Pressan


Pressan - 30.12.1992, Qupperneq 18

Pressan - 30.12.1992, Qupperneq 18
18 MIÐVIKUDAGUR PRESSAN 30. DESEMBER 1992 ANNÁLL 1992 > MAÍ „f vetur hefur verið hagstæð tíð fyrir hænsnfuglana í Alþýðu- bandalagi og Framsókn." Guðmundur Einarsson andfygli. „Við erum færri en aðrir, þess vegna er torveldara fyrir okkur að fá útlendinga að taka tillit til okkar.“ Páll Pétursson frá Höllustöðum. „Þáttur í ráðgjafarvinnu Önnu er að þefa af fólkinu sem hún er að vinna með til að komast að raun um hvort það angi af svitalykt, táfylu eða andremmu og síðan vinnur hún á viðkom- andi þáttum með fólkinu ef vandamálin eru til staðar.“ Anna M. Gunnarsdóttir lita-og fatastílista. „Myndin afkarlinum með tippið og allt umstangið með hana er sennilega einhver menningarlegasta umíjöllun um Ráðhús Reykjavíkur sem ffarn hefur farið til þessa.“ Oddur Ólafsson. „Sem gamall maður getur hann þá sagt fræknar sögur af sér sem hlýðnum fótgönguliða í her Davíðs Oddssonar og hetjulegri baráttu sinni við lata (og efnalitla) námsmenn. Væntanlega verður hann þá í leiðinni að útskýra fyrir bless- uðum börnunum hvers vegna hann fékk viðurnefnið Össur „sjötti" Skarphéðinsson." Birgir Hermannsson. „Ekki alltaf. Stundum hefur mér liðið illa.“ össur Skarphéðinsson þingmaður í stjórnarliði. „Við skólasysturnar vorum farnar að ímynda okkur að Kári væri prins í álögum en ég er margoff búin að kyssa hann og ekkert gerist." Dröfn Ösp Snorradóttir svanavinur. JÚNÍ „Ég fer ekki með fullt og ótak- markað umboð til Ríó til að skrifa undir hvað sem er.“ Eiður Guðnason umhverfisvænn ferðalangur. „Mun þá ráða úrslitum að hægt verði að sannfæra bank- ana um að hallarekstri sé lokið og eignir beri arð í samræmi við kostnað en verði annars seldar." Guðjón B. Ólafsson forstjóri SlS. „Við hugsum aldrei um okkur sem þríhyrning.“ Margrét Örnólfsdóttir sykurmoli. „Vonbrigði er það eina sem ég get sagt um dóminn.“ Ármann Reynisson ávaxtari. Nemahvað? „Vatn kemur ekki í stað þorsksins." Davíð Scheving Thorsteinsson. „Það er sjúkt hvernig fólk hér á landi getur búið til sögur.“ Linda Pétursdóttirfegurðardís. „Við höfum ekkert aðhafst þarna sem gæti truflað einn né neinn.“ Hrafn Gunnlaugsson leikstjóri. „Ég vona svo sannarlega að þessi niðurstaða veki þau börn hér heima, sem geisla af al- þjóðaþrá og vilja helst af öllu tína upp brauðmolana af borði EB hvaðan sem þeir falla, til umhugsunar um það sem þarna er að gerast." Steingrímur Hermannsson EB-and- stæðingur. Frá eilítið hallandi sjónarhóli drykkjumannsins var árið 1992 ekki afleitt ár. Að vísu var dýrtíðin söm við sig og því enn grynnra í vösum drykkjumanns PRESS- UNNAR en ella fyrir þær sakir. Á íslandi þýðir hins vegar ekki að láta slíkt ergja sig, maður hellir sér ' bara í annað glas og huggar sig við það að með byltingunni muni þetta allt lagast. Árið byrjaði hreint ágætlega því næturklúbbar spruttu upp eins og gorkúlur í Reykjavík og urðu um tíu talsins þegar hæst bar. Að vísu er orðið „næturklúbbur“ fullhá- tíðlegt um búllur þær, sem opnar voru, en altjent voru þær opnar eftir klukkan þtjú á næturnar og þar var selt áfengi væru fáar. Aftur móti var verðlagn- ingu yfírleitt stillt í hóf og stundum jafn- vel boðið lægra verð en á hinum löglegu stöðum. í þessum rekstri var aðskiljanlegasta fólk, allt frá kvenfas- istunum í Hlað- varpanum og stór- reykingafólki á Lind- argötu til hefðbund- inna veitingamanna á ónefndum stöðum og gleðifíkinna rei- fara á Grettisgötunni. Til allrar óhamingju lognaðist þessi rekst- _. _ .. ° f / Gleðiqandar a Tunqlinu. ur af með vorinu og þrátt fyrir ýmsa tilburði í sumar og haust náði þessi atvinnugrein ekki fyrri reisn. Þrýstingur á hið opinbera um rýmkun á verslunartíma veitinga- húsa jókst nokkuð fyrir vikið, en allt kom fyrir ekki. Þrátt fyrir mjálm í dómsmálaráðuneytinu um að allt stæði þetta til bóta gerðist þar ekkert frekar en fyrri daginn, enda þeir sem þar ráða ríkjum — pólitíkusar jafnt sem skrifflnnar — ekki beinlínis ann- álaðir framkvæmdamenn. Áfengisúrval jókst lítið eitt á ár- inu. Bæði var að Höskuldur og brennivínsfurstarnir í ÁTVR ákváðu að sinna neytendum örlít- ið betur, en ekki síður að einstakir veitingamenn gerðust umsvifa- meiri í sérinnflutningi, ekki síst á eðalvínum. Á hinn bóginn var sú árátta ríkisins að hafa vit fyrir neytendum söm við sig eins og best sást þegar ákveðið var að skipta um bjórsortir einn góðan veðurdag. Áfram einkavæðing! Umrót í bransanum var ffemur lítið þrátt fyrir allt kreppuhjal. Reksturinn á Ingólfskaffi tók nokkrum breytingum, ekki síst eftir að það kviknaði í sjoppunni. Þó ekki jafnmiklum breytingum og Klúbburinn gamli, sem fuðr- aði upp og lagðist endanlega af, engum harmdauði. Heitasti dansstaðurinn er án nokkurs vafa Tunglið, sem er í senn nýtt og vaxandi. Þar er hörkumúsík og ágætlega kryddað skemmtanalíf að kjötúrvalinu ógleymdu. Þeir sem ekki fíla þann dunanda sem ríkir á dansgólfinu, geta leitað ásjár á barnum uppi þar sem er öllu rokkaðri stemning og hrökkvi það ekki til, geta elli- móðir fundið sér hvíld við borðin efst uppi. En þó Tunglið sé góður dans- staður verður það ekki besti bar- inn fyrir vikið. Besti bar ársins er Bíóbarinn, sem hefur óvenju breiðan gestahóp. Hann hýsir líka besta barþjóninn, sem er Friðrik Weisshappel, en hann kann þá list að sörvera drykki viðskiptavin- anna áður en þeir ná að panta, vera með kveikjara á lofti undir hverri ótendraðri sígarettu og kunna suma sérkennilegustu brandara vestrænnar barmenn- ingar. Þá er hann jafnframt eini barþjónninn, sem drykkjumaður PRESSUNNAR hefur komist í tæri við, sem hefur boðið fasta- kúnna það að aka fyrir hann bíln- um heim! Árið 1992 var árið sem ís- lenska þjóðin hætti að elska það að hata Hrafn Gunnlaugsson. Það var ár- ið sem Hvíti víkingurinn var sýndur, fyrst í bíó og síðan í sjónvarpi. Eftir það var Hrafn ekki lengur hættulegur svo það var ástæðulaust að hata hann. Hrafn var heldur ekki ögrandi svo það var enn síður ástæða til að elska hann. Eftir Hvíta víkinginn finnst þjóðinni einfaldlega sárt að finna til með Hrafni Gunnlauassvni. Amma Lú ★★ Glæsilegur staður með meirihátt- ar börum. Tónlistin er hins vegar slöpp og fastagestirnir slappari. APRÍL 9 Lítið spennandi staður, þröngur, dimmur og niðurdrepandi. BÍÓBARINN ★★★★ Besti barinp íbænum. Nóg til af öllum sortum ogþjónustan á barnum einstök. Eini gallinn er sá að hann er vel sóttur af menn- ingar(hálf)vitum. Blúsbarinn ★ Lítill og stundum notalegur, en músíkin er ekkert ffekar blús en annað. BORGARVIRKIÐ © Plastperla reykvísks skemmtana- lífs þar sem kántríið þrífst. Rauð- akrosskassi myndi fullkomna staðinn. Café Amsterdam ★★ Prýðilegur pöbb í hjarta Reykja- víkur, sem einkum er góður á virkum dögum. Það eina sem vantar upp á stemminguna er djúkbox, en trúbadorar og fjöldasöngur koma í staðinn. CAFÉ au LAIT ★★★ Frábært kaffthús, þar sem vín- skápurinn er opnaður kl. sex. Af- ar ljúf og þægileg stemmning, gott kaffi og gott með því. Café Romance ★★★★ Framlenging af veitingastaðnum Óperu, sem er orðinn með betri börum borgarinnar á eigin spýt- Casablanca ★★★★ Prýðilegur dansstaður með sæmilegu áfengisúrvali. Góð músíkoggottfólk. Dansbarinn ★★ Barinn er í lagi, en gestirnir flestir við aldur. Lifandi músík bætir einatt annað upp. DUUS-HÚS ★★ Sæmilegasti bar, en frekar klénn. bænum á sínum tíma, en hefur soldið sett niður að undanfömu. JAZZ ★★★ Þægilegur og vel falinn staður þar sem iðulega er að finna mjög góða lifandi tónlist. Stemmning- in er raffineruð án þess að vera stíf. L.A. Café ★★ Fyrri hluta kvölds er L.A. oftast ágætur bar, en þegar sígur á seinni hlutann vill andinn rjúka út í veður og vind. Sjálfur barinn er hins vegar mjög góður. LEIKHÚSKJALLARINN ★★ Barinn og þjónustan er fyrsta flokks, en staðurinn geldur þess aðallega að fá vonda gesti. Mímisbar © Þrátt fyrir að staðurinn hafi farið í klössun og áfengisúrvalið sé frá- bært eru gestirnir hryllilegt safh alkóhólíseraðra gamalmenna. MOULIN ROUGE ★ Staðurinn er fiekar óspennandi nema maður sé með þeim mun meira hinsegin smekk. N 1 ★★ Frístundabar fýrir þá, sem ekki getað ákveðið sig hvort fara skuli á Bíóbarinn eða 22. Svöl innrétt- ing og svalt lið. Naustkráin ★ Þetta er ágætur staður til þess að skella í sig einum, tveimur bjór- um áður en lengra er haldið, en ekki til þess að gerast þaulsetinn á nema í ástarsorgum. Nillabar © Karaoke er síðasta hálmstrá þessa bars. PÚLSINN ★★ Út af fyrir sig er þetta slæmur bar, en lifandi tónlist megnar þó oft að rífa hann upp. Aðalókost- •urinn em miðaldra djassóféti, sem sækja staðinn stíft Rauða ljónið ★ Þessi sérkennilegi pöbb (sem muna má sinn fifil fegri) væri eins og hver annar hverfispöbb ef ekki kæmi til glerhvolfið fyrir ut- an og ómengað KR-andrúms- loftið. Sjallinn, Akureyri ★★ Ágætur bar, en ekkert voðalega heitur. Stolt Akureyringa erþjóð- saga ein. SÓLON ÍSLANDUS ★★★ Staðurinn ætti fremur að heita Salon Islandaise og er athvarf reykvísku menntaelítunnar. Þrátt fyrir að vínúrval sé ekki mikið, þjónarnir lftið góðir og óþolandi bergmál í steingólfi þrúgi sam- ræður, er staðsetningin frábær og staðurinn sjarmerandi. Tveir vinir og annar í FRÍI ★★★ Ágætur óformlegur bar, þar sem hægt er ná upp dúndrandi stuði. Hefur auk þess þann kost að röð- in er innandyra. tunglið ★★★★ Tvímælalaust besti dansstaður- inn, þrúgaður af kjöti og öðru sælgæti. Urvalið á bamum mætti vera talsvert betra, en er alveg þokkalegt miðað við reykvískan staðal. 22 ★★★ Staðurinn lifir fyrst og fremst á fornri frægð, en það er fremur sjúskað liðið, sem enn Iifir. Rest- in er farin niður á Bíóbar. ÖLKJALLARINN © Á þessum stað gerist aldrei neitt. Grænlenskir sjómenn og aðrir gleðipinnar fjölmenna. FEITI dvergurinn ★ Nafriið er eiginlega það besta við staðinn, sem annars er voða venjulegur. Fógetinn ★★ Húsið var smíðað þegar fslend- ingar voru dvergar, svo maður þarf að bogra í framhlutanum. Barinn gæti verið með meira úr- val og þrátt fyrir þröng er stemmningin ekkert spes. Gaukur á Stöng ★★★★ Elsti og einn allra besti bar í bæn- um. Alltaf fullt og góð stemmn- ing, sem ekki er dregið úr með lifandi tónlist. Glaumbar ★★★ Skemmtilega amerískur bar með Vidda í aðalhlutverki. Allar teg- undir á staðnum plús MTV. Hvað vill maður fleira? Mikið af háskólakrökkum að eyða náms- lánum. Hard Rock Café ★★★ Á mörkunum að teljast bar, en það er alveg hægt að smeygja sér á hann og sniðganga ffönskum- ar. Barinn er flottur og með margar sortir, en krakkarnir eru rnjög missnjallir barþjónar. Samt er alltaf góður fílingur á svæðinu. Hótel Egilsbúð ★★ Barinn er svo sem ekkert sérstak- ur en stemmningin getur orðið einstök, jafnvel svo að allt ætlar úr (axla)böndum. Hótel Ísland ★★★ Þessi staður gæti verið hundrað sinnum betri en hann er, en hann er bara eins og íburðarmik- il sjoppa. Barirnir eru hins vegar ágætir. Hressó ★★★ Hressingarskálinn hefur gengið upp og ofan í tímans rás, en stendur fyrir sínu þó ekki væri nema vegna staðsetningarinnar. I NGÓLFSCAFÉ ★★★ Þetta var heitasti staðurinn í Friðrik Weisshappel á Bíóbarnum

x

Pressan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.