Pressan - 30.12.1992, Blaðsíða 13
13
MIÐVIKUDAGUR PRESSAN 30. DESEMBER 1992
^^1 I^I L
Þetta var örugglega ekki uppáhaldsárið hans Davíðs Oddssonar. Þegar hann tók við
stjórnartaumunum árið áður hafði hann reyndar hugboð um að lífið yrði ekki leikur einn,
en hann óraði ekki fyrir þessu. Ríkiskassinn var t steik, en það voru nú kannski engin tíð-
indi. Ingi Björn, sem hafði verið hleyþt inn á listann í nafni sátta, hrækti á hönd hans við
fyrsta tækifæri. Eykon tapaði endanlega áttum. Styrmir var á móti honum í öllum mikil-
vægum málum. Matthías Bjarnason lét eins og það hafi verið hann sem tapaði á lands-
fundinum en ekki Þorsteinn. Meira að segja Eggert Haukdal þorði að ybba gogg í fyrsta
sinn síðan dr. Gunnar dró sig í hlé. Til þess að kóróna allt saman fór Markús Örn síðan að
koma með einhverjar leiðindaathugasemdir. Og þetta eru samherjarnir! Eins og hann
ætti ekki nóg með annan vanda allt frá aflabresti til Ólafs Ragnars Grímssonar. Til þess að
bæta gráu ofan á svart er Albert á leiðinni heim og hótar stjórnmálaafskiptum. Davíð ótt-
ast ekki að Albert vinni gegn sér, þvert á móti: hann hefur það eitt að óttast að Albert
gerist vinur hans og þá fer nú fyrst að næða um hann.
Blaðaskrif ársins?
„Mér er minnistæðast hvað lágkúran er að aukast í íslenskri sorpblaða-
mennsku sem birtist helst í níðskrifum pressunnar almennt og persónu-
legum rógi í nafnlausum pistlum. Þessi skrif eru að mínu viti fyrstu til-
raunir til mannorðsmorðs að yfirlögðu ráði í íslenskri blaðasögu."
ÞAÐ VAR ÞETTA SEM
GERBIST í RAUN OG VERU
• Sólin skein á Reykvíkinga í um það bil
1100 klukkustundir á árinu og er það 170
klukkustundum imdir meðalári. Sólskins-
stundirnar á Akureyri voru hins vegar að-
eins 930, sem þó er nálægt meðaltali.
© 150 þúsund fslendingar lögðu land
undirfót á árinu og eyddi hver um sig að
meðaltali 87 þúsundum króna, en samtals
spreðuðu landsmenn rúmlega 13 milljörð-
um króna í útlöndum.
© 140 þúsund útlendingar komu hingað
til lands og eyddi hver þeirra aðeins 70 þús-
und krónum eða samtals 10 milljörðum
króna.
• Landsmenn drukku um 5,5 milljónir
lítra af bjórá þessu ári. Þó minkaði bjór-
drykkjan á mann úr 22,5 lítrum að meðal-
tali í fyrra niður í 20,75 lítra nú. Sú tala segir
okkurað meðal-Jóninn hafi drukkið sem
nemur 62 bjórflöskum yfirárið. Það er
minnkun frá fyrra ári um sem nemur einni
bjórkippu, en þá drukku landsmenn að
meðaltali 68 bjórflöskur.
• íslendingar greiddu sem svarar 700
milljónum fyrir aðgðngumiða í kvikmynda-
hús. Alls seldust um 1,4 milljónir aðgöngu-
miða og því fór meðal-Jóninn rúmlega
fimm sínnum í bíó á árinu.
að skilja, en það eru þeir sem gengu í
hjónaband frá árinu 1983 til ársloka 1985.
• fjórði hver landsmaður fór á kvikmynd-
ina Ógnareðli, en hún 'sló rúmlega áratugar-
gamalt aðsóknarmet. Rúmlega 60 þúsund
manns litu dýrðina augum.
• Til að sjá þjóðinni fyrir lambakjöti varð
að slátra 560 þúsund kindum. Það sam-
svarar því að hver landsmaður snæði meira
en eina og hálfa rollu með húð og hári, ef
urðun og kjötgjafirtil útlendinga eru frá-
taldar.
• Árið 1992 stigu Alþingmenn 8822 sinn-
um í pontu og liggja eftir þá hvorki fleiri né
færri en rúmlega 5500 blaðsíður í Alþingis-
tíðindum eða sem svarar tæpum 90 síðum
á hvern þingmann.
• Hinn heimakæri meðal-Jón brá á leik
með maka sínum að meðaltali fjórða hvern
dag á árinu sem nú er að líða, en sam-
kvæmt könnunum hafa íslensk pör mök 96
sinnum á ári.
• Seðlabanki íslands brendí peningaseðla
að verðmæti 1850 milljónir króna á síðasta
ári og er það um eitt hundrað milljón krón-
um meira en árið áður.
© Sykur er ódýrari hér á landi en hinum
Norðurlöndunum. Tannskemdir hér á landi
eru líka helmingi algengari en þar.
• Á þessu ári létu íslendingar ofan í sig
rúmar 18 milljónir tonna af kjötmeti sem er
að meðaltali um 70 kíló á mann. Þessu er
svo skolað niður með 52,5 milljónum lítra
af mjólk, sem svarar til þess að hvert
mannsbarn hafi drukkið 200 lítra yfir árið.
• Alls greiddu sig rúmlega 60 þúsund
manns inn á kappleiki 1. deildar íslands-
mótsins í knattspyrnu. Heildaraðgangseyrir
var 36,5 milljónir króna.
• Þjóðin blaðraði í símann í um það bil 20
milljón klukkustundir, eða sem svarartæp-
um tveimur klukkustundum á viku hjá
hverjum landsmanni 10 ára og eldri. Á ári
eru það 93 klukkustundir að meðaltali —
tæpir fjórir sólarhringar.
• Hver íslendingur lætur í sig að meðaltali
um það bil 46 kíló af sykri á ári hverju, ef
einungis er tekið mið af hrásykri sem fluttur
er til landsins. Sé innflutt sælgæti einnig
tekið með í reikninginn fer meðalsykur-
neysla landans talsvert yfir 50 kíló á ári. Það
lætur nærri þyngd eins sementspoka og er
um kíló á viku hverri.
• Sælgætisát landsmanna var yfir 22 kíló
á árinu sem nú er að líða. Þá draitk hver
landsmaður tæplega 150 lítra af gosdrykkj-
um yfir sama tímabil og er það að líkindum
heimsmet. Frændur okkar Svíar drekka til
dæmis aðeins um 46 lítra á ári. Öruggt er
hins vegarað fslendingar eiga heimsmet í
kókdrykkju og 1992 er að öllum líkindum
metsöluár hjá kókverksmiðjunni Vífilfelli.
• Um 4500 börn litu dagsins Ijós á árinu,
þrátt fyrir að um 700 fóstrum væri eytt.
Fæðingar eru þó 2,5 sinnum tíðari hér á
landi en andlát, en um 1800 manns létust á
árinu. Þá voru 30 börn ættleidd og var
■þriðjungur þeirra aferlendu bergi brotinn.
• Nálægt 3000 íslendingar smituðust af
kynsjúkdómum á árinu. Tíðni kynsjúkdóma
er langhæst meðal fólks á aldrinum 15 til
25 ára, en talið er að um 4 af hverjum 100
einstaklingum í þeim aldurshópi smitist á
ári hverju.
• Meðal-Jóninn horfði á sjónvarp í sam-
tals 1130 klukkustundir á árinu. Það sam-
svarar þriggja klukkustunda sjónvarpsglápi
á hverjum degi.
• Það lætur nærri að þúsundasti hver ís-
lendingur hafi sent frá sér skáldverk á árinu,
en alls komu út um 250 frumsamdar skáld-
sögur. Allt í allt voru um 1000 bækur gefnar
út á árinu og standa fslendingar því fyllilega
undir nafni sem bókaþjóð.
• íslendingar drukku um 900 þúsund lítra
af hreinu alkohóli á árinu og var þriðjungur
drykkjunnar íformi bjórneyslu. Að meðal-
tali neytir hver landsmaður tæplega þriggja
og hálfs lítra af hreinum vínanda, en þetta
er þriðja árið í röð sem áfengisneysla
minnkarfrá fyrra ári.
• Alls gengu tæplega 3000 manns í
hjónaband á árinu, en á móti fengu um
1100 lögskilnað. Svo virðist sem hjón sem
gift hafa verið í sex til níu árséu líklegust til
MARS
„Þetta er orðinn farsi og ég gef
mér ekki langan tíma til að út-
kljá þetta mál.“
Sighvatur Björgvinsson
niðurskurðarhnífur.
„Ég kom alveg af fjöllum þegar
ég heyrði þetta í morgun.“
Árni Johnsen atkvæði. .
„Á þeim gífurlegu samdráttar-
og raunar svarnættistímum,
sem hófust með valdatöku rík-
isstjómarinnar okkar og
standa munu svo lengi sem
okkur sýnist, verðið þið að
gjöra svo vel að spara, helvítin
ykkar."
Björn Þ. Guðmundsson
lagaprófessor.
„Við vorum skemmtilegir og
töluðum um málin af viti en
sögðum ekkert nýtt, enda ekk-
ert nýtt undir sólinni."
Einar Oddur Kristjánsson
bjargvættur.
„Ég veit að vinkonur mínar eru
mér sammála um að jafnréttis-
baráttan er ekki síður í þágu
karla en kvenna og að það er
okkur öllum jafnmikið keppi-
kefli að um síðir verði hægt að
segja um íslenska karlmenn að
þar ríði bjartur riddari í sínum
reynsluheimi.“
Guðmundur Ólafsson
hagfræðingur.
„Það er margt prumpið sem
búnaðarforystan hefur gert.“
Gunnar Bjarnason ræktunarmaður.
„Ég er vanur fánaburði á Þing-
völlum.“
Heimir Steinsson útvarpsstjóri.
APRÍL
„Við lögðum upp dæmið í leik-
hléi og ákváðum að gera
ákveðna hluti, þar á meðal fara
út í slagsmál og tapa með
sæmd.“
Þorbergur Aðalsteinsson þjálfari.
„Þetta er ekkert annað en titt-
lingaskítur.“
Eiður Guðnason umhvérfisráöherra.
„Ég var alltaf að fást við aðra
hluti en hinir strákarnir.“
Páll Óskar Hjálmtýsson söngvari.
„Við höfum margoft séð fætur
lengjast, fólk læknast í baki og í
haust sem leið urðum við vitni
að því að stúlka, sem var blind
á öðru auga og sá illa með
hinu, varð alheil á því auga sem
hún sá illa með og fékk svipaða
sjón á því blinda og hafði verið
á verri auganu áður.“
Stefán Ágústsson forstöðumaður
Vegarins.
„Það er alrangt sem sumir hafa
haldið ffam að það sé skylt
samkvæmt lögum að prestar
séu viðstaddir útfarir."
Helgi Sigurðsson
siðmenntaður maður.
„Ég er helmingi eldri en sá
næstelsti í fyrirtækinu."
Jóhannes Jónsson Bónuskóngur.
„Guð einn má vita hvað Lands-
bankinn tapar á gjaldþroti fyr-
irtækisins.“
Sverrir Hermannsson vinur Eykons í
fsnó.
„Nú tala menn um að semja til
18 mánaða um eitthvað sem í
mesta lagi getur orðið núll,
þ.e.a.s. ef guð og gæfan verður
okkur hliðholl.“
Guðmundur J. Guðmundsson
samningamaður.
„Þeir voru einfaldlega betri.“
Alfreð Gíslason þrumufleygur.