin „eitt metnaðarfyllsta
verk sem komið hefur út lengi“
eru þau orð sem ég vildi sagt hafa
um Tröllakirkju Ölafs Gunnars-
sonar þá eru það orðin sem Jón
Hallur Stefánsson viðhafði um
hinn mjög svo sérstæða ljóðabálk
Zombí eftir Sigfús Bjartmarsson,
og Jón Hallur bætti um betur þeg-
ar hann sagði að bálkurinn ætti
„nokkuð öragglega eftir að verða
eitt af kennileitum nýhafins ára-
tugar.“
Ein athyglisverðasta ljóðabók
ársins, ásamt Zombí, var Klaka-
börnin eftir Lindu Vilhjálmsdótt-
ur, önnur ljóðabók skáldkonunar.
Þetta er hressilegasta ljóðabók
ársins, full af ögrandi og ólgandi
háðskum húmor. Með Klaka-
börnum er Linda Vilhjálmsdóttir
komin í fámennan hóp bestu ljóð-
skálda landsins.
Það er einnig ástæða til að hafa
auga á Jónasi Þorbjamarsyni en
þetta árið sendi hann firá sér aðra
ljóðabók sína, Andartak á jörðu,
og sú er miklu betri en flestir
gagnrýnendur vildu vera láta.
Skáldskapur Jónasar er fullur af
lýrík og tignarlegri öræfakyrrð.
Það er sérstæður og óvenjulegur
tónn í ljóðum hans sem á lítið
skylt við þær meginstefnur sem
hafa ríkt hjá ungum skáldum síð-'
ustu árin.
Ef einhver spyr hvaða megin-
stefnur hafi ríkt hjá ungskáldun-
um undanfarið þá má, án mjög
grófrar einföldunar, draga þær
saman í eina: þá meginstefriu sem
Gyrðir Elíasson hefur mótað og
megnið af ungskáldunum stælt.
Og Gyrðir vék ekki af fyrri braut-
um, hélt áfram að yrkja um
skuggadali sálarlífsms og sendi frá
sér eina af sínum bestu ljóðabók-
um.
Mold í skuggadal, ljóðabók
Gyrðis, var tilnefnd til Islensku
bókmenntaverðlaunanna. Svo var
einnig um Sæfarann sofandi,
ákaflega góða en örh'tið semtekna
ljóðabók Þorsteins frá Hamri.
Vilborg Dagbjartsdóttir sendi frá
sér snotra ljóðabók sem einnig var
tilnefnd til verðlauna, en sú til-
nefning er í hæpnasta lagi. Dóm-
nefúdin kom enn á óvart og sýndi
ótvírætt hugmyndaríki þegar hún
togaði til sín smásagnasafn Böðv-
ars Guðmundssonar sem enginn
gagnrýnandi hafði séð ástæðu til
að lofa. Meðal þess sem skilið var
eftir utan dyra var endurminn-
ingabók Thors Vilhjálmssonar,
örugglega best skrifaða bók árs-
ins, unaðsrík og full af hlýju og
hnyttni. Kannski fannst nefndinni
að best væri að láta nágranna-
þjóðir um að heiðra stílsnillingmn
— og það er vitanlega sjónarmið
út af íyrir sig.
Bækur Vigdísar Grímsdóttur
og Einars Kárasonar komust held-
ur ekki á blað, þrátt fyrir lof gagn-
rýnenda, en röðuðu sér hins vegar
ofarlega á metsölulista. Þar sat
einnig smásagnasafn Þórarins
Eldjáms, gott verk og skemmti-
legt. Það var ljúf tilbreyting að sjá
frambærileg bókmenntaverk á
metsölulista, langt er síðan þau
sáust þar síðast.
Þetta voru að mínu mati betri
bókajól en síðasta ár. Það besta
sem gert var nú í ár er afar góður
skáldskapur. Og það besta skiptir
öllu máli.
Kolbrún Bergþórsdóttir
Þrjú Ijóðaskáld: Þorsteinn frá Hamri, Linda Vilhjálmsdóttir og Gyrðir Elíasson.
Þótt árið 1992 hafi verið
vont fyrir flesta var það fáum
jafnvont og Eyjólfi Konráð
Jónssyni. Hann missti (snó í
gjaldþrot og þaer 400 milljón
króna eignir sem hann taldi
víst að fyndust í búinu komu
aldrei fram. Hann fékk efa-
semdir um EES-samninginn,
var sparkað úr utanríkis-
málanefnd og þá var öllum
nokk sama um þessar efa-
semdir hans. Eftir þessar
hörmungar situr þessi fyrr-
um Nestor ungra sjálfstæðis-
manna (sem gáfu fyrir fáum
árum út úrval verka hans)
eftir sem ótíndur nöldur-
seggur af kaliberi Inga
Björns Albertssonar. Ingi
Björn hefur það hins vegar
fram yfir Eykon að hann er í
boltanum.