Pressan - 30.12.1992, Blaðsíða 23
MIÐVIKUDAGUR PRESSAN 30. DESEMBER 1992
23
ANNÁLL 1992
og deilumál ároins
fara aðallega í bíó. Myndirnar
Veggfóður og Sódóma
Reykjavík voru gerðar fyrir
unglinga og því vitaskuld fullar af
poppi. Veggfóður státaði af Pís of
keik með Mána Svavarsson
fremstan í flokki og miklum fjölda
annara poppara. Pís of Keik átti
mörg góð lög á plötunni úr mynd-
inni, og auk þess nokkur á öðrum
safnplötum. I Sódómu kvað við
þyngri tón og hljómsveitin HAM,
og forystusauður sveitarinnar Sig-
urjón Kjartansson, átti rnikið af
tónlist myndarinnar. Einnig var
fönkútibú sveitarinnar,
Funk strasse, áberandi með grúví
fönk. Næsta ár ber með sér mynd-
ina Stuttur frakki sem einnig er
full af tónlist sem tekin var upp .á
Bíótónleikum íjúní.
Árið var ár Sálarinnar. Um
sumarið kom út safnplatan Garg
sem hafði að geyma vinsælustu
slagara sveitarinnar auk þriggja
nýrra sem vöktu óskipta athygli.
Margir voru kallaðir á sveitaballa-
markaðnum um sumarið en að-
eins Sálarmenn útvaldir. Þeir
fylltu skemmur og sali lands-
byggðarinnar helgi eftir helgi á
meðan að aðrir áttu hálflélega
daga. Fyrir jólin kom svo út önnur
plata, Þessi þungu högg, sem
sýndi Sálina í rokkformi sem virk-
aði ekki mjög sannfærandi en
gerði sig þó nokkuð vel.
Hinar árlegu sumarsafnplötur
komu út. Steinar gáfu út Batida-
lög 5 og Skífan gaf út Sólargeisla.
Á plötunum var misjafn sauður
en þó var plata Steina mun betri
að gæðum. Skífan gaf einnig út
safnplötuna lcerave með nokkr-
um reifbílskúrsböndum. Minni-
stæðust er hljómsveitin Ajax með
Þórhall Skúfason innanborðs.
Árið var ár suðrænu sveiflunn-
ar með Bubba Morthens í farar-
broddi með Kúbupoppið sitt.
Bubbi fékk nokkra bestu spilara
Kastrós með sér í dæmið og út-
koman var fín og skilaði góðri
plötusölu. Síðar flutti Bubbi svo
þá kúbversku til landsins og hélt
nokkra tónleika um landið. Að-
sóknin var frekar slæm þrátt fyrir
að spiiiríið væri allt geysiþétt og
skemmtilegt.
Stórsveitin Júpiters hélt böll og
vakti gleði með suðrænum dans-
töktum. Platan þeirra „Tja tja“
innihélt góða spretti og seldist
nokkuð vel. Fyrir jólin kom svo
fýrsta plata Orgils sem blönduðu
suðrænu heimsbíti og avant garde
rokki f góðan graut.
Árið var ár KK sem er búinn að
festa sig í sessi í hugum
músikáhugafólks og plötukaup-
enda. Plata KK Bandsins Bein leið
var rokkað feitmeti sem mikið var
spunnið í.
Árið var ár draugagangsins.
Gamlir hippar gengu aftur. Trú-
brot, Hljómar, og fleiri voru end-
urútgefnir og seldust vel. Pops og
Hljómar risu upp frá dauðum og
héldu lúin sjó. Það mátti þó hafa
gaman af ýmsu; Shady syngur
alltaf jafnvel, það er ódrepandi
rokkhundur í Óttari Felix og Rún-
ar Júf hlýtur að eiga mynd af sjáff-
um sér inní skáp eins og Dorian
Gray, slíkur var æskukrafturinn í
honum. Platan Rúnar og Otis sem
hann gerði með gömlum vini af
vellinum sannar líka vel hver er
stuðkóngur Islands. Þótt margar
hljómsveitir hafi orðið fyrir hipp-
ískum áhrifum voru þó engir jafn-
ákafir í að rifja upp gamalt stuð og
Silfurtónarnir — enda ekki að
Erlendar plötur
ÁRSINS
1.PJHARVEY-DRY
Polly Jane Harvey söngkona og git-
arleikari er efnilegasta rödd rokksins
í dag. Plata sveitarinnar hennar er
magnað byrjendaverk. Nýrokk af
bestu gerð.
2. SUGAR - COPPER BLUE
Bob Mould úr Husker Du með nýtt
frábaert band og pottþétta rokk-
plötu.
3.22 PISTEPIRKKO - BIG LUPU
Finnarnirfrábæru með sína þriðju
og bestu plötu. Því miður að mestu
óþekkt sveit fyrir utan heimalandið,
(sland og Frakkland.
4. SONIC YÖUTH - DIRTY
Hrátt og gott New York-rokk. Ein
besta plata hljómsveitarinnar sem
Nirvana taka mikið af sínu rokki frá.
S. PANTERA - VULGAR DISPLAY
OF POWER
Þungarokk getur líka verið frumlegt
og Pantera var besta sönnun þess á
árinu.
Annað gott
LOU REED - MAGIC AND LOSS -
Persónuleg og hrífandi. REM -
AUTOMATIC FOR THE PEOPLE
- Róleg og djúplæg. NEIL YOUNG
- HARVEST MOON — Gamli mað-
urinn með óbeint framhald af
meistaraverkinu .Harvest"; góð og
værðarleg kántríplata. MORRISSEÝ
- YOUR ARSENAL — Popp af
bestu tegund frá manninum sem
margir voru búnir að afskrifa.
MINISTRY - PSALM 69 — Geðveik
keyrsla út í gegn. BODY COUNT -
BODY COUNT — ICE-T og félagar
með kraftmikið rokk og herskáa
texta. THE BLACK CROWES - THE
SOUTHERN HARMONY AND
MUSICAL COMPANION — Endur-
unnið Suðurríkjarokk; ótrúlega töff
útkoma CHIC - CHIC-ISM Lengi
lifir í gömlum diskóglæðum. PRAX-
IS - TRANSMUTATION — Einn af
betri bassaleikurum aldarinnar,
gamli fönkhundurinn Bootsy Collins
úr Parliament og Funkadelic með
nýtt band og frábæra plötu.
furða hjá sveit sem hefur verið til
síðan 1971. Platan þeirra Skýin
eru hlý var full af sígildu þjóðlaga-
og hipparokki, blönduðu diskói
og megnri nýjungagirni.
Megas er enginn draugur þótt
hann sé af hippakynslóðinni.
Hann hefur endurnýjað sig reglu-
lega og viðað að sér áhrifum líð-
andi stunda. Platan hans Þrír
blóðdropar var að mati þess sem
hér ritar plata ársins; skemmtileg,
frísk og textarnir voru jafnvel
hnyttnari en upp á síðkastið hjá
meistaranum.
Ég spái engu sérstöku um
næsta ár. Það verður eflaust áfram
margt gott gert þótt engar sérstak-
ar blikur séu á lofti um eitthvað
stórfenglegt.
Ég býð gleðilegt rokkár!
Gunnar Hjálmarsson
Dellur
Á íslandi geisaði trúarbragða-
styrjöld árið 1992. Ólafur Skúla-
son biskup þurfti að berjast á
mörgum vígstöðum í einu. Fyrst
skammaði Jafnréttisráð hann fyrir
að hafa verið vondur við Auði
Sveinsdóttur á biskupsstofu.
Síðan þurfti hann að bregða sér til
Keflavíkur og stilla Ólaf Odd
Jónsson sem barðist við púka og
djöfla í Keflavík og aðstoðarprest-
inn að auki. f Kópavogi var barist
hart um Víghól sem reyndist helg-
ur reitur fýrir þá sem vildu sjá út
fyrirbæinn. Eftir að safnaðar-
fundur hafði hafnað byggingar-
staðnum var ákveðið að lækka ris-
ið á kirkjunni og hafa hana neðar í
dalnum sem glöggir menn fundu í
Kópavoginum. í millitíðinni
spratt Gunnar Þorsteinsson
fram og gagnrýndi kirkjuna fyrir
að vera leiðinleg. Lítið blóð var í
kúnni þannig að Gunnar færði
bardagasvæðið út og réðist á Veg-
inn og Bjöm Inga Stefáns-
sonforstöðumann hans. Gunnar
var síðan orðinn svo heitur að í
lokin skammaðist hann út í jóla-
sveinana og um svipað leyti
kviknaði í safnaðarheimili Kross-
ins. Biskupinn fékk síðan að kljást
við Davíð Ósvaldsson sem sagð-
ist jarða landsmenn án niður-
greiðslna. Hann varþvíglaður
þegar loksins komu jól.
ÁGÚSTA SÖNG
FYRIR GUÐMUND
Innilegasta deila ársins kom úr
söngheiminum þegar þau Ágústa
Ágústsdóttir söngkona og Guð-
mundur Jónsson lentu í þrætu
um hin sanna tón. Þau þóttust svo
sannarlega ekki finna hann hjá
hvort öðru en bréfin voru hins
vegar hvert öðru hlýlegra. Síðan
blandaðist Kristinn Sigmunds-
son allt í einu í deiluna en hann
var að leita heimsfrægðar 1 Þýska-
landi. Frú Ágústa taldi hins vegar
best fyrir hann að koma heim,
hefja affur landaffæðikennslu og
þegja sem mest.
Kristinn og Jón
í HUNDANA
Hvað getur einn hundur getið
af sér mörg kærumál? f raun er
erfitt að segja til um það en þeir
Kristinn Hákonarson og Jón
Guðmundsson hafa svo sannar-
lega ákveðið að láta reyna á þetta
atriði og skiptir þá engu þó að
Hæstiréttur sé búinn að feUa dóm
í málinu. Þeir félagar hafa kært
hvor annan svo oft að lögreglan
þurffi að rannsaka það sérstak-
lega. Spenna færðist síðan í málið
þegar Kristinn uppástóð að Jón
hefði miðað á sig byssu. Jón sagð-
ist hins vegar enga byssu eiga en
kærði Kristinn í leiðinni fýrir að
hafa sigað á sig hundi. Deilan er
nú í hnút.
Nuddar Rafn
í RÉTTA ÁTT?
Ef einhver hefur haldið að
nudd væri einfaldur hlutur þá hef-
ur sá hinn sami væntanlega fengið
rétta mynd af málinu eftir deiiu
Rafns Geirdals nýaldarnuddara
við sjúkranuddara. Málið snerist
að sjálfsögðu um það hvort Rafn
nuddaði rétt eða rangt. Hann tók
hins vegar ekkert mark á þessu
heldur bjó til eigin nuddháskóla
sem útskrifar fólk í belg og biðu
svo fremi sem það greiðir skóla-
gjöldin.
ÓHRÆSIS
PRESTURINN
Það var ekki friður í kringum
presta á árinu eins og rækilega
hefur komið ffam. Einn þeirra,
Ragnar Fjalar Lárusson, réðist
með offorsi á friðsamasta hóp ís-
lendinga - - þá sem hafa það sem
íþrótt að drepa dýr merkurinnar.
Það var eins og presturinn gæti
ekki unnt þessum hetjum að
drepa blessaðar skepnunnar í
ff iði. Sem betur fer þá gátu veiði-
mennirnir beitt fleiru en byssunni
og átti Kristinn Helgason korta-
gerðarmaður besta innleggið þeg-
ar hann benti prestinum á að
maðurinn væri í raun ekkert ann-
að vopnað rándýr.
DÝRASTA FERÐIN
SEM EKKI VAR FAR-
IN
Ríóráðstefnan varð ódýrari en
séð varð fýrir. Fyrst var sagt ff á
því að 40 manns ætluðu að um-
hverfast í Ríó en eftir að Eiður
Guðnason hafði verið skammað-
ur ærlega fýrir bruðlið fækkaði í
hópnum. Áð lokum varð ferðin
minnistæðust fyrir það að Stein-
grímur J. Sigfusson fór ekki.
Blupið ofan á hest
Óskiljanlegasta deila allra tíma
er án efa deilan um Blupið. Að
sjálfsögðu er hún eingöngu fyrir
hestamenn enda snýst hún um
það að finna stærðfræðilega form-
úlu fyrir hest. Með hæfilegri nálg-
un er hægt að segja að góður hest-
ur fái 10 en vondur 0. Þetta skilja
hestamennirnir Halldór Gunn-
arsson í Holti, dr. Stefán Aðal-
steinsson og Matthías Ó.
Gestsson.
Lára þagði ekki
í 9 MÁNUÐI
Lára Halla Maack komst í
þrætubókina í fyrra effir deilu við
Sighvat Björgvinsson heilbrigð-
isráðherra. Sighvatur lofaði því að
Halla ætlaði að þegja í níu mánuði
en það stóðst ekki frekar en annað
hjá honum. Halla fann sér hins
vegar Ólaf Ólafsson landlækni til
að þræta við og endaði á því að
kæra hann til siðanefndar lækna.
ÁTTI IVlARGEIR AÐ
ÞAGA UM FlSCHER?
Skáksnillingurinn og rugludall-
urinn Bobby Fischer vaknaði af
dvala á árinu enda illa haldinn af
gráa fiðringnum. Hann fékk millj-
ónir fyrir að tefla við Spasskíj í
boði júgóslavneskra hermangara
og braut viðskiptabann SÞ. Þess
vegna vildi Friðrik Ásmunds-
son Brekkan Italíuvinur að ein-
vígið yrði þagað í hel. Það gat hins
vegar Margeir Pétursson stór-
meistari ómögulega sætt sig við.
Því miður entist Friðrik stutt við á
ritvellinum þannig að deilunni
lauk skjótt.
ÓLI STERKI OG
PÉTUR KJAFTFORI
Það var hins vegar meiri dugur
í þeim Ólafi Sigurgeirssyni lög-
fræðingi og Pétri Péturssyni
lækni sem tókst að halda lífi í
steradeilunni annað árið í röð. í
upphafi snerist hún um lítil eistu í
liflum pungum en nú snýst hún
um heiður og úthald. Þessi deila
gæti lifað fram á næstu öld.
Fólkið sem hvarf...
og aldrei kemur til baka
Fólk kemur og fer og aldrei hraðar en í
huga almennings. Sem er kannski eins
gott, því þjóðarsálin væri vafalaust enn
sturlaðri en hún er alla jafna ef hún gæti
ekki treyst á að gleymskan losaði hana við
alls konar lið, sem neitar að fara af sjálfs-
dáðum.
Ragnar Arnaids er gott
dæmi um mann sem
hvarf á árinu. Allt síðan
hann lét af formanns-
embætti Alþýðubanda-
lagsins hafði hann orðið
æ fyrirferðarminni í
þingsölum, en það var
ekki fyrr en hann for-
framaðist á ný og var kjörinn þingflokks-
formaður að hann hvarf algerlega sjónum
manna.
Velgjörðamaður ótínds
almúgans, Jóhannes í
Bónus, hvarf líka á árinu,
en menn vita þó hvert
hann hvarf. Hann hvarf
inn í aðalkeppinautinn,
Hagkaup.
Sverrir Hermannsson
hvarf endanlega inn í
Landsbankann á árinu og virðist sem
langri yfirlýsingagleði hans sé loks að
linna.
Kraftajötunninn og
hormónaframleiðandinn
Hjalti Úrsus hvarf inn á
vínstúkuna Barokk og
hvarf algerlega, jafnvel
þó svo hann hafi hafið
útgáfu sérstaks mál-
gagns sjálfs sín.
Friðrik Sophusson verð-
ur í framtíðinni aldrei kallaður annað en
„fjármálaráðherrann sem hvarf". Hingað til
hafa fjármálaráðherrar
jafnan verið hötuðustu
menn landsins, en þeir
sem muna eftir Frikka
tala jafnan um hann af
hlýhug, enda er hans
helst minnst sem best
klædda ráðherrans, rámi
menn í hann á annað
borð.
Sjálfsánægði háskóia-
rektorinn fyrrverandi,
Sigmundur Guðbjarnar-
son tók upp fyrri iðju,
sumsé að leita ensíma
dag og nótt. Hins vegar
hefurenginn leitað hans
eða álits hans, nema
kannski
Steingrímur Hermannsson sem hvarf
mörgum sinnum á árinu. Stundum hvarf
hann bara úr þingsal án
þess að nokkur tæki eftir,
einu sinni hvarf hann til
Sri Lanka líkt og Arthur C.
Clarke forðum, en fyrst
og fremst hvarf hann nið-
ur úr gólfinu á flokks-
þingi framsóknarmanna
þegar Halldór Ásgríms-
son sagði fremur berum orðum að Stein-
grímur blaðraði allt of mikið.
Enginn hefur hins vegar
ásakað Jón Helgason
um að tala of mikið eða
bara um að tala yfirleitt.
Samkvæmt símaskrá Al-
þingis er þingforsetinn
fyrrverandi enn á þingi,
en það man enginn eftir
að hafa séð hann eða
Wfý'
T
heyrt.
Vilhjálmur Egilsson ætti
að öllu jöfnu ekki að eiga
við hvarfvanda að stríða,
þar sem hann hefur tvö-
falt hlutverk: annars veg-
ar er maðurinn þingmað-
ur og hins vegar fram-
kvæmdastjóri Verslunar-
ráðs. En þegar fram-
kvæmdastjórinn Vilhjálmur þarf sífellt að
vera rétta þingmanninum Vilhjálmi mót-
mælaskjöl jafna þeir Villarnir hvor annan
út svo þeir hverfa báðir.
Barnabókahöfundurinn
og þingforsetinn fyrrver-
andi, Guðrún Helga-
dóttir er öllum gleymd,
nema ef vera skyldi
iGervasoni sjálfum. Að
* V minnsta kosti veit ekkert
Ibarn hver hún er og á
I þingi heyrir enginn leng-
ur reflexavæl hennar.
Og hver man hvað heil-
brigðisráðherrann a
tarna heitir? Ekki sá sem
þetta skrifar.
Að óreyndu hefðu fáir
trúað því að tröllkarl-inn
Árni Johnsen gæti horfið
með öllu. En hann hvarf
nú samt úr þingsölum með efirminnileg-
asta hættinum, þegar hann hafði öðrum
hnöppum að hneppa en þeim, sem Matthí-
as Bjarnason studdi á fyrir hann.
Karvel Pálmason hefur
reyndar verið að hverfa
um langan tíma, en þeg-
ar hann loks afréð að
koma sér út úr þessu
stússi öllu mundi enginn
hvers vegna það ætti að
koma sér við hvort Kar-
vel væri eða færi.
Rangsýni pulsusalinn Ásgeir Hannes Ei-
ríksson hvarf svo gersamlega á árinu að
hann hvarf meira að segja af Hressingar-
skálanum.
Þórður Friðjónsson byrj-
aði að hverfa fyrir löngu
en færist þó ekki úr stað.
Hann er ennþá forstjóri
Þjóðhagsstofnunar og
efnahagsspár hans eru
hvorki réttari né vitlaus-
ari en áður. Það skiptir þó
engu, því einu áhrif spá-
dóma hans hafa verið þau að þjóðarsátt
hefur orðið um hvarf hans og enginn spyr
neins.