Pressan - 04.03.1993, Blaðsíða 4

Pressan - 04.03.1993, Blaðsíða 4
BARÁTTA V I Ð PERSÓNULAUST KERFI 4 PRESSAN Fimmtudagurinn 4. mars 1993 (BcttifCáltar Sjónvarpið skúbbar Stöð Z „ÍNew York mun öll elítan af Stöð 2, Ingvi, Elín ogSig- mundur ásamtjylgdarliði, hafa verið á staðnum og bjuggust menn því við „grand opening“ í 19.19 á sunnudags- kvöldinu. En þar var litið ann- að að hafa en símaviðtal við Elínu Hirst. Á meðan hálfur Lynghálsinn spókaði sig í New York hringdu þeir hjá ríkinu hins vegar í þarbúandi mann sem fáir höfðu heyrt eða séð áður. Sá hefuraldrei komið nálœgt sjónvarpi en reddaði sér myndatökumönnum í snatri ogskilaði sínu hlutverki með bravúr, með myndum frá heila galleríinu strax á sunnu- dagskvöldinu Haukur L. Hauksson í DV. Ingvi Hrafn Jónsson, frétta- stjóri Stöðvar 2 og Bylgj- unnar: „Því miður áttum við ekki til þær u.þ.b. 300 þúsund krónur, sem það hefði kostað Reykingar bjarga „Swyljan um óhollustu reyk- inga dynurá reykingamönn- umfrá vöggu tilgrafar og rœnirþá allri sálarró til að reykja ífriði ogspekt, af völd- um heilsufríka sem vilja troða lífsskoðunum sínum upp á al- menning. Afleiðingarþessa gœtir nú íjyrirlitningu á reyk- ingamönnum ogfrelsissvipt- ingu ogþeim neitað um að drýgja nautn sína, meira að segja í matar- og kajfisölum, sem er þó bœði stund ogstaður fyrir reykingar. Það er lág- kúruleg svívirða aðgera reyk- ingafólk að úrkastsborgurum jýrir það eitt að reykja tóbak sem erselt af ríkinu á upp- sprengdu verði og þeirjjár- munir notaðir til uppbygging- ar samfélagsins og samfélagið hefur ekki efni á að missa af.“ EinarGuðmundsson í Morgunblaðinu. Helgi Guðbergsson, læknir í Tóbaksvamamefrrd: „Burt- séð frá þeim þjáningum sem reykingamenn skapa sér og öðrum, þá er það misskilning- ur hjá bréfritara að tóbakssala • • • Hundar á vonarvöl „í Hundarœktarfélagi íslands eru 1.030félagsmenn ogárlegt félagsgjald 3.000 krónur á hvem þeirra. Stórhagnaður er afsýningumfélagsins ogokrað á námskeiðagjöldum og út- gáfu œttbókarskírteina. Því œtti að vera um auðuganfé- lagsskap að rœða ef samhengi er á mtíli tekna ogþess sem þarf til að rekafélagið. En þeg- ar spurt er umjjármálastöðu félagsins er sagt að engir pen- ingarséu til Er verið að bruðla meðpeningafélags- tnanna úrþvíaðþeirfmnast ekkir Árni St. Árnason í DV. Guðrún R. Guðjohnsen, for- maður Hundaræktarfélags íslands: „Bréffitari hefur verið okkur að leigja NTSC-tökuvél, klippingu og gervihnattartíma til að senda fréttina ffá New York. Við búum við stífa fjár- hagsáætlun einkafyrirtækis, og höfum úr helmingi minni fjár- munum að spila en fféttastofur RÚV, sem sækja sína fjármuni í vasa skattborgarans með sýslumannstryggðri inn- heimtu. Það er vel að skatt- borgarar voru aflögufærir til að flýta ff éttum af stórsigri Krist- jáns. Frétt okkar á Stöð 2 á mánudagskvöldið, sem „elít- an“ kom með heim í fartesk- inu, var að sjálfsögðu í alla staði til fyrirmyndar.“ ...nnníiip. fær BiörH Guðmundsdóltif Hún virðist vera kom- in með tærnar þar sem Naomi Campbell hefur hælana. Hver veit nema söngkonan barnslega skjóti henni reffyrir rass og endi sem hæst launaða fyr- irsæta heims? skili umtalsverðum fjárfúlgum í ríkiskassann. Því miður er kostnaður þjóðfélagsins af tób- aksreykingum talsvert meiri en ágóðinn. Tóbaksvamamefhd fékk Hagffæðistofnun Háskóla íslands til að gera úttekt á máli þessu á síðasta ári. Niðurstað- an varð sú, að umffamkostn- aður ríkisins vegna tóbaks- reykinga landsmanna væri allt að 700 milljónum á ári.“ með skæting út í HRFI í mörg ár og ef neikvæð blaðaskrif hans hafa ekki snúist um pen- ingamál, þá hefur hann fundið að einhverju öðru. Sannleikur- inn er sá að fjárhagsstaða HRFÍ er alls ekki of góð, eins og kom reyndar fram á síðasta aðal- fundi, og það er félagsmönn- um í lófa lagið að kynna sér þá stöðu mála. Staðreyndin er sú að erfiðlega hefur gengið að innheimta árgjöldin og endur- spegla peningaörðugleikar fé- lagsmanna aðeins ástandið í þjóðfélaginu.“ Jóhanna Guðbrandsdóttir missti son sinn úr hvítblæði fyrirári, eftir langa og erfiða bar- áttu. Glíman við heilbrigðiskerfið reyndist ekki þrautalaus. Jóhanna ákvað að leggja ekki árar í bát, heldur berjast fyrir úrbótum í réttindamálum krabbameinssjúkra bama. uðum við honum að kaupa sér eigin bíl. Hann vildi vera frjáls ferða sinna og geta keyrt einn á milli þegar hann þurfti að fara í lyfjameðferð. Honum fannst hann vera orðinn nógu stór til að standa í þessum ferðalögum einn og vildi að ég væri heima og hugsaði um litlu systur. Þegar hann fékk prófið sótti hann sjálfur um styrk til bílakaupa til Tryggingastofnunar. Kaldhæðni öriaganna réð því að tveimur dögum áður en hann lést barst honum bflastyrkurinn lang- þráði. Hann kom fjóru og hálfu ári of seint.“ Jóhanna segir afgreiðslu bíla- styrksins aðeins vera eitt af ótal- mörgum dæmum um þrösk- ulda og óheyrilegan seinagang í heilbrigðis- og tryggingakerfinu. „Sem annað dæmi má nefha af- greiðslu Tryggingastofnunar á dagpeningum til fjölskyldna krabbameinssjúkra barna sem þurfa að gangast undir aðgerð erlendis. Reglan er sú að dag- peningar greiðast fyrst fimm vikum eftir að farið er út í að- gerð. Þetta kom sér afar illa í Berst áfram fyrir öll hin börnin okkar tiiviki. Við þurftum auð- vitað að nota peningana strax, enda ekki aflögufær eftir allt sem á undan var gengið." Hún segir að víða sé pottur brotinn í heilbrigðis- og trygg- ingakerfmu og aðstoð hins op- inbera við aðstandendur krabbameinssjúkra barna sé hvergi nærri nógu mikil. „Skýrt dæmi um það eru til dæmis um- önnunarbætur, sem foreldrum eru aðeins greiddar fram að 16 ára aldri barnsins. Hver í ósköp- unum getur fullyrt að barnið þitt þurfi ekki á allri þinni hjálp og öllum þínum tíma að halda, enda þótt það sé orðið 16 ára? 1 mínu tilfelli hefðum við fjöl- skyldan aldrei getað látið enda ná saman ef við ættum ekki góða að, bæði ættingja og vini. Styrktarfélag krabbameins- sjúkra barna berst ekki að ástæðulausu fyrir bættum hag veikra barna og fjölskyldna þeirra. Ég missti bamið mitt, en það fær mig ekki til að gefast upp. Ég ætla því að berjast áfram, — fyrir hin börnin.“ Bergljót Friðriksdótti Jóhanna á sæti í stjórn Styrkt- arfélags krabbameinssjúkra barna, sem stofnað var 1991. Hún segir miður góða reynslu sína af heilbrigðis- og trygginga- kerfinu endurspegla það sem fjölskyldur allra íslenskra barna sem veikjast af krabbameini fái að reyna. Aðstoð hins opinbera sé hvergi nærri nægilega mikil. Engar úrbætur séu í sjónmáli í réttindamálum þessara barna, enda þótt þörfin á endurskoðun þeirra mála sé ákaflega brýn. Sonur Jóhönnu, Ólafur Hjört- ur Stefánsson, greindist með hvítblæði í ágúst 1987, þá 14 ára gamall. Jóhanna segir enga leið að lýsa því hvemig fjölskyldunni varð við að fá tíðindin. „Sárs- aukinn var nístandi. Fyrstu mánuðina vorum við heltekin af dofa, það var engu líkara en við værum á lyfjum. öll athygli beindist skyndilega að syni okk- ar sem var orðinn alvarlega veikur og ekkert annað komst að. Þetta bitnaði auðvitað á yngri börnunum tveimur, sem voru allt í einu komin í „auka- hlutverk" á heimilinu. Þau sýndu samt ótrúlega mikinn þroska og dugnað allt þar til yfir lauk. Það var erfiður tími sem fór í hönd og allir lögðust á eitt um að hjálpa Óla. Það kom aldrei neitt annað til greina fyrir mig en hætta að vinna úti, til að geta annast hann.“ Engin aðstoð fra ráðuneytinu Ólafur Hjörtur gekkst undir lyfjameðferð sem stóð í tvö ár. Fyrra árið var hann mikið inni á spítala, en fékk að fara heim á milli eftir því sem aðstæður leyfðu. Seinna árið var hann að mestu leyti í Stykkishólmi, þar sem fjölskyldan er búsett, en þarfhaðist þó stöðugrar umönn- unar og eftirlits. „Þegar lyfja- meðferðinni lauk leið eitt ár þar sem Óli var við ágæta heilsu og við lifðum auðvitað í voninni um að það hefði tekist að kom- ast fyrir sjúkdóminn. 1 septem- ber 1990 kom þó reiðarslagið, er hvítblæðið greindist á ný. Við tók mjög erfið lyfjameðferð sem stóð í hálft ár. Ljóst var að merg- skipti voru nauðsynleg og fór- um við með Óla til Svíþjéðar í mars 1991, ásamt yngri bróður hans sem var merggjafi. Óli var helsjúkur og varnar- kerfi líkamans brostið. Því var lífsnauðsynlegt fyrir hann að vera í sem mestri einangrun á leiðinni á sjúkrahúsið í Stokk- hólmi og mátti hann til dæmis ekki ferðast með lest frá flugvell- inum. Við spurðumst því fyrir um það hjá utanríkisráðuneyt- inu, hvort starfsmenn íslenska sendiráðsins í Svíþjóð gætu að- stoðað okkur og sótt okkur út á völl. Við fengum synjun, á þeirri forsendu að sendiráðið gæti ekki séð af bíl fyrir okkur. Okkur þótti þetta auðvitað súrt í broti. Krabbameinssjúk börn virðast greinilega ekki eiga rétt á sömu aðstoð og hjartasjúklingar, sem fá mikla og góða aðstoð sendi- ráðsins í London og liggur við að þeir séu sóttir inn í flugvél af sendiráðsprestinum." Ólafur Hjörtur dvaldi þrjá mánuði á sjúkrahúsinu í Stokk- hólmi og kom heim í júní 1991. Aðgerðin bar þó ekki tilætlaðan árangur og í október veiktist hann í þriðja sinn. Hann háði harða baráttu fýrir lífi sínu, uns hann andaðist 18. janúar 1992, fjórum og hálfii ári eftir að sjúk- dómurinn uppgötvaðist. Fjölskyldan rak tvo heimili Fjölskylda Ólafs Hjartar heit- ins er sem fyrr segir búsett í Stykkishólmi. Sjúkrahúsvist og lyfjameðferð fór öll fram á Landspítalanum og því voru drengurinn og fjölskylda hans á stöðugum ferðalögum á milli Stykkishólms og Reykjavíkur. „Við höfðum ekki annarra kosta völ en halda heimili á báðum stöðum, enda var annað hvort okkar hjónanna alltaf í bænum með honum. Ástand Óla var líka oft þannig að þótt hann fengi að yfirgefa sjúkrahúsið kom ekki til greina að hann færi vestur. Þetta hafði gífurlega mikinn kostnað í för með sér, fyrir utan það að ég var alveg fr á vinnu. Við fengum greiddan ferða- styrk frá Tryggingastofhun, sem náði til ferða á milli Stykkishólms og Reykjavíkur, en þó aðeins ef Óli var með í ferðinni. Það segir sig sjálft að við hjónin reyndum eftir megni að skiptast á hlut- verkum; maðurinn minn fór suður til Óla og ég vestur til hinna barnanna. Enda þótt þessar ferðir okkar væru nauðsynlegar nutum við engra styrkja ef Óli var ekki með í för. Og það var auðvitað mjög oft.“ iafur Hjörtur Stefánsson Á leið heim frá Svíþjóð að lokinni mergskiptaaðgerð. Fékk bílastyrk tveimur dögum áður en hann lést Þegar Ólafi Hirti var veitt úti- vistarleyfi frá Landspítalanum og hann fékk að fara heim til Stykkishólms var ástand hans oftast þannig að einangrun var nauðsynleg og því útilokað að nota áætlunarbíla. „Þegar Óli veiktist sóttum við um styrk til bifreiðakaupa hjá Trygginga- stofnun, svo hægt væri að kaupa betri bíl, góðan í snjó, enda þurftum við að ferðast á milli í öllum veðrum. Okkur var synj- að, og ekki einu sinni heldur tvisvar, á forsendum sem mér eru ókunnar. Þegar Óli fékk bílprófið hjálp- debet einar jónatansson „Hann er drengur góður og búinn mörgum kostum. Til dæmis lætur hann mikið til sín taka í söngh'finu hér í Bolungarvík, er meðal annars í kirkjukómuni,“ segir Daði Guðmundsson, formaður Verkalýðs- og sjómannafélags Bol- ungarvíkur, sem starfsins vegna hefur tals- vert unnið með Einari. „Einar er mjög vel greindur hæfileikamaður og mikið prúðmenni," segir Einar Oddur Kristjánsson, sem hefur unnið náið með Einari á mörgum vígstöðv- um. „Einar er öndvegisdrengur og heiðarlegur. Oftast hefur mátt treysta honum en éggeri ráð fýrir að erfiðleikarnir undir lokin hjá fýrirtækinu hafi farið illa með hann,“ segir Karvel Pálma- son, fyrrum þingmaður, sem kenndi Einari handavinnu og leikfimi í grunnskólanum á Bolungarvík. „Hann er ákaflega raungóður maður, framsýnn og duglegur. Mér þykir vænt um hversu mikill Bolvíkingur hann er,“ segir Ól- afur Kristjánsson, bæjarstjóri í Bolungarvík og fyrrum píanókennari Einars. Dugnaðarforkur - eða lét hann fyrirtœkið dankaf linarJónatansson var framkvæmdastjóri E0 á Bolungarvík þegarfyrir- tækið var tekið til gjaldþrotaskipta. Það er hugsanlegt að Einar sé siðasti stórgrósserinn i Bolungarvik. kredit ,JÉg held að mesti ókostur Einars sé sá að á hann hlaðast fleiri störf en hann getur með góðu móti sinnt. Hins vegar er það ef til vill ekki honum að kenna, þar sem þetta fylgir því að búa í litlu byggðarlagi eins og Bolung- arvík,w segir Daði Guðmundsson. „Ef Einar hef- ur einhvem ókost þá er það að hann er of mikið prúðmenni," segir Einar Oddur Krist- jánsson. „Einar hefur Uklega látið málefni fýr- irtækisins ganga of langt, látið þau danka of lengi. Það hefði átt að taka á þessum málum fýrr,w segir Karvel Pálmason. „Hann hefur á stundum verið of mikill félagsmálamaður í sér og rekið fyrirtækið sem félagsmálastofn- un á mörgum sviðum. Hann hefði mátt vera mun harðari í viðskiptum,“ segir Ólafur Krist- jánsson. FRÉTTIR Fimmtudagurinn 4. mars 1993 PRESSAN ENSKA ER OKKAR MAL AULIR KENNARAR SKÓLANS ERU SÉRMENNTAÐIR f ENSKUKENNSLU INNRITUN STENDUR YFIR Enskuskólinn VINSÆLUSTU ENSKUNÁMSKEIÐ Á LANDINU • SÍMI 25900 Ð - 3 Þú ræður auðveldlega við að fjárfesta í Ráð hugbúnaði fyrir þitt fyrirtæki. ...og yfir 600 notendur segja að það sé vel þess virði! RÁÐ FJÁRHAGSBÓKHALD, RÁÐ VIDSKIPTAMANNAKERFI, RÁÐ SÖLUKERFI, RÁÐ LAGERKERFI OG RÁÐ LAUNAKERFI ...að auki bjóðum við fjölda sérkerfa t.a.m Búðarkassakerfi, Hótelkerfi, Bflasölukerfi, Myndbandaleigukerfi ofl. \t RÁÐHUGBÚNAÐUR y VÍKURHUGBÚNAÐUR Bæjarhraun 20. Hafnarfirði Sími: 65 48 70 ú J !f " Oddnyt Ólafsdóttir, Edda Sigurbergsdóttir og Ingibjörg Siguröardóttir misstu samtals 34 kg affitu. Líkamsrtekt er nú þeirra lífsstílL og pií nœirð áncegjulegum árcmgri Hefst 6. mars - mæting 5x í viku í leikfimi - fitumælingar og vigtun - fræðsiufundur þátttakendur skila matardagbók og fá - matardagbók umsögn og ráðgjöf um breytt mataræði — ijúffengar mataruppskriftir m. léttu fæði - aðhald og hvatning Skemmtilegir tímar í góöum félagsskap og þú losnar viö óvelkomna fitu og lærir aö tileinka þér nýjan lífsstíl svo aö aukakílóin veröi ekki framar vandamál. Þú færö allar upplýsingar í síma 68 98 68. Verð kr. 9.900,- AGUSTU OG HRAFNS .SKEIFAN 7 108 RÉYKJAVÍK S. 68 98 68 ■k Morgunhópur ★ Daghópur ★ Kvöldhópur ★ Vaktavinnufólk velkomið ★ Barnagæsla PRESSAN J>Ú LEST PRESSUNA MEÐ MORG- UNMATNUM • Áskrifendur fá blaðið í bítið á fimmtudags- morgni, ná að lesa það áður en þeirfara í vinn- una og eru manna best inni í málum í morg- unkaffnu. SIEMENS - — i! —rT nia 1 L-öö I oóáó K 1 : 1 |HM| l&f — C/) —I Með SIEMENS heimilistœkjum verður lífið léttara! Traustir umboðsmenn okkar eru víðs vegar um landið! fio Akranes: Rafþjónusta Sigurdórs, Skagabraut 6. Borgarnes: Glitnir, Fálkakletti 13. Borgarfjörður: Rafstofan Hvítárskála. Hellissandur: Verslunin Blómsturvellir, MunaÖarhóli 25. Grundarfjöröur: Guðni Hallgrímsson, Grundargötu 42. Stykkishólmur: Skipavík, Hafnargötu 7. Búðardalur: Versl. Einars Stefánssonar, Brekkuhvammi 12. ísafjöröur: Póllinn hf., AÖalstræti 9. Blönduós: Hjörleifur Júlíusson, Ennisbraut 1. Sauðárkrókur: Rafsjá hf., Sæmundargötu 1. Siglufjörður: Torgið hf., Aðalgötu 32. Akureyri: Ljósgjafinn, Reynishúsinu, Furuvöllum I • Húsavík: öryggi sf„ Garðarsbraut 18a. • Þórshöfn: Noröurraf, Langholti 3. • Neskaupstaöur: Rafalda hf„ Hafnarbraut 24. • Reyðarfjörður: Rafnet, Búðareyri 31. • Egilsstaöir: Raftækjav. Sveins Guðmunds., Kaupvangi 1. • Breiödalsvík: Rafvöruv. Stefáns N. Stefánss., Asvegi 13. • Höfn í Hornafirði: Kristall, Hafnarbraut 43. • Vestmannaeyjar: Tréverk hf„ Flötum 18. • Hvolsvöllur: Kaupfélag Rangæinga, Austurvegi 4. • Selfoss: Árvirkinn hf„ Eyrarvegi 29. • Garður: Raftækjav. Sigurðar Ingvarssonar, Heiðartúni 2. • Keflavík: Ljósboginn, Hafnargötu 25. O 5 C' œ ÞO 00 00 O O o J3 £ c co gS 0*0 3 <Q |:8 3? i! o S Q Q' 3 PT DÍ =50 3 Ql O

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.