Pressan - 01.04.1993, Síða 17
\
mmtudagurinn 1. apríl 1993
S K I LA BOÐ
PRESSAN 1 7
HALLDÓR
HALLDÓRSSON
FELLDURÚTÚR
SIÐANEFND...
Mótframboð kom fram
íp ) gegn tilnethingu stjórn-
ar Blaðamannafélags-
ins í siðanefhd félagsins á aðal-
fundi þess á fimmtudaginn var.
Á lista stjórnarinnar var Þor-
steinn Gylfason heimspeking-
ur formannsefhi, Halldór Hall-
dórsson, fyrrum ritstjóri Helg-
arpóstsins, varaformannsefni og
Hjörtur Gíslason, blaðamaður
á Mogga, tilnefndur sem þriðji
fulltrúi blaðamanna. Tilnefhdir
sem varamenn stjómar vom Jó-
hanna Sigþórsdóttir á DV,
Jón Birgir Pétursson á Al-
þýðublaðinu og Jón G. Hauks-
son, ritstjóri Fijálsrar verslunar.
Vilhelm G. Kristinsson,
fréttamaður á Ríkissjónvarpinu
og fráfarandi formaður siða-
nefndar, var ekki í framboði.
Kandídatar mótframboðsins
voru Eiríkur Tómasson
hæstaréttarlögmaður sem for-
maður, Mörður Ámason, fyrr-
um ritstjóri Þjóðviljans, sem
varaformaður og síðan Ólafur
E. Friðriksson, fyrrum frétta-
maður á Stöð 2, Guðjón Am-
grímsson, sömuleiðis fyrmm
fréttamaður á Stöð 2, Atli Rún-
ar Halldórsson, fréttamaður á
Ríkisútvarpinu, og Jónas Frið-
rik Jónsson lögffæðingur.
Kosningin milli formannskand-
ídatanna varð söguleg, því þeir
fengu jafnmörg atkvæði. Þá var
kosið aftur og höfðu þá tveir
fundarmanna skipt um skoðun,
þannig að Þorsteinn var kosinn
formaður með fjögurra atkvæða
mun. Mörður felldi síðan Hall-
dór sem varaformann en Hjört-
ur Gíslason hélt sínu sæti. Þegar
kom að kosningu varamanna
var framboð þeirra Atla Rúnars
og Jónasar Friðriks dregið til
baka. Frambjóðendur mótffam-
boðsins, þeir Guðjón og Ólafur
E., náðu báðir kjöri ásamt Jóhönnu.
Á fundinum var hart deilt um störf
siðanefndar á undanförnum árum,
sakir þess meðal annars að nefndin
hefur dæmt blaðamenn án þess að gefa
þeim kost á að veija sig. Ef marka má
niðurstöður kosninganna hafa fundar-
menn talið nægjanlega bót á siða-
nefridinni að fella Halldór Halldórsson
úr nefndinni ásamt varamönnunum
tveimur, Jóni G. og Jóni Birgi.
HAFNARSTRÆTI15
REYKJAVÍK SÍMI13340
AÐHALDADV...
Blaðamönnum á DV hefur nú
nánast verið bannað að vinna
yfirvinnu. Það er liður í að-
haldsaðgerðum þeirra Harðar Ein-
arssonar framkvæmdastjóra og
Sveins Eyjólfssonar stjórnarfor-
manns. Blaðamönnum bregður
ábyggilega nokkuð við þessi tíðindi,
því allt síðasta ár voru þeir frekar
hvattir en lattir til að vinna yfirvinnu.
Ástæða þess mun hafa legið í niður-
stöðum Gallup-kannana sem sýndu að
DV var komið rétt á hæla Moggans í
útbreiðslu, einkum meðal yngri les-
enda. Niðurskurður á yfirvinnu nú
bendir til að þeir
Hörður og Sveinn
hafi beygt metn-
að sinn undir
raunveruleikann
eins og hann birt-
ist í ársreikningi
síðasta árs.
VIGDÍS í KJARABARÁTTU
KENNARA...
* nýjasta hefti Nýrra mennta-
WFj mála, sem Bandalag kennara-
féiaga gefur út, er viðtal við
Vigdísi Finnbogadóttur, forseta ís-
lands. Þar leggur hún kennurum lið í
kjarabaráttunni. Hún segir meðal ann-
ars: „Laun kennara eru þjóðinni til
vansa. Kennarastarfið á að vera eftir-
sóknarvert af bestu fáanlegum mönn-
um, í því felst þjóðarhagurinn sjálfur.
Kennarar eiga að vera mjög vel launað-
ir, störf þeirra eru meðal þeirra mikil-
vægustu í þjóðfélaginu, vinnu þeirra
VERÐ AÐ FÁ ÞAÐ
ber að sýna virðingu.“ Miðað við horf-
ur í kjarasamningum er ekki líklegt að
þessi stuðningsyfirlýsing forsetans
skipti sköpum um árangur samninga-
nefrida kennara. Það hlýtur hins vegar
að vera skemmtilegt fyrir samnings-
menn þeirra að hafa forsetann í sínu
liði á móti fjármálaráðherranum og
hans fólki.
/ / / /
BILALEIGUBILL I EINN SOLARHRING
INNIFALDIR 100 KM OG VSK
HLAÐBREKKU 2, SÍMI: 91-43300, FAX: 91-42837, V/BSÍ, SÍMI: 91-17570
Nýr Favorít
Ekki bara betrí, heldur 548 sinnum betri!
Favorit LXi hlaðbakur kostar aðeins kr. 598.000.- ó götuna!
Nýr og endurbættur Favorit hefur nú litið
dagsins Ijós. Eftir að Skoda verksmiðjurnar
sameinuðust Volkswagen samsteypunni hafa
þýskir tækni- og hugvitsmenn lagt nótt við
dag. Útkoman er glæsilegur fimm dyra
hlaðbakur, sem státar af 548 endurbótum,
stórum sem smáum.
Favorit er nú framleiddur samkvæmt
kröfum og stöðlum Volkswagen, sem tryggja
meiri gæði, aukið öryggi og betri endingu.
Vélin er með hvarfakút og tölvustýrðri
Bosch Motronic innspýtingu og kveikju, sem
er viðhaldsfrí og dregur úr bensíneyðslu. í
hurðum eru styrktarbitar, og innréttingar
eru nýjar. Það sama gildir um bremsukerfið,
rafkerfið og margt, margt fleira.
Hinir fjölmörgu aðdáendur Favorit hafa
því fengið 548 nýjar ástæður til þess að velja
þennan vinsæla bíl. Og er þá ein ótalin:
Nefnilega verðið!
Nýr framhjóladrifinn Favorit LXi, 5 dyra
og 5 gíra kostar kr. 598.000.- á götuna, og
fæst í 9 spennandi og frískum litum.
Komdu og reynsluaktu nýjum Favorit.
Söludeild Jöfurs er opin virka daga 9-18 og
laugardaga 12-16.
Aukabúnaður á mynd: 15" áffelgur.
Nýbýlavegur 2, Kópavogur, sími 42600.