Pressan - 29.04.1993, Qupperneq 6
F R E TT I R
6 PRESSAN
Fimmtudagurinn 29. apríl 1993
MENN
•o
1
s
Guðmundur Magnússon þjóðminjavörður
Árni Magnússon okkar tíma
Þar fór það. Nú á íslenska
þjóðin enga báta. Ekki nema þá
sem úreldingarsjóður kaupir.
En fornbátar Þjóðminjasaíhsins
eru fuðraðir upp. Guðmundur
Magnússon þjóðminjavörður
sagði að það væri mesta tjón
sem orðið hefði í samanlagðri
fomminjasögu þjóðarinnar síð-
an handritin brunnu í Kaup-
mannahöfn.
Ja hérna hér. Ég sem vissi
ekki einu sinni að þessir bátar
væm til. Og á þar af leiðandi erf-
itt með að sakna þeirra. Ég held
líka að þeir á Þjóðminjasafninu
sakni þeirra heldur eldcert sér-
staklega. En nú veit ég að margt
er líkt með þeim Árna og Guð-
mundi.
Handritin í Kaupmannahöfn
brunnu áður en brunavarnir
voru fundnar upp. Þau brunnu
líka áður en almennilegar trygg-
ingar komust á laggirnar. Ef
handritin væru enn til og ef
Árni Magnússon væri enn á
meðal okkar er ég viss um að
hann mundi kaupa reykskynj-
ara í bókasafnið sitt. Og tryggja
síðan bækurnar — því hann
mundi vita að maður tryggir
ekki eftir á.
Guðmundur og þeir á Þjóð-
minjasafninu vita að maður
tryggir ekki eftir á. Þeir vita líka
að maður setur upp reykskynj-
ara þar sem barnið manns sefúr
og yfirleitt allsstaðar þar sem
eitthvað er sem manni er kært.
Það var því ekki sökum fáffæði
að þeir geymdu bátana sína í
gólflausum skúr án nokkurra
eldvarna. Þeir hafa einfaldlega
ekki séð neitt sérstakt verðmæti
í þessum bátum. Og þeim hefúr
ekki þótt vænt um þá.
Ogégskilþável.
Ég skammast mín ekki um-
fram aðra fyrir að vera íslend-
ingur. Ég er þokkalega ánægður
með sögu þjóðarinnar, landið
mitt, Vigdísi, Kristján og allt
það. En mér mundi aldrei detta
í hug að gerast fornleifaffæðing-
ur. Þótt saga hvíta mannsins í
Ameríku sé ekki nema 500 ára
gömul hafa þarlendir fornleifa-
fræðingar þó índíánaminjarnar
að grafa eftir og stilla upp á
söfnum. Sama er að segja um
hvíta Ástrala. Við höfum hins
vegar ekkert nerna Stöng og bæ-
„Það varþví ekki sökum fáfrœði aðþeir
geymdu bátana sína ígólflausum skúr án
nokkurra eldvarna. Þeir hafa einfaldlega
ekki séð neitt sérstakt verðmœti íþessum
bátum. Ogþeim hefur ekkiþótt vœnt um
þá.“
inn hans Ingólfs sem aldrei
finnst. Þess vegna hafa safn-
verðir gripið til þess ráðs að
grafa í geymslunni hjá sér og
halda sýningu á hippadótinu
sem hékk uppi í herberginu
þeirra meðan þeir voru í
menntó. Eða lappa upp á gamla
Willys-jeppa og Bátalóns-báta.
En þótt þetta skaffi safúvörðun-
um atvinnu þá fá þeir engan til
að líta á þessi ósköp sem minj-
ar.
Það sem bruninn í Kópavogi
segir okkur er að okkur er and-
skotans sama um þessar minjar
um mannvist á tuttugustu öld.
Meira að segja fólkið sem vinn-
ur við að vernda þær tímir ekki
að kaupa reykskynjara í skúrinn
yfir þær. Það tfmir ekki einu
sinni að hafa gólf í skúrnum. Og
ef ekki væri reykur þar sem er
eldur, þá hefði Guðmundur
ekki áttað sig á að bátarnir væru
brunnir. Og það hefði enginn
rukkað hann um þá.
Bátarnir eru í raun verðmæt-
ari eftir að þeir brunnu. Alveg
eins og handritin sem brunnu í
Kaupmannahöfn eru einhvern
veginn rómantískari en þau
sem bjargað var.
ÁS
Heimsfrœgur sjáandi umframtíð íslandsfyrirþremur árum
Svartir tímar vegna
ákvarðana misviturra
manna
Sumarið 1990, árið áður en
núverandi ríkisstjórn íslands
tók við stjórnartaumunum,
nokkru áður en slæmt efna-
hagsástand landsins var upp-
götvað (eða gert opinbert), um
það bil ári áður en orðið böl-
móður varð á allra vörum,
þremur árum áður en allir fóru
að tala um einkavinavæðingu
og enginn átti sér yfirleitt neins
ills von í íslensku þjóðfélagi
birtist á síðum Morgunblaðsins
viðtal við mann að nafúi Marc-
elus Toe Gour, besta vin Sal-
vadors Dalí, sem spáði um
framtíð Islands. Hann hefur
verið nefndur Nostradamus
tuttugustu aldarinnar.
Einn frægasti spádómur Toe
Gour var spádómur hans um
banatilræðið við páfa. Sjálfur
VARIST SEGA-EFTIR-
LÍKINGAR...
Skærur eru líklegar í
hinum ört stækkandi
tölvuleikjabransa. JAP-
ÍS, sem nýverið tók við SEGA-
leikjaumboðinu hér á landi,
hefur sent SEGA í Japan sýnis-
horn af SEGA-leikjum sem hafa
verið á boðstólum hjá Tölvulist-
anum og í
Tölvulandi.
Þessir leikir
eru einungis
afrit af upprunalegum leikjum.
Það er ólöglegt að selja og eiga
þessar sjóræningjaútgáfur og
þar fýrir utan er mikil óvissa
um gæði leikjanna og ffamtíð-
arstækkun þeirra þar eð inn-
volsið er ekki ekta. Þekkja má
þessa gallagripi á því að hvergi
er að finna orðið SEGA á um-
búðum eða á leikjakubbnum.
Uppruna sjóræningjaleikjanna
má rekja til Austurlanda íjær.
hringdi hann í fréttastofuna
Gamma og tjáði þeim að páfi
gæti orðið fórnarlamb geðsjúk-
lings eða pólitísks öfgahóps.
Fréttastofan brá á það ráð að
senda frá sér spádóm þennan.
Spádómurinn setti heimspress-
una í vanda. Enginn þorði að
fjalla um hann uns tímarit í Kól-
ombíu tók af skarið. Tímaritið
kom út 12. maí. Aðeins átján
klukkustundum síðar varð um-
heimurinn þrumu lostinn; Jó-
hannes Páíl páfi annar hafði
orðið fyrir byssukúlu ofstækis-
manns.
Þá spáði Toe Gour því að
Ameríkumenn yrðu fyrstir til að
senda mannað geimfar til
tunglsins, fimm árum áður en
það var gert. Hann lýsti ferðinni
í smáatriðum; sagði m.a. að hún
yrði farin á dögum ljónsmerkis-
ins og að fýrirliði geimfaranna
yrði fæddur í ljónsmerkinu sem
kom heim og saman við raun-
veruleikann — Neil Arm-
strong var fæddur í ljónsmerk-
inu og tunglferð Appollós var
farin 29. júlí 1969, á dögum
ljónsins. Vegna nákvæmni hans
sá ameríska geimferðastofnun-
in, NASA, ástæðu til að senda
honum sérstakt viðurkenning-
ar- og þakkarbréf. Þessir og
fleiri nákvæmir spádómar Toe
Gour hafa vakið heimsathygli.
í viðtalinu sem birtist við
hann í Morgunblaðinu rýndi
hann í framtíð íslands. Sjálfsagt
hafa margir gleymt þessum spá-
dómi, enda í eðli manna að
gleyma því sem slæmt er en
muna hið góða. Sagðist Toe Go-
ur hafa miklar áhyggjur af ffarn-
tíð landsins. Honum fannst
jörðin titra undir fótum sér og
orðaði erfiðleikana myndrænt:
„Ég sé ljóshærða konu sem
stendur ein á ströndinni og
horfir yfir hafið. Himinninn er
eldrauður. Út við sjóndeildar-
hringinn hrannast upp kolsvört
ský sem stefna yfir landið. Ein-
VlGDÍS FlNNBOGADÓTTIR
Eftir að hún lætur afstarfi forseta ís-
lands bíður hennar starfsem að Vissu
leyti er þýðingarmeira en forsetastarf-
ið. Hún mun leiða þjóðina út úrþeim
erfiðleikatímum semnú eru að hefjast,
spáði Marcelus ToeGour fyrirþremur
árum; sjáandinn sem sagður er Nostr-
adamus tuttugustu aldarinnar.
staka sólargeisla tekst þó að
bijótast í gegnum skýjaþykknið.
Þið eigið erfiða tíma framund-
an.
Ég vildi gjarnan geta sagt já-
kvæða hluti um þjóð þína,“
sagði hann við blaðamanninn,
„en verð að segja sannleikann.
Framundan er erfitt tímabil en
því miður er stór hluti vandans
heimatilbúinn. Misvitrir menn
hafa tekið margar ákvarðanir í
mikilvægum málum.“
Ljóshærða konan á strönd-
inni mun eiga að vera forseti ís-
lands, Vigdís Finnbogadóttir.
„Framtíð hennar er mjög björt
og starf hennar rétt að hefjast.
Hún mun eiga stóran þátt í því
að leiða þjóðina út úr því erfið-
leikatímabili sem er að hefjast.
Ég sé mikinn sigur sem hún
vinnur fyrir sig og ísland.“
Marcelus Toe Gour sá Vigdísi
ekki vinna þennan sigur í starfi
forseta íslands — hún mundi
ekki eiga langt eftir í því starfi,
hennar biði annað og að vissu
leyti mun þýðingarmeira starf.
„Mikilvægur fundur verður
haldinn á Islandi varðandi um-
hverfismál. Ég sé einnig annan
fúnd í kringum stórt hringborð.
Þessi fundur verður sérstakur
að því leyti að aðeins konur eru
þátttakendur. Forseti ykkar
mun koma við sögu varðandi
umrædd fundahöld.“
ERTU ORÐINN SAMI SJÓÐASUKKARINN 0G HRAFN VINUR ÞINN, HANNES?
„Sómasamleg og heiðarleg vinna“
NAFN:
HANNES HÓLMSTEINN
GISSURARSON
ALDUR: 40 ÁRA
STAÐA: DÓSENT í
STJÓRNMÁLAFRÆÐI
Hannes Hólmsteinn sækir
nú um fé í sjóði Háskólans
fyrir bók sem Hitaveitan
borgaði honum fyrir að
skrifa og unnin var í vinnu-
tíma hans í Háskólanum.
„Ég legg engan dóm á við-
skipti Hrafns við sjóði. Það eina,
sem ég veit um eigin mál, er að
ég var fenginn til að skrifa bók
og gerði það, alveg ólíkt því þeg-
ar Ólafur Grímsson keypti
gagnabanka af vini sínum sem
reyndist einskis virði. Það er
sukk. Hitt er sómasamleg og
heiðarleg vinna.“
Þamafékkstu ritlaunfrá op-
inberufyrirtœki, skrifaðir
bókina í vinnunni hjá öðm
opinbemfyrirtœki ogertsvo
að sœkja um aukasporslur
hjá þvísamafyrirtceki út á
sömu vinnu.
„Háskólakennarar skrifa allar
sínar bækur í vinnutímanum og
langflestir fá ritlaun fyrir þær
annars staðar ffá. Það hefði ver-
ið stórkostleg yfirsjón ef Hita-
veitan hefði ekki minnst sextíu
ára afmælis síns með því að
UNDIR
ÖXINNI
HANNES
HÓLMSTEINN
SVARAR FYRIR
SJÓÐASUKKIÐ
styrkja ævisöguritun Jóns Þor-
lákssonar, sem átti hugmyndina
að Hitaveitunni og var vakinn
og sofinn í að koma henni fram
sem verkfræðingur og borgar-
stjóri."
Þýðir þetta ekki aðþú sért að
fá tvíborgaðfyrirsömu vinn-
una?
„Ég er ekki að fá tvíborgað
þegar ég fæ ritlaun annars stað-
ar fýrir verk mín, ekki frekar en
þú sem blaðamaður ert að fá
tvíborgað þegar þú vinnur yfir-
vinnu. Þið á PRESSUNNI ættuð
að hafa meiri áhyggjur af þeim
háskólakennurum sem vinna
ekki fyrir laununum sínum og
sinna ekki rannsóknarskyldu
sinni.“
Samt ertu aðfá borgað fyrir
vinnu sem þú vinnur á laun-
um hjá annarri stofnun.
„Nei, því með þeim rökum
mætti segja að háskólakennar-
ar, sem skrifa bækur eða greinar
í blöð eða tímarit, ættu ekki að
fá neitt greitt fyrir þau verk þar.
Það er auðvitað ffáleit skoðun."
Hefði ekki verið nærfyrir þig
að skrifa bók ogláta reyna á
verkið á markaði hugmynda
og vamings án afskipta opin-
berra stofnana?
„Ég sá enga ástæðu til að
neita að taka við þeim virðing-
arvotti sem Hitaveitan vildi
sýna frumkvöðli sínum. Við-
skipti mín og Húaveitunnar
voru báðum í hag. Á ég að neita
að selja PRESSUNNI efni þótt
ég sé off ósammála henni? Eða
Ríkisútvarpinu?“
Brýtur það samt ekki í bága
við lífsskoðanirþínar að
sækja alltþettafé í opinbera
sjóðifyrir verk þín?
„Með sömu rökum ætti ég að
heimta að borga fullt kostnað-
arverð fyrir aðgöngumiða að
Þjóðleikhúsinu, sem er miklu
meira en miðinn kostar, því
miðaverðið er niðurgreitt. Með
sömu rökum ætti ég að heimta
að borga miklu meira en upp-
sett verð fyrir mjólk og smjör
úti í búð, sem er stórkostlega
niðurgreitt. Aðalatriðið er þetta:
Ég get haft skoðun á kerfmu
þótt ég verði að lúta lögmálum
þess að mestu leyti.“
Þú ert líkaformaður Þýð-
ingasjóðs. Emfleiri skemmti-
legembætti innan kerfisins
sem þú gætir hugsað þér að
taka að þér?
„Ég er þeirrar skoðunar að
skattgreiðendur eigi sjálfir að
ráðstafa peningum sínum frem-
ur en að þeir séu teknir af þeim
og ráðstafað af fámennum
stjórnum sjóða. En á meðan
þessir sjóðir eru þarna og ég get
engu breytt um tilvist þeirra, þá
finnst mér á stundum eðlilegt
að gegna þeirri borgaralegu
skyldu minni að tryggja að ráð-
stöfún þeirra sé með sómasam-
legum hætti.“
Væri ekki nærað lýsa and-
stöðu þinni á táknrœnan hátt
með því að taka ekki þátt í
þessu?
„Þótt ég aðhyllist ffjálshyggju
þýðir það ekki að ég ætli að
segja mig úr lögum við hið
borgaralega þjóðfélag á íslandi."