Pressan - 30.12.1992, Síða 22

Pressan - 30.12.1992, Síða 22
22 MIÐVIKUDAGUR PRESSAN 30. DESEMBER 1992 A. N N /V LL 1 9921 JÚLÍ „Ég trúi því staðfastlega að ráðuneytið eigi ekki að vera með puttana í hlutum sem aðr- ir geta gert jafnvel eða betur Ólafur G. Einarsson menntamálaráðherra. Ég er glaður og þakklátur þegar áfengisneysla minnkar, hverju sem það er nú að þakka — en ekki kenna.“ Séra Björn Jónsson templaraprestur á Akranesi. „Strákarnir í Kjaradómi fund- ust nefnilega í laxveiði og voru svo elskulegir að taka sér ör- stutt hlé til að hittast yfir sæta- brauði og snittum til að af- greiða síðustu pöntunina frá ríkisstjórninni." Rökstólar Alþýðublaðsins. „Ég hef aldrei tekið KGB alvar- lega: Sú stofnun ruglaði okkur Ragnhildi Helgadóttur saman í mörg ár. Ég fékk alltaf send sovésk kvennatímarit merkt Ragnhildi Helgadóttur.“ Guðrún Helgadóttir þingmaður. „Einhvers staðar verður ruglaði kanturinn að vera og Alþýðu- bandalagið er tilvalið athvarf. Það er hins vegar engin von til þess að Ólafúr Ragnar segi af sér enda er hann hvorki drykk- felldur né skemmtilegur.“ Guðmundur Einarsson fyrrum þingmaður. „Það þarf alíslenska nefnd til að skipa alíslenska nefnd til að fjalla um alíslenska stjórnar- skrá og skyldur alíslensks for- seta alíslenskrar ríkisstjórnar, alíslensks þings og alíslenskra dómstóla. Vafinn er alíslensk- ur.“ Svavar Gestsson stílisti. „Verslunin í landinu er orðin illa farin eins og gleðikona á göngugötu. Það væri betra fyrir mig að sópa Laugaveginn og fá áhyggjulaus laun frá borgar- stjóra...“ Hjördís Gissurardóttir fyrrum verslunareigandi. „Þetta er hagfræði sem kennd er við Múnchhausen sem gat hafið sig upp á hárinu en það er ekki hægt í íslensku efna- hagslífi." Davíð Oddsson forsætisráðherra andmælandi Þorsteins. „Það eru raunar nokkrir prest- ar sem héldu því fram, í kjölfar fyrri úrskurðar Kjaradóms, að það opnaðist hætta á að við yrðum daufari á neyðina í þjóðfélaginu; að við yrðum svo mikill launaaðall." Geir Waage formaður Prestafélags- ins. ÁGÚST „Bili uggarnir líst mér illa á málið.“ Jón Eyjólfsson sjóveikur skipstjóri á Herjólfi. „Ég er ánægður hvernig Eyjólf- ur Konráð tekur þessu og er þakklátur fyrir það.“ Davíð Oddsson sparkari. „Ég hygg að þessi aðför gegn mér sé runnin undan riQum Jóns Baldvins og að Davíð hafi þó axlað þá byrði fúllkomn- •ega.“ Eyjólfur Konráð Jónsson gullleitar- maður. „Þetta er djöflatrúar og maður á ekki til eitt einasta orð.“ Sævar Reynisson gjaldkeri sóknar- nefndar í Keflavík. íslenskur popp- og rokkannáll ársins 1992 flr endurvinnslunnar Árið sem nú er að líða verður seint talið til merkilegustu ára rokksögunnar. Það hefur ekkert gerst á því sem markar tímamót eða gefur í skyn að einhvers nýs sé að vænta. Billegastu ummæli um árið væri að kalla það „Ár fjöl- breytninnar“, því vissulega var rokkið fjölbreytt í óendanlega mörgum tuggum sínum. Kannski er „Ár endurvinnslunnar" þó ná- kvæmari eftirmæli því rokk ársins einkenndist af sífelldum upphit- unum á gömlu efni. Gamalt efni varð líka vinsælt á ný, Trúbrot gekk aftur á vinsældarlistunum og erlendis hitnaði undir mörgum ellihippanum. „Ár suðrænu sveifl- unnar" mætti einnig smyrja á ár- ið, því Júpiters, Bubbi, Orgill og jafnvel Gildran sóttu suður í leit að sól og misjafnlega sterkum áhrifum. Það fást yfirleitt loðin og fá svör þegar poppfræðingar úti í bæ eru spurðir eftir hverju þeir muni helst af rokki og poppi ársins. Helst eru nefndar plötur Bubba og Megasar, og af erlendum plötum eru þær sem komu út 1991 oftast nefndar. Þannig eru plötur Nir- vana, Red Hot Chili Peppers, Met- allica og Guns ’n’ Roses títtnefnd- ar og sannar það að 1992 hafi ver- ið frekar viðburðarlítið ár. Þessar hljómsveitir voru hátt á vinsæld- arlistunum allt árið og íslensk bönd sóttu áhrif frá þeim. AÐ SLÁI' GEGN ERLENDIS Árið var ár Sykurmolanna sem hættu ekki eins og margir spáðu. Þriðja platan þeirra, Síick around forjoy kom út í byrjun ársins og gerði það ágætt; lagið „Hit“ komst í 17. sæti enska vinsældalistans, og jafnaði um leið met Mezz- óforte. I beinu framhaldi fóru Molarnir á snöggan túr um Evr- ópu og Ameríku. Um sumarið höfðu sexmenningarnir hægt um sig; Magga og Þór eignuðust barn númer tvö, Björk reifaði, Sigtrygg- ur var Bogomil, og Bragi og Einar Örn drukku koníak. Um haustið hringdu U2 og eftir betl og barn- ing fóru Molarnir með Irunum vinsælu á tónleikaferðalag um Austurströnd Bandaríkjanna. Lengra hefur íslensk sveit ekki náð. Það jafnaðist næstum við að vinna í Júróvisjón þegar Einar Örn stóð á milli Axl Rose í Guns ’n’ Roses og Bono úr U2, og í ljós kom að hann var stærri en þeir báðir. Fyrir jólin kom svo flóð af Sykurmolaefni; bók, myndband og endurblönduð dansplata. Af henni velgdi lagið „Leash called love“ danslistann í Ameríku nú í desember. Kóngurinn í Kúbu taka „Eitt lag enn“ með „Nei eða já“. Erlendu dómnefndirnar voru þó ekki eins glaðar í ár og lagið lenti í sjöunda sæti, sem verður nú samt að teljast ágætt. Það jókst í ár að hljómsveitir flyttu texta á ensku og það bendir til að marga hungri í athygli al- heimsins, sem er eðlilegt. Fáir endast til að kjamsa sviðasultu ís- lenska markaðarins til lengdar. Lengst náðu Deep Jimi & the Zep Creams ffá Keflavík. Mestan part ársins héldu þeir sig á Austur- strönd Bandaríkjanna og spiluðu oft í viku á nálægum knæpum. Plöturisinn Atco gerði samning við bandið og platan Funky Dino- saur kemur út ytra í febrúar og Nýdönsk himnasending Heitasta nýja bandið En fleiri reyndu fyrir sér utan landsteinana: Steinar og P.S. Mús- ík héldu áfram að herja á Skandinavíu og Sálin Bishops), Point Blank (Friðrik Karlsson og félagar) og Todmobile sungu gömul lög ensku. Plöturnar vöktu sáralitla athygli og hljómsveitirnar léku á hálftómum kaffiteríum um Norð- urlöndin. Stjórnin plús Sigrún Eva voru send í Júró og áttu að endur- Megas getur smcelað framan í árið INNLENDAR PLÖTUR ÁRSINS 1. MEGAS - ÞRfR BLÓÐDROPAR Besta plata Megasar síðan hann var Á bleikum náttkjólum. Frábærir text- ar og góð grípandi og mjög fersk lög að megninu til. 2. SILFURTÓNAR - SKÝIN ERU HLÝ Silfurtónar veita nýtt bragðgott vín úr gömlum belg á aldeilis frábærri frumsmíði. 3. NÝ DÖNSK - HIMNASENDING Mjög vel heppnuð plata. I allri eft- iröpuninni er gott að vita af sveit sem gerir það gott með eigin hug- myndum um fullkomna popptón- list. 4. ORGILL - ORGILL Fínt byrjendaverk frá hljómsveit sem hefurfullmótað sinn eigin stíl; vel hrært heimsrokk úr öllum áttum. 5. KOLRASSA KRÓKRIÐANDI - drApa Heimatilbúið stelpurokk. Sjö laga frumsmíði sem gustar af. Næsta plata verður að öllum líkindum meistaraverk. SYKURMOLARNIR - STICK ARO- UND FOR JOY — Molarnir gefa Gróu á leiti einn á kjammann með góðri plötu; þeir eru ekki hættir frek- ar en Stuðmenn! JÚPITERS - TJA TJA — Partýplata ársins, hanastél og bossanóva; skemmtiefni fyrir meðvitaða. JET BLACK JOE - JET BLACK JOE — Efnilegir nýhippar með drjúga rokkplötu. BUBBI - VON — Kóngurinn ferskur frá Kúbu með fjársjóð I formi finnar plötu. KK BAND - BEIN LEIÐ - Feit úrvals blanda valinkunnra rokkhráefna. RÚNAR JÚLlUSSON - RÚNAR OG OTIS — stuðrokk af allra bestu gerð SÁLIN HANS JÓNS MlNS - ÞESSU ÞUNGU HÖGG — Sálin með smellí í breyttu formi. SÓD- ÓMA REYKJAVlK og VEGGFÓÐ- UR — Metsölumyndir ársins voru fullar af góðu poppi og rokki. Á næsta ári koma vonandi út plötur með Pís of keik, H AM og FunkstraKe. gæti gert það gott. Þrjár dauða- rokksveitir sungu á ensku á plöt- unni Apocalypse, Bleeding Volc- ano sungu á ensku á sinni plötu eins og Exizt. Nýdönsk fór til Englands til að taka upp hina mjög svo ágætu Himnasendingu. Þeir höfðu kall- að sig Arctic Orange á údensku en tóku upp nafnið Kind samhliða Englandsferðinni. Sveitinni bauðst að hita upp fyrir ELOII — steingervðum leifum af vinsælu bandi án forsprakkans Jeff Lynn — en fengu ekki atvinnuleyfi. Þeir hyggjast þó sækja á markaðinn ytra á kom- andi ári. Árið var ár Jet Black Joe því þeir voru vafalítið „heitasta" nýja hljómsveit ársins. Þeir gerðu ung- linga geggjaða með roldcinu sínu. Platan þeirra kom skemmtilega á óvart með grípandi og endurunnu sýrurokki. Ensku textarnir ættu að koma sér vel fyrir bandið þegar kýlt verður á umheiminn. Það bar ekki mikið á Síðan skein sól á árinu. Þeir áttu nokkur lög á safnplötum og gáfu út tveggja laga plötu og blað nú í des- ember. Þeir eru þó tilbúnir með nýja plötu sem kemur út snemma á næsta ári í Englandi. Allar þessar sveitir stefna leynt og ljóst að því að „meikaða" í út- löndum. Stóra spurningin er svo hvort þær hafa eitthvað merkilegt að bjóða í öllu framboðinu. Sjaldan hefur úrvalið af er- lendum rokkgestum verið jafn fátæklegt. Það eina virkilega áhugaverða var þegar Tori Amos tróð upp með flygilinn á Hótel Borg. Orgill stóð fyr- ir rokkinnflutningi á frönskum böndum; fyrst komu Dimitri og svo Les Ejectes. Hvorug sveitin var ýkja merkileg. Þrjár gamlar og þreyttar sveitir heiðruðu auk þess landann; Iron Maiden með sitt steingelda þunga- rokk, Jethro Tull með útþynnt flautuhipparokk og Black Sabbath léku sitt sjúskaða frum- dauðarokk fyrir hálf- tómri íþróttaskemmu á Akranesi. Vonandi verð- ur næsta ár gæfulegra að þessu leyti; áhugasamir innflytjendur ættu að leita út fyrir kirkjugarða rokksins í leit að einhverju bitastæðu. BIÓMYNDIR, SUÐRÆN SVEIFLA OG DRAUGAR Seint í mars hófust Músíktil- raunir Tónabæjar og lflct og áður var keppnin fræðandi þver- skurður af því sem er að gerast í bílskúrunum. Mitt í öllu dauða- rokkinu skutu fjórar stelpur frá Keflavík upp kollinum og öðr- um sveitum ref fyrir rass. Kol- rassa Krókríðandi vann með yfir- burðum og hefur síðan slípað og pússað sitt mergjaða heimatil- búna stelpurokk. Platan þeirra sýnir efnilegasta band á sína fyrsta stígi. Fram- haldið ætti að geta orðið frábært. Á árinu áttuðu íslenskir kvikmyndasmiðir sig á hverjir Annaðgott

x

Pressan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.