Pressan - 04.03.1993, Blaðsíða 29
KQMIÐ AÐ STRÁKUNUM OKKAR
Fimmtudagurinn 4. mars 1993
PRESSAN 29
]
I
I
1
►
m
Við unnum Dani oq Pólverj.
æfingaleikjum
sjj IJMi) ÍJóJ J jfimjijVJJJ.
uMÐmijJimm v
% I í fs?
Svíar: Hafa óþægilegt
tak á íslendingum
Fyrsti leikur okkar í keppn-
inni er gegn Svíþjóð, núverandi
heimsmeisturum. Svíar hafa
alltaf verið okkur erfiðir og ekki
bætir úr skák að við leikum
opnunarleik keppninnar við þá
ffarnmi fyrir átta þúsund trylít-
um sænskum áhorfendum. Við
höfum aðeins einu sinni sigrað
Svía í heimsmeistarakeppni, í
Bratislava árið 1964.1 hin skipt-
in hafa þeir sigrað okkur með að
jafnaði sex til sjö marka mun.
Þeir hafa því haft tak á okkur og
í augum þeirra erum við ffemur
auðveld bráð.
Svíar eru líklegir til að verja
heimsmeistaratitilinn og Ieika
þar með sama leikinn og árin
1950 og 1954. Þrátt fyrir að þeir
hafi verið sveiflukenndir í æf-
ingaleikjum fyrir keppnina —
gert meðal annars jafntefli við
Austurríki — er engum blöðum
um það að fletta að Svíar hafa
nú á að skipa góðu liði. Innan-
borðs eru margir snjallir leik-
menn, svo sem línumaðurinn
Per Carlén, leikstjórnandinn
Magnus Wislander og mark-
verðirnir Mats Olsson og Tom-
as Svensson. Þá má einnig nefna
Erik Hajas, Magnus Andersson
og Stajfan „Faxa“ Olsson.
Þeir sérfræðingar sem
PRESSAN hafði samband við
telja allir að það sé næstum von-
laust að við leggjum Svíana að
velli.
Ungverjar: Við
bökuðum þá síðast
Annar leikur okkar í keppn-
inni er gegn Ungverjum. Liði
þeirra hefur farið aftur á undan-
förnum árum og fullyrðir Guð-
jón Guðmundsson, fyrrum að-
stoðarþjálfari Bogdans, að Ung-
verjar hafi verið sterkari fyrir
þremur árum en þeir eru nú.
Þrátt fyrir það hafa þeir enn
góðu liði á að skipa. Þar eru
meðal annars leikmenn á borð
við Laszlo Marosi og Gyurka.
Þeir þykja í fremstu röð og því
líklegir til að gera íslenska lands-
liðinu lífið leitt. Ungverjar hafa,
líkt og aðrar Austur-Evrópu-
þjóðir, átt í erfiðleikum með að
manna lið sín, þar sem margir
leikmenn hafa flúið yfir í gullið í
Vestur-Evrópu og eru komnir
með þarlent ríkisfang. Þetta á
sérstaklega við um þá sem leika í
Þýskalandi, en þar má hvert fé-
lag aðeins hafa einn útlending
innanborðs. Austur-evrópskir
leikmenn fá því fljótt þýskan
ríkisborgararétt.
íslendingar verða að sigra
Ungverja ætli þeir sér að ná
langt í keppninni. Okkur hefur
gengið vel gegn þeim síðustu ár,
ekki síst til að Ungverjar leika
hægan og klassískan handknatt-
leik, sem hentar okkur mjög vel.
Vonandi náum við að sýna jafn-
góðan leik gegn Ungverjum og á
Ólympíuleikunum í Barcelona
þar sem þeir náðu aðeins að
skora þrjú mörk í fýrri hálfleik.
Bandaríkjamenn:
Slakir
íslendingar eiga og verða að
sigra Bandaríkjamenn í þriðja
leik sínum í keppninni. Allt ann-
að væri hneyksli. Leikurinn er
þó ekki unninn fyrirffam og má
minna á að íslenska landsliðið
hefur tapað fyrir Bandaríkja-
mönnum í landsleik. Þótt við
eigum að sigra þá með eðlileg-
um leik er rétt að hafa í huga að
Douichebaev, hinn frábæri rússneski miðjumaður, skoraði
10 mörk gegn Islandi á síðustu Ólympíuleikum.
þeir ráða yfir sterkara liði en
Brasilíumenn, en Islendingar
rétt mörðu eins marks sigur á
þeim á síðustu Ólympíuleikum.
Bandarískur handknattleikur
er bundinn við ákveðið svæði í
Colorado Springs, þar sem
íþróttin er iðkuð í nokkrum há-
skólum. Hjá þeim er ekki um
eiginlega deildarkeppni að ræða.
Lið Bandaríkjamanna er frekar
óræð stærð, en þó telja menn að
það sé ekki eins sterkt og lands-
liðið sem þeir höfðu á að skipa á
Ólympíuleikunum í Los Angeles
árið 1984. Þjálfari Bandaríkja-
manna, Votchek Mares, sem
varð heimsmeistari með
Tékkum árið 1966 og lék meðal
annars landsleiki í Höllinni,
þykir mjög fær í sínu fagi og er
talinn hafa náð ótrúlega miklu
út úr bandarískum handbolta.
Rússar: Eigum
möguleika
Erfitt er að spá um hvaða lið í
D-riðli kemst ekki upp í milli-
riðil, þar sem riðillinn virðist
vera afar jafh. Rússar eru þó að
öllum líkindum með besta liðið,
en síðan er spurningin hvort
það verða Kóreumenn, ffændur
okkar Danir eða Þjóðverjar sem
falla út úr keppni.
Liðið ffá Samveldi sjálfstæðra
tfyrir. Frá vinstri Magnus Wislander leikstjórnandi, Per
arlén línumaður og Mats Olsson markvörður.
ríkja varð ólympíumeistari í
Barcelona. Það var að mestu
leyti byggt upp á Rússum og
megum við því búast við að sjá
marga af leikmönnunum sem
þar léku. Þó er ljóst að einhverjir
þeirra detta út, þar sem þeir hafa
ekki rússneskt ríkisfang. Stór-
skyttan Aleksander Tútskíjn er
til dæmis frá Hvíta-Rússlandi.
Hins vegar er á hreinu að leik-
mennirnir Andrei Lavrov
markvörður, Jakimovítsj og
Douichebaev, leikstjórnandi
þeirra, leiki í heimsmeistara-
keppninni.
Rússar hafa leikið mjög vel að
undanförnu í æfingaleikjum.
Þeir unnu okkur og Norðmenn
til dæmis í Lottókeppninni og
þeir hafa einnig unnið Svía. Ekki
er óraunhæft að æda að við get-
um sigrað Rússana þótt sigur-
líkurnar séu þeirra megin.
Þjóðverjar: Nýtt lið
Þýska landsliðið hefur verið í
mikilli lægð undanfarin ár en nú
sér loks fyrir endann á henni.
Þar á bæ hafa menn verið að
byggja upp nýtt lið og hafa
gamlir refir eins og Jochen Fra-
atz, Tomas Hecker og Martin
Schwalb verið settir út úr liðinu.
Vegna þess hve liðið er breytt er
erfitt að meta styrk þess. Af æf-
ingaleikjum má þó sjá að liðið er
sterkt; það sigraði til dæmis
Norðmenn á dögunum með
nokkrum mun um svipað leyti
og Norðmenn unnu okkur.
Islendirtgum hefur gengið
ágætlega gegn Þjóðverjum á
undanförnum árum og við eig-
um góða möguleika gegn þeim í
milfiriðli ef af verður.
Kóreumenn: Snöggir
Mörgum er í fersku minni
þegar íslenska iandsliðið sigraði
það kóreska 26:24 á síðustu
Ólympíuleikum, eftir að hafa
verið fimm mörkum undir þeg-
ar stundarfjórðungur var til
leiksloka. En við munum líka
eftir fyrsta leik landsliðsins í
heimsmeistarakeppninni í Sviss
árið 1986, þegar Kóreumenn
burstuðu okkur með níu marka
mun.
Það er greinilegt að hraður
leikstíll Kóreumanna hentar ís-
lendingum illa. Það er því óvíst
hvort við hefðum þá ef við þyrft-
um að leika gegn þeim í milli-
riðli. Gera má ráð fyrir að þeir
tefli fram svipuðu liði og á
Ólympíuleikunum í Barcelona.
Hins vegar virðist sem Kóreu-
menn búi ekki yfir jafnmiklum
líkamssty'rk og Evrópuþjóðirnar
og því henta þeim illa löng mót
eins og heimsmeistarakeppnin.
í liði Kóreumanna eru margir
frábærir leikmenn og má þar
nefna vinstrihandarskyttuna
Kyung-Shin Youn og hinn eld-
Staffan „Faxi" Olsson verð-
ur með í Sviþjóð.
snögga Cho Chi-Hio. Liðinu
hefur ekki gengið vel í æfinga-
leikjum gegn öðrum landsliðum
nú síðustu daga og má nefna að
það tapaði mjög stórt gegn
Svíum í síðustu viku. Ef við
lendum á móti þeim verður það
í fjórða til sjötta leik liðanna í
keppninni og því eigum við ef til
vill betri sigurmöguleika en ef
við hefðum lent á móti þeim í
fyrsta leik.
Danir: í uppsveiflu
Segja má að Danir séu nú
fyrst að jafna sig eftir stórsigur
Islendinga á þeim í heimsmeist-
arakeppninni í Luzern árið
1986, en þá lögðum við þá að
velli með tíu marka ' mun.
Danskur handknattleikur hefur
verið í uppsveiflu að undan-
förnu eftir langan öldudal og eru
þarlend lið nú í fremstu röð.
Síðasta áratuginn eða svo hef-
ur íslendingum ávallt gengið vel
gegn Dönum og því væri mun
heppilegra fyrir okkur að leika
gegn þeim í milliriðli en til
dæmis Kóreu. f danska liðinu
eru margir góðir leikmenn, þar
á meðal gömlu refimir Michael
Fenger og Erik Veje Rasmussen,
sem báðir hafa leikið langt yfir
200 landsleiki. Þá má einnig
nefna Kim G. Jacobsen, sem lék
í mörg ár á Spáni. Hann er
feiknasterkur leikmaður og rétt
að hafa á honum góðar gætur.
VÍ^I
Kyung-Shin Youn, vinstri-
handarskytta Kóreumanna,
lætur örugglega mikið að
sér kveða.
Eins og flestum er kunnugt
lékum við þrjá leiki hér á landi
við Dani í síðustu viku og sigr-
uðum í tveimur þeirra. Því er
ekki óraunhæft að halda ffam að
íslendingar eigi að geta sigrað
Danina í heimsmeistarakeppn-
inni. Hins vegar er rétt að benda
á að í svona stórmóti sem
heimsmeistarakeppnin er lenda
öll liðin í því að eiga slæma
daga. Spurningin er bara hve-
nær liðið á slæman dag og þá
gegn hverjum._________________
JónasSigurgeirsson
EIGINKONUR, RYKSUGUR 0G ENSKA KNATTSPYRNAN
Hvað er til bragðs þegar konan vill endilega ryksjúga
undir beinu útsendingunum?
Siaurður Baldursson
Sigurður
Baldursson á
fjölda sjón-
varpstækja.
Dreifði sión-
varpstækjum um
íbúðina
„Ég hef orðið að kaupa þrjú
sjónvarpstæki vegna ryksugu-
áráttu konunnar minnar á
meðan enska knattspyrnan er
í sjónvarpinu," segir Sigurður
Baldursson, framkvæmda-
stjóri íslenskra getrauna og
áhugamaður um ensku knatt-
spyrnuna. „Ég hef fundið út
tvær lausinir við þessu vanda-
máli. önnur er sú að dreifa
sjónvarpstækjunum um íbúð-
ina. Þannig er ég með tæki í
stofunni, svefnherberginu og
barnaherberginu. Ég færi mig
svo á milli herbergja til að vera
sem fjærst ryksugunnni, sem
er af Panasonic-gerð og mér
finnst að eigi að fá hauskúpu í
einkunn fýrir hávaðamengun!
Hin leiðin er sú að fara ekki
heim úr vinnunni á laugar-
dögum fyrr en ensku knatt-
spyrnunni lýkur.“
Baldur Þórðarson
„Á skilningsríka
eiginkonu“
„Á mínu heimili er ryksug-
un og pottabraml bannað á
meðan á ensku knattspyrn-
unni stendur,“ segir Baldur
Þórðarson hjá Verðlagsstofn-
un, einn harðasti áhugamaður
um enska knattspyrnu á fs-
landi. „Ég á elskulega og skiln-
ingsríka eiginkonu, sem er frá
Ungverjalandi, mestu knatt-
spyrnuþjóð heims fyrr og síð-
ar, og hún skilur vel afstöðu
mína til þessara mála. Ég get
svo bætt því við að ég gaf kon-
UM HELGINA
FIMMTUDAGURl
4, MARS|
Karfa úrvalsdeild
Keflavík - Breiðablik kl.
20.00. Keflvíkingar eiga vart í
vandræðum með botnlið
Breiðabliks, sem þegar er
fallið úr úrvalsdeildinni.
Handbolti 2. deild karla - <LX.
úrslitakeppni
Grótta-KRkl. 20.00.
Afturelding - Breiðablik kl.
20.00.
LAUGARDAGUR
6. MARS
Handbolti 1. deild kvenna
Stjarnan - Víkingur kl.
16.30
Fram - Valur kl. 15.00.
ÍBV-Fylkirkl. 16.30.
KR-Gróttakl. 16.30.
FH-Selfosskl. 16.30.
Haukar - Ármann kl. 16.30.
Handbolti 2. deild karla -
úrslitakeppni
KR - Breiðablik kl. 18.00.
Keila kl. 11.00. íslandsmóti
karla er framhaldið. Nú eru
48keppendureftir.
SUNNUDAGUR
7. MARS
Körfubolti úrvalsdeild
Valur - Skallagrímur kl.
20.00. Nú líðursenn að
endalokum riðlakeppninn-
ar. Valsmenn eru í harðri
baráttu um að leika í úrslita-
keppninni og fyrir þá er
hvert stig afar mikilvægt. *1
Skallagrímur er hins vegar í
fallbaráttunni, þ.e. ef þeir
verða í næstneðsta sæti úr-
valsdeildarinnar þurfa þeir
að leika gegn næstefsta liði
fyrstu deildar um sæti í úr-
valsdeild.
Keflavík - Haukar kl. 20.00Rrj
Bæði þessi lið eru örugg í úr-
slitakeppnina og því vart
hægt að búast við miklum
átökum í leiknum.
Njarðvík - Breiðablik kl.
20.00. Möguleikar Njarðvík-
inga á að komast í úrslita-
keppnina eru úr sögunni og^y
Breiðablik er fallið í aðra
deild.
KR-Snæfellkl. 20.00. KR-
ingar eru í fallbaráttunni og
verða að sigra Snæfellinga
ætli þeirað komast hjá því
að leika um úrvalsdeildar-
sæti við næstefsta lið fyrstu
deildar. Ef Snæfellingar sigríFÍ
í leiknum eru þeir svo gott
sem búnir að tryggja sér
sæti í úrslitakeppninni.
Handbolti 2. deild karla -
úrslitakeppni
HKN-Aftureldingkl.
20.00.
Grótta-ÍHkl. 20.00.
Keila - íslandsmót karla.
Keilarar keppa um að kom-
astítólfmannaúrslit.
unni minni Kirby-ryksugu í
afmælisgjöf fyrir skömmu og
sé hún stillt á lægstu stilli^|u
heyrist mjög lágt í henni — en
samt nóg til að það trufli mig
við ensku knattspyrnuna.“
Baldur Þórðarson knatt-
spyrnudómari gafkon-
unni Kirby-ryksugu til
öryggis.