Pressan - 04.03.1993, Blaðsíða 24

Pressan - 04.03.1993, Blaðsíða 24
FAGRA R LISTIR 24 PRESSAN Fimmtudagurinn 4. mars 7 993 FIMMTUDAGUR 4. MARS Klassíkin • Sinfóníuhljómsveit ís- lands flytur Haydn-tilbrigði eftir Johannes Brahms, Horn- konsert eftir Jón Ásgeirsson og Sinfóníu nr. 6 eftir Dmitri Sjostakovitsj. Hljómsveitar- stjóri er Japaninn Takua Yu- asa. Einleikari er hornleikar- inn Joseph Ognibene. Há- skólabíó kl. 20. • Hátíðartónleikar Gerðu- bergs haldnir í tilefni tíu ára afmælis Gerðubergs. Flytj- endur verða m.a. Anna Júlí- ana Sveinsdóttir, Bergþór Pálsson, Ólöf Kolbrún Harðar- dóttir, Sigrún Hjálmtýsdóttir, Sigríður Gröndal, Sverrir Guð- jónsson og Jónas Ingimund- arson. Gerðubergkl. 20.30. Leikhúsin • Húsvörðurinn. Það er margt gott í þessari sýningu, en hún er of löng og vantar hraða. Það mætti skera tutt- ugu til þrjátíu mínútur af henni (með ýmsum aðgerð- um), en fyrst og fremst ætti að kippa tempóinu í lag, segir Martin Regal í leikdómi sín- um. (slenska óperan kl. 20. • Dansað á haustvöku. Verk írska leikskáldsins Brians Friel. Leikstjóri er Guðjón P. Peder- sen. Leikendur eru Anna Kristín Arngrímsdóttir, Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, Ólafía Hrönn Jónsdóttir, Ragnheiður Steindórsdóttir, Tinna Gunn- laugsdóttir, Erlingur Gíslason, Kristján Franklín Magnús og Sigurður Skúlason. Þjóðleik- húsið kl. 20. Leikhúsin • Blóðbræður. Væri maður tilneyddur að segja eitthvað yrði það líklega að fáum þeirra sem stóðu að þessari sýningu virðist hafa þótttil- takanlega vænt um verkefni sitt. Það var eins og sýningin væri gerð meira með höfðinu en hjartanu, skrifar Lárus Ýmir Óskarsson í leikdómi. Borgar- leikhúsið kl. 20. • Dansað á haustvöku. Þjóðleikhúsið kl. 20. • Sardasfurstynjan. Kjartan Ragnarsson gerir sitt bestá til að setja upp hressa sýningu, en jafnvel Kjartan getur lítið gert við söngvara sem finnst leiklist aðeins vera uppfylling- arefni, segir Martin Regal í leikdómi sínum. íslenska óper- an kl. 20. LAUGARDAGU R 6. MARS Leikhúsin • Stund gaupunnar. Frum- sýning á verki eftir Per Olov Enquist. I þessari sérstæðu glæpasögu er fjallað um himnaríki og helvíti, sjálfseyð- ingarhvöt og guð. Leikstjóri er Bríet Héðinsdóttir. Leik- endur eru Ingvar E. Sigurðs- son, Guðrún Þ. Stephensen og Lilja Þórisdóttir. Þjóðleik- húsið, litla svið, kl. 20. • My fair lady. Stefán Bald- ursson leikstjóri hefurskilið nauðsyn góðrar útfærslu vel og kostar miklu til. Úrvalsfólk er á hverjum pósti undir styrkri stjórn Stefáns, segir Lárus Ýmir Óskarsson í leik- dómi. Þjóðleikhúsið kl. 20. • Ronja ræningjadóttir. Það er mikill styrkur fyrir sýning- una að svo snjöll leikkona sem Sigrún Edda skuli geta leikið hina tólf ára gömlu Ronju án þess að maður hugsi út í aldursmuninn, segir Lárus Ýmir Óskarsson í leik- dómi. Borgarleikhúsið kl. 14. • Blóðbræður. Borgarleik- húsið kl. 20. • Sardasfurstynjan. íslenska óperan kl. 20. • Bensínstöðin. Hinir verð- andi leikarar stóðu sig vel allir sem einn og kæri ég mig ekki um að tíunda einstök afrek þeirra. Læt mér nægja að mæla með þessari sýningu sem einni af gleðistundum vetrarins í reykvísku leikhúsi, segir Lárus Ýmir Óskarsson í leikdómi. Nemendaleikhúsið. Lindarbœr kl. 20. • Medúsa. Leikdagskrá, byggð á verkum Medúsa- hópsins, sem á rætur að rekja til byrjunar áttunda áratugar- ins og starfaði undir merki súrrealismans. Leikstjórareru Árni Pétur Guðjónsson og Rúnar Guðbrandsson. Gerðu- bergkl. 16. Klassíkin • Björk Jónsdóttir & Svana Víkingsdóttir syngja og leika á píanó. Flutt verða verk eftir Þorkel Sigurbjörnsson, Magn- ús Kristjánsson, Bizet, Chopin, Brahms og Verdi. Listasafn Sigurjóns kl. 17. Klassíkin • Kammerhljómsveit Akur- eyrar heldur Vínartónleika. Stjórnandi er Páll P. Pálsson. Einsöngvarar eru Jón Þor- steinsson og Ólöf Kolbrún Harðardóttir. (þ róttaskemman, Akureyrikl. 17. • Minningartónleikar um dr. Pál ísólfsson ítilefni 100. ártfðar hans verða haldnir á Stokkseyri. Á efnisskrá verða 22 sönglög og þrjú píanóverk eftir dr. Pál. Flytjendur eru Ingibjörg Marteinsdóttirsópr- an, Þorgeir J. Andrésson ten- ór og Lára S. Rafnsdóttir pí- anó. Stokkseyrarkirkja. Leikhúsin • Dýrin í Hálsaskógi. Hlut- verkaskipan er að því leyti sérkennileg að Mikki refur hefði komist tvöfaldur fyrir inni í Lilla klifurmús, svo vitn- að sér í leikdóm Lárusar Ýmis Óskarssonar. Þjóðleikhúsið kl. 14. • Stund gaupunnar. Þjóð- leikhúsið, litla svið, kl. 20. • Hafið. Það er skemmst frá því að segja að áhorfandans bíða mikil átökog líka húmor, skrifaði Lárus Ýmir Óskarsson í leikdómi. Þjóðleikhúsið kl. 20. • Ronja ræningjadóttir. Borgarleikhúsið kl. 14. • Þrusk. Sýning Leynileik- hússins samanstendur af tveimur einræðum og atrið- um úr leikriti Jóhanns Sigur- jónssonar Galdra-Lofti. Að Leynileikhúsinu standa þrír útskrifaðir leikarar, þau Jó- hanna Jónas, Vilhjálmur Hjálmarsson og Ásíds Þór- hallsdóttir. CaféSólon íslandus kl. 20.30. • Húsvörðurinn. Síðasta sýning. íslenska óperan kl. 20. • Bensínstöðin. Nemenda- leikhúsið. Lindarbœrkl. 20. LEIKHÚS Leikararnir góðir en verkið brást DANSAÐ Á HAUSTVÖKU EFTIR BRIAN FRIEL LEIKSTJÓRI: GUÐJÓN PEDERSEN ★ Dansað á haustvöku er hæg- gengt minningaleikrit, að hluta til leikið og að hluta til í frásagn- arformi. Til að byrja með virkar það sem raunsæisverk, en fljót- lega kemur í ljós að hér er um að ræða Ijóðræna túlkun á veru- leikanum sem þó, að mínu mati, nær aldrei því plani sem stefnt er að. Dansinn sjálfur og ýmsar tilvitnanir í heiðnar helgiathafn- ir (bæði írskar og afrískar) eru í raun aukaatriði, notuð til að skreyta þessa ævisögu og láta hana líta út fyrir að vera merki- legri og menningarlegri en hún er. Við sitjum og fylgjumst með lífsbaráttu fjölskyldu sögu- mannsins í rúmlega tvær klukkustundir, en í lokin er gert ráð fyrir að renni upp fyrir okk- ur að það er hvorki atburðarásin né sýnilegu dansarnir sem hann vildi leggja áherslu á, heldur ein- hverskonar seiðandi ímynd af dansi sem við sjáum ekki. En þegar sögumaðurinn kom loks- ins að þessu var það of seint fyr- ir mig. Ég hafði þá enga löngun til að endurskoða leikritið frá þessu sjónarhomi. Annað vandamál við þetta leikrit (eins og flest leikrit sem notast við sögumann) er að áhorfandinn þarf að horfa á at- burðarásina og hlusta á frásögn- ina til skiptis. I flestum tilfellum truflar sögumaður röð atburða án þess að bæta miklu við. Dansað á haustvöku er engin undantekning. Sögumaðurinn er að mestu leyti óþarfur og undir lokin beinlínis tilgerðar- legur. Það er greinilegt í síðustu ræðu hans að okkur er ekki treyst til að skilja boðskap verksins án aðstoðar hans. Ég vil taka það skýrt ffam að leikararnir stóðu sig mjög vel. Ragnheiður Steindórsdóttir var sérstaklega eftirminnileg sem Maggie (sífellt talandi) og Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir ekki síð- ur áhrifamikil sem Agnes (oftast hlédræg). Þessi tvö hlutverk eru það skemmtileg að ég fór að velta því fýrir mér hvort Brian Friel hefði ekki upphaflega ætlað að semja leikrit um aðeins þess- ar tvær systur, en ekki um dans eða haustvöku. Sem sagt, það voru ekki leikararnir sem brugðust heldur verkið sjálft. Síðan Dansað á haustvöku var frumsýnt hef ég rætt við nokkra sem eru ósammála mér og sumum þeirra líkaði leikritið mjög vel, jafnvel á þeim for- sendum sem mér líkaði það illa. Þótt það sé kannski smekksat- riði hvort leikrit af þessu tagi heillar mann eða ekki hlýtur það að þýða eitthvað að nokkrir tug- ir leikhúsgesta fóru út í hléi. Það er spaugilegt að stórt Marconi- útvarpstæki (sem er eitt aðal- tákn verksins) skuli vera á miðju sviðinu allan tímann vegna þess að Dansað á haustvöku gæti ver- ið skemmtilegra sem útvarps- leikrit. Þar hefði sögumaðurinn tilgang og þar gæti hlustandinn ímyndað sér þann ósýnilega dans sem höfundurinn vildi leggja svo mikla áherslu á. „ Við sitjum ogfylgj- umst með lífsbaráttu fjölskyldu sögumanns- ins í rúmlega tvcer klukkustundir og í lok- in ergert ráðfyrir að renni uppfyrir okkur að það er hvorki at- burðarásin né sýnilegu dansarnir sem hann vildi leggja áherslu á, heldur einhverskonar seiðandi ímynd af dansi sem við sjáum ekki. “ : ,// ■ £ Vf , Guðrún Gísladóttir „Því miður fáum við leikarar sjaldnast tækifæri til að velja okkur hlutverk," segir Guðrún Gísla- dóttir, engu að síð- ur ánægð með hlut- verk sitt í Dauðan- um og stúlkunni sem frumsýnt verð- ur á litla sviði Borg- arleikhússins 7 7. mars. Mannréttinda- og spennuverk Guðrún Gísladóttir er ein þriggja leikara sem fara með hlutverk í leikritinu Dauðanum og stúlkunni sem frumsýnt verður á litla sviði Borgarleik- hússins 11. mars. Leikritið fjallar um konu sem var pyntuð á tím- um herforingjastjórnarinnar í Chile. Fimmtán árum eftir pynt- ingarnar er lýst viðbrögðum hennar er hún nær á vald sitt manni sem hún telur vera kval- ara sinn. Athygli vekur að Guðrún, sem fer með hlutverk ofan- greindrar konu, virðist nær ein- göngu leika í miklum átakaverk- um, samanber leikritin Ég heiti ísbjörg - ég er ljón, sem sýnt var á Smíðaverkstæði Þjóðleikhúss- ins á síðasta leikári, og Tékov- leikritin í vetur í Borgarleikhús- inu. Velurðu sjálf úr hlutverkum? „Nei, því miður fáum við leik- arar sjaldnast tækifæri til að velja okkur hlutverk. Leikari getur þó valið sér hlutverk þegar hann er lausráðinn, en maður velur ekki annað en það sem boðið er upp á! Ég er fastráðin í Borgarleildiúsinu en var í fríi í fyrra þegar ég lék í fsbjörgu í Þjóðleikhúsinu." Reynir hlutverk þitt í Dauð- anum og stúlkuimi einnig mik- ið á? „Já, það gerir það. Leikritið er í senn mannréttinda- og spennuverk. Það má segja að hlutverkið sem ég fer með sé sterkast í verkinu." Auk Guðrúnar leika í Dauð- anum og stúlkunni þeir Valdi- mar Örn Flygenring og Þor- steinn Gunnarsson, en leikstjóri verksins er Páll Baldvin Bald- vinsson. Höfundur er Chilebú- inn Ariel Dorfman, sem hingað til hefur ekki lagt í vana sinn að skrifa leikrit en vakti engu að síður mikla athygli fyrir þetta verk, sem ffumflutt var haustið 1990 og hefur sópað að sér verð- launum. „Leikritið er mjög gott og vel skrifað, og að auki hefur verið mjög gott að vinna með Páli Baldvini. Undirbúningur verksins hefur verið hinn ánægjulegasti." MYNDLIST Táknkrot GUÐJÓN BJARNASON HAFNARBORG Fítonskrafturinn leyndi sér ekki í tveimur síðustu sýning- um Guðjóns Bjarnasonar á Kjarvalsstöðum og í Menning- arstofnun Bandaríkjanna, en Guðjón hafði verið við nám í New York og þar þarf að hafa hátt til að eftir manni sé tekið. En á sýningunni í Hafnarborg hefur heldur hægst um, enda þarf ekki að hafa eins hátt hér til að ná athygli, nægir oft að hvísla. Á sýningunni eru verk unnin á pappír og í járn. Meg- inverkið er röð hundrað teikn- inga sem mynda nokkurs kon- ar „múral“ á einum veggnum. í hverri mynd eru nokkrar línur sem líkjast tákni. Teikningarn- ar eru reyndar einþrykk, því Guðjón dró fyrst línurnar með prentbleki, þrykkti síðan papp- írsörk ofan á, sneri henni við og lagði yfir, þannig að grillir að- eins í upprunalegu teikninguna í gegnum pappírinn undir þrykkinu. Á gólfinu fyrir ffam- an myndvegginn eru stórir járnskúlptúrar sem eru smíð- aðir eftir teikningunum, úr sverum ferhyrndum járn- strendingum. Á samskeytun- um hefur Guðjón logskorið urmul lítilla táknkrota sem svipar til þeirra sem eru á teikn- ingunum. Járnbútarnir sem til falla eftir logskurðinn liggja svo í hrúgu í litlu herbergi inn af sýningarsalnum og bíða þess að verða fyrirmyndir að nýjum teikningum, sem aftur bíða þess að verða fyrirmyndir enn annarra skúlptúra. Þannig hugsar Guðjón sér sýninguna sem táknræna mynd af hring- rás sköpunarferlisins, þar sem saman fara uppbygging og nið- urbrot, sköpun og eyðing. Þar með eru ekki öll verk á sýning- unni upp talin, en þau falla að heildarsvip sýningarinnar. Jafnhliða myndlistinni nam „Hugmynd ogform eiga enn eftir að smella saman hjá Guðjóni. í myndlist er | ekki nóg að hægt sé að felia hugmynd aðform- rœnni útfœrslu, hún verð- úr aðþvinga hanafram. Hugmynd og útfœrsla ar verða aðfalla svo aman að hvoruggeti á hinnar verið. “ Guðjón byggingarlist og hefur myndlist hans þar auðugt forðabúr til að nærast á. Mynd- tilfmning arkitektsins er ekki langt undan. Teikningarnar líkjast brotum af grunnmynd- um eða uppdráttum af rústum, enda eru allar línur hornréttar. Strendingarnir liggja hornrétt hver við annan í sama plani, sem gefur skúlptúrunum sér- kennilegan svip, því þeir eru eiginlega í tvívídd. Samt hefur augað ekkert áþreifanlegt til að leita eftir, formin eru handa- hófskennd og brotakennd og virðast ekki búa yfír neinu leyndarmáli. Metnaðarfullar hugmyndir búa að baki en þær ná ekki að brenna mark sitt á myndimar. Hugmynd og form eiga enn eft- ir að smella saman hjá Guðjóni. I myndlist er ekki nóg að hægt sé að fella hugmynd að form- rænni útfærslu, hún verður að þvinga hana fram. Hugmynd og útfærsla hennar verða að falla svo vel saman að hvorug geti án hinnar verið. Verkin draga dám af formtilfmningu og vinnubrögðum abstraktlist- ar, en hugurinn stendur til ann- ars. Það er erfitt að átta sig á hvert ferðinni er heitið enn sem komið er. En fyrirheitin eru til staðar.

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.