Pressan - 04.03.1993, Side 27

Pressan - 04.03.1993, Side 27
STÓRSTI RN I í HAFNARFJÖRÐ 1 Fimmtudagurinn 4. mars 1993 PRESSAN 27 0 i « POPP FIMMTUDAGUR | LAUGARDAGUR | 4. MARS 6. MARS • Boltarnir eru lausleg þýð- ing á nafni hljómsveitarinnar Rolling Stones, enda miklir aðdáendur þeirra hér á ferð. Helgi Björns og fáeinir aðrir Rolling Stones-aðdáendur flagga tungunni í heila stöng á Gauk á Stöng í kvöld og drekka Jack Daniels. • Reggae on lce er fyrsta ís- lenska reggae-hljómsveitin og kom í fyrsta sinn fram á Plúsnum fyrir skömmu. Hún endurtekur leikinn á sama stað í kvöld. Hljómsveitin þykir vel skapleg, enda for- sprakki hennar innfæddur Jamaicabúi með seiðandi reggaetakt og íslenskan ríkis- borgararétt. • Jökulsveitin stígur á svið í Hressó í kvöld. Félagar henn- ar eru þeir Ásgeir Ásgeirsson gítar, Georg Bjarnason bassi, Finnur Júlíusson Hammond, Baldvin Sigurðsson tromma og Margrét Sigurðardóttir blúsrödd. • Skytturnar eru hljómsveit sem kemur saman einu sinni á ári til þess eins að halda upp á afmælið sitt á Fógetan- um. Þeir verða þriggja ára um helgina, kapparnir, sem sam- ankomnir eru frá Húsavík, Ak- ureyri og Reykjavík. • Tríó Biörns Thoroddsen leikur á Operudjasshátíðinni í minningu Guðmundar Ing- ólfssonar ásamt James Olsen á Café Romance í kvöld. FOSTU DAGUR 5. MARS • SSSól hefur verið í dágóðu fríi frá Reykjavík að undan- förnu. Þeir munu heldur bet- ur bæta úr því á Tveimur vin- um í kvöld, svo ekki sé meira sagt. • Blúsmenn Andreu eru allt færirtónlistarmenn, ekki síst Andrea Gylfadóttir sjálf. Þau tóna á Plúsnum. • Haraldur Reynisson Fóg- eti á Trúbadornum. • Bjössi greifi er nýr trúba- dor þótt hann sé síður en svo ókunnugur bransanum, en hann átti sæti í Greifunum á meðan þeir voru og hétu, en er nú í firðinum Hafnarfirði. • Björgvin Halldórsson og hin óborganlega Lolla í hlut- verki Bjarkar Guðmundsdótt- ur, Hjálmar sem Bubbi Mort- hens og Laddi sem KK í Sögu- spéi á Hótel Sögu. • Nýdönsk tekur sæti SSSól- ará laugardagskvöld á Tveimur vinum. Eftir dúndur- fjör með þeim hárskertum á Ingólfscafé fyrir hálfum mán- uði má vænta mikils af þeim í kvöld. • Blúsmenn Andreu endur- taka leikinn á Plúsnum í kvöld. • Haraldur Reynisson trúbador, sem kom fram í Lit- rófi á dögunum, heldur and- liti Fógetans fram á sunnu- dag. • Stjórnin bregður undir sig betri fætinum og spilar í menningarbænum Hafnar- firði í kvöld fyrir Guðmund Árna og félaga. • Geirmundur Valtýsson heldur uppteknum hætti og rifjar upp 20 lög á Hótel ís- landi í kvöld. Bráðum tekur Helga Möller lagið með hon- um. • Björgvin Halldórsson og Sögusýningin í kvöld með Halla, Ladda, Lollu og Hjálm- ari Dalvíkingi. SUNNUDAGUR 7. MARS • Haraldur Reynisson, hinn snjalli trúbador, á Fógetan- um. • Svartur pipar; ergó Mar- grét Eir og Hafnfirðingarnir, en hreint ágætur þrátt fyrir það. Á Gauknum í kvöld. • Karl Möller og Linda Wal- ker leika og syngja á Café Ro- mance á hátíð í minningu Guðmundar Ingólfssonar. SVEITABÖLL FOSTUDAGUR 5. MARS • Hótel Borgarnes verður með landshornaflakkarana Vini Dóra á sínum snærum. LAUGARDAGUR 6. MARS • Sjallinn á Akureyri heldur uppi heilmikilli dagskrá alla helgina, enda frumsýning á söngleiknum Evítu í kvöld. Rokkbandið skemmtir á efri hæðinni og Hermann Arason á þeirri neðri. • Hótel Akranes verður með Stjórnina íkvöld. • Hótel Stykkishólmur: Laugardagsstemmning með Vinum Dóra. • Sjallinn á Akureyri heldur sama takti í kvöld og sýnir Ev- ítu í annað sinn, fær Skriðjökl- ana af stað og Hermann Ára- son í undirheimana. '3 U2 líkleg en IMigel Kenn öruggur PRESSAN hefur öruggar heimildir fyrir því að unnið sé að því að fá írsku stórhljómsveitina U2, með poppstirn- ið Bono í fararbroddi, til að halda tón- leika í Kaplakrika á vegum Listahátíð- ar Hafnarfjarðar, sem fram fer dagana 5. til 30. júní. Af vinsældum U2 að dæma — hún er nú talin vinsælasta rokkhljómsveit heims — verður sleg- ist um miða á tónleikana, en Kapla- kriki rúmar í mesta lagi fimm þúsund manns. Þá má geta þess að þegar er búið að bóka fiðlusnillinginn Nigel Kennedy í Kaplakrikann þann 30. júru'. Sverrir Ólafsson, myndhöggvari og formaður Listahátíðar Hafnarfjarðar, vildi hvorki játa né neita spurning- unni um hvort búið væri að bóka U2 á listahátíðina. „Mér þykir þið fiskin,“ var það eina sem Sverrir vildi um málið segja. „Við viljum halda sumu leyndu aðeins lengur, en dagskráin er nærri fullgerð; 90% hennar eru ffá- gengin." U2 er fjögurra manna stórrokksveit og sú eftirsóttasta í heimi í dag. Tón- leikar hennar eru svo háværir og sterkir, að ef af tónleikunum í Hafnar- firði verður má búast við að ómur af þeim heyrist alla leið austur á Selfoss, ef ekki lengra. Auk Bono skipa U2 þeir Larry og Adman og fyr sem kallar sig The Edge, en umboðsmaður hljómsveit- arinnar er Paul MacGuinness sem þykir hafa haldið afar vel utan um sveitina og fjármál hennar. Ólíkt öðr- um böndum á U2 réttinn að öllum plötum sem hún hefur gefið út og allri annarri útgáfustarfsemi tengdri hljómsveitinni. Aðalmarkmið þeira félaga er að selja sig ekki styrktaraðil- um. U2 hefur haldist saman allar götur síðan 1976 og sent frá sér ótal ódauð- legar ballöður eins og Pride, One, Where the Streets Have no Name og I Still Haven’t Found What Tm Look- ing for. Plötusala þeirra fer nú að nálgast fjörutíu og þrjú milljón stykki. Þið í Hafnatfirði eruð búniraðfá Nigel Kennedy til liðs viðykkur, hvemiggekk þaðjýrir sig? „Það gekk ekki vel. Ég er búinn að reyna mikið að ná til hans í tvö ár og það gekk loks upp fyrir hálfum mán- uði. Hann er sérvitringur sem spilar ekki fyrir hvern sem er. Eftir að hann ákvað að koma til Islands hafa margir erlendir umboðsaðilar hringt í mig og spurt hvernig við fórum að því að ná til hans.“ Nigel Kennedy er senniiega þekkt- astur fyrir túlkun sína á Árstíðunum eftir Vivaldi, en túlkun hans á því verki hefur bæði hneykslað og hrifið. Hann nær þó tii mun breiðari hóps en flestir aðrir klassfskir fiðluleikarar, því hann hefur fengið unga fólkið til að meta verk gömlu meistaranna. Rætur Kennedys liggja hins vegar í pönkinu og hann státar af því að vera fyrsti klassíski rokkarinn. Hann mæt- ir gjarnan íklæddur gallabuxum og leðurjakka með pönkhárgreiðslu á tónleika með virðulegustu sinfóníu- hljómsveitum heims. Margir segja hann færasta fiðluleikara allra tíma. Á tónleikana í Hafnarfirði mætir hann með eigin hljómsveit og á pró- gramminu eru meðal annars Jimi Hendrix-lög. Margt annað forvitnilegt verður á hafnfirsku listahátíðinni, þar á meðal klassískur gítarleikari ffá Kúbu að nafhi Manuel Barucco. Hann þykir einn færasti klassíski gítarleikari heims og heldur tónleika 10. júní. „Listahátíð Hafnarfjarðar, sem nú er haldin í annað sinn, verður síst minni í sniðum en Listahá- tíð Reykjavfkur, en við höfum tekið annan pól í hæðina, til dæmis með því að láta einnig semja fyrir okkur verk gagngert fyrir hátíð- ina. Finnur Torfi Stef- ánsson (bróðir Guð- mundar Árna) er að leggja síðustu hönd á óperu sem nefh ist Leggur og skel og verður frum- flutt á hátíð- inni, ogþrjú nýtónverk eftir þá Atla Ingólfsson, Hjálmar H. Ragn- arsson og Sergio Velaverða einnig frumflutt, að auki er Tryggvi Baldvinsson að semja balletttónlist. Þá mun myndlistarmaður að nafni Peter Malinski sýna verk sín, en hann gerir ógnarstóra flugdreka — allt að hundrað metra langa — sem fljúga munu yfir Hafnarfirði, og tríó frá Tékkóslóvakíu heldur tónleika, svo fátt eitt sé talið,“ sagði Sverrir Ólafs- son, formaður Listahátíðar Hafhar- fjarðar, að lokum. Ouðrún Kristjánsdóttir Bono heldur hér utan um eina þekktustu fyrirsœtu heims, Christy Turlington. Ef að líkum lœtur munu og aðrir meðlim- ir hljómsveitarinnar U2 bregða sér til til að halda þar tón- ika íjúní- mánuði. Margir telja Nigel Kennedy einn mesta fiðlusnilling allra tíma. Hann heldurásamt hljómsveit sinni tónleika í Kaplakrika í Hafnarfirði 30. júní. BARIR Hvar er hierbas? • Að þessu sinni nennir drykkjumaður PRESSUNNAR ekki að skrifa um eiginlega bari, heldur ætlar hann að gera kaffihúsum borgarinn- ar nokkur skil. Síðastliðin ár hefur nefnilega færst i vöxt að á kaffihúsum sé afgreitt áfengi og sú siða hefði reyndar mátt vera löngu upp tekin. Mokka — Nestor konungur reyk- viskra kaffihúsa — erþó enn laus við áfengi, enda hallast drykkjumaðurinn að þvi að staðinn myndi setja niður ef til þess ráðs yrði tekið. Önn- urmikilvæg undantekning er kaffihúsið i Ráðhúsinu, en þar held ég hins vegar að áfengisveitingaryrðu mjög til bóta, þrátt fyrir að kaffi- húsið sé öldungis ágætt eins og er. Café au lait niðri í Hafnarstræti er ágætt dæmi um kaffihús með rétta stefnu í áfengismálum fyrir utan það að vera frábært kaffihús svona al- mennt. Þær veigar, sem boð ið er upp á, eru nefnilega fyrst og fremst kaffidrykkir: koniök, líkjörar og þess háttar. Fremstir meðal jafningja eru þó Miðjcrð- arhafsdrykkirnir, sem segja má að séu sérstaklega fram- leiddir til samneytis við kaffi: Galliano, Sambvca, jafnvel Pernod og fjöldi ann- arra. Hins vegar verður að harma það að úrvalið er ekki mikið hér á landi. Jafn- mikið og úrvalið er til dæmis afkoniökum sætir furðu hversu fáir drykkir til með- lætis kaffi eru fluttir inn. Flóra þessara drykkja er óvenjuauðug og sérstaklega eru það hinir sætvínsdrekk- andi iðnir við framleiðslu þeirra. Anísdrykkir ýmiskonar eru framleiddir við allt Miðjarð- arhaf: absinta, hierbas, ouzo og svo framvegis, en þeir fást nær engirhér. Sem er hábölvað, þvi drykkir af þessu tagi eru nánast jafn- nauðsynlegir góðu kaffihúsi og misheppnuð skáld. Ýmis veitingahús sérpanta vin og brennda drykki alls konar. Hverju er kaffihúsunum vandara að gera slikt ið sama? Listahátíð Hafnarfjarðar í sumar

x

Pressan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.